Jutta Vajen skrifaði:
DAS SIEHT FANTASTISCH AUS
30.12.2015 - 10:19
Anja skrifaði:
Schönes lässiges Shirt mit feinem Muster. Bestimmt eine Freude beim stricken.
12.12.2015 - 23:15
Jette Carstad skrifaði:
Rigtig pæn og tidsløs
12.12.2015 - 11:19
Clara skrifaði:
¡¡Precioso!! Espero que tengamos pronto el patrón, ya estoy deseando tejerlo, ¡¡¡me encanta!!!
12.12.2015 - 10:28
Gabriele skrifaði:
Auf diese Anleitung würde ich mich sehr freuen!
11.12.2015 - 19:53
Gabriele skrifaði:
Das Top ist schön - sicherlich auch in großen Größen.
11.12.2015 - 19:29
Eollya skrifaði:
Originale et raffinée
11.12.2015 - 12:53
Conny skrifaði:
Leuk patroon om mee te spelen.
10.12.2015 - 23:35
Caro skrifaði:
Ga ik zeker maken als dit patroon uitkomt, leuk topje voor de zomer!
10.12.2015 - 14:37
Doris skrifaði:
Lässiges Urlaubsoutfit!
10.12.2015 - 14:00
Woodstock#woodstocktop |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Belle með gatamynstri og a-formi, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 167-6 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. ÚTAUKNING-1: Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið (þ.e.a.s. í aftari lykkjubogann í stað fremri) til að koma í veg fyrir göt. ATH: Nýjar l eru prjónaðar jafnóðum í sléttprjóni. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki í hlið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið í hinni hliðinni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Það eiga að myndast göt! ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fyrst er prjónað fram- og bakstykki hvort fyrir sig, fram og til baka niður að handveg, síðan er prjónað áfram í hring. BAKSTYKKI: Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= við háls), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 l garðaprjón (= við handveg). Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf í sléttprjóni innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið. Í næstu umf er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við háls – LESIÐ ÚTAUKNING-1 17-18-18-19-21-21 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu og geymið stykkið. Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið er út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál í 5. hverri umf í sléttprjóni. Prjónið 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 35-35-37-37-39-39 nýjar l fyrir hálsmál, prjónið síðan 17-18-18-19-21-21 l frá hægri öxl inn á prjóninn = 69-71-73-75-81-81 l. Nýjar l sem fitjaðar voru upp fyrir hálsmáli eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf yfir þessar l er haldið áfram með 2 umf sléttprjón innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið nú mynstur í næstu umf frá réttu þannig (ATH: Byrjið í 13. umf í A.1-A.3, sjá stjörnu í mynstri): Prjónið 3 l garðaprjón, 2-3-4-5-0-0 l sléttprjón, A.1 (= 5 l), A.2 (= 16 l) 3-3-3-3-4-4 sinnum á breiddina, A.3 (= 6 l), 2-3-4-5-0-0 l sléttprjón, 3 l sléttprjón. A.1 - A.3 er endurtekið á hæðina til loka. Þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 cm frá uppfitjunarkanti er aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón í hvorri hlið fyrir handveg. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 2-4-6-9-11-16 sinnum til viðbótar = 75-81-87-95-105-115 l. Prjónið 1 umf til baka frá röngu eftir síðustu útaukningu og geymið stykkið. FRAMSTYKKI: Prjónið vinstri öxl þannig: Fitjið upp 16-17-17-18-20-20 l á hringprjóna nr 4,5 með Belle. Prjónið þannig (1. umf = rétta): 3 l garðaprjón (= við háls), prjónið 10-11-11-12-14-14 l sléttprjón, 3 l garðaprjón (= við handveg). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Haldið svona áfram, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7-8-7-8-8-9 cm er aukið út fyrir hálsmáli og þegar stykkið mælist 13-12-12-10-10-7 cm aukið út fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki! ATH: Í stærð XXXL byrjar útaukning fyrir handveg á undan útaukningu fyrir hálsmáli! ÚTAUKNING Í HÁLSMÁLI: Aukið út um 1 l innan við 3 l garðaprjón við hálsmál. Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu 4-4-5-5-6-6 sinnum til viðbótar = 5-5-6-6-7-7 l fleiri í hálsi. Þegar útaukningu er loki er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Geymið stykkið. Prjónið hægri öxl þannig: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og á vinstri öxl, nema spegilmynd. Þ.e.a.s. aukið út um 1 l á undan 3 l garðaprjón við hálsmál. Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir hálsmáli er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Snúið stykkinu og prjónið eins og áður yfir allar l. Í lok umf eru fitjaðar upp 27 nýjar l í öllum stærðum fyrir hálsmáli, síða eru prjónaðar allar l frá vinstri öxl inn á prjóninn. Haldið svona áfram fram og til baka (útaukning fyrir handveg heldur áfram) þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir nýjar l fyrir hálsmáli. Í næstu umf frá réttu er prjónað mynstur A.4 (= 27 l) yfir miðju 27 l á prjóni. ATH: A.4 er prjónað 1 sinni á hæðina, en mynstureiningin verður ekki tilbúin á hæðina fyrr en framstykki og bakstykki hafa verið sett saman og prjónað hefur verið í hring á framstykki og á bakstykki! Þegar öll útaukning fyrir handveg hefur verið gerð eru = 75-81-87-95-105-115 l á prjóni. Eftir síðustu útaukningu er prjónuð 1 umf til baka frá röngu. Snúið við og prjónið yfir allar l á framstykki, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar l fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 2-3-4-5-6-7 l hvoru megin við prjónamerki), prjónið inn 75-81-87-95-105-115 l frá bakstykki á sama hringprjóna, fitjið upp 4-6-8-10-12-14 nýjar l fyrir handveg, setjið eitt prjónamerki mitt á milli þessa nýju l (= 2-3-4-5-6-7 l hvoru megin við prjónamerki) = 158-174-190-210-234-258 l í umf. Byrjun umf er síðan eftir síðustu 4-6-8-10-12-14 nýju l sem fitjaðar voru upp. FRAMSTYKKI OG BAKSTYKKI: Stykkið er nú prjónað í hring á hringprjóna. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið nú áfram með mynstur þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni og mynstur eins og áður yfir næstu 69-75-81-89-99-109 l – ATH: Mynstur A.4 heldur áfram þar til öll mynstureiningin hefur verið prjónuð til loka 1 sinni á hæðina, prjónið síðan sléttprjón yfir allar l á framstykki, 10-12-14-16-18-20 l garðaprjón, sléttprjón yfir næstu 5-8-11-15-12-17 l, haldið áfram með mynstur A.1-A.3 eins og áður yfir næstu 59-59-59-59-75-75 l, 5-8-11-15-12-17 l sléttprjón, 7-9-11-13-15-17 l garðaprjón. Þegar prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir nýjar l fyrir handveg er haldið áfram í sléttprjóni yfir þessar l til loka. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 l fleiri í hvorri hlið á stykki – LESIÐ ÚTAUKING-2! Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf til loka. Þegar stykkið mælist 44-45-46-47-48-49 cm – passið uppá að enda eftir umf 10 eða 20 í mynstri A.1-A.3 – prjónið 1 umf sléttprjón. Nú eru ca 262-278-298-318-346-374 l í umf eftir því hvar endað sé í mynstri. Prjónið nú 4 umf garðaprjón. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið axlasauma með lykkjuspori. Passið uppá að saumurinn verði ekki of stífur. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #woodstocktop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 22 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 167-6
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.