DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Butterfly Heart

Prjónuð peysa úr DROPS Belle með gatamynstri og V-hálsmáli. Prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.

DROPS 170-3
DROPS Design: Mynstur nr vs-010
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BELLE frá Garnstudio
400-450-450-500-550-600 g nr 11, bleikfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN (60 cm) NR 3,5 – fyrir kant með garðaprjóni.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Belle
DROPS Belle
53% Bómull, 33% Viscose, 14% Hör
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5104.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.13. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð.

STUTTAR UMFERÐIR:
Þegar snúið er við í stuttum umferðum, takið fyrstu l óprjónaða. Herðið á þræði og passið uppá að það myndist ekki of stórt gat.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br til að koma í veg fyrir göt.

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um 1 l í byrjun umf þannig: Prjónið 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið um 1 l í lok umf þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir (meðtaldar 2 nýjar l sem prjónað er yfir í fyrsta skiptið), 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað frá miðju á v-hálsmáli og út í 3 þríhyrningum á framstykki og 4 þríhyrningum á bakstykki, síðan er prjónað niður úr.

FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka, frá hálsmáli og niður. Fitjið upp 8 l á hringprjóna nr 4 með Belle. Prjónið 1 umf slétt.
Í næstu umf er aukið út þannig: Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 1 l er eftir, endið á 1 l sl = 15 l á prjóni. Næsta umf er prjónuð þannig (= frá réttu): Uppslátturinn frá fyrri umf er prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, A.1, setjið 1. prjónamerki, A.1, setjið 2. prjónamerki, A.1 (= A.1 er endurtekið alls 3 sinnum í umf), endið á 3 l garðaprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 123-123-123-123-129-129 l í umf. Stykkið mælist ca 11-11-11-11-12-12 cm frá uppfitjunarkanti.

Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið A.2 yfir fyrstu 42-42-42-42-44-44 l, A.3 yfir næstu 39-39-39-39-41-41 l og A.4 yfir síðustu 42-42-42-42-44-44 l, eftir A.4 eru fitjaðar upp 8 l í lok umf fyrir öxl (sjá mynstur). Prjónið A.4 til A.2 til baka í næstu umf, eftir A.2 eru fitjaðar upp 8 l í lok umf fyrir öxl (sjá mynstur).

Þegar A.2 til A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 165-165-183-183-193-193 l í umf. Stykkið mælist ca 15-15-17-17-19-19 cm frá uppfitjunarkanti.

LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! PRJÓNIÐ MYNSTUR JAFNT SEM PRJÓNAÐAR ERU STUTTAR UMFERÐIR Í HVORRI HLIÐ Á STYKKI.
MYNSTUR:
Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 l garðaprjón, 48-48-52-52-55-55 l sléttprjón, A.5 yfir næstu 6 l, (prjónamerki), A.6 yfir næstu 6 l, 43-43-53-53-57-57 l sléttprjón, A.7 yfir næstu 6 l, (prjónamerki), A.8 yfir næstu 6 l, 48-48-52-52-55-55 l sléttprjón, endið á 1 l garðaprjón. Endurtakið A.5 til A.8 yfir 6 l hvoru megin við hvert prjónamerki alls 2-3-2-3-4-5 sinnum, síðan eru endurteknar fyrstu 0-0-6-4-4-4 umf af A.5 til A.8 1 sinni til viðbótar.
STUTTAR UMFERÐIR:
JAFNFRAMT þegar prjónaðar hafa verið 2-6-0-2-0-6 l af A.5 til A.8 eru prjónaðar STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan – í hvorri hlið á stykki þannig: Prjónið þar til eftir eru 26-26-24-23-18-18 l í umf (prjónið A.5 til A.8 eins og áður, snúið við og prjónið til baka þar til eftir eru 26-26-24-23-18-18 l, snúið við. Prjónið síðan stuttar umferðir mismunandi eftir stærðum þannig:
STÆRÐ M:
Prjónið yfir 6 l færri í hvert skipti sem snúið er við 2 sinnum í hvorri hlið á stykki.
STÆRÐ L-XL:
Prjónið yfir 6 l færri í hvert skipti sem snúið er við 1-2 sinnum í hvorri hlið á stykki, prjónið síðan yfir 4 l færri í hvert skipti sem snúið er við 3-2 sinnum í hvorri hlið á stykki.
STÆRÐ XXL-XXXL:
Prjónið yfir 6 l færri í hvert skipti sem snúið er við 1-1 sinni í hvorri hlið á stykki, prjónið síðan yfir 4 l færri í hvert skipti sem snúið er við 4-4 sinnum í hvorri hlið á stykki, prjónið síðan yfir 2 l færri í hvert skipti sem snúið er við 4-5 sinnum í hvorri hlið á stykki.

ALLAR STÆRÐIR:
Þegar stuttu umferðirnar hafa verið prjónaðar til loka er prjónuð síðasta umf út frá röngu, þannig að næsta umf byrji frá öxl. Prjónið síðan yfir allar l frá réttu þannig: Prjónið garðaprjón yfir fyrstu 42-44-46-48-50-52 l JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-4-4-6-6 l jafnt yfir, prjónið eins og áður (þ.e.a.s. A.5 til A.8 og sléttprjón þar til eftir eru 42-44-46-48-50-52 l, prjónið garðaprjón yfir síðustu l JAFNFRAMT er aukið út um 0-2-4-4-6-6 l jafnt yfir (= 42-46-50-52-56-58 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki).

Prjónið 3 umf garðaprjón yfir síðustu 42-46-50-52-56-58 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki, mynstur og sléttprjón yfir þær l sem eftir eru. Í næstu umf frá röngu er prjónað þannig: Prjónið sl yfir fyrstu 40-44-48-50-54-56 l og setjið þær síðan á þráð fyrir ermi, prjónið 2 l garðaprjón, prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður þar til eftir eru 42-46-50-52-56-58 l, 2 l garðaprjón, prjónið sl yfir næstu 40-44-48-50-54-56 l og setjið þær síðan á þráð fyrir ermi. Klippið frá. Nú eru eftir 8-8-8-12-12-12 umf af A.5 til A.8. Næsta umf byrjar frá réttu.

Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir fyrstu og síðustu 2 l í hvorri hlið á stykki. Þegar A.5 til A.8 hefur verið prjónað til loka eru 23-25-26-27-32-34 l á undan 1. prjónamerki, 79-91-99-107-123-135 l á milli 1. og 2. prjónamerkis og 23-25-26-27-32-34 l á eftir 2. prjónamerki = alls 125-141-151-161-187-203 l á prjóni.

Stykkið mælist ca 21-24-25-27-32-35 cm þar sem það er breiðast mælt frá uppfitjunarkanti. Setjið 1 prjónamerki í stykkið, STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 22-24-25-26-31-33 l laust af með sl, prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, (prjónamerki), prjónið A.9 yfir fyrstu 6 l á eftir prjónamerki, sléttprjón yfir næstu 67-79-87-95-111-123 l, A.10 yfir síðustu 6 l á undan öðru prjónamerki, (prjónamerki), 1 kantlykkja í garðaprjóni, fellið laust af síðustu 22-24-25-26-31-33 l með sl = 81-93-101-109-125-137 l eftir á prjóni. Klippið frá. Prjónið næstu umf frá röngu yfir þær l sem eftir eru þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, A.10 eins og áður, sléttprjón yfir næstu 67-79-87-95-111-123 l, A.9 eins og áður, 1 kantlykkja í garðaprjóni. Þegar A.9 og A.10 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er stykkið prjónað áfram í sléttprjóni með 1 l kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki.

Þegar stykkið mælist 3 cm frá prjónamerki er aukið út um 1 l í hvorri hlið á stykki innan við 1 kantlykkju (= 2 l fleiri) – LESIÐ ÚTAUKNING. Endurtakið útaukningu með 1½-1½-1½-1-1-1 cm millibili alls 12-10-12-14-12-13 sinnum = 105-113-125-137-149-163 l á prjóni. Þegar stykkið mælist 23-23-24-24-23-23 cm frá prjónamerki (stykkið mælist alls 53-55-57-59-61-63 cm frá öxl), passið uppá að næsta umf sé frá réttu, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið A.11 (= 2 l) þar til 2 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.11, endið á 1 kantlykkju í garðaprjóni. Í umf með gati (þ.e.a.s. umf 7) er prjónuð næst síðasta l slétt. Fellið af þegar A.11 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Stykkið mælist alls 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl.

BAKSTYKKI:
Stykkið er fyrst prjónað í hring, síðan er það prjónað áfram eins og framstykki. Fitjið upp 6 l á sokkaprjóna nr 4 með Belle, skiptið yfir á hringprjóna eftir þörfum. Prjónið 1 umf slétt. Í næstu umf er aukið út þannig: Prjónið * 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* = 12 l á prjóni, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, það eiga ekki að myndast göt. Prjónið A.1 alls 4 sinnum, setjið 1 prjónamerki á milli hverra A.1 (= prjónamerki). Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 156-156-156-156-164-164 l á prjóni. Prjónið síðan þannig: A12 yfir fyrstu 39-39-39-39-41-41 l, prjónið A.3 yfir næstu 39-39-39-39-41-41 l og A.13 yfir síðustu 39-39-39-39-41-41 l, setjið þær l sem eftir eru á band fyrir hálsmáli (= 39-39-39-39-41-41 l), eftir A.13 eru fitjaðar upp 11 l í lok umf fyrir öxl (sjá teikningu). Stykkið er síðan prjónað fram og til baka.
Prjónið A.13/A.3/A.12 til baka í næstu umf, eftir A.12 eru fitjaðar upp 11 l í lok umf fyrir öxl (sjá mynsturteikningu). Þegar A.12/A.3/A.13 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 165-165-183-183-193-193 l á prjóni. Stykkið mælist ca 15-15-17-17-19-19 cm frá uppfitjunarkanti. Nú er bakstykkið prjónað áfram á sama hátt og framstykkið.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Setjið til baka l af þræði fyrir kant í hálsmáli á bakstykki á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Saumið niður garðaprjón þar sem l voru fitjaðar upp fyrir öxl. Klippið frá og festið enda.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Saumið axlasauma innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Dragið að miðju (þ.e.a.s. uppfitjunarkaninn) bæði á framstykki og á bakstykki.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna í sléttprjóni. Setjið til baka l af 2 þráðum (á framstykki og á bakstykki) á aðra hliðina við stykkið á hringprjóna nr 4 = 80-88-96-100-108-112 l. Prjónið stuttar umf fyrir ermakúpu þannig: Byrjið á að prjóna í 25.-29.-31.-35.-43.-45. l (þ.e.a.s. það eru 24-28-30-34-42-44 l í annarri hlið sem ekki er prjónað yfir). Prjónið frá réttu 34-34-38-34-26-26 l sléttprjón, snúið við (= 22-26-28-32-40-42 l eftir í umf). Prjónið sléttprjón til baka yfir 36-36-40-36-28-28 l, snúið við. Prjónið yfir 2 l fleiri fyrir hvert skipti sem snúið er við í hvorri hlið á stykkið þar til prjónað hefur verið yfir allar l. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l í hvorri hlið á stykki (= 2 l færri), innan við 1 l í 4.-4.-2.-4.-4.-4. hverri umf alls 4-6-8-8-10-10 sinnum – LESIÐ ÚRTAKA = 72-76-80-84-88-92 l á prjóni. Prjónið 8-8-8-12-12-12 umf sléttprjón yfir allar l, setjið 1 prjónamerki í stykkið (hliðarsaum á ermi á síðar að sauma hingað). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Fitjið upp 1 kantlykkju í lok 2 næstu umf = 74-78-82-86-90-94 l. Kantlykkja er prjónuð í garðaprjóni til loka. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l innan við 2 l í hvorri hlið á stykki (= 2 l færri). Endurtakið úrtöku með 2½-2-2-1½-1-1 cm millibili 9-10-11-12-13-13 sinnum til viðbótar = 54-56-58-60-62-66 l á prjóni. Þegar ermin mælist 31-30-29-27-24-23 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5. Prjónið 4 umf garðaprjón. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermasauma upp þar sem fitjuð var upp 1 kantlykkja í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Saumið sauma undir ermum.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = 2 l slétt saman
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður brugðinn í næstu umf, það eiga að myndast göt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður snúinn brugðinn í næstu umf, það eiga EKKI að myndast göt
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l, uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf, það eiga að myndast göt
symbols = takið 2 l saman óprjónaðar eins og prjóna eigi þær sl, 1 l sl. steypið 2 óprjónuðu l yfir
symbols = fitjið upp l - sjá uppskrift
symbols = prjónstefna
diagram
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Butterfly Heart

Renee, Poland

Butterfly Heart

collectionsakiri, Austria

Butterfly Heart

Lea Fugl Noes, Denmark

Butterfly Heart

Anna, Russian Federation

Butterfly Heart

Anna Vezhlivtseva, Russian Federation

Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (154)

country flag Julia wrote:

Liebes Drops-Team, stricke Größe M. Der Ärmel wird in verkürzten Reihen gestrickt und gleichzeitig soll abgenommen werden, in jeder 4ten R. Wie mache ich das? Stricke ich in der ersten R 34M, nehme dann ab und wende, stricke 36M und wende, stricke 38M und wende, stricke 40M (4te Reihe) nehme ab und wende wieder? Lieben Dank im Voraus

02.03.2024 - 16:00

DROPS Design answered:

Liebe Julia, stricken Sie die verkürzten Reihen mit jeweils 2 Maschen mehr am Ende jeder Reihe, und gleichzeitig bei jeder 4. Reihe (Hin-Reihe) nehmen Sie wie unter ABNAHMETIPP: erklärt, so bei der 1. Reihe stricken Sie 36 M (in S), bei der 2. Reihe 38 M, bei der 3. Reihe 40 M, bei der 4. Reihe 42 M, dann abnehmen: bei der nächsten Reihe nehmen Sie 1 M am Anfang der Reihe + 1 M am Ende der Reihe (stricken Sie die verkürzte Reihe bis 1 M + die 2 extra Maschen übrig sind, dann stricken Sie 2 M rechts zusammen, und 1 Masche rechts, wenden = 42 M + 2 Extra Maschen - 2 Abnahmen = 42 M auf der Nadel. Viel Spaß beim stricken!

04.03.2024 - 08:09

country flag Mina wrote:

Hey,stricke Größe M.Fragen zu verkürzten Reihen: Es heißt "A.5bis A.8 über die je 6 M beidseitig jedes Markierers insgesamt 3x arbeiten ..." Beim Start bestehen die Rapporte aus jeweils 6M, am Ende sind es 10M (A.5+ A.6)u.12M (A.7+A.8).Wenn ich nun erneut mit A.5 bis A.8 beginne, wie beginne ich? Verschiebe ich alles um die zugenommenen Maschen? Sieht die erste Wiederholung der Hinreihe so aus: 1M kraus re, 52M glatt re,A.5, A.6, 55M glatt re, A.7, A.8, 52M glatt re, 1 kraus re? Danke

15.02.2024 - 15:29

DROPS Design answered:

Liebe Mina, die Diagramme wiederholen Sie wie zuvor, dh A5 und A7 über die letzten Maschen vorige Rapporter und A.6 und A.8 über die ersten Maschen vorige Rapporter. Die Zunnahmen davor/danach werden glatt rechts gestrickt, so stricken Sie A.5, Markierung, A.6 und A.7, Markierung, A.8 wie zuvor. Viel Spaß beim stricken!

16.02.2024 - 07:24

country flag Alžběta wrote:

Dobrý den, chtěla jsem se zeptat jestli budete tento návod překládat i do českého jazyka? Děkuji za odpověď.

13.11.2023 - 10:39

DROPS Design answered:

Dobrý den, Alžběto, ano, určitě - během pár dnů českou verzi zveřejníme. Hezký den! Hana

20.11.2023 - 15:49

country flag Kamilla wrote:

Dzień dobry, utknęłam na rękawach. Wydaje mi się, że rzędy skrócone rozumiem, w każdym rzędzie ( na prawej i lewej stronie) mam robić o dwa oczka dalej niż w rzędzie poprzednim. Niestety nie rozumiem jak W TYM SAMYM czasie mam zamykać oczka na końcu i na początku rzędu bo tak rozumiem "zamykać 4-6-8-8-10-10 razy 1 o. z każdej strony (= 2 zamknięte o.), za/przed 1 o., co 4-4-2-4-4-4 rz." skoro przerabiając rzędy skrócone nie dochodzę do pierwszego/ostatniego oczka.

01.11.2023 - 18:15

country flag Sytske wrote:

Prachtig patroon. Complimenten voor diegene die dit gemaakt heeft.

11.09.2023 - 20:13

country flag Therese Neukomm wrote:

Wo kann ich die Anleitung zu "Butterfly Heart" kaufen? Danke für Ihre Antwort.

15.07.2023 - 13:58

DROPS Design answered:

Liebe Therese. Drops Design-Vorlagen sind kostenlos. Sie können drucken oder als PDF speichern, indem Sie „Drucken“ aktivieren. Viel Spass beim stricken!

20.07.2023 - 11:01

country flag Kamilla wrote:

Dzień dobry Przerabiam rozmiar XXL. Skończyłam przerabiać rzędy skrócone na lewej stronie. Skończyłam na 2 oczka wcześniej niż poprzednio, obróciłam i jestem na prawej stronie i nie wiem co dalej. Czy mam na prawej stronie przerobić do końca rzędu czy tylko do momentu ostatniego obrotu rzędu skróconego. I czy "zaczynać od ramienia" oznacza od początku rzędu Pozdrawiam

09.07.2023 - 11:51

DROPS Design answered:

Witaj Kamilo, ostatni rząd skrócony ( na lewej stronie robótki) przerabiasz do końca rzędu, czyli do góry ramienia. Od ramienia oznacza od początku rzędu. Pozdrawiamy!

09.07.2023 - 21:52

country flag Rita Van Der Zalm wrote:

Hallo, ik brei maat L Klopt het dat ik na het breien van de verkorte toeren 2x6 en 3x4st bij A5 en A8 aan weerszijden 10 st gemeerderd heb. Volg namelijk volgens mij exact het patroon. Ik kom namelijk niet uit op de in totaal 48 st (begin en einde vd naald) die ik volgens patroon miet breien excl 4 st meerderen Begrijp niet wat ik verkeerd doe. Heb deze naalden nu voor de 4e keer uitgehaald. Alvast bedankt voor je hulp

20.04.2023 - 21:56

DROPS Design answered:

Dag Rita,

Ik begrijp niet goed waar je 48 steken zou moeten hebben in maat L na de verkorte toeren. Als je verder gaat onder het kopje 'alle maten' zie ik staan dat je 46 ribbelsteken moet breien het begin en einde van de naald en daar tegelijkertijd over moet moet meerderen.

27.04.2023 - 08:24

country flag Irene Gadhi wrote:

Dans le modèle Drops 170-3 pour le point ajouré du bas il n'y a pas le diagramme A 11 comme indiqué,Pouriez vous me le communiquer, merci

18.04.2023 - 19:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Gadhi, vous trouverez le diagramme A.11 juste entre les 2 diagrammes A.1 des tailles S-M (à gauche) et L-XL (à droite). Bon tricot!

19.04.2023 - 07:49

country flag Rita wrote:

Hallo, ben begonnen met maat L/XL. Begrijpt het volgende niet helemaal. Verkorte toeren: Brei 6 st minder voor elk keerpunt 1-2 keer aan elke kant brei dan 4 st minder ........ Brei ik deze 6 of 4 steken helemaal niet ( wel op de naald laten) of moet ik deze echt minderen en dan na het keren de verkorte toeren breien. Hoeveel verkorte toeren brei ik in totaal. Alvast dank je wel

17.04.2023 - 19:25

DROPS Design answered:

Dag Rita,

Klopt, je laat de steken op de naald staan en je breit ze niet. In plaats daarvan keer je het werk en brei je terug. Brei je maat L of XL? Voor maat L m brei je 1 keer 6 steken minder aan elke kant van het werk en dan 3 keer 4 steken minder aan elke kant van het werk. Voor maat XL brei je 2 keer 6 steken minder aan elke kant van het werk en dan 2 keer 4 steken minder aan elke kant van het werk.

17.04.2023 - 20:49