Christine skrifaði:
Bonjour, ce modèle de châle est magnifique, j'ai quasiment fini de le tricoter, le résultat est splendide mais je ne comprends pas l'explications de l'avant dernière section, celle qui utilise les diagrammes A4, A9, A6 et A7. Pouvez-vous me donner leur succession de manière claire ? Je vous remercie d'avance pour votre réponse et vos superbes modèles :-)
16.02.2016 - 11:20DROPS Design svaraði:
Bonjour Christine et merci. Tricotez les diagrammes dans l'ordre indiqué, en alignant bien tous les diagrammes les uns au-dessus des autres au fur et à mesure, c'est-à-dire que les augmentations faites dans A.4/A.6 et A.7 vont s'intercaler entre les diagrammes (tricotez les en jersey). Placez un marqueur entre chaque diagramme pour bien repérer ces augm. et bien aligner les motifs les uns au-dessus des autres sans les décaler. Bon tricot!
16.02.2016 - 12:58
Janne Yde skrifaði:
Fantastisk strik
14.01.2016 - 22:26
Strickliesel skrifaði:
Finde ich klasse wie gemacht fuer eine laue Sommernacht
10.01.2016 - 12:10
Mita skrifaði:
Ik heb een boontje voor sjaals,deze is gewoon prachtig !
11.12.2015 - 09:18
Nahidah Malik skrifaði:
I love love love all your patterns - they are so beautiful! I want to knit everyone of them, but only have two hands and 10 fingers !! Thank you for sharing your patterns, they are greatly appreciated and loved!
10.12.2015 - 18:13
Spring Splendor#springsplendorscarf |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónað sjal úr DROPS Cotton Merino með gatamynstri, garðaprjóni og öldumynstri.
DROPS 170-12 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.11. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður. SJAL: Fitjið upp 6 l á hringprjóna nr 4,5 með Cotton Merino. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan og aukið út um 4 l jafnt yfir í hverri umf frá réttu – LESIÐ ÚTAUKNING = 18 l. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: Prjónið 3 l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, setjið 1 prjónamerki, * A.1 (= 2 l), setjið 1 prjónamerki *, endurtakið frá *-* 5 sinnum til viðbótar, endið á 3 l garðaprjón = 7 prjónamerki í stykkið. Látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. Haldið áfram með A.1 og 3 l garðaprjón í hvorri hlið á stykki. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 138 l í umf. Næsta umf er prjónuð frá réttu: 3 l garðaprjón, endurtakið A.2 (= 11 l) þar til 3 l eru eftir (= 12 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 186 l í umf. Næsta umf er prjónið frá réttu: 3 l garðaprjón, endurtakið A.3 (= 30 l) þar til 3 l eru eftir (= 6 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. Í síðustu umf frá réttu í A.3 er aukið út um 1 l eftir 3 l garðaprjón í byrjun á umf. Þegar A.3 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 277 l í umf. Stykkið mælist nú ca 38 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju). Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, prjónið A.4 (= 3 l), * A.5 (= 40 l), A.6 (= 5 l) *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, prjónið A.5, A.7 (= 3 l), endið á 3 l garðaprjón. Útaukning í A.4/A.6/A.7 hefur verið teiknuð inn í A.5 til þess að mynstrið fái pláss. Endurtakið A.4/A.6/A.7 á hæðina þar til A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 361 l í umf. Stykkið mælist ca 53 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju). Prjónið frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, 1 l garðaprjón (þessi l er prjónuð í garðaprjóni þegar prjónað er garðaprjón í A.8 og sléttprjóni þegar prjónað er sléttprjón í A.8), endurtakið A.8 (= 59 l) þar til 3 l eru eftir (= 6 sinnum á breidd), endið á 3 l garðaprjón. ATH: Gataumferð í A.8 gengur ekki jafnt upp í mynstri, en gengur jafnt upp í umf, fyrsta l eftir 3 l garðaprjón frá réttu er prjónuð með sléttprjóni. Í síðustu umf frá réttu er sett 1 prjónamerki mitt í hverja mynstureiningu af A.8, þ.e.a.s. á milli: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, setjið 1 prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman. Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Þegar A.8 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 397 l í umf. Stykkið mælist ca 58 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju). Prjónið í næstu umf frá réttu þannig: 3 l garðaprjón, A.4 yfir næstu 3 l, * endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.6 yfir næstu 5 l *, endurtakið frá *-* 4 sinnum til viðbótar, endurtakið A.9 (= 10 l) alls 6 sinnum á breiddina, A.7 yfir næstu 3 l, endið á 3 l garðaprjón. Útauknu l í A.4/A.6/A.7 eru prjónaðar í sléttprjóni. Endurtakið A.4/A.6/A.7 á hæðina (passið að A.4/A.6/A.7 komi yfir sig sjálft) þar til A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Þegar A.9 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 433 l í umf. Stykkið mælist ca 65 cm þar sem það er lengst (mælt meðfram miðju). Prjónið síðan stykkið áfram með garðaprjóni frá réttu þannig: Prjónið 3 l garðaprjón, * A.10 (= 2 l), prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, fellið af eins og áður (þ.e.a.s. takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið næstu 2 l slétt saman), prjónið garðaprjón þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið A.11 yfir næstu 2 l *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, endið á 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 70 cm þar sem það er lengst. Fellið laust af. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #springsplendorscarf eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 170-12
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.