DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Tea Rose

Prjónaður bolero með brómberjamynstri og hekluðum kanti úr DROPS Brushed Alpaca Silk. Stærð S - XXXL.

DROPS Extra 0-1275
DROPS Design: Mynstur nr as-055
Garnflokkur C eða A + A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BRUSHED ALPACA SILK frá Garnstudio
75-100-100-100-125-125 g nr 06, kóral

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 6 – eða þá stærð sem þarf til að 15 l x 21 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm og 20 l brómberjamynstur verði 10 cm á breiddina.

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2508.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

ÚTAUKNING-1:
Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í sömu l.

ÚTAUKNING-2:
Til þess að reikna út hversu oft eigi að auka út í umf, teljið fjölda lykkja í umf, mínus kanta að framan (t.d. 52 l) og deilið með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 10 l) = 5,2. Þ.e.a.s. í þessu dæmi þá er aukið út í 5. hverri l.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

BRÓMBERJAMYNSTUR:
Þegar þetta mynstur er prjónað í hring þá kemur réttan til með að vera að innanverðu á stykki. Snúa verður því jakkanum við áður en byrjað er á mynstri þannig að réttan snúi út þegar flíkinni er snúið til baka.
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: * Prjónið 3 l í sömu l þannig: 1 l sl, 1 l br, 1 l sl, síðan eru næstu 3 l prjónaðar brugðið saman *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 3: Prjónið slétt.
UMFERÐ 4: * 3 l brugðið saman, prjónið síðan 3 l í næstu l þannig: 1 l sl, 1 l br, 1 l sl *, endurtakið frá *-*.
Endurtakið UMFERÐ 1-4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BOLERO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, prjónið síðan upp l fyrir kant og stykkið er síðan prjónað í hring.

BOLERO:
Fitjið LAUST upp 124-132-142-152-162-172 l á hringprjóna nr 6 með Brushed Alpaca Silk.
Prjónið 1 umf sl frá röngu þegar fækkað er um 24-26-28-30-32-34 l jafnt yfir (prjónið 4. og 5. hverja l slétt saman) = 100-106-114-122-130-138 l. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN í hvorri hlið – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 3-3-4-5-6-7 cm fitjið upp 6 nýjar l í lok 2 næstu umf fyrir ermar = 112-118-126-134-142-150 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 37-41-44-47-50-53 cm fellið af 6 l í byrjun á 2 næstu umf = 100-106-114-122-130-138 l. Haldið áfram í sléttprjón og 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 39-43-47-51-55-59 cm prjónið 1 umf slétt frá röngu þegar aukið er út um 24-26-28-30-32-34 l jafnt yfir (aukið út eftir 4. hverja l) = 124-132-142-152-162-172 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt frá réttu og fellið síðan LAUST af með sl frá röngu.

KANTUR Á ERMI:
Prjónið upp frá réttu meðfram annarri erminni innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni, 52-56-60-62-66-68 l á hringprjóna nr 6. Prjónið mynstur fram og til baka eftir mynstri A.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = ranga). Þegar A.1 er lokið er prjónuð 1 umf slétt frá réttu og aukið út um 10-14-14-16-16-18 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 og 2 = 62-70-74-78-82-86 l. Prjónið síðan mynstur fram og til baka eftir mynstri A.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = ranga). Þegar kanturinn mælist 8 cm – ATH: Endið eftir 1. eða 3. umf í mynstri, prjónið 4 umf garðaprjón fram og til baka yfir allar l áður en fellt er LAUST af með sl frá réttu.
Prjónið á sama hátt kant á hinni erminni.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar sauma og sauma undir ermum í eitt innan við 1 kantlykkju – sjá strikaða línu í mynsturteikningu.

KANTUR MEÐ BRÓMBERJAMYNSTRI:
Prjónið upp 1 l í hverja l meðfram öllum uppfitjunar- og affellingarkanti á jakkanum = 244-260-280-300-320-340 l á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
HEKLAÐUR KANUR:Prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 er lokið er prjónuð 1 umf slétt þar sem aukið er út um 28-32-32-36-40-40 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 og 2 = 272-292-312-336-360-380 l. Snúið stykkinu við þannig að rangan snúi út. Prjónið síðan BRÓMBERJAMYNSTUR í hring – sjá útskýringu að ofan. Þegar kanturinn mælist 9 cm frá prjónamerki – ATH: Endið eftir 2. eða 4. umf í mynstri, prjónið 1 umf br, 1 umf sl, 1 umf br og 1 umf sl áður en fellt er LAUST af með br. Snúið stykkinu við þannig að réttan snúi aftur út.

Heklið kant í lokin neðst í kringum báðar ermar og í kringum allan kantinn meðfram opi á jakkanum með heklunál nr 5 þannig: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn, en endið umf með 1 kl í fl í byrjun umf (í stað 1 fl í síðustu l). Klippið frá og festið enda.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 14.02.2018
Kantur á ermi (búið að bæta við í lokin)... Gerið það sama á hinni erminni.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = sláið uppá prjóninn á milli 2 l
symbols = frá réttu: 2 l slétt saman, frá röngu: 2 l brugðnar saman
symbols = frá röngu: 3 l brugðnar saman
symbols = frá röngu: Prjónið 3 l í 1 l þannig: 1 l sl, 1 l br, 1 l sl
symbols = svona er flíkin notuð
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1275

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Anne wrote:

Hallo, welche Größe sollte ich wählen, wenn ich 44/46 (Deutsche Größe) trage? Sind die Zahlen in der Zeichnung Maßangaben für die Oberweite? Vielen Dank!

31.10.2023 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Anne, alle fertige Maßen finden Sie in der Maßskizze; am besten messen Sie eine ähnliche Kleidung, die Sie gerne haben, und vergleichen Sie mit den in der Maßskizze, so finden Sie die beste passende Grösse. Hier lesen Sie mehr. Viel Spaß beim stricken!

31.10.2023 - 16:17

country flag Marianne Bech wrote:

Jeg har svært ved at se, hvordan man strikker rundt. Hvor begynder man, når alle de mange masker skal tages op?

17.05.2022 - 14:55

DROPS Design answered:

Hej Marianne, jo når du har syet stykket sammen i hver side, så du har lavet ærmer, strikker du op langs med hele aflukningskanten og opslåningskanten, det er her du strikker rundt. Se skitserne nederst i opskriften. :)

18.05.2022 - 11:46

country flag Marie-France Goubie wrote:

Bonjour, Vous indiquez qu'il faut retourner l'ouvrage sur l'envers pour faire la bordure astrakan du corps. Je ne comprends pas pourquoi? d'après les photos et les shémas on tient compte de l'endroit ou l'envers pour les points, donc cela devrait ne rien changer? Merci de vos précisions. Cordialement, MF Goubie

08.05.2022 - 22:38

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Goubie, la façon dont le point d'astrakan est tricoté ici se fait sur l'envers (pour obtenir le résultat escompté d'après le diagramme). Tricotez le 1er rang de A.2 sur l'envers du boléro et le 2ème rang sur l'endroit, et ainsi de suite, en commençant sur l'envers. Bon tricot!

09.05.2022 - 08:40

country flag Giovanna Rizzi wrote:

Avete dei modelli bellissimi. Vorrei usare i ferri normali anziché i circolari. Come devo regolarmi? Grazie mille purtroppo riprendo i ferri dopo tanti anni

25.01.2022 - 20:43

DROPS Design answered:

Buonasera Giovanna, questo modello è in parte lavorato in tondo e in parte in piano. Buon lavoro!

26.01.2022 - 22:11

country flag Lilas wrote:

Je n'arrive pas à faire la bordure au point d'astrakan. Je ne comprends pas comment "Tourner l'ouvrage sur l'envers (= l'envers doit être maintenant sur l'extérieur)". Avec l'envers à l'extérieur j'ai le fil à gauche ce qui me fait repartir sur la maille que je viens de tricoter (donc un rang pas en rond). En tricotant les mailles de l'intérieur de l'ouvrage, donc avec le fil à droite, et en suivant les 4 tours du point d'astrakan les "boules" sont sur l'envers.

07.03.2021 - 12:24

DROPS Design answered:

Bonjour Lilas, le point d'astrakan se tricote sur l'envers. Quand vous retournez l'ouvrage sur l'envers, serrez un peu le fil en tricotant la 1ère mailles 3 fois (= 1ère m de A.2), et, si à la fin de ce tour, vous avez un petit trou, relevez le fil entre la dernière maille du tour et la 1ère maille, placez le torse sur l'aiguille gauche et tricotez ce fil ensemble avec les 3 dernières mailles du tour (= 3 m ens à l'envers + ce fil). Bon tricot

08.03.2021 - 09:02

country flag Annette wrote:

Hallo liebes Drops Team, Ich habe Probleme beim Punkt "fertigstellen". Soll einfach in der Mitte der Ärmel zusammengeklappt und dann von der Ärmelblende nach innen vernäht werden? Und wenn ja, wie weit zusammen? Nur bis zum 4 cm "Absatz"? Lg

02.11.2020 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Annette, legen Sie die Arbeit flach wie bei der Maßskizze, jetzt sollen Sie die gestrichte Linien zusammen nähen, beginnen Sie in der Ecke (nach den abgeketteten Maschen oben / vor den angschlagenen Maschen unten) und diese beide gestrichte Linie zusammen nähen (= die Reihen vor den neuen Maschen mit den neuen angeschlagenen Maschen und die abgeketteten Maschen mit den Reihen danach). Viel Spaß beim weiterstricken!

03.11.2020 - 08:35

country flag Lulu wrote:

Hola,disculpa las mangas se tejen en redondo? o se pueden tejer en aguja recta. gracias

16.10.2019 - 20:16

DROPS Design answered:

Hola Lulu, las orillas de las mangas se tejen de ida y vuelta de acuerdo al diagrama A.1 con 1 pt de orillo en pt musgo de cada lado. Buen trabajo!

17.10.2019 - 19:21

country flag Alissa wrote:

Maschenprobe Ich habe ein sehr schönes Garn (Baumwoll-Seidemix), aus dem ich gern den Bolero stricken möchte. Dieses Garn ist aber dünner als das in der Anleitung verwendete und um auf die 10 cm der Maschenprobe zu kommen, benötige ich 25 statt 15 Maschen. Wie berücksichtige ich diese Erkenntnis nun bei der Größe bzw. der Maschenanzahl? Ich stehe da grade bissl auf dem Schlauch.... Kann mir vielleicht jemand helfen? Alissa

06.06.2019 - 21:23

DROPS Design answered:

Liebe Alissa, leider können wir jeder Anleitung nach jedem individuellen Frage anpassen und einzelne Modelle auf individuellen Wunsch hin umrechnen. Wenn sie Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an dem Laden wo Sie die Wolle gekauft haben, dort hilft man Ihnen gerne weiter. Viel Spaß beim stricken!

07.06.2019 - 08:36

country flag Arielle wrote:

Wie funktioniert Muster a 1? Die erste Reite wird in Links und Rechts gestickt? Oder Sind das zwei Reihen eine Links und eine Rechts?

01.06.2019 - 23:09

DROPS Design answered:

Liebe Arielle, bei den Ärmeln wird die 1. Reihe in A.1 eine Rückreihe (die Maschen werden von der Vorderseite aufgenommen) = die erste Reihe in A.1 wird rechts gestrickt. Bei dem Rand wird A.1 in Runden gestrickt = die 1. Reihe in A.1 wird hier links gestrickt. Hier lesen Sie mehr über Diagramme. Viel Spaß beim stricken!

03.06.2019 - 09:26

country flag Terttu wrote:

En ole saanut vastausta kysymykseeni. Olen aloittanut työn, mutta en tiedä meneekö se oikein. Ovatko hihan "alut" piirroksen keskellä olevat levennykset?

23.05.2019 - 13:28