Diena Kros skrifaði:
Hoe zet en brei je makkelijker de mouwen er tussen vind dit best lastig om op de rondbrei naald te krijgen trekt vreselijk. En krijg grote gaten daardoor
28.01.2021 - 13:20DROPS Design svaraði:
Dag Diena,
Als je de mouwen en het lijf net hebt samengevoegd, kan het inderdaad nogal trekken, met name bij de oksels. Na een paar naalden wordt dit al een stuk beter. Wat ook helpt is de 'magic loop' techniek gebruiken op de lastige stukken. Zie deze video.
31.01.2021 - 20:04
Marianne skrifaði:
Forstår ikke forklaringen på bærestykke. Hvor feller man for å få det smalere oppover? 2. Linje " diag A1 (1.p = vrangen)(=12-12-13-13-15-15)23-254-25-27-25-27 rapporter i bredden til det gjenstår 6m,strikk 1.madke i A1 o.s.v GIR INGEN MENINg! Ferdig med armer og bærestykkeoppskriften gjør at alt stopper opp. Kan det forklares enklere???
01.03.2020 - 23:18DROPS Design svaraði:
Hei Marianne, Du strikker stolpen - 5 masker rille, deretter diagram A.1, (den første pinnen er fra vrangen). A.1 er strikket flere ganger i bredden (antall er avhengig av størrelsen du strikker) fram til du har 6 masker igjen på raden, deretter første masken i A.1 og avslutter med 5 masker rille til stolpen. Hvis den første masken i A.1 er å strikke 2 rett sammen, endre man dette til å strikke 1 rett, slik at det er likt det andre forstykket. Dette mønsteret fortsettes oppover. Håper dette hjelper og god fornøyelse!
02.03.2020 - 10:16Alica007 skrifaði:
Hi, I have a question regarding diagram A1, how do I knit wrong side? Do I knit it as it comes, or every other row on diagram is ws. I don't know whether diagram A1 shows only rows as seen from right side. Kind regards, Alica
17.12.2016 - 19:44DROPS Design svaraði:
Hi Alica007. The diagram shows all the rows, so you don't knit it as it comes, but every other row on diagram is ws. IMPORTANT! 1st row = WS (see the explanation to the pattern). It means that 1st, 3rd, 5th row, etc. is WS, and 2nd, 4th, 6th row, etc is RS. Happy knitting!
18.12.2016 - 20:04
Lovely & Blue Cardigan |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine með hringlaga berustykki, gatamynstri og perluprjóni. Stærð S - XXXL.
DROPS Extra 0-1151 |
|||||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu: Fækkið um 1 l eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið slétt þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING-1: Aukið út um 1 l á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út um 1 l á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. ÚTAUKNING-2: Prjónið þar til 1 l er eftir á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Sjá mynsturteikningu fyrir rétta stærð. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = Prjónið 3. og 4. l frá miðju að framan slétt saman og sláið síðan 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælst: STÆRÐ S: 3, 13, 22, 31, 40, 49 og 59 cm STÆRÐ M: 5, 15, 24, 33, 42, 51 og 61 cm STÆRÐ L: 7, 15, 23, 31, 39, 47, 55 og 63 cm STÆRÐ XL: 8, 16, 24, 32, 40, 48, 56 og 65 cm STÆRÐ XXL: 5, 12, 19, 26, 33, 41, 49, 58 og 67 cm STÆRÐ XXXL: 5, 13, 21, 29, 37, 45, 53, 61 og 69 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 192-212-232-252-272-292 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Merino Extra Fine. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, 2 l sl, 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 5 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 4 og prjónað sléttprjón með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 2 l jafnt yfir = 190-210-230-250-270-290 l. Kantlykkjur að framan í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá útskýring að ofan. Þegar stykkið mælist 7 cm eru sett 4 prjónamerki í stykkið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, setjið 1. prjónamerki, prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 2. prjónamerki, prjónið 40-40-50-50-60-60 l sl, setjið 3. prjónamerki, prjónið 50-60-60-70-70-80 l sl, setjið 4. prjónamerki, prjónið 20-20-25-25-30-30 l sl, endið á 5 l garðaprjón (= kantlykkjur að framan). Látið prjónamerki fylgja með í stykkinu. Í næstu umf frá réttu er fækkað um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri í umf). ATH! Lykkjufjöldinn við miðju að framan og við miðju að aftan er sá sami, fellt er af í hliðar-l. Endurtakið úrtöku í 8.-8.-8.-6.-6.-8. hverri umf 6-7-7-9-8-6 innum til viðbótar = 162-178-198-210-234-262 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 30 cm. Í næstu umf frá réttu er aukið út um 1 l við hvert prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-1 (= 4 l fleiri í umf). ATH! Lykkjufjöldinn við miðju að framan og við miðju að aftan verður sá sami, aukið er út í hliðar-l. Endurtakið útaukningu í 4.-6.-4.-4.-4.-6. hverri umf 6-4-6-7-6-5 sinnum til viðbótar = 190-198-226-242-262-286 l á prjóni. Haldið áfram í sléttprjóni og garðaprjóni yfir kantlykkjur að framan þar til stykkið mælist 40-42-42-44-44-46 cm. Prjónið síðan 2 umf garðaprjón yfir allar l (fyrsta umf frá réttu) JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 3-7-2-0-0-2 l jafnt yfir = 187-191-224-242-262-284 l. Fellið nú af fyrir handveg í næstu umf frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 38-39-47-52-57-62 l sl, fellið af næstu 12 l, 77-79-96-104-114-126 l sl, fellið af næstu 12 l, 38-39-47-52-57-62 sl sl, endið á 5 kantlykkjum í garðaprjóni = 163-167-200-218-238-260 l. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-52-52-56-56-60 l á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stykkið mælist 4 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4. Stykkið er síðan prjónað í sléttprjóni og fellið af 2-4-2-4-4-6 l jafnt yfir í fyrstu umf = 46-48-50-52-52-54 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun á umf. Þegar stykkið mælist 14-14-14-12-10-8 cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING-2, endurtakið útaukningu í öðrum hverjum cm 13-14-14-15-16-17 sinnum til viðbótar = 74-78-80-84-86-90 l. Þegar stykkið mælist 45-45-45-44-44-44 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengra berustykkis), fellið af 12 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 6 l hvoru megin við prjónamerki) = 62-66-68-72-74-78 l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi (ekki prjóna l þegar þær eru settar á sama prjón) = 287-299-336-362-386-416 l. Prjónið 5 kantlykkjur í garðaprjóni, mynsturteikningu A.1 (1. umf = ranga) (= 12-12-13-13-15-15 l) 23-24-25-27-25-27 mynstureiningar á breidd þar til 6 l eru eftir, prjónið fyrstu l í A.1 (svo að mynstrin verði alveg eins í báðum hliðum við miðju að framan, ef fyrsta l er 2 l slétt saman, prjónið síðustu l slétt) og endið á 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram með mynstur svona þar til 5 umf eru eftir í mynstri = 149-155-161-173-186-200 l á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður JAFNFRAMT í síðustu umf frá réttu er fækkað um 33-35-33-41-50-56 l jafnt yfir = 116-120-128-132-136-144 l á prjóni. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, stroff (= 2 l sl, 2 l br) þar til 7 l eru eftir, 2 l sl, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Fellið af með garðaprjóni yfir garðaprjón, sl yfi sl og br yfir br þegar stroffið mælist 4 cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 28 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-1151
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.