Elvira skrifaði:
Jeg er relativt ny, så måske er det ligetil. Jeg har to spørgsmål: 1. Nårjeg skal lukke den sidste maske af på rundpinden i ærmegabet, skal jeg så lukke helt af - altså trække tråden igennem som når man afslutter helt? Ellers ender jeg vel med en enkelt maske midt i ærmegabet? 2. Når der står at man skal føre ærmerne over på rundpinden uden at strikke masker, skal man så bare trække dem over, eller skal man strikke dem over? På forhånd tak.
11.08.2016 - 22:49DROPS Design svaraði:
Hej. Du behöver inte trekke tråden genom den sista m i ærmegabet, den sista m hamnar vid sidan av ærmegabet, ikke midt i. Du ska ikke strikke m bare trække dem over. Lycka till!
12.08.2016 - 10:50
Annabel Kennedy skrifaði:
Just re-read the pattern more closely - the measurements are very clear. Apologies.
20.08.2015 - 23:21
Annabel Kennedy skrifaði:
Are there any measurements available for the finished jumper ? I am a size ten and am knitting this size 'M' but it looks small on the needle after completeing the 5cm rib. I prefer a loose fit and would rather start again than complete a jumper I can't wear. Has anyone finished this that could tell me? Thank you.
20.08.2015 - 23:10Annabel Kennedy svaraði:
Sorry for above question, answered it myself after looking more carefully at the very clear measurement diagram at the bottom of the page. Apologies :)
20.08.2015 - 23:19
Susanne skrifaði:
Chic pattern, nice colours. I love it.
09.07.2015 - 14:40
Carol skrifaði:
Ilove this and I hope it makes it.
04.07.2015 - 03:06
Michaela Beblavá skrifaði:
Ako na lúke makov :)
06.06.2015 - 15:07Mirka skrifaði:
Stále neviem čo mi to pripomína, ale je to niečo sladké!
01.06.2015 - 15:31
Kristin skrifaði:
Denne var superduperfin. Jeg håper virkelig oppskriften blir lagt ut!
27.05.2015 - 18:21
Reidun Nybakk skrifaði:
Koselig genser. Kanskje strikker jeg den.
27.05.2015 - 17:20
C'moi skrifaði:
Je veux faire celui là aussi, j'ai du travail sur la planche.
27.05.2015 - 16:51
Winter Poppies#winterpoppiessweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og norrænu mynstri og húfu með norrænu mynstri og dúsk úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.
DROPS 164-28 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- PEYSA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Veljið mynstur fyrir rétta stærð. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚTAUKNING: Byrjið 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa tveggja l), sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 2 l fleiri). Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat. LEIÐBEININGAR: Til að koma í veg fyrir að prjónfestan verði of stíf þegar mynstrið er prjónað á berustykki er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Notið e.t.v. grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað ef mynstrið herpist aðeins. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 110-124-138-154-168-182 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 20-22-24-28-30-32 l jafnt yfir = 90-102-114-126-138-150 l. Prjónið síðan sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 12-13-11-12-11-12 cm prjónið nú mynstur eftir mynsturteikningu A.1. Þegar stykkið mælist ca 32-33-34-35-36-37 cm – stillið af þannig að prjónuð sé 1 umf með litnum ljós grár eftir einni umf með “doppum” – prjónið næstu umf þannig: Fellið af 2-3-3-4-4-4 l fyrir handveg, prjónið 41-45-51-55-61-67 l (= framstykki), fellið af 4-6-6-8-8-8 l fyrir handveg, prjónið 41-45-51-55-61-67 l (= bakstykki) og fellið af þær 2-3-3-4-4-4 l sem eftir eru fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 24-26-28-28-30-30 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós grár. Prjónið 1 umf slétt. Prjónið síðan stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 1 l í umf = 23-25-27-27-29-29 l. Prjónið síðan sléttprjón. Þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 2 l mitt undir ermi – LESIÐ ÚTAUKNING! Endurtakið útaukningu með 4-3½-3½-3-3-3 cm millibili alls 9-10-10-11-11-11 sinnum = 41-45-47-49-51-51 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 32-32-31-31-30-30 cm prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.1 – ATH: Lykkjur með ör í mynstri eiga að passa við miðju l í umf – teljið út hvar umf byrjar. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) – passið uppá að prjónuð sé 1 umf með litnum ljós grár á eftir 1 umf með “doppum” – prjónið næstu umf þannig: Fellið af fyrstu 2-3-3-4-4-4 l, prjónið 37-39-41-41-43-43 l og fellið af þær 2-3-3-4-4-4 l sem eftir eru. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjóna og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 156-168-184-192-208-220 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 6-8-4-2-8-0 l jafnt yfir = 150-160-180-190-200-220 l í umf. Prjónið 0-2-2-2-0-2 umf slétt með litnum ljós grár. Prjónið nú mynstur í hring á eftir mynsturteikningu A.2 – veljið mynstur fyrir rétta stærð og LESIÐ LEIÐBEININGAR (= 15-16-18-19-20-22 mynstureiningar í umf). Haldið svona áfram með mynstur og fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynsturteikningu. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka (endið á eftir umf merktri með ör í réttri stærð) eru 60-64-72-76-80-88 l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 51-53-55-57-59-61 cm upp að öxl. UPPHÆKKUN VIÐ HNAKKA: Til þess að fá betra form er prjónuð upphækkun að aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan og prjónið fram og til baka á hringprjóna með litnum ljós grár þannig: Prjónið sl þar til prjónaðar hafa verið 10-10-12-12-13-14 l framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 20-20-24-24-26-28 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 30-30-36-36-39-42 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 40-40-48-48-52-56 l br til baka. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl til baka að miðju að aftan. Prjónið 1 umf slétt yfir allar l með litnum ljós grár þar sem fækkað er um 14-18-22-26-26-34 l jafnt yfir = 46-46-50-50-54-54 l eftir á prjóni. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 7 og litnum grágrænn og prjónið 5 umf sléttprjón áður en fellt er LAUST af með sl. Peysan mælist ca 54-56-58-60-62-64 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÚFA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.3 og A.4. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl með litnum ljós grár, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stærð S/M er prjónuð á hringprjóna/sokkaprjóna nr 6 og 7. Stærð L/XL er prjónuð á hringprjóna/sokkaprjóna nr 7 og 8. Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 54 l á hringprjóna nr 6-7 með litnum ljós grágrænn. Prjónið stroff (= 1 l sl, 1 l br) í 4-5 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7-8 og prjónið mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.3 (= 9 mynstureiningar í umf). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir A.3 (stykkið mælist nú ca 15-16 cm), prjónið nú áfram mynstur eftir mynsturteikningu A.4. Þegar stykkið mælist 20-21 cm eru sett 6 prjónamerki í stykkið með 9 l á milli prjónamerkja. Haldið áfram með A.4 og fækkið um 1 l eftir hverju prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 3 sinnum, síðan í hverri umf alls 2 sinnum = 24 l eftir á prjóni (l sem ekki ganga upp jafnt í mynstri þegar lykkjum er fækkað eru prjónaðar með litnum ljósgrár). Í næstu umf eru allar l prjónaðar snúnar slétt saman 2 og 2 með ljós grár = 12 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum kirsuber ca 10 cm að þvermáli og saumið efst á húfuna. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #winterpoppiessweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 164-28
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.