Christel skrifaði:
Ich stricke gerade diesen schönen Pullover, aber der kraus gestrickte Rand schlägt nach oben?! - Gibt sich das wohl nach der Fertigstellung und dem Spannen? Ich arbeite genau nach Anweisung, habe schon ein paar Mal neu angefangen, aber es bleibt immer gleich, derRand schlägt nach oben?
30.12.2015 - 22:00DROPS Design svaraði:
Sie können den Rand am Ende unter feuchten Tüchern trocknen lassen oder den Pullover anfeuchten, feststecken und trocknen lassen, das wirkt dem Rolleffekt entgegen. Sie können auch eine Krausrippe mehr stricken, wenn Ihnen das optisch gefällt, dadurch wird der Rand auch "stabiler" gegen das Aufrollen.
02.01.2016 - 20:32
Natasja skrifaði:
Het boord in ribbelsteek krult heel erg om. Wat kan ik doen om dit goed te krijgen?
01.12.2015 - 21:56DROPS Design svaraði:
Beste Natasja. Je kan na het wassen de trui in vorm brengen en de rand plat laten drogen, meestal helpt dat heel goed. Of dan plat strijken (met een theedoek tussen).
02.12.2015 - 11:31
Martine skrifaði:
Så supert at dere har målt opp ca gram på restene!! Tusen takk:) Det har jeg tenk på så mange ganger:)
10.07.2015 - 23:08
Karin skrifaði:
Eine Herausforderung für mich, aber das Ergebnis ist die Mühe wert!
05.06.2015 - 10:05
Lucie skrifaði:
Très bien!
03.06.2015 - 22:58
My Info skrifaði:
I love them all. Very difficult to chose onlly 10.. This set is lovely.
29.05.2015 - 22:02
Reidun Nybakk skrifaði:
Nydelig genser. Den skal jeg strikke.
27.05.2015 - 17:15
C'moi skrifaði:
Celui là aussi me plaît beaucoup, je le ferai
27.05.2015 - 16:49
Silvia skrifaði:
Ich bin sowohl Fan von Norwegen, Norwegerpullover als auch von der Farbe blau.
27.05.2015 - 16:41
Mariuska#mariuskasweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með hringlaga berustykki og norrænu mynstri og húfu með norrænu mynstri og dúsk úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL.
DROPS 165-23 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3 (veljið mynstur fyrir rétta stærð). Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ÚRTAKA (á við um aðsnið): Fækkið lykkjum framan og aftan við við 4 prjónamerkin. Fækki lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. ÚTAUKNING (á við um aðsnið): Aukið út framan og aftan við 4 prjónamerkin. Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 160-176-192-216-240-268 l á hringprjóna nr 3 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.1. Þegar A.1 er lokið er haldið áfram með litnum gallabuxnablár og sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8 cm eru sett 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 21-24-27-32-37-43 l í umf, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 38-40-42-44-46-48 l, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 42-48-54-64-74-86 l, 4. prjónamerki er sett eftir næstu 38-40-42-44-46-48 l (= 21-24-27-32-37-43 l á eftir síðasta prjónamerki). Í næstu umf er lykkjum fækkað á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 16 cm = 152-168-184-208-232-260 l. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 3-3-3-3½-3½-3½ cm millibili alls 4 sinnum = 168-184-200-224-248-276 l. Prjónið síðan áfram þar til stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg, prjónið 78-86-92-104-114-128 l (= framstykki), fellið af 6-6-8-8-10-10 l fyrir handveg, prjónið 78-86-92-104-114-128 l (= bakstykki) og fellið af síðustu 3-3-4-4-5-5 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-48-48-52-52-56 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum gallabuxnablár. Prjónið 4 umf garðaprjón. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 2 umf slétt. Prjónið síðan mynstur í hring á eftir mynstrið A.1. Þegar A.1 er lokið er haldið áfram með litnum gallabuxnablár og sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 10-10-8-8-10-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-2½-2½-2½-2-2 cm millibili alls 11-13-14-14-15-15 sinnum = 70-74-76-80-82-86. Þegar stykkið mælist 44-44-43-43-42-42 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna breiðari axla), fellið af miðju 6-6-8-8-10-10 l undir ermi = 64-68-68-72-72-76 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg (þetta er gert án þess að prjóna l) = 284-308-320-352-372-408 l á prjóna. Prjónið 1 umf sl með litnum gallabuxnablár þar sem fækkað er um 4-8-0-12-12-8 l jafnt yfir = 280-300-320-340-360-400 l á prjóni. Prjónið síðan mynstur í hring eftir mynsturteikningu A.2 (veljið mynstur fyrir rétta stærð og byrjið og endið á umf merktri með ör fyrir rétta stærð = 14-15-16-17-18-20 mynstureiningar í umf). Fækkið lykkjum eins og útskýrt er í mynstri. Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka eru 140-150-160-170-180-180 l í umf og stykkið mælist 54-56-58-60-62-64 cm upp að öxl. UPPHÆKKUN AFTAN Í HNAKKA: Til að flíkin passi betur er prjónuð upphækkun aftan í hnakka þannig: Setjið 1 prjónamerki fyrir miðju að aftan. Byrjið frá réttu með litnum gallabuxnablár og prjónið 16-17-18-19-20-21 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 32-34-36-38-40-42 l br. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 48-51-54-57-60-63 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 64-68-72-76-80-84 l br. Snúið við, herðið á þræði og prjónið 80-85-90-95-100-105 l sl, snúið við, herðið á þræði og prjónið 96-102-108-114-120-126 l br. Snúið við, herðið á þræði og prjónið sl að miðju að aftan. Prjónið nú 1 umf sl þar sem fækkað er um 38-44-50-54-60-60 l jafnt yfir (þ.e.a.s. í stærð S + M prjónið til skiptis í 2. og 3. hverja l og 3. og 4. hverja l slétt saman og í stærð L + XL + XXL + XXXL er prjónað ca í 2. og 3. hverja l slétt saman umf hringinn)= 102-106-110-116-120-120 l. HÁLSMÁL: Skiptið yfir í stuttan hringprjón nr 3 og prjónið 1 umf br, 1 umf sl og 1 umf br, síðan er fellt laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, skiptið yfir á sokkaprjóna eftir þörf. HÚFA: Fitjið upp 116-124 l á hringprjóna nr 3 með litnum gallabuxnablár. Prjónið stroff (= 2 l sl, 2 l br) í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón nr 3,5 og prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 8-7 l jafnt yfir = 108-120 l. Prjónið síðan mynstur hringinn eftir mynsturteikningu A.3 (= 9-10 mynstureiningar í umf). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir A.3 er haldið áfram með litnum gallabuxnablár. Þegar stykkið mælist 18-20 cm setjið 9-10 prjónamerki í stykkið með 12 l á milli prjónamerkja. Í næstu umf er fækkað um 1 l á eftir hverju prjónamerki með því að prjóna 2 l slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum og síðan í hverri umf alls 7 sinnum = 9-10 l eftir á prjóni. Klippið frá, þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Húfan mælist ca 23-25 cm á hæðina. DÚSKUR: Gerið einn dúsk með litnum gallabuxnablár ca 8 cm að þvermáli og festið á toppinn á húfunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #mariuskasweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 33 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 165-23
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.