Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Precious Piper |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn í sléttprjóni og garðaprjóni með hringlaga berustykki úr DROPS Air eða DROPS Paris. Stærð börn 1-10 ára
DROPS Children 26-12 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 12/18 MÁN: 4, 10, 16, 22, 27 og 32 cm. STÆRÐ 2 ÁRA: 4, 11, 18, 25, 30 og 35 cm. STÆRÐ 3/4 ÁRA: 4, 10, 16, 22, 28, 34 og 39 cm. STÆRÐ 5/6 ÁRA: 4, 11, 18, 25, 32, 38 og 43 cm. STÆRÐ 7/8 ÁRA: 5, 11, 17, 23, 29, 35, 41 og 47 cm. STÆRÐ 9/10 ÁRA: 4, 11, 18, 25, 32, 39, 45 og 51 cm. LASKALÍNA: Lykkjum er fækkað fyrir laskalínu í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Bryjið 2 l á undan prjónamerki og prjónið 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir (= 2 l færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp (111) 119-123-131-139-147 l á hringprjóna nr 4 með Air eða Paris og prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón með 5 l garðaprjón í hvorri hlið (= kantur að framan). Munið eftir HNAPPAGAT á hægri kant að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist (20) 22-25-28-31-34 cm prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið (27) 29-30-32-34-36 l eins og áður (= hægra framstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi, prjónið (45) 49-51-55-59-63 l eins og áður (= bakstykki), fellið af 6 l fyrir handvegi og prjónið síðustu (27) 29-30-32-34-36 l (= vinstra framstykki). ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp (27) 29-31-31-33-33 l á sokkaprjóna nr 4 með Air eða Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 5 og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist (4) 4-6-7-8-10 cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 2 cm millibili alls (7) 9-9-11-12-13 sinnum = (41) 47-49-53-57-59 l. Þegar stykkið mælist (18) 22-26-30-33-37 cm fellið af 6 l mitt undir ermi = (35) 41-43-47-51-53 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = (169) 189-197-213-229-241 l. Setjið 1 prjónamerki í hverja skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið (1. umf = br frá röngu). Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í hverri umf frá réttu alls (2) 3-3-4-4-5 sinnum = (153) 165-173-181-197-201 l eftir á prjóni. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar l í (4) 4-5-5-6-6 cm. Í næstu umf er fækkað um (30) 32-38-40-42-42 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = (123) 133-135-141-155-159 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (8) 8-9-9-10-10 cm. Í næstu umf er fækkað um (36) 38-38-40-46-48 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = (87) 95-97-101-109-111 l. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist (11) 11-12-12-13-13 cm. Fækkið um (40) 42-42-44-48-50 l jafnt yfir = (47) 53-55-57-61-61 l eftir á prjóni. Prjónið síðan upphækkun við hnakka með stuttum umferðum þannig (1. umf = frá réttu): Prjónið sl þar til eftir eru (10) 11-12-13-14-14 l, snúið við og prjónið sl til baka þar til eftir eru (10) 11-12-13-14-14 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru (14) 15-16-17-18-18 l, snúið við og prjónið sl til baka þar til eftir eru (14) 15-16-17-18-18 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl þar til eftir eru (18) 19-20-21-22-22 l, snúið við og prjónið sl til baka þar til eftir eru (18) 19-20-21-22-22 l í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl út umf, prjónið síðan 1 umf sl frá röngu, 1 umf sl frá réttu og 1 umf sl frá röngu. Fellið síðan af með sl frá réttu. Stykkið mælist ca (33) 36-40-44-48-52 cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 309 vörulista og 11518 mynstur - 7032 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (14)
Jane Low skrifaði:
Completion of the yoke 61 stitches. I don’t understand the last few rows. If I am knitting 14 stitches across and return then 18 stitches across and return do I then do the other front the same then pick up all the stitches and knit across and bind off? Having 61 stitches and knitting 18+ 18 + 22 isn’t 61 stitches so where are the other three? I am lost with the last paragraph of instruction.
09.04.2024 - 03:53DROPS Design svaraði:
Hi Jane, You do not change the number of stitches while working short rows, you just work at the back of the neck to make this a little higher than the front: First work until there are 14 stitches left on the row and turn (without completing the row). Work back until there are14 stitches left on next row, then turn and work until there are 18 stitches left before turning. Continue like this for the correct number of rows and to the correct number of stitches each time before turning. Then work to the end of the next row and work 3 complete rows before binding off. Happy knitting!
09.04.2024 - 06:45Véronique skrifaði:
Bonjour, Est-ce que tout l empiècement est tricoté avec une aiguille n° 4 ? Ce n’est pas très clair dans les explications et ce n’est pas précisé dans les avant-propos. Merci de votre retour. Bien cordialement.
19.01.2024 - 11:34DROPS Design svaraði:
Bonjour Véronique, vous tricotez le début de l'empiècement avec la même aiguille que lorsque vous avez arrêté le dos/les devants et les manches, autrement dit une aiguille 5 et diminuez pour le raglan. Vous ne changerez pour l'aiguille circulaire 4 que lorsque ces diminutions ont été faites, et vous tricotez alors toutes les mailles au point mousse (plus en jersey avec les mailles de bordure devant au point mousse) en diminuant comme indiqué. Bon tricot!
19.01.2024 - 16:02Lena Brønsholt skrifaði:
Der står i opskriften, at efter at ærmerne er sat på, så står der: “Fortsæt i GLATSTRIK”!? Men det ligner bare på foto, at der er strikket RETSTIK?! Hvad skal skal man strikke i bærestykket? Mvh. Lena Brønsholt
21.10.2023 - 17:23DROPS Design svaraði:
Hej Lena, ærmerne er strikket i glatstrik og bærestykket i retstrik :)
24.10.2023 - 08:53Mona Møller skrifaði:
Hej Jeg er rigtig glad for at strikke Drops Children 26-12 opskriften med drops Air garn. Jeg kunne godt tænke mig at strikke den i damestørrelse/voksenstørrelse. Mon der findes en opskrift jeg kan bruge?
21.10.2021 - 11:25DROPS Design svaraði:
Hej Mona. Denna opskrift (150-6) kan du sticka i DROPS Air. Mvh DROPS Design
21.10.2021 - 12:06Simona Šottníková skrifaði:
Robím sveter precious children. Teraz mám previesť rukávy k trupu na jednu ihlicu. Ako ďalej hackovat, keď mám vlastne tri diely (dva rukávy a trup) a každý má svoje vlastné klbko? Vopred ďakujem za radu 😳
25.01.2021 - 11:56DROPS Design svaraði:
Dobrý den, Simono! Nejsnazží způsob, jak díly spojit, je připlést je: budete plést trup a ve chvíli, kdy dojdete k prvnímu průramku, budete pokračovat pletením ok prvního rukávu - tou samou přízí (= klubíčko, kterým pletete trup). Když připletete rukáv, pokračujete pletením další část trupu, pak opět rukáv a zbytek trupu. Klubka od rukávů prostě odstřihnete :-) (nechte si delší konec na začištění a zapošití). Hodně zdaru! Hana
25.01.2021 - 16:47Marion Richter skrifaði:
Was bedeutet "dabei in der nächsten R " sollen erst die (4) cm kraus rechts gestrickt werden und dann abnehmen oder sofort abnehnem wenn alle Maschen auf der der Nadel sind??? Zu Rundnadel Nr. 4 wechseln und für die Rundpasse alle M (4) 4-5-5-6-6 cm kraus re hin- und zurückstr, dabei in der nächsten R (30) 32-38-40-42-42 M gleichmäßig verteilt abnehmen (jedoch nicht bei den Blenden-M abnehmen)
15.10.2020 - 15:38DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Richter, nach der Abnahmen für den Raglan stricken Sie jetzt mit den Nadeln Nr4 4 cm (in die 1. Grösse) kraus rechts in die 1. Grösse, bei der nächsten Reihe (nach diesen 4 cm krausrechts), nehmen Sie 30 Maschen regelmäßig verteilt ab und stricken jetzt kraus rechts weiter. Hier wird es erklärt, wie man regelmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!
15.10.2020 - 16:45Febe skrifaði:
I den svenska versionen har det smugit sig in ett översättningsfel. I slutet på andra stycket under OK: står det " Maska av (40) 42-42-44-48-50 m", det skall så klart vara "Minska...".
18.04.2020 - 10:08DROPS Design svaraði:
Hej Tack för info, detta är nu rättat! Mvh DROPS Design
23.04.2020 - 13:38Michele skrifaði:
What size is a 622 button (linge or mm)? Thank you
15.01.2019 - 19:29DROPS Design svaraði:
Dear Michele, buttons NO 622 are 15 mm - see them there. Happy knitting!
16.01.2019 - 08:09Hélène MARTIN skrifaði:
Bonjour J'aimerais faire ce modèle plus long afin d'avoir un manteau. Pouvez-vous m'indiquer combien de laine me sera nécessaire pour faire l'arrondi (en 2 ans). Je dispose de 800 m de laine Merci de votre conseil LN
13.12.2018 - 10:53DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Martin, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir ajuster chacun de nos modèles à chaque demande. Pour toute assistance personnalisée, merci de contacter le magasin où vous avez acheté votre laine, même par mail ou téléphone. Bon tricot!
13.12.2018 - 12:36Louise skrifaði:
Hej! Jeg undrer mig over at man i bærestykket skal tage så mange masker ind på en gang i stedet for færre masker over flere omgange. Først strikkes lige op i nogle cm, så tages 30-40 masker ind på en enkelt række, så strikkes lige op igen, hvorefter der tages mange masker ind igen osv. Giver det ikke en trappefacon i stedet for en blød kurve op over skulderen? På forhånd mange tak! Mvh Louise
05.11.2018 - 09:00DROPS Design svaraði:
Hej Louise, nej ikke hvis du tager ind jævnt fordelt på omgangen, så bliver det lige så fint som på billedet i opskriften. God fornøjelse!
07.11.2018 - 11:06