GRAVELINES Hélène skrifaði:
Bonjour, J'ai voulu commencer ce pull qui me plaît particulièrement, mais je ne trouve pas le diagramme A1 dans les explications, comme j'avais pu trouver les diagrammes du poncho Isla lorsque je l'ai fait l'année dernière. Pouvez-vous me dire où il se trouve ? Merci d'avance.
22.07.2015 - 13:51Gravelines svaraði:
Oups ! C'est bon, je l'ai vu ! Il est tellement petit... Je n'avais pas mis mes lunettes.
22.07.2015 - 14:29
Caroline skrifaði:
L'utilisation d'aiguilles double pointes est-elle absolument nécessaire pour réaliser ce modèle ? Pourquoi des aiguilles circulaires 5 et 4,5 ne peuvent-elles pas suffire ? Merci d'avance pour votre réponse.
13.07.2015 - 17:14DROPS Design svaraði:
Bonjour Caroline, les aiguilles doubles pointes sont utilisées quand le nombre de mailles est trop petit pour être tricoté sur aiguille circulaire, mais vous pouvez éventuellement tricoter tout du long sur aiguille circulaire en utilisant la technique du magic loop si vous le souhaitez. Bon tricot!
27.07.2015 - 11:19
Melinda Fülöp skrifaði:
Har en fråga ang mönstret som man ska sticka. Det står att man ska sticka 2 m räta tillsammans, 1 omslag mellan 2 m. När ska man göra omslaget? Ska man sticka tillsammans och göra omslag och sen tillsammans igen? Eller sticka tillsammans, 1 m, omslag och 1 m igen? Har stickat tillsammans, omslag, och sen 2 vanliga m. Tack på förhand! Melinda Fülöp
18.06.2015 - 08:17DROPS Design svaraði:
Hej. Du ska sticka 2 m räta tillsammans och sedan omslag. Detta upprepas hela det varvet, dvs 2 rm tills, omslag, 2 rm tills, omslag osv.. Lycka till!
18.06.2015 - 11:14
Andrea Stellke skrifaði:
Der Rumpfteil wird ab dem Marker der neuen Maschen unter dem Ärmel gemessen, beginne ich auch dort das Rumpfteil zu stricken? Oder stricke ich bis zum Marker und folge dann der Anleitung? Gruss
12.04.2015 - 21:51DROPS Design svaraði:
Der Rumpf wird ja einfach nur glatt re gestrickt, daher ist es egal, wo Sie die Rd beginnen. Wenn Sie den Faden nicht abschneiden, bleibt der Rd-Beginn an der hinteren Mitte, Sie können also einfach weiterstricken und an den beiden markierten Seiten wie beschrieben ab- und zunehmen. Wenn Sie den Rd-Beginn lieber an der Seite haben, können Sie den Faden neu ansetzen und an der Seite beginnen.
13.04.2015 - 09:19
Sara skrifaði:
Es fehlt nicht! Es ist unter dem Ärmel von dem Diagram ganz unten.
03.04.2015 - 18:55
Rebekka skrifaði:
Hier fehlt das Diagramm A.1 Bitte ergänzen. Vielen Dank
03.04.2015 - 13:36DROPS Design svaraði:
Antwort siehe oben! :-) Das Diagramm ist sehr klein und neben der Maßskizze zu finden. :-)
03.04.2015 - 20:34Tineke skrifaði:
Goedemorgen, Ik kan mij vergissen, maar dit is volgens mij dezelfde als 161-11 Groetjes, Tineke
07.03.2015 - 08:28
Andrea skrifaði:
Hallo im Video wird gezeigt wie ein Umschlag in der Rückreihe abgetsrickt wird aber nicht in der Runde... Geht das anders?
28.02.2015 - 08:24DROPS Design svaraði:
Sie stricken den Umschlag in der Runde einfach wie eine rechte M ab, d.h. Sie stechen in das vordere M-Glied ein und stricken eine M. Dadurch bildet sich dann ein Loch.
01.03.2015 - 20:43
Brandy skrifaði:
Deja vu
08.02.2015 - 13:51
MOntse skrifaði:
Me gusta mucho, espero ver pronto el patrón
27.01.2015 - 16:15
Athena Jumper#athenajumper |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Paris með hringlaga berustykki, sléttprjóni, garðaprjóni og gatamynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að sleppa við göt. ÚTAUKNING 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 l í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett á milli þessa l). Uppslátturinn er prjónaður snúinn sl í næstu umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan 1 l sléttprjón og prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sléttprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Byrjun umferðar = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 l á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umf í mynstri eru aukið út um 12-16-18-18-20-20 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 = 104-112-118-122-128-132 l. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir til baka á hringprjóna nr 4,5. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir í 3. umf í garðaprjóni og 6-7-13-15-21-26 l jafnt yfir í 9. umf í garðaprjóni (ATH: Aukið út um í einni umf með sl) = 120-129-141-147-159-168 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónað hafa verið alls 14-14-16-16-16-20 umf garðaprjón, stykkið mælist 7-7-8-8-8-9 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stoffið mælist 2 cm er aukið út með því að slá uppá prjóninn á undan sl l í hverri br mynstureiningu umf hringinn (= 40-43-47-49-53-56 l fleiri) = 160-172-188-196-212-224 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. Haldið áfram með 1 l sl, 3 l br. Endurtakið útaukningu á undan hverri sl l þegar stroffið mælist 4-4-4-5-6-6 cm = 200-215-235-245-265-280 l. Haldið áfram með 1 l sl, 4 l br þar til stroff mælist alls 6-6-6-7-8-8 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-11-11-15-21-28 l jafnt yfir = 208-226-246-260-286-308 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram með A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-10-10-16-22-28 l jafnt yfir = 216-236-256-276-308-336 l. Haldið nú áfram með hringprjóna nr 5 þannig: Prjónið fyrstu 30-34-37-41-47-52 l (= bakstykki), setið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 60-68-74-82-94-104 l (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið þær 30-34-37-41-47-52 l (= bakstykki) sem eftir eru í umf. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 136-152-164-180-204-224 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11-10-9-8-7-6 cm = 128-144-156-172-196-216 l. Þegar stykkið mælist 18-17-16-15-14-13 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2! (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2½-3-3-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 148-164-176-192-216-236 l. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm aukið út um 10-8-11-10-14-8 l jafnt yfir = 158-172-187-202-230-244 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið laust af. ERMI: Ermin er prjónuð með sléttprjóni, í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 48-50-54-56-60-64 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði yfir á hringprjón/sokkaprjón nr 5 og fitjið upp 8 nýjar l undir ermi = 56-58-62-64-68-72 l. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið síðan áfram í sléttprjón, JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki mitt á milli nýrra l undir ermi. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki LESIÐ ÚRTAKA AÐ OFAN! Endurtakið úrtöku með 4-3½-3-2½-2½-2 cm millibili 7-8-9-9-11-12 sinnum til viðbótar = 40-40-42-44-44-46 l. Þegar ermin mælist 35-35-35-34-34-34 cm eru prjónaðar 2 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, prjónið áfram A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og aukið út um 1-1-3-3-3-3 l jafnt yfir = 41-41-45-47-47-49 l. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan af, ermin mælist ca 39-39-39-38-38-38 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #athenajumper eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.