Cicilie skrifaði:
Fint mønster og flott blåfarge
01.01.2015 - 14:56
Nicole skrifaði:
Wunderschön mit dem Muster oben!!!
21.12.2014 - 22:45
Simonetta skrifaði:
Bellissimo
19.12.2014 - 17:10
DANIELLE VAN RYSEGHEM skrifaði:
Un jacquard d'été très frais. Classique mais avec un charme fou.
19.12.2014 - 09:28
Elena Antonia Bordignon skrifaði:
Leggero lo stile . Il tocco azzurro lo rende unico!
12.12.2014 - 15:31
Yvonne skrifaði:
Så himla fin!
11.12.2014 - 17:30
Loredana skrifaði:
Semplicemente bello! Raffinata la scelta dei colori
11.12.2014 - 14:44
Nordic Summer Cardigan#nordicsummercardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-32 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47 og 55 cm. STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm. STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm. STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm. STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm. AÐSNIÐ: Til þess að flíkin verði aðsniðin þá er lykkjum fækkað við 4 prjónamerki. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum svona þegar 2 l eru eftir á undan 1. og 3. prjónamerki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki: 2 l slétt saman. ÚTAUKNING: Aukið út við þar sem flíkin er aðsniðin við 4 prjónamerki. Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn brugðið svo ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á undan 2 l á undan A.3 þannig: 2 lykkjur slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 211-231-251-275-299-327 l með litnum hvítur DROPS Baby Merino (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan): 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið mynstur eftir A.5 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1. l í A.1 og 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Í umf 7 í mynstri er síðasta l á undan kanti að framan prjónuð slétt (séð frá réttu). Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 31-32-34-35-35-36 l, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l (nú eru 31-32-34-35-35-36 l eftir á prjóni eftir síðasta prjónamerki). Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ við 4 prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 183-203-223-247-275-303 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 211-231-251-275-299-327 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Næsta umf er prjónið frá röngu þannig: Prjónið 50-55-60-65-71-78 l (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 91-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 50-55-60-65-71-78 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum hvítur. Prjónið mynstur eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þannig: Byrjið frá réttu með litnum hvítur og prjónið l frá hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 331-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykki. Prjónið nú sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 283-303-319-347-367-403 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 263-277-291-315-331-363 l á prjóni. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.4 þar til 6 l eru eftir á prjóni (ATH: veljið mynstur fyrir rétta stærð), endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mynstri – ATH: Síðasta l í sléttprjóni á undan kanti að framan (séð frá réttu) er prjónuð eins og 1. l í A.4, en án úrtöku, þannig að A.4 byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 191-201-211-239-251-275 l á prjóni. Prjónið 1 umf brugðið frá röngu með litnum hvítur (kantur að framan heldur áfram í garðaprjón) JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað í kanti að framan) = 187-195-203-211-221-231 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.5 þar til 6 l eru eftir á prjóni (ATH: veljið mynstur fyrir rétta stærð), endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð upphækkun að aftan í hnakka þannig: Byrjið frá réttu með litnum hvítur og prjónið sl þar til 20-20-22-22-24-26 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 20-20-22-22-24-26 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 52-52-58-58-64-70 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl þar til 52-52-58-58-64-70 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 68-68-76-76-82-92 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 68-68-76-76-82-92 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og byrjið frá röngu, prjónið mynstur eftir A.1 (byrjið á umf 2 í A.1). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 30-28-36-34-44-44 l jafnt yfir = 157-167-167-177-177-187 l á prjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #nordicsummercardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-32
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.