Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þegar smellt er á PANTA hnappinn þá verður þér vísað á heimasíðu Handverkskúnst
Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!
= sl með hvítu | |
= br með hvítu | |
= sl með fjólubláu | |
= sláið uppá með hvítu | |
= 2 l slétt saman með hvítu | |
= takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman með hvítu, steypið óprjónuðu l yfir |
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Nordic Summer |
|||||||||||||||||||
|
|
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino með laskalínu. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-33 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. AÐSNIÐ: Til þess að flíkin verði aðsniðin þá er lykkjum fækkað við 4 prjónamerki. Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ÚTAUKNING: Aukið út við þar sem flíkin er aðsniðin við 4 prjónamerk þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn sl svo að ekki myndist gat. LASKALÍNA: Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið lykkjum á undan 2 l á undan A.3 þannig: 2 l slétt saman. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 200-220-240-264-288-316 l á hringprjóna nr 2,5 með litnum hvítur DROPS Baby Merino. Prjónið mynstur eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 24-28-31-36-42-48 l, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 l, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 l (nú eru 24-28-31-36-42-48 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki). Fellið nú af fyrir AÐSNIÐ við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 172-192-212-236-264-292 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNINGU (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 200-220-240-264-288-316 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 l sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 l sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-5-6-6-6 l fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum hvítur. Prjónið mynstur eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þannig: Haldið áfram með litnum hvítur og prjónið l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá framstykki, prjónið l frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið l frá bakstykki = 320-348-372-400-428-464 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykki. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 272-292-308-336-356-392 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir = 252-266-280-304-320-352 l á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.4 JAFNFRAMT 180-190-200-228-240-264 l á prjóni. Prjónið 1 umf slétt með litnum hvítur JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir = 176-184-192-200-210-220 l. Prjónið nú mynstur eftir A.5 – veljið mynstur fyrir rétta stærð. Þegar A.5 hefur verið prjónað er prjónuð upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan. Byrjið við miðju að aftan og prjónið sl (með litnum hvítur) þar til 14-14-16-16-18-20 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 14-14-16-16-18-20 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 30-30-34-34-38-42 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 30-30-34-34-38-42 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 46-46-52-52-58-64 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 46-46-52-52-58-64 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 62-62-70-70-76-86 l eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 62-62-70-70-76-86 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið sl til baka að byrjun umf. HÁLSMÁL: Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið mynstur hringinn yfir allar l eftir A.1 JAFNFRAMT í 1. umf er fækkað um 30-28-36-34-44-44 l jafnt yfir = 146-156-156-166-166-176. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sl. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6917 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (131)
Mats Sandström wrote:
Ärmarna ser korta ut på bilden, mer som trekvartsärmar. Även antalet cm känns som om de blir korta. Finns mått på fullång ärm?
04.03.2024 - 06:47DROPS Design answered:
Hej, ikke til den her opskrift, men du kan altid strikke ærmer længere :)
05.03.2024 - 15:24Mina wrote:
Gilt die Maschenprobe für gewaschene Maschenprobenteile?
14.10.2023 - 23:54DROPS Design answered:
Liebe Mina, wie früher gesagt, lesen Sie alle Waschenhinweise zu Baby Merino - gerne können Sie auch eine Maschenprobe waschen, das kann Ihnen helfen, und Merinowolle lieber fester als locker zu stricken. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 09:31Mina wrote:
Ich habe mit Merino Extra Fine einen Pullover nach Anleitung gestrickt und mich dabei an die Maschenprobe gehalten. Nach dem Waschen (Schonwaschgang 40) war der Pullover ca. 1/3 größer als vorher. Nun möchte ich Baby Merino ausprobieren. "Leiert" diese Wolle auch aus? Meine Strickprobe ergibt bei Nadel3 28M statt 24M. Bei Nadel 3,5 habe ich 26 M. Nun meine Frage, soll ich den Pulli nach Vorgabe, ungeachtet der Maschenprobe, stricken, da der Pulli nach dem Waschen größer wird?
14.10.2023 - 23:53DROPS Design answered:
Liebe Mina, folgen Sie vollständig die Waschenhinweisen unter die Farbkarte (siehe hier) - mit Merinowolle sind es extra Tipps, gerne kann Ihnen noch Ihr DROPS Händler damit (auch per Telefon oder per E-Mail) weiterhelfen. Viel Spaß beim stricken!
16.10.2023 - 09:28Regine wrote:
Hallo, ich habe den Pullover in XXL gestrickt, obwohl ich M trage, damit die Maschenprobe passt. Ich stricke eher fest. Nun bin ich vor dem Muster A5 und stelle fest, dass der Ausschnitt viel zu weit wird. Was kann ich tun? Beim Muster A5 wird ja nicht mehr abgenommen. Ich habe wie in der Anleitung steht noch 210 Maschen auf der Nadel. Danke und mit Gruß, Regine
07.09.2023 - 17:17Regine wrote:
Ich habe den Pullover in XXL gestrickt, obwohl ich M trage, da ich sehr fest stricke und ich so mit der Maschenprobe hingekommen bin. Nun bin ich vor dem Muster A5, indem es ja keine Abnahme mehr gibt angekommen und habe noch 210 Maschen, laut Angabe, auf der Nadel. Leider wird der Ausschnitt so viel zu weit. Was kann ich tun? Ganz liebe Grüße, Regine
07.09.2023 - 17:13DROPS Design answered:
Liebe Regine, sollte Ihre Maschenprobe stimmen, dann sollten Sie die richtigen Maßen wie in der Maßskizze haben - eine Erhöhung wird zuerst gestrickt, dann nehmen Sie 44 Maschen regelmäßig verteilt ab = 166 M für den Kragen - den Halsausschnitt ist hier weit - siehe Maßskzze. Viel Spaß beim stricken!
07.09.2023 - 17:26Richard Duddridge wrote:
Hi. I'm knitting this using 'Drops' Merino Extra Fine., which is yarn group 'B'. I've cast on for the body, using 2.5mm x 80cm circular needles. Last year, I made this, but using the Baby Merino (Group A), as recommended. Now, I have changed to the 3.00mm x 80cm circular needles and the first row does measure 20cm with 48 stitches knitted! That is what the pattern states. Please can you advise me. Thanks.
07.08.2023 - 18:43DROPS Design answered:
Dear Mr Duddridge, Merino Extra Fine is not an alternative to Baby Merino as it's a thicker yarn, this means your tension will be different, to get the same tension you might have a much thicker texture. Note that your tension in height is also important to get the right measurements on yoke. It might be wise to choose a pattern for yarn group B, just as Merino Extra Fine belongs to. Happy knitting!
08.08.2023 - 09:10Mikaëla wrote:
A3 är bara 12 varv, ska man fortsätta längre? Jag får ett långt vitt parti utan hål innan A4 om jag ska göra klart raglan 7 ggr på vart 4 varv. Det ser intet rätt ut.
01.05.2023 - 09:09DROPS Design answered:
Hei Mikaëla Du gjentar A.3 i høyden samtidig som du feller til raglan. Etter siste felling strikkes det 1 omg rett SAMTIDIG som det felles 20-26-28-32-36-40 m jevnt fordelt = 252-266-280-304-320-352 m på p. Videre strikkes det mønster rundt etter diag A.4. mvh DROPS Design
02.05.2023 - 13:49Renate wrote:
Ich bin erfolgreich fast am Ende der Passe angekommen und will jetzt die Nackenerhöhung mit verkürzten Reihen stricken. Was mich jedoch irritiert, ist die Anweisung, nach dem Wenden „rechts stricken“. Dann erhalte ich doch auf der Vorderseite kraus rechts, aber nicht glatt rechts wie der restliche Pulli. Oder ist das „rechts stricken“ so gemeint, dass ich auf der Vorderseite das Muster glatt rechts erhalten soll und deshalb nach dem Wenden linke Maschen stricken soll?
22.03.2023 - 15:26DROPS Design answered:
Liebe Renate, ja die verkürzten Reihe werden krausrechts gestrickt, dh wie beim A.1, das danach gestrickt wird. Viel Spaß beim stricken!
22.03.2023 - 16:16Mikaëla Lind wrote:
Fortsättning på min fråga innan om stickfasthet (27 maskor på 10 cm stickor 3). Bröstvidd på M är 92 cm. Stämmer mina uträkningar att det istället kommer bli 82 cm med min stickfasthet? Stl L skulle bli 89 cm ? Det skulle i så fall passa mig bättre. Men jag har aldrig gjort L, jag väljer alltid mellan S och M. Känns läskigt att få ett stort projekt att passa bra.
11.03.2023 - 21:35DROPS Design answered:
Hei Mikaëla Ja, veldig kjedelig om ikke plagget vil stemme. Selv om du ønsker å strikke med pinne 3 og str. L for å få det brystviddemålet som vil passe deg best, kan det være at pinnene i høyde ikke vil stemme osv. For at alle mål skal stemme, anbefaler vi den strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften, det er den denne oppskriften er regnet ut fra. mvh DROPS Design
13.03.2023 - 12:56Mikaëla Lind wrote:
Jaha får 27 maskor på 10 cm. Ska jag sticka med 3,5 då tycker ni? Jag tycker att det blir så glest. Vad skulle ni råda?
11.03.2023 - 20:59DROPS Design answered:
Hei Mikaëla For at målene i oppskriften skal stemme må du bruke den pinnestr. som gir deg den strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design
13.03.2023 - 12:49