Marie Claire skrifaði:
Très joli modèle (les modèle de jupes sont très rares)
05.01.2015 - 18:14
Marjo skrifaði:
Leuk model deze graag opnemen
03.01.2015 - 08:39M Lee skrifaði:
I'm so glad to see modest skirts as an option! Thank you.
01.01.2015 - 22:12
Cebina Søgaard skrifaði:
Love it.
29.12.2014 - 19:01
Brit Skaugrud skrifaði:
Morsom skjørt! Kanskje jeg stikker et til en av mine døtre.
28.12.2014 - 13:10
Outi Kaunisharju skrifaði:
Kivaa kun hameohjeitakin löytyy.tämä nätti malli
27.12.2014 - 08:50
Monique Biersteker skrifaði:
Super truttig... sorry
16.12.2014 - 17:23
Gerda Augustin skrifaði:
Der Rock ist im Frühjahr/Sommer ein "MUß"
16.12.2014 - 16:24
Kathleen skrifaði:
The four frilly rows of knitting make this a simple yet elegantly stunning skirt a real classic. Please have the pattern in plus sizes of XL to 2X.
14.12.2014 - 19:47
Hannle Saari skrifaði:
Onpa sievä hame. Rimpsut on tosi kivat. Tämä täytyy tehdä kesäksi
12.12.2014 - 08:52
Summer Dance#summerdanceskirt |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónað pils úr DROPS Cotton Merino með pífum með öldumynstri. Stærð S-XXXL.
DROPS 159-19 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LEIÐBEININGAR: Ef það verða of margar l á prjóni, prjónið þá í hring með báðum hringprjónum þar til nægilegt pláss er á prjóninum. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l til skiptis hægra og vinstra megin við öll prjónamerkin. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti er lykkjum fækkað hægra megin við öll prjónamerkin, í annað skipti er lykkjum fækkað vinstra megin við öll prjónamerkin, o.s.frv. Fækkið um 2 l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PILS - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Neðri hluti af pilsi samanstendur af 4 pífum sem liggja í lögum ofan á hverri annarri. 1. PÍFA: Fitjið upp 299-325-364-403-429-468 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino – LESIÐ LEIÐBEININGAR! Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 23-25-28-31-33-36 sinnum á breiddina = 253-275-308-341-363-396 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 51-51-57-64-58-64 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l. Þegar stykkið mælist 14 cm er það lagt til hliðar. 2. PÍFA: Fitjið upp 286-312-351-390-416-455 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 22-24-27-30-32-35 sinnum á breiddina = 242-264-297-330-352-385 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 40-40-46-53-47-53 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l. Leggið 2. pífuna ofan á 1. pífu og prjónið þær saman þannig: 1 l frá fyrri pífu er prjónuð slétt saman með 1 l frá hinni pífunni, gerið þetta þar til allar l hafa verið prjónaðar saman = 202-224-251-277-305-332 l. Prjónið 6 cm sléttprjón yfir allar l. Leggið stykkið til hliðar. 3. PÍFA: Fitjið upp 273-299-338-377-403-442 l á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 21-23-26-29-31-34 sinnum á breiddina = 231-253-286-319-341-374 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 29-29-35-42-36-42 l jafnt yfir = 202-224-251-277-305-332 l. Prjónið saman 3. pífuna við 2. pífu alveg eins og 1. og 2. pífa voru prjónaðar saman. Haldið áfram með 6 cm sléttprjón, JAFNFRAMT í síðustu umf eru felldar af 10-14-17-19-17-20 l jafnt yfir = 192-210-234-258-288-312 l. 4. PÍFA: Fitjið upp 260-286-325-364-390-429 á hringprjóna nr 4 með Cotton Merino. Prjónið nú mynstur í hring þannig: A.1 (= 13 l) 20-22-25-28-30-33 sinnum á breiddina = 220-242-275-308-330-363 l. Haldið síðan áfram með A.2 (= 11 l). Þegar A.2 hefur verið prjónað 6 sinnum á hæðina, prjónið 2 fyrstu umf í A.2 einu sinni til viðbótar. Prjónið nú áfram í sléttprjóni, JAFNFRAMT í fyrstu umf er fækkað um 28-32-41-50-42-51 l jafnt yfir = 192-210-234-258-288-312 l. Prjónið saman 4. pífuna við 3. pífu alveg eins og 1. og 2. pífa voru prjónaðar saman = 192-210-234-258-288-312 l. Stykkið mælist nú ca 26 cm. Haldið nú áfram í sléttprjóni til loka. Í næstu umf eru sett 6 prjónamerki í stykkið með byrjun frá miðju að aftan (= byrjun á umf) þannig: Prjónið 16-18-20-22-24-26 l, setjið eitt prjónamerki, setjið síðan 5 prjónamerki með 32-35-39-43-48-52 l millibili á milli prjónamerkja. Nú eru 16-17-19-21-24-26 l eftir í umf eftir síðasta prjónamerki. Í næstu umf byrjar úrtaka – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í öðrum hverjum cm 3-4-5-6-7-8 sinnum til viðbótar og í hverjum cm 4 sinnum = 144-156-174-192-216-234 l. Þegar stykkið mælist 40-42-44-46-48-50 cm prjónið 1 umf br (= uppábrot), síðan eru prjónaðir 2 cm fyrir fald áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Brjótið faldinn saman tvöfaldan að röngu og saumið fallega niður. Skiljið eftir smá op til þess að þræða teygju í gegn. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerdanceskirt eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 21 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 159-19
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.