JILL M skrifaði:
I am having trouble printing this pattern, each time I click on the link it takes me to an advert for 25% off sock yarn in March, I then click to continue & end up back where I started. Any help please, I am using an iPad which I regularly print from.
29.03.2015 - 15:38DROPS Design svaraði:
Hi Jill. At the top of the advert (right), there should be a link "continue to print pattern". Click there to preoceed.
29.03.2015 - 15:53
Marta skrifaði:
Can someone explain please K 2 tog, 1 YO between 2 sts in diagram A1?
27.03.2015 - 15:13DROPS Design svaraði:
Dear Marta, on row 3 in A.1, work *K2 tog, YO* all the round - number of sts should be constant, each decrease will be compensated by the YO. Happy crocheting!
30.03.2015 - 14:29
Germana skrifaði:
Bellissimo questo modellino ma non si potrebbe dare indicazioni con i ferri diritti. Io i ferrri circolari non li so usare. germana
18.02.2015 - 10:51
Anna skrifaði:
Pierwsze skojarzenie jakie przyszło mi do głowy na widok tego projektu to: LAZUR - pozdrawiam Ania
04.02.2015 - 19:08
Sabine skrifaði:
Warte schon ganz ungeduldig auf die Anleitung. Sieht einfach und sehr effektvoll aus.
24.01.2015 - 13:49
Annie skrifaði:
L'empiècement est juste sublime
13.01.2015 - 18:21
Maryse skrifaði:
Très beau motif... et belle couleur, en plus!
06.01.2015 - 20:15
Corry Neele skrifaði:
Mooi door zijn eenvoud. Perfect model. Zowel zonder mouw, als met lange mouw.
05.01.2015 - 21:12
Rosy skrifaði:
Petit haut parfait pour les vacances d'été
29.12.2014 - 17:44
Kathy skrifaði:
I really like the look out this for something to pack when traveling. Appears comfortable and easy to create.
29.12.2014 - 02:55
Athena#athenatop |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Prjónaður toppur úr DROPS Paris með hringlaga berustykki, sléttprjóni, garðaprjóni og gatamynstri, prjónaður ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 161-11 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ÚTAUKNING 1: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að sleppa við göt. ÚTAUKNING 2: Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við 2 l í hvorri hlið (prjónamerki er staðsett á milli þessa l). Uppslátturinn er prjónaður snúinn br í næstu umf. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan 1 l sléttprjón og prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki og 1 l sléttprjón þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Byrjun umferðar = miðja að aftan. BERUSTYKKI: Fitjið upp 92-96-100-104-108-112 l á hringprjóna nr 4,5 með Paris. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og prjónið A.1, JAFNFRAMT í fyrstu umf í mynstri er aukið út um 12-16-18-18-20-20 l jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING 1 = 104-112-118-122-128-132 l . Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir til baka á hringprjóna nr 4,5. Prjónið garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út um 10 l jafnt yfir í 3. umf í garðaprjóni og 6-7-13-15-21-26 l jafnt yfir í 9. umf í garðaprjóni (ATH: Aukið út í einni umf með sl) = 120-129-141-147-159-168 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar prjónaðar hafa verið alls 14-14-16-16-16-20 umf garðaprjón, stykkið mælist 7-7-8-8-8-9 cm, skiptið yfir á hringprjóna nr 5. Prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið nú þannig: * 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* umf hringinn. Þegar stoffið mælist 2 cm er aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á undan sl l í hverri br mynstureiningu umf hringinn (= 40-43-47-49-53-56 l fleiri) = 160-172-188-196-212-224 l. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt. Haldið áfram með 1 l sl, 3 l br. Endurtakið útaukningu á undan hverri sl l þegar stroffið mælist 4-4-4-5-6-6 cm = 200-215-235-245-265-280 l. Haldið áfram með 1 l sl, 4 l br þar til stroff mælist alls 6-6-6-7-8-8 cm. Prjónið 2 umf sléttprjón. Skiptið nú yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-11-11-15-21-28 l jafnt yfir = 208-226-246-260-286-308 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5 og haldið áfram með A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina, skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5. Prjónið 4 umf garðaprjón, JAFNFRAMT í fyrstu umf er aukið út um 8-10-10-16-22-28 l jafnt yfir = 216-236-256-276-308-336 l. Haldið nú áfram með hringprjóna nr 5 þannig: Prjónið fyrstu 30-34-37-41-47-52 l (= bakstykki), setið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið næstu 60-68-74-82-94-104 l (= framstykki), setjið næstu 48-50-54-56-60-64 l á þráð (= ermi), fitjið upp 8 nýjar l undir ermi, prjónið þær 30-34-37-41-47-52 l (= bakstykki) sem eftir eru í umf. FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 136-152-164-180-204-224 l fyrir fram- og bakstykki. Setjið prjónamerki í hvora hlið á fram- og bakstykki þar sem fitjaðar voru upp nýjar l undir ermi (= 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki (= 4 l færri) – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 11-10-9-8-7-6 cm = 128-144-156-172-196-216 l. Þegar stykkið mælist 18-17-16-15-14-13 cm aukið út um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA 2! (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2-2½-3-3-3½-4 cm millibili 4 sinnum til viðbótar = 148-164-176-192-216-236 l. Þegar stykkið mælist 32-33-34-35-36-37 cm aukið út um 10-8-11-10-14-8 l jafnt yfir = 158-172-187-202-230-244 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4,5 og prjónið 6 umf garðaprjón. Fellið laust af. KANTUR ERMI: Setjið til baka l af þræði yfir á sokkaprjóna nr 4,5= 48-50-54-56-60-64 l. Prjónið upp 1 l í hverja af 8 l sem fitjaðar voru upp undir ermi = 56-58-62-64-68-72 l. Fellið laust af allar l á prjóni. Prjónið á sama hátt á hinni erminni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #athenatop eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-11
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.