DROPS Super Sale - 30% AFSLÁTTUR á 6 garntegundum í allan júní!
Product image DROPS Baby Merino yarn
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale
Velja stærð:
DROPS 161-33

#nordicsummersweater

DROPS Design: Mynstur nr bm-017
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 01, hvítur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 25, lavender

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

Þú gætir líka haft gaman af...

Product image DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 920.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5.

AÐSNIÐ:
Til þess að flíkin verði aðsniðin þá er lykkjum fækkað við 4 prjónamerki.
Fækkið lykkjum á eftir 1. og 3. prjónamerki þannig: 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum þegar 2 l eru eftir á undan 2. og 4. prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.



ÚTAUKNING:
Aukið út þar sem flíkin er aðsniðin við 4 prjónamerk þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma.
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
Fækkið lykkjum á undan 2 lykkjum á undan A.3 þannig: 2 lykkjur slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-220-240-264-288-316 lykkjur á hringprjóna nr 2,5 með litnum hvítur DROPS Baby Merino.
Prjónið mynstur eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 24-28-31-36-42-48 lykkjur, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 lykkjur, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 lykkjur og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 52-54-58-60-60-62 lykkjur (nú eru 24-28-31-36-42-48 lykkjur eftir í umferð eftir síðasta prjónamerki).
Fellið nú af fyrir AÐSNIÐ við 4 prjónamerkin – sjá útskýringu að ofan (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 172-192-212-236-264-292 lykkjur. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út eftir 1. og 3. prjónamerki og á undan 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNINGU (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 200-220-240-264-288-316 lykkjur. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Næsta umferð er prjónuð þannig: Fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 lykkjur sléttprjón (= framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 lykkjur fyrir handveg, prjónið 90-100-110-120-132-146 lykkjur sléttprjón (= bakstykki) og fellið af síðustu 5-5-5-6-6-6 lykkjur fyrir handveg.
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum hvítur.
Prjónið mynstur eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9-7-7-6-6-5 hverri umferð alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 lykkjur. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 lykkjur undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 lykkjur eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þannig: Haldið áfram með litnum hvítur og prjónið lykkjur frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og 1 prjónamerki í síðustu lykkju á ermi, prjónið lykkjur frá framstykki, prjónið lykkjur frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu lykkju og 1 prjónamerki í síðustu lykkju á ermi og prjónið lykkjur frá bakstykki = 320-348-372-400-428-464 lykkjur á prjóni og 4 prjónamerki í stykki. Prjónið nú sléttprjón hringinn JAFNFRAMT er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við lykkju með prjónamerki í). JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umferð alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 272-292-308-336-356-392 lykkjur á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 lykkjur jafnt yfir = 252-266-280-304-320-352 lykkjur á prjóni. Prjónið nú mynstur hringinn eftir A.4 JAFNFRAMT 180-190-200-228-240-264 lykkjur á prjóni. Prjónið 1 umferð slétt með litnum hvítur JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-8-28-30-44 lykkjur jafnt yfir = 176-184-192-200-210-220 lykkjur. Prjónið nú mynstur eftir A.5 – veljið mynstur fyrir rétta stærð.
Þegar A.5 hefur verið prjónað er prjónuð upphækkun aftan í hnakka. Setjið 1 prjónamerki við miðju að framan.
Byrjið við miðju að aftan og prjónið slétt (með litnum hvítur) þar til 14-14-16-16-18-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 14-14-16-16-18-20 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 30-30-34-34-38-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 30-30-34-34-38-42 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 46-46-52-52-58-64 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 46-46-52-52-58-64 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið slétt þar til 62-62-70-70-76-86 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki. Snúið við, prjónið slétt til baka þar til 62-62-70-70-76-86 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið slétt til baka að byrjun umferðar.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið mynstur hringinn yfir allar lykkjur eftir A.1 JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 30-28-36-34-44-44 lykkjur jafnt yfir = 146-156-156-166-166-176 lykkjur. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sléttum lykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

slétt lykkja með litnum hvítur = slétt lykkja með litnum hvítur
brugðin lykkja með litnum hvítur = brugðin lykkja með litnum hvítur
slétt lykkja með litnum lavender = slétt lykkja með litnum lavender
sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum hvítur = sláið 1 sinni uppá prjóninn með litnum hvítur
2 lykkjur slétt saman með litnum hvítur = 2 lykkjur slétt saman með litnum hvítur
lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman með litnum hvítur, steypið lyftu lykkjunni yfir = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman með litnum hvítur, steypið lyftu lykkjunni yfir
Diagram for DROPS 161-33
Diagram for DROPS 161-33
Diagram for DROPS 161-33

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-33

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (136)

country flag Lili skrifaði:

Buen dia. Cual es el video del calado del cuello??? Gracias

30.06.2019 - 10:59

DROPS Design svaraði:

Hola Lili. En este momento no hay ningún video para esta parte. El calado de la cenefa del cuello se trabaja según el diagrama A.1, es decir 1 vuelta de derecho, 1 vuelta de revés, 1 vuelta de derecho, 1 vuelta de revés, 2 vuelta de derecho, en la siguiente vuelta trabajar como sigue: * 2 puntos juntos de derecho, 1 lazada*, repetir de * a * toda la vuelta., 2 vueltas de derecho, 1 vuelta de revés, 1 vuelta de derecho, 1 vuelta de revés.

10.07.2019 - 23:56

country flag Adela skrifaði:

"Cuando la labor mida 8 cm, aum 2 pts en el centro bajo la manga. Repetir los aum cada 9ª-7ª-7ª-6ª-6ª-5ª vta un total de 12-14-14-16-16-17 vcs = 80-84-86-92-94-98 pts. Cuando la labor mida 41-40-39-38-38-38 cm.Los 39 cm de largo de manga :debo medirlo sin incluir los cm de A.2 ? Gracias

04.05.2019 - 15:11

DROPS Design svaraði:

Hola Adela. La manga se mide desde el borde de montaje, incluyendo A.2.

07.05.2019 - 10:56

country flag Angelique Vladi skrifaði:

J'ai acheté la laine indiquée dans la boutique Kalidou et j'ai tricoté le modèle taille L. Je l'ai lavé avec un produit spécial laine, à l'eau froide sans le frotter. Je l'ai étendu sur une serviette, sur mon lit pour sécher. Je me retrouve avec un pull de taille XXXL!!! Inutilisable... Je ne suis pas une tricoteuse expérimentée, j'ai pris un temps fou pour finir le pull qui était très joli. Restez prudent avant de vous lancer dans l'aventure...

14.04.2019 - 19:00

DROPS Design svaraði:

Bonjour Mme Vladi, DROPS Baby Merino se lave en machine comme indiqué sur l'étiquette et le nuancier - vous trouverez ici d'autres conseil sur l'entretien et particulièrement de nos laines mérinos. La boutique Kalidou saura vous conseiller si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

23.04.2019 - 16:05

country flag Kari Engen skrifaði:

Vedr raglanfelling. Det står øverst st en skal felle raglan i hver overgang, men lengre ned står det at det skal felles hver 4. Omgang. Hva er riktig?

04.04.2019 - 22:16

DROPS Design svaraði:

Hej Kari, Raglan forklaringen under Instruksjoner forklarer hvordan man gør. Nede i opskriften forklarer vi hvornår og hvor ofte man feller. God fornøjelse!

05.04.2019 - 15:18

country flag Sonia Hegg skrifaði:

Har kommet til A3 og skal kastene strikkes vridd rett i neste omgang eller skal det være hull her??

25.03.2019 - 16:04

DROPS Design svaraði:

Hei Sonia, Kastene skal strikkes rett slik at du får hull. God fornøyelse!

27.03.2019 - 07:03

country flag Guacimara Velasco skrifaði:

¿los gráficos se empiezan a realizar de abajo a arriba o de arriba a abajo? ¿cuál sería la fila 1? Siento si la pregunta es muy simple, es mi primera vez aquí. Gracias

16.09.2018 - 22:16

DROPS Design svaraði:

Hola Guacimara, todos los gráficos se leen de abajo arriba, de derecha a izquierda en las filas impares y de izquierda a derecha en las filas pares.

17.09.2018 - 20:35

country flag Stefanie skrifaði:

Nach A3 sind erst 4x 4 Maschen des Raglan abgenommen. Wie geht es dann weiter?Glatt rechts oder A3 nochmals stricken bis 8x4 Maschen Rglan abgesteckt wurden bei Größe L?

14.09.2018 - 09:35

DROPS Design svaraði:

Liebe Stefanie, ja stimmt, A.3 wiederholen bis Sie die 8 Abnahmen gestrickt sind . Viel Spaß beim stricken!

14.09.2018 - 10:53

country flag Birgitta Illyés skrifaði:

Hej! Jag undrar om jag ska sticka A3 fler gånger än vad som visas i mönstret.

14.07.2018 - 13:33

DROPS Design svaraði:

Hei Birgitta. Du skal fortsette med A.3 på samme måte som vist i diagrammet til du er ferdig med raglanfellingen. Etter at fellingen til raglan er ferdig, skal ikke A.3 strikkes videre, men det strikkes A.4 over alle maskene. God fornøyelse

18.07.2018 - 09:26

country flag Johanne skrifaði:

Hei! Jeg skal snart begynne med mønsteret (A.4) og lurer på hvor jeg begynner med det? Når jeg nå holder på med A.3 og raglan har liksom første maske i første erme blitt starten på en omgang. Usikker på om dette er rett, så enda mer usikker på hvor jeg burde begynne med A.4. Håper dere kan hjelpe meg :) mvh Johanne

03.04.2018 - 12:15

DROPS Design svaraði:

Hei Johanne. Du feller til første erme på starten/slutten av omgangen, så når du strikker omgangen der ermene festes blir den første maskene på ermet starten av omganen. Det er bare å begynne med A4 etter siste omgang med A3. Det blir en liten forsyvning av mønsteret akkurat i skjøtet mellom omgangene, det er vanlig. Et tips er å velge å starte omgangen på bakstykket heller enn forstykket. God fornøyelse.

05.04.2018 - 13:41

country flag Ulrike skrifaði:

Welche größe muss ich stricken, wenn ich normalerweise Größe 42 trage? der pullover sollte weit genug sein, um ein shirt darunter zu tragen aber sollte seine form behalten, danke

03.04.2018 - 10:19

DROPS Design svaraði:

Liebe Ulrike, unten der Seite finden Sie eine Maßskizze mit allen Maßen für jede Größe. Vergleichen Sie diese Maßen mit den einer ähnlichen Kleidung die Sie gerne haben, um die passenden Größe zu finden. Mehr lesen Sie über Größe hier. Viel Spaß beim stricken!

03.04.2018 - 13:51