DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 161-32
DROPS Design: Mynstur nr bm-016
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 01, hvítur
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 25, bláfjólublár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf sléttprjón verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 2,5 – fyrir kant.
DROPS PERLUTALA: RÚNUÐ (hvít), NR 521: 8 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 10, 17, 25, 32, 40, 47 og 55 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 57 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26, 34, 42, 50 og 59 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27, 36, 44, 53 og 61 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 55 og 63 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29, 38, 47, 56 og 65 cm.

AÐSNIÐ:
Til þess að flíkin verði aðsniðin þá er lykkjum fækkað við 4 prjónamerki. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum svona þegar 2 l eru eftir á undan 1. og 3. prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2. og 4. prjónamerki: 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Aukið út við þar sem flíkin er aðsniðin við 4 prjónamerki. Öll útaukning er gerð frá réttu!
Aukið út þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br svo ekki myndist gat.

LASKALÍNA:
Fækkið lykkjum fyrir laskalínu hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið lykkjum á eftir A.3 þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
Fækkið lykkjum á undan 2 l á undan A.3 þannig: 2 l slétt saman.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 211-231-251-275-299-327 l með litnum hvítur DROPS Baby Merino (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan): 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið mynstur eftir A.5 þar til 6 l eru eftir á prjóni, endið á 1. l í A.1 og 5 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með mynstur – ATH: Í umf 7 í mynstri er síðasta l á undan kanti að framan prjónuð slétt (séð frá réttu). Munið eftir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið nú sléttprjón með 5 kantlykkjur við miðju að framan í garðaprjóni í hvorri hlið.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 8-8-8-8-10-10 cm setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki er sett eftir fyrstu 31-32-34-35-35-36 l, 2. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l, 3. prjónamerki er sett eftir næstu 53-55-59-61-61-63 l og 4. prjónamerki er sett eftir næstu 48-56-62-72-84-96 l (nú eru 31-32-34-35-35-36 l eftir á prjóni eftir síðasta prjónamerki).
Í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir AÐSNIÐ við 4 prjónamerki – sjá útskýringu að ofan (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 183-203-223-247-275-303 l. Þegar stykkið mælist 22 cm í öllum stærðum er aukið út á undan 1. og 3. prjónamerki og á eftir 2. og 4. prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4.-4.-6.-6.-8.-8. hverri umf alls 7-7-7-7-6-6 sinnum = 211-231-251-275-299-327 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 38-39-39-40-41-43 cm. Næsta umf er prjónið frá röngu þannig: Prjónið 50-55-60-65-71-78 l (= vinstra framstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg, prjónið 91-101-111-121-133-147 l sléttprjón (= bakstykki), fellið af 10-10-10-12-12-12 l fyrir handveg og prjónið síðustu 50-55-60-65-71-78 l (= hægra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-58-60-62-64 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum hvítur. Prjónið mynstur eftir A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er skipt yfir á sokkaprjóna nr 3. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= miðja undir ermi) og prjónið sléttprjón. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu í 9.-7.-7.-6.-6.-5. hverri umf alls 12-14-14-16-16-17 sinnum = 80-84-86-92-94-98 l. Þegar stykkið mælist 41-40-39-38-38-38 cm (ATH: Styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla), fellið af miðju 10-10-10-12-12-12 l undir ermi (þ.e.a.s. fellið af 5-5-5-6-6-6 l hvoru megin við prjónamerki) = 70-74-76-80-82-86 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þannig:
Byrjið frá réttu með litnum hvítur og prjónið l frá hægra framstykki, prjónið síðan l frá fyrri ermi JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi, prjónið l frá bakstykki, prjónið l frá hinni erminni JAFNFRAMT er sett 1 prjónamerki í fyrstu l og 1 prjónamerki í síðustu l á ermi og prjónið til loka l frá vinstra framstykki = 331-359-383-411-439-475 l á prjóni og 4 prjónamerki í stykki.
Prjónið nú sléttprjón fram og til baka JAFNFRAMT er A.3 prjónað í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma (ör í mynstri á að passa við l með prjónamerki í). JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu er lykkjum fækkað fyrir LASKALÍNA hvoru megin við A.3 í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku fyrir laskalínu í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) alls 6-7-8-8-9-9 sinnum = 283-303-319-347-367-403 l á prjóni. Eftir síðustu úrtöku er prjónuð 1 umf br frá röngu (kantur að framan heldur áfram í garðaprjóni) JAFNFRAMT er fækkað um 20-26-28-32-36-40 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 263-277-291-315-331-363 l á prjóni. Næsta umf er prjónið frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.4 þar til 6 l eru eftir á prjóni (ATH: veljið mynstur fyrir rétta stærð), endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Haldið svona áfram með mynstur JAFNFRAMT er lykkjum fækkað eins og útskýrt er í mynstri – ATH: Síðasta l í sléttprjóni á undan kanti að framan (séð frá réttu) er prjónuð eins og 1. l í A.4, en án úrtöku, þannig að A.4 byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan. Þegar A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 191-201-211-239-251-275 l á prjóni. Prjónið 1 umf br frá röngu með litnum hvítur (kantur að framan heldur áfram í garðaprjón) JAFNFRAMT er fækkað um 4-6-8-28-30-44 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað í kanti að framan) = 187-195-203-211-221-231 l. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið mynstur eftir A.5 þar til 6 l eru eftir á prjóni (ATH: veljið mynstur fyrir rétta stærð), endið á 1 l sléttprjón og 5 kantlykkjur að framan eins og áður. Þegar A.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónuð upphækkun að aftan í hnakka þannig: Byrjið frá réttu með hvítur og prjónið sl þar til 20-20-22-22-24-26 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 20-20-22-22-24-26 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 36-36-40-40-44-48 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 52-52-58-58-64-70 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl þar til 52-52-58-58-64-70 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við, prjónið sl þar til 68-68-76-76-82-92 l eru eftir á prjóni. Snúið við, prjónið sl til baka þar til 68-68-76-76-82-92 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og prjónið út umf.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og byrjið frá röngu, prjónið mynstur eftir A.1 (byrjið á umf 2 í A.1). Í næstu umf frá réttu er fækkað um 30-28-36-34-44-44 l jafnt yfir = 157-167-167-177-177-187 l á prjóni. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er fellt laust af með sl frá réttu. Peysan mælist ca 56-58-60-62-64-66 cm frá öxl og niður.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 04.05.2015
undir HNAPPAGAT: 1 hnappagat = fellið af þriðju og fjórðu l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu með hvítu
symbols = br frá rétu, sl frá röngu með hvítu
symbols = sl frá réttu, br frá röngu með bláfjólubláu
symbols = sláið uppá með hvítu
symbols = 2 l slétt saman með hvítu
symbols = takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 2 l slétt saman með hvítu, steypið óprjónuðu l yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 161-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (27)

country flag Nadette wrote:

Bonjour, Je viens de terminer ce modèle : le résultat est vraiment joli. Seul bémol : j'ai suivi scrupuleusement les explications pour la taille M comme je le fais pour les modèles Drops en utilisant la laine Baby Mérino et des aiguilles 2.5 et 3 mais le cardigan correspond plutôt à une taille S...

28.02.2021 - 21:14

DROPS Design answered:

Bonjour Nadette, en fonction de la forme du modèle, certains seront plus près du corps que d'autres, pensez toujours à bien vérifier les mesures du schéma avec celles d'un vêtement similaire dont vous aimez la forme pour bien avoir les bonnes mesures finales souhaitées. Et n'hésitez pas à partager vos photos pour la galerie DROPS fan - plus d'infos ici. Bonne continuation!

01.03.2021 - 10:17

country flag Ursula Gajewski wrote:

Liebes Drops-Team: In der Passe - "GLEICHZEITIG 20-26-28-32-36-40 M gleichmäßig verteilt abnehmen (nicht bei den Blenden-M abnehmen) " - soll man diese Maschen in der Passe in einer Reihe oder über mehrere Reihen verteilt abnehmen??? Vielen Dank für eine Antwort!!!

12.03.2020 - 18:30

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gajewski, diese Maschen werden in einer Reihe abgenommen - hier lesen Sie, wie man regelmäßig verteilt abnimmt. Viel Spaß beim stricken!

13.03.2020 - 08:34

country flag AAnette Tougaard wrote:

Jeg kan ikke lige finde ud af mønsteret. For der er lige midt i forklaringen beskrevet en forkant, og jeg skal pludselig strikke frem og tilbage. Det passer jo ikke til den lukkede trøje.

07.02.2020 - 07:49

DROPS Design answered:

Hej Anette, Jo denne trøje er skrevet som en jakke, hvis du vil strikke blusen så skal du følge DROPS 161-33 God fornøjelse!

10.02.2020 - 16:53

country flag Olga wrote:

Witam serdecznie.Czy schemat A3 ma byc przerobiony tylko jeden raz ,czy wiecej razy ?

24.11.2019 - 19:00

DROPS Design answered:

Witaj Olgo! Schemat A.3 jest przerabiany 4 razy w rzędzie (w miejscach podkrojów reglanów). Jest on powtarzany na wysokość, aż reglan zostanie zakończony, np. w rozmiarze S będzie on powtórzony 2 razy na wysokość, a w ostatnim rozmiarze 3 razy na wysokość. Pozdrawiamy i miłej pracy!

24.11.2019 - 23:12

country flag Angela Humeniuk wrote:

When working A3, are you to leave the yo as a hole or do you work the back of the stitch to close the gap?

12.10.2019 - 00:41

DROPS Design answered:

Dear Angela, according the pattern, you knit the yarnovers (so there is a hole in their places. But it is up to you. The hole are decortive (I used them, when i knitted this pattern), but if you prefer, you can close it too. Happy Knitting!

12.10.2019 - 01:16

country flag Charlotte Thomsen wrote:

Ifølge opskriften skal man efter mønster A5 er strikket lave vendestrik. I opskriften står beskrevet at man skal strikke ret på såvel ret og vrang siden - kan det virkelig passe? Dvs. det er ikke glatstrikning men retstrikning og kun på ryggen/nakken

18.09.2019 - 17:48

DROPS Design answered:

Hej Charlotte, ja det stemmer, vi har strikket forhøjningen i retstrik, men det er smag og behag så du er naturligvis velkommen til at strikke den i glatstrik :)

19.09.2019 - 09:55

country flag Israa Samir wrote:

Hello I wonder if your team can offer a ready made clothes meaning can i choose a design and size and you can make it for me and send it to me

12.09.2019 - 17:12

DROPS Design answered:

Hello! Garnstudio DROPS Design only wholesales yarn. You can find a list of retailers on our stores page. Hope it helps!

25.09.2019 - 12:02

country flag Birgit Haug wrote:

Ich habe dieses wunderschöne Jäckchen gestrickt,aber die Maschenzahl und die Angaben für den Halsausschnitt stimmen nicht. erst als ich 40! Maschen zusätzlich abgenommen habe und ein verkürztes Muster strickte, hat es funktioniert.

31.07.2019 - 13:12

DROPS Design answered:

Liebe Frau Haug, die Jacke hat eine relativ weiten Halsausschnitt, die Maße des Halsausschnitts sehen Sie ja in der Maßskizze. Welche Größe haben Sie denn gestrickt? Ein Fehler ist in der Anleitung erst einmal nicht zu erkennen...

01.08.2019 - 09:09

country flag Lillian Solberg wrote:

Hvordan vil det bli om jeg ikke strikker jakken frem og tilbake, men heller strikker rundt og klipper opp etterpå?

10.05.2018 - 11:26

DROPS Design answered:

Hei Lillian, Du kan gjerne strikke rundt og klippe opp etterpå. Du må bare justere oppskriften slik at du strikke båndene til slutt, God fornøyelse!

11.05.2018 - 07:57

country flag Alena wrote:

Dobrý den, nemohu se dopočítat opakování vzoru A1 u velikosti M. Zde je psáno 231 ok.Vzor A1 se skládá z 8 ok. Takže mi to vychází na 227 včetně 5 ok légy na každou stranu. Opakuji 27 x vzor A1, pak 1 oko ze vzoru A1 + 5 + 5 ok légy = 227. Je to tak správně? Jak je prosím rozmístění značek pro tuto velikost? A zbývající rozpis ok?

05.03.2018 - 09:37