Arja Virtanen skrifaði:
Mallineule puuttuu ohjeesta. Lisäätkö sen
25.01.2015 - 08:31DROPS Design svaraði:
Hei! Mallineuleen pieni piirros löytyy mittapiirroksen oikeasta alakulmasta.
26.01.2015 - 17:15
Bodil skrifaði:
Tror det må være noe feil med maskeantallet ved forhøyningen i nakken.....stemmer ikke i str XXL som jeg strikker ihvertfall .....
13.08.2014 - 19:27Silvia Streskova skrifaði:
Dobry den, nikde som nenasla rozmery pre velkosti S,M,L, atd. Existuje nejaka tabulka s mierami? Dakujem Silvia
12.08.2014 - 09:59DROPS Design svaraði:
Milá Silvie, souhrnnou tabulku tu nemáme - u každého modelu uvádíme rozměry přímo v nákresu pod návodem. Rozměry jsou uvedeny v cm a v pořadí, v jakém jsou uvedeny velikosti v návodu (zleva doprava). Hodně zdaru!
23.08.2014 - 23:56
Monika Breininger skrifaði:
Guten Morgen, ich habe eine Frage. Unter dem Abschnitt Rumpfteil stehtdass nach allen Zunahmen und bei einer Länge von ... im Muster A1 über alle Maschen gestrickt werden soll. Auf dem Bild scheint das aber nicht so zu sein, sondern das grosse Perlmuster ziehrt nur den Bund und die Knopfblende. Stimmt die Anleitung so? Vielen Dank für eine Antwort!
23.07.2014 - 07:37DROPS Design svaraði:
Liebe Frau Breininger, ja, die Anleitung stimmt - die Jacke wird von oben nach unten gestrickt, daher stricken Sie das Perlmuster zuletzt.
23.07.2014 - 10:16
Aase skrifaði:
Utrolig sød. Den vil jeg gerne strikke.
21.06.2014 - 13:52
Margareta Svedman skrifaði:
Enkel snygg användbar tidlös modell
19.06.2014 - 16:10
Regina Holtzum skrifaði:
Wirkt sehr fein und edel!
06.06.2014 - 19:29
MARISA skrifaði:
Semplice ed elegante.
03.06.2014 - 20:22Marion skrifaði:
Love the borders in a different stitch and the loose fit
03.06.2014 - 11:14
Maria Turkia skrifaði:
Yksinkertainen, rennosti hienostunut.
02.06.2014 - 20:04
Come Here Cardigan#comeherecardigan |
|||||||
|
|||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Cotton Merino með laskalínu og perluprjóni, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 157-35 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR (tvöfalt perluprjón á hæðina): Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll úrtaka er gerð frá réttu! Aukið út um 2 l hvoru megin við hverja laskalínu þannig (= 16 l fleiri): Aukið út á undan 4 l slétt prjón og prjónamerki: Prjónið 2 l slétt í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri. Aukið út á eftir prjónamerki og 2 l sléttprjón: Prjónið 2 l slétt í 2 næstu l (þ.e.a.s. prjónið aftan og framan í lykkjubogann) = 2 l fleiri. Aukið út um 1 l hvoru megin við laskalínu þannig (= 8 l útauknar): Aukið út á undan 2 l sléttprjón og prjónamerki: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón. Aukið út á eftir prjónamerki þannig: 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður slétt í næstu umf svo ekki myndist gat! ÚRTAKA: Fækkið lykkjum af á eftir prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 l eru eftir á undan prjónamerki, 2 l slétt saman, 1 l sl. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu l frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (mælt frá uppfitjunarkanti): STÆRÐ: S: 2, 11 og 20 cm. STÆRÐ M: 2, 11 og 20 cm. STÆRÐ L: 2, 11 og 20 cm. STÆRÐ XL: 2, 12 og 21 cm. STÆRÐ XXL: 2, 12 og 21 cm. STÆRÐ XXXL: 2, 12 og 21 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Peysan er prjónuð fram og til baka, ofan frá og niður á hringprjóna. Ermin er prjónuð í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 114-118-122-126-130-134 l á hringprjóna nr 3,5 með Cotton Merino. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT í 3. umf í garðaprjóni er aukið út um 9-14-18-22-29-35 l jafnt yfir. Endurtakið útaukningu í 5. hverri umf í garðaprjóni = 132-146-158-170-188-204 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið nú upphækkun aftan í hnakka með byrjun frá réttu: Prjónið 86-97-106-115-128-140 l, snúið við, prjónið 40-48-54-60-68-76 l, snúið við, prjónið 45-53-59-65-73-81, snúið við. Haldið áfram fram og til baka yfir 5 l fleiri í hvert skipti sem snúið er við og þar til prjónað er yfir 60-68-74-80-88-96 l, snúið við og prjónið til út umf. Prjónið 1 umf sléttprjón til baka frá röngu. Prjónið nú þannig: A.1 yfir fyrstu 20-22-26-28-32-36 l, 5-6-5-6-6-6 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 22-23-23-23-24-254 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 38-44-50-56-64-72 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 22-23-23-23-24-24 l sléttprjón, setjið prjónamerki, 5-6-5-6-6-6 l sléttprjón, A.1 yfir næstu 20-22-26-28-32-36 l. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram með A.1 og sléttprjón, JAFNFRAMT í næstu umf byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan! Aukið út um 2 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri umf frá réttu alls 1-1-1-2-2-3 sinnum. Síðan er aukið út um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki í hverri umf alls 18-19-21-21-23-23 sinnum og í annarri hverri umf frá réttu 1 sinni í öllum stærðum = 300-322-350-378-412-444 l. Stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm frá öxl. Prjónið nú þannig: Prjónið fyrstu 46-50-55-60-66-72 l, setjið eftirfarandi 64-67-71-75-80-84 l á þráð (= ermi), fitjið upp 12 l undir vinstri ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 80-88-98-108-120-132 l, setjið næstu 64-67-71-75-80-84 l á þráð (= ermi). Fitjið upp 12 l undir hægri ermi (setjið prjónamerki mitt á milli þessa nýju l), prjónið næstu 46-50-55-60-66-72 l. STYKKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! FRAM- OG BAKSTYKKI: Nú eru 92-100-110-120-132-144 l fyrir bakstykki og 52-56-61-66-72-78 l fyrir hvort framstykki. Haldið áfram í sléttprjóni og A.1 eins og áður. ATH: Nýjar l undir hvorri ermi eru prjónaðar í sléttprjóni! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 2 l í hvorri hlið þannig: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, haldið áfram eins og áður yfir bakstykki þar til 1 l er eftir á undan næsta prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umf = 206-220-240-260-284-308 l. ATH: Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat! Endurtakið útaukningu með 2½-2½-3-3-3-3½ cm millibili 6-6-5-5-5-4 sinnum til viðbótar = 224-240-256-276-300-320 l. Þegar úrtöku er lokið og stykkið mælist 26-27-28-29-30-31 cm haldið áfram með A.1 yfir allar l. Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm fellið af með sl yfir sl og br yfir br. ERMI: Ermin er prjónuð í sléttprjóni í hring á hringprjóna/sokkaprjóna. Nú eru 64-67-71-75-80-84 l fyrir hvora ermi. Setjið til baka l af þræði á hringprjóna/sokkaprjóna nr 4 og fitjið upp 12 l undir ermi = 76-79-83-87-92-96 l. Prjónið sléttprjón hringinn, JAFNFRAMT er sett prjónamerki mitt á milli nýrra lykkja undir ermi (þ.e.a.s. 6 l hvoru megin við prjónamerki). HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með ca 2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili 11-11-12-13-15-15 sinnum til viðbótar = 52-55-57-59-60-64 l. Þegar ermin mælist 32-32-32-31-31-30 cm fellið af 0-1-1-1-0-0 l = 52-54-56-58-60-64 l. Haldið nú áfram með A.1 yfir allar l. Fellið af þegar ermin mælist 37-37-37-36-36-35 cm. Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið saman undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan ca 2 cm frá kanti. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #comeherecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 157-35
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.