Doret skrifaði:
Eine feine kleine Jacke , freue mich schon auf die Strickanleitung
25.06.2014 - 17:42
Malin skrifaði:
Så jättefin!! Ser ut att vara rolig att sticka. Vill ha fler, i olika färger!
17.06.2014 - 21:45
Rostagno skrifaði:
Classique mais très élégant. Joli point.
17.06.2014 - 16:14
Marliese skrifaði:
Ein sehr schönes Modell. Möchte ich gerne stricken. Das Muster macht bestimmt Spass u. ist nicht zu anspruchsvoll.
13.06.2014 - 12:45C Darmanin skrifaði:
Elegant cardigan. Would love to knit it.
06.06.2014 - 19:52
Annarosa skrifaði:
Davvero elegante
03.06.2014 - 14:23
Heidi skrifaði:
Sød og anvendelig. Håber bestemt at denne model bliver udvalgt!
03.06.2014 - 08:22
Feathers#featherscardigan |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyAlpaca Silk með gatamynstri og sléttprjónuðum ermum. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-37 |
||||||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. RÁÐ VARÐANDI AÐLÖGUN: Ef þú vilt hafa peysuna aðeins lengri getur þú aðlagað hana á tvo vegu. Þú getur annað hvort prjónað sléttprjón aðeins lengra áður en mynstrið byrjar eða þú getur prjónað fleiri mynstureiningar með mynstri áður en fellt er af fyrir handveg. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.6. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Fækkað er um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og erma. Fækkið um 1 l hvoru megin við 2 l sléttprjón í skiptingunni. Úrtaka fyrir laskalínu er er útskýrð í mynstri fyrir fram- og bakstykki og er gerð á sama hátt á ermum, þ.e.a.s. innan við 1 l sléttprjón við skiptingarnar. Á undan skiptingunum eru prjónaðar 2 l slétt saman, á eftir skiptingunum er ein lykkja tekin óprjónuð eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl og steypið síðan óprjónuðu l yfir. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu. 1 hnappagat = prjónið 5. og 6. l frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S/M: 3, 12, 21, 29, 37 og 45 cm. STÆRÐ L/XL: 4, 13, 22, 31, 40 og 49 cm. STÆRÐ XXL/XXXL: 3, 12, 21, 29, 37, 45 og 53 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 242-300-354 á hringprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk (1. umf = rétta). Prjónið 2 l sl, 2 l garðaprjón, 2 l sl, 2 l garðaprjón (= kantur að framan), prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br þar til 8 l eru eftir, prjónið 2 l garðaprjón og 2 l sl (= kantur að framan). Prjónið stroff kant að framan svona þar til stroffið mælist ca 1 cm. Kanturinn er prjónaður eins og áður út stykkið á meðan lykkjur fyrir fram- og bakstykki eru nú prjónaðar í sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í fyrstu umf í sléttprjón er fækkað um 1-3-1 l jafnt yfir á prjóni, fækkið ekki lykkjum yfir kant að framan = 241-297-353 l. ATH! Byrjað er að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – þegar stykkið mælist 3-4-3 cm. Prjónið þar til stykkið mælist 12 cm – LESIÐ RÁÐ VARÐANDI AÐLÖGUN. Prjónið nú áfram eftir mynstri A.1 þannig: 8 kantlykkjur að framan eins og áður, A.1A yfir 14 l, A.1B er endurtekið þar til 23 l eru eftir, A.1C yfir 15 l og 8 kantlykkjur að framan eins og áður. Prjónið mynstur 2 sinnum á hæðina, stykkið mælist ca 30 cm. Prjónið nú þannig: A.2A yfir 14 l, A.2B yfir 28-42-56 l. A.2C yfir 23 l, A.4A yfir 19 l, A.4B yfir 70-98-126 l, A.4C yfir 23 l, A.3A yfir 22 l, A.3B yfir 28-42-56 l og endið á A.3C yfir 14 l. Eftir fyrstu 13 umf með þetta mynstur hefur fækkað um 9 l hvoru megin fyrir handveg. Nú eru 223-279-335 l eftir á prjóni, stykkið mælist ca 34 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í sléttprjóni í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 48-54-58 l á sokkaprjóna nr 3 með Baby Alpaca Silk. Prjónið stroff með 2 l sl, 2 l br í 1 cm. Prjónið nú áfram í sléttprjóni. Setjið prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Þegar stykkið mælist 8-8-9 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Aukið út með ca 2-1½-1 cm millibili. Uppslátturinn er prjónaður snúinn í næstu umf til þess að koma í veg fyrir göt. Endurtakið útaukningu með 17-21-26 sinnum til viðbótar (= alls 18-22-27 sinnum) = 84-98-112 l á prjóni. Prjónið þar til stykkið mælist 46-43-40 cm, fellið af 9 l fyrir miðju undir ermi = 75-89-103 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki = 373-457-541 l. Setjið 4 prjónamerki í stykkið, eitt á milli stykkja. Fækkið lykkjum fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan – innan við 1 l sléttprjón hvoru megin við 4 skiptingarnar. Prjónið frá 14. umf í mynstri þannig: (= ranga): 2 l br, 2 l garðaprjón, 2 l br, 2 l garðaprjón, prjónið br þar til 8 l eru eftir, 2 l garðaprjón, 2 l br, 2 l garðaprjón og 2 l br. Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: A.2A yfir 14 l, A.2B yfir 28-42-56 l, A.2C yfir 18 l, sléttprjón yfir 75-89-103 l (= erma-lykkjur, munið eftir úrtöku á ermi) A.4A yfir 15 l, A.4B yfir 70-98-126 l, A.4C yfir 18 l, sléttprjón yfir 75-89-103 l (= ermalykkjur, munið eftir úrtöku á ermi), A.3A yfir 18 l, A.3B yfir 28-42-56 l og A.3C yfir 14 l. Haldið áfram að prjóna eftir mynstri og fækka lykkjum í hverri umf frá réttu á ermum og fram- og bakstykki. Fyrir hvert skipti sem prjónaðar eru 14 umf af A.2, A.3 og A.4 er prjónuð 1 færri B á milli A og B. Prjónið þar til mynstur A.2, A.3 og A.4 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina. Endurtakið nú efstu 28 umf í öllum mynstrum. Haldið áfram þar til prjónaðar hafa verið alls 56-70-84 umf með mynstri A.2, A.3 og A.4. Í næstu umf eru settar fyrstu og síðustu 13-20-27 l á þráð fyrir hálsmáli. Prjónið A.5 yfir l frá A.2 og A.6 yfir l frá A.3, þær l sem eftir eru og úrtaka halda áfram eins og áður. Þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina eru 73-87-101 l á prjóni. Setjið til baka l af þræði á prjóninn = 99-127-155 l, prjónið upp 14 l meðfram hlið á A.5 og A.6 = 127-155-183 l. Prjónið kant að framan eins og áður, hinar l eru áfram prjónaðar í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 1. umf er lykkjum fækkað jafnt yfir þannig að það verða ca 100-115-130 l á prjóni. Prjónið alls 4 umf garðaprjón og fellið af með tvöföldum þræði frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum og saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #featherscardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-37
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.