DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

November

Prjónað poncho úr DROPS Snow með hettu og v-hálsmáli, prjónað ofan frá og niður. Stærð S-XXXL.

DROPS 158-32
DROPS Design: Mynstur nr ee-510
Garnflokkur E eða C + C
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
700-750-850-950-1000-1100 gr litur nr 21, bláfjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 80 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7700.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á hringprjóna):
*1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf séð frá réttu.

ÚTAUKNING 1:
Öll útaukning er gerð frá réttu! Aukið út alls 8 l í hverri umf með útaukningu.
Prjónið fram til 1 l á undan l með prjónamerki í, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Endurtakið við 3 l sem eftir eru með prjónamerki í umf.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt/brugðið (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

ÚTAUKNING 2:
Aukið er út á undan 1. og 3. prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Aukið út á eftir 2. og 4. prjónamerki þannig: Prjónið fram að prjónamerki, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Byrjað er að prjóna hettuna. Síðan er efri parturinn á stykkinu prjónað fram og til baka þar v-hálsmálið hefur verið prjónað til loka. Síðan er prjónað í hring.

PONCHO:
Fitjið upp 66 l í öllum stærðum á hringprjóna nr 8 með Snow.
Prjónið 2 umf GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú frá réttu þannig: 3 kantlykkjur í garðaprjóni, MYNSTUR A.1 (= 5 l) yfir næstu 60 l, 3 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið síðan áfram fram og til baka alveg eins. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34 cm eru prjónaðar 2 umf garðaprjón, JAFNFRAMT er fækkað um 22-22-20-20-18-18 l jafnt yfir = 44-44-46-46-48-48 l eftir. Prjónið síðan 4 umf garðaprjón til viðbótar, JAFNFRAMT er aukið út um 8-8-9-10-8-8 l jafnt yfir í síðustu umf frá réttu = 52-52-55-56-56-56 l. Setjið prjónamerki hér! STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Prjónið nú þannig: 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 6-6-7-7-7-7 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki í næstu l, 6 l sléttprjón, setjið 2. prjónamerki í næstu l, 18-18-19-20-20-20 l sléttprjón, setjið 3. prjónamerki í næstu l, 6 l sléttprjón, setjið 4. prjónamerki í næstu l, 6-6-7-7-7-7 l sléttprjón, 3 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Prjónið 1 umf br til baka. Haldið svona áfram, JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar útaukning hvoru megin við hverja l með prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING 1! Endurtakið sömu útaukningu í annarri hverri umf 6-7-8-8-9-9 sinnum til viðbótar, í 4. hverri umf 2-2-2-3-3-4 sinnum og í 6. hverri umf v 6-6-6-6-6-7 sinnum = 172-180-191-200-208-224 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-12-12-13-13-13 cm er stykkið prjónað í hring þannig: 3 l GARÐAPRJÓN prjónað í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan, sléttprjón þar til 3 l eru eftir, 3 l garðaprjón. Haldið svona áfram þar til prjónaðar hafa verið 4 umf garðaprjón yfir 6 l garðaprjón við klauf. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar l. Haldið síðan áfram m eð 6 umf sléttprjón. Aukið nú út um 0-1-1-1-1-0 l á undan hverju prjónamerki – LESIÐ ÚTAUKNING 2! (= 0-4-4-4-4-0 útaukningar í umf) = 172-184-195-204-212-224 l. Þegar stykkið mælist 45-47-49-51-53-55 cm eru auknar út 3-1-0-1-3-1 l jafnt yfir í umf = 175-185-195-205-215-225 l. Haldið síðan áfram með mynstur A.1 yfir allar l í umf. Haldið áfram að prjóna mynstur í 10 cm. Prjónið 4 umf garðaprjón og fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Brjótið hettuna saman og saumið uppfitjunarkantinn með því að sauma l eina og eina fallega saman. Klippið frá og festið enda.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (31)

country flag Karine LIN-SI wrote:

Bonjour. La partie concernant les AUG°1 sont obscures : "Tricoter jusqu'à ce qu'il reste 1 m avant la m avec le marqueur, (lequel) 1 jeté, 3 m end et 1 jeté. Répéter aux 3 m restantes avec 1 marqueur sur le même rang/tour. (cette partie n'est pas claire), à quel endroit faut-il placer le marqueur ? Exemple : 3 m. bordure devant - combien de jersey tricoter avant marqueur et avant de faire le jeté. Merci d'avance

11.11.2023 - 23:00

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Lin-Si, dans les explications, il est indiqué de placer des marqueurs, puis d' augmenter de chaque côté des mailles avec un marqueur – VOIR AUGMENTATIONS 1, vous allez donc suivre cette indication pour augmenter à chacun des marqueurs que vous aurez mis en place. Autrement dit, vous augmentez 1 maille de part et d'autre des 3 mailles (avec un marqueur au milieu de ces 3 mailles) à chaque marqueur, soit 8 mailles à chaque fois: 1 jeté, 3 mailles endroit (la maille avec le marqueur est celle du milieu), 1 jeté. Bon tricot!

13.11.2023 - 07:53

country flag Zuzana wrote:

Ďakujem za pekný model. Veľmi sa mi páči. Škoda, že tu nie je fotka, ako by mala sedieť kapuca, keď je dolu. Je ťažká a ťahá dozadu. Má to tak byť?

22.10.2022 - 09:07

country flag Raffaella wrote:

Modello fantastico, ho realizzato la taglia S con i ferri n 7 per la mia nipotina ed è diventato davvero magnifico! Grazie mille, siete fantastici! Se volete vedere le foto, ditemi dove inviarle :-) Cordiali saluti Raffaella

31.01.2021 - 11:06

country flag Elisabeth K wrote:

Bonjour, Je suis arrivée au moment où je passe au tricot en rond : donc je tricote un dernier rang envers (rang retour) et je repars dans le même sens pour fermer le cercle ; c'est là que j'ai un problème, car au bout du 2e tour je m'aperçois que mon ouvrage se présente en jersey envers et non endroit ! Que dois-je faire pour y remédier, svp ? Est-ce que je dois terminer le tricot à plat au bout du rang endroit et là former le rond ? Merci de votre aide.

21.09.2020 - 18:14

DROPS Design answered:

Bonjour Elisabeth K, vous pouvez joindre en rond à la fin d'un rang sur l'endroit afin de continuer en rond, toujours sur l'endroit et d'avoir donc le côté jersey endroit face à vous. Bon tricot!

22.09.2020 - 11:16

country flag Elena wrote:

Per la tg M "3 m per il bordo davanti a punto legaccio, 6m a maglia rasata, inserire il 1° segno nella m successiva, 6 m a maglia rasata, inserire il 2° segno nella m successiva, 18m a maglia rasata, inserire il 3° segno nella m successiva, 6 m a maglia rasata, inserire il 4° segno nella m successiva, 6 m a maglia rasata, 3 m per il bordo davanti a punto legaccio "=48m totale Ma devono essere 52! dove sta l'errore?

01.12.2019 - 23:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Elena. Nel conteggio delle maglie, vanno contate anche le quattro maglie con i segni. Queste maglie vengono lavorate anch’esse a maglia rasata. Buon lavoro!

02.12.2019 - 09:45

country flag Rosa Griselda Gutiérrez Villa wrote:

Patrón No. ee-51 hola! Estoy tratando de hacer esta capa en talla s pero no entiendo. Tengo 66 pts. Las disminuciones cuando explican que son 22,22,20(2pts menos)20,18,18(4 pts menos )hasta ahí creo entender. Pero después dan cifras de 44,44,46,48,48? De dónde salen estos puntos. Gracias! Saludos desde México

18.09.2018 - 20:02

DROPS Design answered:

Hola Rosa, como el patrón es sólo uno para todas las tallas, los números seguidos de guiones son el correspondiente a cada talla: 22 (talla S)- 22 (talla M)- 20 (talla L) - 20 (talla XL) etc. Por lo tanto, a los 66 puntos iniciales se le disminuyen 22 puntos en el caso de la talla S y por lo tanto quedan 66-22 = 44 puntos en la talla S.

29.09.2018 - 20:06

country flag Anna Sofie wrote:

Är det så att utsidorna på huvan ska läggas mot varandra, och sedan sys ihop på insidan så att sömmen hamnar mitt över hjässan och ner i nacken? Verkar vara enda sättet, tycker jag :-)

20.12.2017 - 12:01

DROPS Design answered:

Hej Anna Sofie, Ja precis, men sy gärna från rätsidan :)

20.12.2017 - 14:26

country flag Anna Sofie wrote:

Hej, Nu är ponchon nästan färdig, och den blir jättefin :-) Men jag får inte ihop detta med att vika och sy huvan riktigt - vilken del ska vikas mot vilken, och hur ska det sys ihop? Ska "startkanten" vara framkant på huvan, eller ska den vikas in på något sätt? Tack på förhand!

19.12.2017 - 11:08

DROPS Design answered:

Hej Anna, de 66 maskor du la upp, lägger du ihop och syr ihop. Det blir en söm från pannan mitt fram och till mitt bak. Lycka till!

20.12.2017 - 11:19

Sandrine wrote:

Bonjour après les 34 premiers cm tricotés en suivant A1, doit on tricoter en jersey pour les diminutions et augmentations des rangs suivants?

24.11.2017 - 16:07

DROPS Design answered:

Bonjour Sandrine, à 34 cm on tricote 1 côte mousse (= 2 rangs endroit) en diminuant 22-18 m puis 2 côtes mousse (= 4 rangs endroit) en diminuant 8-10 m au dernier rang. On continue ensuite en jersey avec 3 m point mousse de chaque côté en mettant les marqueurs. Bon tricot!

27.11.2017 - 08:50

country flag Anna Sofie wrote:

Hej! Undrar lite över detta: "...56-56 m. Sätt en markör här! ARB M..." Sedan står det lite senare: "...7 m slätst, sätt 1:a markören i nästa m...", och som jag har förstått det ska det vara totalt 4 markörer. Så var ska man sätta först nämnda markör, om den ens ska vara där alls?

16.11.2017 - 12:01

DROPS Design answered:

Hej, den första markören ska sättas i arb eftersom alla mått ska tas från denna. Det ökas alltså inte vid denna första markör.

16.11.2017 - 17:27