DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 158-41
DROPS Design: Mynstur nr ne-150
Garnflokkur C eða A + A
-----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: S/M – L/XL
Höfuðmál: ca 54/56 – 58/60 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
150-150 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

HÁLSSKJÓL:
Stærð: S/M – L/XL
Mál:
Ummál: 75-81 cm.
Hæð: 38-40 cm.

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
250-300 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

VETTLINGAR:
Stærð: S/M – L/XL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
100-100 gr litur nr 4311, grár/fjólublár

DROPS HEKLUNÁL NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 16 st og 9 umf verði 10 x 10 cm og 3 x mynstur A.2 = 9,5 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7040.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2 – 1. umf er hekluð frá réttu.

HEKLLEIÐBEININGAR 1:
Í byrjun á hverri umf með hst, skiptið út fyrsta hst með 2 ll.

HEKLLEIÐBEININGAR 2:
Í byrjun á hverri umf með fl er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar á 1 kl í fyrstu ll frá byrjun umf.
Í byrjun á hverri umf með st er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll og hver umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf.

ÚRTAKA 1:
Heklið 2 fl í 1 fl: Heklið 1 fl, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

ÚRTAKA 2:
Heklið 2 st í 1 st: Heklið 1 st en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 þræðir á heklunálinni), heklið síðan næsta st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið byrjar með hekluðu stroffi sem er heklað fram og til baka og saumað saman. Síðan er stykkið heklað í hring.

STROFF:
Heklið 8 ll með heklunál nr 4,5 með Nepal.
Heklið 1. umf þannig: 1 hst í 3. ll frá heklunálinni (= 2 hst), 1 hst í hverja af næstu 5 ll = 7 hst, snúið við. LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1! Heklið nú hst fram og til baka þar til stykkið mælist ca 49-53 cm, klippið frá og saumið saman skammhliðar í hring – stroffið mælist ca 4 cm á breiddina. Festið enda.

HÚFA:
Heklið nú áfram í kringum stroff.
Heklið * 1 fl í hverja af næstu 3 umf, heklið 2 fl í næstu umf *, endurtakið frá *-* umf hringinn – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2! = ca 83-90 fl – heklið nú 1 umf með fl JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 80-85 fl – LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 1!
Heklið nú eftir 1. umf í mynstri þannig: A.1, A.2 alls 16-17 sinnum á breiddina. Endurtakið umf 2 og 3 af mynstri 2 á hæðina, nú mælist stykkið ca 11 með kanti. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Heklið áfram með st, JAFNFRAMT er fækkað þannig: LESIÐ ÚRTAKA 2!
Heklið 8-9 st jafnt yfir = 72-76 st. Í næstu umf er fækkað um 8-7 st jafnt yfir. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 40-48 st. Fækkið um 8-6 st jafnt yfir í hverri umf alls 1-2 sinnum = 32-36 st. Heklið nú fl með úrtöku þannig: LESIÐ ÚRTAKA 1 – Heklið fl 2 og 2 saman = 16-18 fl.
Endurtakið úrtöku í næstu umf = 8-9 fl. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið enda. Húfan mælist ca 24-25 cm á hæðina.

-------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

HÁLSSKJÓL:
Heklið 144-156 ll með heklunál nr 4,5 með Nepal og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll.

UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 – Heklið 1 st í hverja af fyrstu 5 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 st í hverja af næstu 5 ll, * endurtakið frá *-* = 120-130 st.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st.
Heklið nú eftir umf 1 í mynstri þannig: A.1, A.2 alls 24-26 sinnum á breiddina. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Endurtakið umf 2 og 3 í mynstri á hæðina þar til stykkið mælist ca 36-38 cm – stillið af eftir heila mynstureiningu á hæðina – nú er heklað áfram þannig: 1 umf með 1 st í hverri fl, heklið nú 1 umf með st í hvern st. Klippið frá og festið enda.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað í hring.

VETTLINGUR:
Heklið 30-35 LAUSAR ll með heklunál nr 4,5 með Nepal og tengið saman í 1 hring með 1 kl í 1. ll. Heklið stroff eftir mynstri 1. umf þannig: A.1, A.2 alls 6-7 sinnum á breiddina. Heklið 1 sinni á hæðina, heklið nú 1 umf með 1 fl í hverja fl LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR 2 = 30-35 fl. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Heklið nú st í hring með 1 st í hverja l JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 27-30 st með því að hekla 2 st saman með jöfnu millibili – LESIÐ ÚRTAKA 2 – JAFNFRAMT þegar heklaðar hafa verið 3 umf með st er aukið út nú um 1 st fyrir þumal á hvorri hlið við 1. l frá byrjun umf – aukið út um 1 st með því að hekla 2 st í sama st. Endurtakið útaukningu hvoru megin við þessa l í hverri umf alls 4-5 sinnum = 35-40 st í umf (þumallykkja = 9-11 st). Næsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 kl í hvern af þessum 6-7 st í byrjun umf, 3 ll (= 1 st), heklið síðan 1 st í hvern af 25-28 næstu st, 1 ll og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 26-29 st og 1 ll í umf. Í næstu umf er heklaður 1 st í hvern st og 1 st í ll í lok umf = 27-30 st. Heklið nú st hringinn þar til vettlingurinn mælist 18-21 cm frá skiptingu við stroffi (mátið nú vettlinginn, nú eru ca 3 cm til loka mælingar).
Heklið nú þannig:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT er annar hver og 3. hver st heklaðir saman = 18-20 st.
UMFERÐ 2: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 st eru heklaðir saman = 9-10 st.
UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 fl eru heklaðar saman. Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
UMFERÐ 1: Heklið 1 kl í fyrstu af 9-11 þumallykkjur, 3 ll (= 1 st), heklið nú 1 st í hvern af 8-10 st, heklið nú 6 st fyrir aftan þumal, JAFNFRAMT eru þessir 6 st heklaðir saman 2 og 2 – sjá útskýringu að ofan = 12-14 st.
UMFERÐ 2-3: Heklið 1 st í hvern st = 12-14 st.
Mátið vettlinginn, nú er eftir ca 1 cm að loka máli á þumli. Heklið eina umf til viðbótar með 1 st í hvern st.
NÆSTA UMFERÐ: Heklið 1 st í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 st heklaðir saman = 6-7 st.
SÍÐASTA UMFERÐ: Heklið 1 fl í hvern st JAFNFRAMT eru 2 og 2 fl heklaðar saman.
Klippið frá, þræðið þráðinn upp og niður í gegnum l, herðið að og festið vel.

Heklið annan vettling á sama hátt, en passið uppá að útaukning fyrir þumal sé gerð hvoru megin við síðustu l í umf (í stað 1. l í umf).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.10.2016
HÚFA og KRAGI: Endurtakið umf 2 og 3 í mynstri

Mynstur

symbols = 1 ll
symbols = 1 fl
symbols =
4 tbst eru heklaðir saman í 1 tbst þannig: Heklið 1 tbst en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin, heklið 1 tbst í hverja og eina af næstu 3 fl alveg eins, dragið bandið í gegnum allar 5 l á heklunálinni.
symbols = 1 tbst
symbols = kl (í lok umf)
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-41

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (25)

country flag Pernilla Dalgärde wrote:

Jag får inte diagrammet till halsvärmaren att stämma. Mellan de båda enkla dubbelstolparna får jag på varv 2 en grupp av 4 dubbelstolpar som tar 4 fasta maskor i anspråk från föregående varv. På nästa varv ger stolpgruppen 1 maska och så är det 4 luftmaskor mellan de enkla dubbelstolparna. Det blir 5 maskor mellan de enkla dubbelstolparna på varv 3, jämfört med 4 på varv 2. Då blir arbetet bredare och bredare. Antalet borde vara detsamma?

14.01.2020 - 20:41

DROPS Design answered:

Hej Pernilla, du har 5 fm på första varvet och igen 5 fm på tredje varvet enligt diagrammet. Lycka till :)

11.02.2020 - 09:22

country flag Anita wrote:

The set is beautiful; however, the pattern for the hat is poorly written and very confusing, even for a very experienced advanced crocheter.

16.11.2018 - 20:31

DROPS Design answered:

Dear Anita, we are sorry to hear you have had troubles with this pattern - There maybe as many ways to write patterns than there are crocheters – you are welcome to ask your questions here, or for any individual assistance reading our patterns and diagrams you are welcome to contact the store where you bought your yarn (even per mail or telephone). Happy crocheting!

19.11.2018 - 09:54

country flag Janet wrote:

I really wish you had a video on how to do the diagram, it's very confusing.

14.10.2016 - 21:31

country flag LaurieB wrote:

Bonjour, avec l'aide d'une amie, je suis parvenue à trouver mon erreur qui faisait que je ne comprenais pas le point. Je confondais DB (double bride) avec db (demi-bride)! Je suis encore débutante mais j'aime beaucoup les patrons que vous offrez! Merci et bonne fin de semaine!

12.02.2016 - 04:56

country flag LaurieB wrote:

Bonjour! Je n'arrive pas à faire le point de fantaisie de Tell Me by DROPS Design Bonnet, tour de cou et moufles DROPS avec motif ajouré, en “Nepal”. Je ne comprends pas le diagramme. Y a-t-il une vidéo explicative? Sinon, j'ai besoin d'explications claires et faciles à comprendre, je suis encore débutante. Merci beaucoup pour votre aide.

10.02.2016 - 22:37

DROPS Design answered:

Bonjour LaurieB, il n'y a pas encore de vidéo pour ce motif, il se crochète ainsi - A.1 montre comment commencer les tours (1 ml pour 1 rang de ms, 4 ml pour 1 rang de B) et les terminer (1 mc dans la 1ère/4ème ml du début du tour). Dans A.2, tour 1: 1ms dans chaque m. Tour 2: *2 ml (on aura 6 ml au début du tour), 4DB écoulées ens, 2 ml, 1 DB* répétez de *-*. Au 3ème tour: *2 ms dans chacun des 2 arceaux de 2 ml, 1 ms dans la DB*. Bon crochet!

11.02.2016 - 10:34

Nina wrote:

HI - I battled to figure out the diagram at first, but I stuck at it and figured it out. R 1: ch1 and then sc in every stitch around. R 2: ch4 (TR), *ch 2, 4TR (following explanation above diagram), ch2, TR*, repeat from *-* until end of row. ss into beginning chain remembering to leave 2 ch gap. R 3: ch1 and *2 sc in ch2 space from previous round, 2sc into next ch2 space, sc into TR*, repeat from *-* until end of round and join with ss to beginning chain.

03.02.2016 - 21:32

country flag Paula wrote:

I really like this hat, but can't do the diagram. Could you put it in words. I've got the ribbon finished but can't continue.

19.01.2016 - 19:31

DROPS Design answered:

Dear Paula, there is only a diagram version to this pattern, start reading diagram from the bottom corner on the right side and read every row from the right towards the left (= in the round = from RS). You will find text to each st/group of st just above diagram. And remember your DROPS store may provide you any furter personnal assistance. Happy crocheting!

20.01.2016 - 11:45

country flag Gail Slaughter wrote:

Sorry I meant it Did come 4x4

15.12.2015 - 20:46

country flag Gail Slaughter wrote:

Thank youbso much for your response I did rhe gauge and it didncome to 4x4. So I attempted to do the ribbon again same result I can't figure out what it is I'm not getting Is there any way you can help me? Video or anything? 1sc in first 3 rows 2 sc next etc: I have tried just the ribbed rows facing me then I tried those front and back. What am I not getting Please help! Gail

15.12.2015 - 20:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Slaughter, to work 1 sc in each of the next 3 rows, 2 sc in the next row, you need to have worked a total of 21 rows approx. with hdc for the ribbon - adjust number of sc worked around if necessary to get approx. 83 sc at the end of the round, then adjust to 80 sc on next row. Happy crocheting!

16.12.2015 - 09:25

country flag Gail Slaughter wrote:

First I love this pattern but I am having a hard time with the ribbon! I did the 19 1/4 inches but when I attempt to do the 1sc in 3 rows and 2sc in next I don't get 83-90 I get much less!I then used a smaller and counted the rows to at least get the 83 but nw the ribbon is way too large PLEASE HELP! I wanted to have it ready dor Christmas. Thanking You in advance. Gail

07.12.2015 - 06:00

DROPS Design answered:

Dear Mrs Slaughter, remember to check your tension, you should get 16 dc x 9 rows = 4"x4" so that 83 sc = approx. 21". Happy crocheting!

07.12.2015 - 11:44