Maria Van Gils skrifaði:
Har svårt förstå hur man ska kunna sticka fram och tillbaka med rundsticka samtidigt som ärmen sitter fast i resten? Blir det inte väldigt mycket uttöjt när man ska vända?
05.04.2021 - 17:22DROPS Design svaraði:
Hej Maria, sæt ærmerne på en tråd når du strikker bolen :)
06.04.2021 - 14:16
Antonella skrifaði:
Complimenti vivissimi per il vostro sito ,lo sto ammirando ora da Pinterest,peccato che io con i ferri sia negata so fare solo dritto e rovescio,ma non si sa mai che impari a fare qualcosa in più.Bravi continuate così ancora complimenti e Buon Anno:-)
30.12.2018 - 10:26
Mariola skrifaði:
Hola, podría aclararme qué significa«montar 6 puntos bajo la manga» es al final del canesú. Esos puntos son para la manga o para el delantero? Muchas gracias
07.11.2018 - 23:31DROPS Design svaraði:
Hola Mariola. Los puntos que montamos bajo la manga forman parte de la sisa (la mitad de los puntos es para el delantero y la otra mitad para la espalda). Al finalizar la chaqueta cosemos estos puntos con los puntos de la parte bajo la manga.
11.11.2018 - 19:17
Agnès WAXCIN skrifaði:
Bonjour, Je lis dans les commentaires qu'il existe un pull assorti à ce modèle, où peut-on trouver les explications ? Merci !
17.10.2018 - 07:48DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Waxcin, ce commentaire doit dater de la présentation des modèles au vote, et le pull assorti n'a probablement pas été retenu. Quoi qu'il en soit, retrouvez ici tous nos pulls en laine du groupe E avec un empiècement arrondi - ajustez les filtres si besoin. Bon tricot!
17.10.2018 - 08:20
Anne skrifaði:
Sur le patron on lit que le gilet fait entre 56 et 66cm de long. Sur la photo in a l'air bcp plus long... Où est l'erreur?
19.06.2016 - 18:43DROPS Design svaraði:
Bonjour Anne, les mesures du schéma sont correctes, le gilet mesure 56-66 cm de l'épaule jusqu'en bas. Bon tricot!
20.06.2016 - 08:57
Herma skrifaði:
Ik wil het vest breien van cloud ,hoeveel gram heb ik nodig ?( maat S )
25.01.2016 - 14:33DROPS Design svaraði:
Hoi Herma. Lees hier hoe je de hoeveelheid kan berekenen. Veel breiplezier.
26.01.2016 - 14:41Carmelita skrifaði:
Er is mij gevraag om DROPS 158-27 te breien in maat XS. Kunt u mij uitleggen hoe ik de berekening moet maken in die maat? (qua minderringen,meerderingen en cm)
20.01.2016 - 09:34DROPS Design svaraði:
Hoi Carmelita. Ik kan helaas niet helpen met individuele aanpassingen op de gratis patronen.
20.01.2016 - 15:26
Ingrid Pedersen skrifaði:
Jeg har lige trævlet cardiganen op igen, fordi pasformen var helt forkert. Efter vask blev den alt for lang, og den faldt ned over skuldrene.øv. Den så fin ud. Men spild af mange timers strikning.
19.12.2015 - 13:26
Heike Olbrich skrifaði:
Welcher Kleidergröße entspricht bei diesem Modell die Gr. L?
12.10.2015 - 12:30DROPS Design svaraði:
Schauen Sie sich am besten die Maßskizze unterhalb der Anleitung an, dort sind alle wichtigen Maße eingezeichnet und Sie können sehen und messen, ob Größe L zu Ihren Maßen passt.
13.10.2015 - 17:42
Sabine skrifaði:
Bonjour, je voudrai réaliser ce gilet en fil "peak" en taille XL. pouvez-vous svp me combien de pelote je dois commander ? d'avance merci :) !
06.09.2015 - 10:39DROPS Design svaraði:
Bonjour Sabine, cliquez ici pour calculer la quantité nécessaire en Peak. Rappelez-vous que votre magasin DROPS saura également vous aider si besoin. Bon tricot!
07.09.2015 - 13:27
Ruby My Dear#rubymydearcardigan |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Andes í garðaprjóni og hringlaga berustykki, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL.
DROPS 158-27 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚTAUKNING: Aukið út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan), svo ekki myndist gat. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir að prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af þriðju l frá miðju að framan og fitjið upp 1 nýja l yfir þá l sem felld var af í næstu umf. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26 og 34 cm STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26 og 34 cm STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26 og 34 cm STÆRÐ XL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna. BERUSTYKKI: Fitjið upp 79-79-82-82-85-85 l (meðtaldar 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 7 með Andes. Prjónið 5 kantlykkjur að framan í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, stroff (= 1 l sl, 2 l br) þar til 5 l eru eftir, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 2 cm. Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Prjónið síðan stykkið áfram í garðaprjóni. Í 1. umf er fækkað um 3-3-2-2-1-1 l jafnt yfir = 76-76-80-80-84-84 l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Í næstu umf frá réttu eru sett 8 prjónamerki í stykkið þannig: 5 l kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 10-10-11-11-12-12 l sl, setjið 1. prjónamerki, 2 l sl (= vinstra framstykki), setjið 2. prjónamerki, 9 l sl (= ermi), setjið 3. prjónamerki, 2 l sl, setjið 4. prjónamerki, 20-20-22-22-24-24 l sl, setjið 5. prjónamerki, 2 l sl (= bakstykki), setjið 6. prjónamerki, 9 l sl (= ermi), setjið 7. prjónamerki, 2 l sl, setjið 8. prjónamerki, 10-10-11-11-12-12 l sl, endið á 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (= hægra framstykki). Aukið síðan út um 1 l – LESIÐ ÚTAUKNING, á undan 1.-3.-5. og 7. prjónamerki og á eftir 2.-4.-6. og 8. prjónamerki (= 8 l fleiri). Endurtakið útaukningu í 4. hverri umf 9-9-9-10-11-12 sinnum til viðbótar. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-3-2-2-2-1½ cm aukið út þannig: Aukið um 0-0-0-1-1-2 l jafnt yfir á hvoru framstykki (ATH: Lykkjur eru ekki auknar út yfir kant að framan), 3-4-4-4-4-4 l á hvorri ermi og 0-0-0-2-2-4 l jafnt yfir á bakstykki. Endurtakið útaukningu jafnt yfir með 8 cm millibili 2 sinnum til viðbótar. Þegar stykkið mælist 19 cm eru auknar út 1-0-2-2-2-2 jafnt yfir á hvorri ermi. Þegar úrtöku er lokið eru 176-180-188-208-220-240 l á prjóni. Prjónið síðan áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 20-21-22-23-24-25 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Prjónið 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 22-22-23-27-29-33 l sl, setjið næstu 39-41-43-45-47-49 l á þráð fyrir ermar, fitjið upp 6 nýjar l, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, prjónið yfir næstu 44-44-46-54-58-66 l, setjið næstu 39-41-43-45-47-49 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6 nýjar l undir ermi, setjið 1 prjónamerki mitt á milli nýju l, prjónið 22-22-23-27-29-33 l sl, endið á 5 kantlykkjum að framan í garðaprjóni = 110-110-114-130-138-154 l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Þegar stykkið mælist 3 cm er aukin út 1 l hvoru megin við prjónamerkin (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 6-4-4-4-4-4 cm millibili 4-6-7-7-7-7 sinnum til viðbótar = 130-138-146-162-170-186 l. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm aukið út 6-4-5-4-5-4 l jafnt yfir = 136-142-151-166-175-190 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið stroff (1 l sl, 2 l br) með 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykki. Fellið af þegar stykkið mælist 36-37-38-39-40-41 cm. ERMI: Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna. Setjið til baka þær 39-41-43-45-47-49 l af bandi á hringprjóna nr 8. Fitjið upp 3 nýjar l í hvorri hlið á stykki í lok 2 næstu umf = 45-47-49-51-53-55 l. Prjónið garðaprjón. Þegar stykkið mælist 3 cm er felld af 1 l í hvorri hlið á stykki. Endurtakið úrtöku með 3-3-3-2½-2½-2½ cm millibili 8-8-8-9-9-10 sinnum til viðbótar = 27-29-31-31-33-33 l. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 35-35-34-34-33-33 cm. Aukið síðan út 3-4-5-5-6-6 m jafnt yfir = 30-33-36-36-39-39 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 7. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br). Fellið af þegar stykkið mælist 38-38-37-37-36-36 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Prjónið hina ermina á sama hátt. FRÁGANGUR: Saumið ermasauma yst í lykkjubogann. Saumið saman undir ermum. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #rubymydearcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 158-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.