Luciana skrifaði:
Elegantissima
04.09.2014 - 01:55
Federica skrifaði:
Domanda banale, ma sono alla mia prima giacca. Le taglie per questo capo tengono conto di altri capi indossati sotto o conviene optare per una taglia più grande della propria ? Grazie!
30.08.2014 - 19:36DROPS Design svaraði:
Buongiorno Federica. Trova la corrispondenza delle taglie in cm nel diagramma in basso, dopo la spiegazione del modello. Confrontando queste misure con quelle di un suo indumento analogo, riesce ad individuare la taglia corretta da seguire. Buon lavoro!
31.08.2014 - 16:00
Jannette skrifaði:
Eenvoudig, maar mooi!
29.08.2014 - 12:14
Fab skrifaði:
Bonjour, pourriez vous me dire à quelles tailles correspondent le "L"et le "XL" pour ce modèle ? Un grand merci
25.08.2014 - 18:42DROPS Design svaraði:
Bonjour Fab, pour ce modèle et tous les modèles DROPS, vous trouverez en fin d'explication un schéma avec toutes les mesures pour chaque taille, mesurées ouvrage posé à plat, d'un côté à l'autre. Comparez ces mesures à un vêtement analogue dont vous aimez la forme pour trouver la taille idéale. Bon tricot!!
26.08.2014 - 10:29
Tina skrifaði:
Bei den Raglan-zunahmen steht" stricken bis 1 M vor Markierung, dann 1 U, 2M rechts, 1 U "... Muss man nicht bis 2M vor Markierung stricken ????
25.08.2014 - 06:37DROPS Design svaraði:
Nein, es stimmt so, wie es dort steht - der Markierer befindet sich zwischen den beiden rechts gestrickten M. Genau genommen stricken Sie also 1 Umschlag, 1 M re, Markierer, 1 M re, 1 Umschlag.
01.09.2014 - 13:00
Ina skrifaði:
Jeg strikker nå i str xxl, og har strikket ferdig hetten og skal begynne på raglan. Teller ut sånn det står i oppskrift også viser det seg at jeg har 16 m for lite. Skal jeg øke masker i de 42 maskene mellom 2. og 3. merke? *oppgitt* Har fulgt oppskrift til punkt og prikke. Takk for svar.
23.08.2014 - 17:56DROPS Design svaraði:
Du starter med 116 m tager 4 m ind og tager 2 x 25 m ud = 162 m. Har du 162 m når du begynder på bærestykket i XXL ?
02.09.2014 - 15:47
Maggie skrifaði:
Klopt het dat er in de omschrijving bij de "pas", na MEET NU HET WERK VANAF HIER, nog een stukje omschrijving ontbreekt?
20.08.2014 - 15:46DROPS Design svaraði:
Hoi Maggie. Ja, dat is waar :-D Dat is een foutje bij het publiceren, het stukje is nu toegevoegd.
20.08.2014 - 16:52
Betty skrifaði:
Hej! Jag stickar storlek M och har funnit att antalet maskor från huvan till oket inte stämmer. Huvan ska avslutningsvis ha 128 m. Därefter ska oket stickas och då anges följande indelning för markörer: 32, 1, 15, 24, 15, 1, 32 vilket tillsammans blir 120 m. Därmed "försvinner" 8 m. Hoppas på snabbt svar.
20.08.2014 - 14:49DROPS Design svaraði:
Hej Betty. Denne fejl er desvaerre ikke rettet paa det svenske mönster endnu, men hvis du f.eks. kigger paa det norske har du de rigtige antal. Jeg skal sörge for at ogsaa det svenske mönster bliver rettet asap.
20.08.2014 - 16:56
Carry skrifaði:
Hoe meerder ik 32st netjes over 20st in decapuchon?..om geen gaten te krijgen.
17.08.2014 - 15:21DROPS Design svaraði:
Hoi Carry. Je kan dit meerderen door een omslag te maken en de omslagen in de eerstvolgende nld gedraaid r te breien. Omdat je zo veel st moet meerderen, moet je bijna bij elke st meerderen. Ik denk dat je het mooiste resultaat zal krijgen met omslagen. Veel breiplezier verder.
19.08.2014 - 12:29
Maggie skrifaði:
Dank je wel! Ik vind het een super patroon, ben al een tijd op zoek naar een breipatroon voor een lang vest en deze is echt te gek!
12.08.2014 - 13:15
Snow Princess#snowprincessjacket |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr DROPS Nepal með laskalínu, hettu og bambusmynstri, prjónuð ofan frá og niður. Stærð S - XXXL
DROPS 156-1 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. BAMBUSMYNSTUR (prjónað fram og til baka): UMFERÐ 1 (= rétta): * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, takið uppsláttinn og lyftið yfir 2 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið br. Endurtakið umf 1-2. BAMBUSMYNSTUR (prjónað í hring á sokkaprjóna): UMFERÐ 1: * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, takið uppsláttinn og lyftið yfir 2 l sl *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: Prjónið slétt. Endurtakið umf 1-2. ÚRTAKA: Fækkið um 1 l á undan prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á unda prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Fækkið um 1 l á eftir prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. LASKALÍNA: Aukið út við hvert prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn = 2 l fleiri. Endurtakið eins við hin prjónamerkin í stykkinu = 8 l fleiri í umf. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka ofan frá og niður á hringprjóna/sokkaprjóna. HETTA: Fitjið upp 116 í allar stærðir ( meðtaldar 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, í hvorri hlið á stykki) á hringprjóna nr 5 með Nepal. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan BAMBUSMYNSTUR fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, með 2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið (2 kantlykkjur í garðaprjóni í hvorri hlið halda áfram til loka). ATHUGIÐ PRJÓNFESTU! Þegar stykkið mælist 38 cm er prjónað frá réttu þannig: Mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-32-36-40-44-48 l, garðaprjón yfir næstu 56-52-44-36-28-20 l JAFNFRAMT er fækkað um 12-11-10-6-4-0 l jafnt yfir, mynstur yfir l sem eftir eru 30-32-36-40-44-48 l = 104-105-106-110-112-116 l. Haldið síðan áfram fram og til baka þar til prjónaðar hafa verið 6 umf garðaprjón yfir miðju l, JAFNFRAMT í 2. umf frá réttu er aukið út um 4-8-14-19-25-32 l jafnt yfir l í garðaprjóni og 3. umf frá réttu aukið út 4-7-13-18-25-31 l jafnt yfir l í garðaprjóni = 112-120-133-147-162-179 l. Prjónið nú upphækkun í garðaprjóni í hnakka frá réttu: Prjónið þar til eftir eru 30-32-36-40-44-48 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 30-32-36-40-44-48 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 40-42-46-50-55-58 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 40-42-46-50-55-58 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 50-52-56-60-65-68 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 50-52-56-60-65-68 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 55-57-61-65-70-73 l, snúið við, prjónið þar til eftir eru 55-57-61-65-70-73 l, snúið við og prjónið út umf (mynstur yfir síðustu 30-32-36-40-44-48 l). BERUSTYKKI: Prjónið nú mynstur eins og áður yfir fyrstu 30-32-36-40-44-48 l, 1 l sléttprjón, setjið 1. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 15 l, setjið 2. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 20-24-29-35-42-51 l, setjið 3. prjónamerki hér, sléttprjón yfir næstu 15 l, setjið 4. prjónamerki hér, 1 l sléttprjón, mynstur eins og áður yfir næstu 30-32-36-40-44-48 l. Nú byrjar útaukning fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan. Endurtaki útaukningu í hverri umf 1-1-4-6-8-10 sinnum (þ.e.a.s. frá réttu og röngu) og í hverri umf frá réttu 21-22-20-19-18-17 sinnum = 288-304-325-347-370-395 l. ATH: Nýjar útauknar lykkjur á bakstykki og ermum eru prjónaðar í sléttprjóni og fyrstu 8 nýju útauknar lykkjur á framstykki eru prjónaðar með bambusmynstri (þ.e.a.s. það verður að auka út um 2 l áður en nægilega margar l eru til að prjóna bambusmynstur), prjónið síðan þær útauknar lykkjur sem eftir eru í sléttprjóni. Stykkið mælist nú 20-21-22-23-24-25 cm (mælt frá 1. umf á eftir kanti að aftan í garðaprjóni). Nú er næsta umf prjónuð þannig: Prjónið fyrstu 52-55-60-65-70-75 l, setjið næstu 61-63-65-67-69-71 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið næstu 62-68-75-83-92-103 l, setjið næstu 61-63-65-67-69-71 l á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið prjónamerki mitt á milli nýju l), prjónið næstu 52-55-60-65-70-75 l. Nú eru 186-198-215-233-252-273 l fyrir fram- og bakstykki. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! FRAM- OG BAKSTYKKI: Haldið síðan áfram fram og til baka með mynstur eins og áður. Nýju l undir ermum eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið fram að 1 l á undan fyrra prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sléttprjón, sláið uppá, endurtakið við seinna prjónamerki = 190-202-219-237-256-277 l. Endurtakið útaukningu með 3½-3½-3½-4-4½-6 cm millibili 11-12-12-12-11-8 sinnum til viðbótar = 234-250-267-285-300-309 l. Þegar stykkið mælist 46-48-50-52-54-55 cm frá prjónamerki undir ermum eru prjónaðar 6 umf garðaprjón. Fellið laust af. ERMI: Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna. Setjið til baka l af þræði á sokkaprjóna nr 5. Prjónið 1 umf frá réttu og fitjið upp 10 nýjar l undir ermi (setjið eitt prjónamerki mitt á milli nýju l) = 71-73-75-77-79-81 l. STYKKIÐ ER NÚ MÆLT HÉÐAN! Þegar stykkið mælist 4 cm byrjar úrtaka hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 3½-3½-3½-4-4½-6 cm millibili þar til = 45-45-47-47-49-49 l eru á prjóni. Þegar stykkið mælist 32-32-32-32-31-31 cm aukið út um 3 l jafnt yfir í öllum stærðum = 48-48-50-50-52-52 l. Prjónið nú BAMBUSMYNSTUR í hring á sokkaprjóna – sjá útskýring að ofan. Þegar stykkið mælist 47-47-47-47-48-48 cm fækkið um 4 l í öllum stærðum = 44-44-46-46-48-48 l. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN í hring á hringprjóna – sjá útskýringu að ofan. Fellið af. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið hettuna saman með því að sauma lykkjur 1 og 1 í uppfitjunarkanti saman. Saumið tölur í mynstureiningu með bambusmynstri á vinstra framstykki þannig: Saumið 1 tölu ca 2 cm inn frá kanti og 43-45-47-49-51-53 cm frá affellingarkanti og 1 tölu 47-49-51-53-55-57 cm frá affellingarkanti. Endurtakið alveg eins hinum megin á mynstureiningu með bambusmynstri. Tölum er hneppt í gegnum gat í bambusmynstri. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #snowprincessjacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 156-1
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.