Melanie skrifaði:
Bonjour je viens de terminer le raglan et j'ai fermé les manche, j'ai le bon nombre de maille, j'ai fermé le dos avec le rand de MS, par contre je n'ai pas saisi ou se place les marqueurs ? Sous les manche? Car a 44 mailles c'est tou juste la moitier?? Merci de m'éclairer !
25.05.2016 - 21:00DROPS Design svaraði:
Bonjour Mélanie, les marqueurs des côtés se mettent au milieu des chaînettes montées sous les manches (soit les 6 ml - 1ère taille - vous avez ainsi 3 des nouvelles mailles sur la chaînette sous la manche de chaque côté du marqueur). Bon crochet!
26.05.2016 - 09:45
Susanne skrifaði:
Jeg er igang med at hækle kjolen i str 1/3 måneder, og er nået til at skulle hækle det nederste af bærestk. Jeg forstår det ikke helt, har hæklet de første 20 st= højre rygstk og skal springe 33 fm over, skal de hækles og hvad med de to lm der er over buerne hvad skal man med dem
02.03.2016 - 08:24DROPS Design svaraði:
Hej, Efter de første 20 st, hækler du 8 lm hopper over 33m og fortsætter i den 34.m. God fornøjelse!
02.03.2016 - 13:56
Melissa Dryden skrifaði:
I am so confused with where is says to finish the round with 1sl St in 3rd chain from beg of row ( I think I got that) but then what does finish row with 1dc in chain from beginning of previous row mean? I'm not sure where that stitch would go.
27.02.2016 - 21:23DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Dryden, when you work in rows (back and forth), the last st on row is worked in the 3rd ch from beg of previous row (the 3 ch replace the 1st dc at beg of each row) - as shown in video below. Happy crocheting!
29.02.2016 - 09:16
Siebler skrifaði:
Danke, jetzt weiß ich, wo mein Rechenfehler liegt.
25.02.2016 - 11:57
Siebler Magdalena skrifaði:
Bitte auf meine Frage vom 19. 2. antworten. Vielen Dank Magdalena
23.02.2016 - 13:36DROPS Design svaraði:
Sie haben ja vor den ersten Raglanzunahmen 74 M. Dann nehmen Sie an jedem Markierer 3 Stb zu, d.h. 12 Stb zugenommen insgesamt, also 86 M. Dann nehmen Sie in jedem Lm-Bogen der Raglanlinie 4 Stb zu = 16 zugenommene Stb. Das machen Sie insgesamt 5 x = 80 zugenommene Stb, also 86 Stb + 80 Stb = 166 Stb.
24.02.2016 - 19:38
Siebler Magdalena skrifaði:
Ich habe Probleme mit der Maschenzahl. Nach 5 Raglanaufnahmen komme ich bei Größe 6/9 nicht auf 166 Maschen. Bei mir sind es 154 Stäbchen plus 8 Luftmaschen. Ich weiß nicht wie ich weiterverfahren soll. Den Maßen nach würde alles schon passen.
19.02.2016 - 20:11DROPS Design svaraði:
Antwort siehe oben! :-)
24.02.2016 - 19:46
Martina skrifaði:
Habe es schon 3mal in orange gehäkelt. Kam immer gut an. Werde das Kleidchen bestimmt noch einige male verschenken.
16.02.2016 - 10:59
Bianca skrifaði:
Wunderschön. Habe das Kleid als langes Taufkleid abgewandelt
30.01.2016 - 13:55
Wynne Visker skrifaði:
Hi I'm really new to crocheting and reading patterns. I'm really confused on the crochet info part of this pattern, do I finish the row by connecting to the beginning of the row or do I turn around? Also what does RS and WS mean?
20.01.2016 - 22:07DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Visker, when working back and forth (yoke), turn at the end of row to work next row, replacing 1st st why the related number of chains - when working in the round later in piece (body), join with 1 sl st in 1st/3rd ch at beg of round and replace 1st st with 1/3 ch. Happy crocheting!
21.01.2016 - 10:30
Lechien skrifaði:
Je réalise le modele taille 0/1 mois . J'ai monté les 67 mailles si j'augmente de 16 brides , j'obtiens 146 mailles . Non 142 , pourtant je suis la méthode . Pourriez vous m'aider à trouver mon erreur svp
05.01.2016 - 09:33DROPS Design svaraði:
Bonjour Mme Lechien, dans la 1ère taille, on commence par 67 ml, et 66 ms au 1er rang, puis on augmente 12B (2B+2ml+2B dans chaque ms avec 1 marqueur) = 78 B - on augmente ensuite pour le raglan 4 fois 16 B au total soit (4x16=64) = 78+64=142B. Bon crochet!
06.01.2016 - 09:58
Beth#bethdress |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Heklaður kjóll fyrir börn með laskalínu, stuttum ermum og sólfjaðramynstri, heklaður ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0–4 ára
DROPS Baby 25-16 |
|||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll. Umf endar á 1 kl í ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll. Umf endar á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf (þegar heklað er í hring). Umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf (þegar heklað er fram og til baka). UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ: * 1 umf fl, 1 umf st *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umf með áferð). LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu l. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að aftan og eftir klauf/opi við miðju að aftan, síðan er stykkið heklað í hring. BERUSTYKKI: Heklið 67-71-75-79 (79-83) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með litnum púður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 66-70-74-78 (78-82) fl í umf. Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að aftan – ATH: Heklið EKKI þar sem prjónamerkin eru): Hoppið yfir 9-10-11-12 (12-13) fl (= hægra bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi), setjið 1 merkiþráð í næstu fl, hoppið yfir 18-20-22-24 (24-26) fl (= framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 13 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu fl (nú eru 9-10-11-12 (12-13) fl á vinstra bakstykki eftir síðasta prjónamerki. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja fl, en í hverja fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 78-82-86-90 (90-94) st í umf. Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklað er fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í hverja umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínu). JAFNFRAMT í 1. umf frá réttu (þ.e.a.s. í umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-3-4-4 (5-6) sinnum til viðbótar (= alls 4-4-5-5 (6-7) sinnum = 142-146-166-170 (186-206) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA! Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður. Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 19-20-23-24 (26-29) fl (= hægra bakstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll, heklið 1 st í hverja af næstu 38-40-46-48 (52-58) fl (= framstykki), hoppið yfir næstu 33-33-37-37 (41-45) fl (= ermi), heklið 6-8-6-10 (10-8) ll og heklið 1 st í hverja af síðustu 19-20-23-24 (26-29) fl (= vinstra bakstykki). Ermar eru nú tilbúnar og stykkið er heklað áfram í hring. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið stykkið saman við miðju að aftan með réttu fram og heklið 1 umf með fl (heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja ll undir hvorri ermi – munið eftir HEKLLEIÐBEININGAR) = 88-96-104-116 (124-132) l í umf. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið = 44-48-52-58 (62-66) l á fram- og bakstykki. Haldið áfram hringinn með UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ. Þegar stykkið mælist ca 2 cm frá prjónamerki undir ermum er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 1½-2-3-3 (3-3½) cm millibili, 5-6-6-7 (8-8) sinnum til viðbótar (= alls 6-7-7-8 (9-9) sinnum) = 112-124-132-148 (160-168) l. Þegar stykkið mælist ca 13-19-22-25 (28-31) cm frá prjónamerki (endið eftir 1 umf með st, útaukningu á nú að vera lokið), heklið 1 umf fl JAFNFRAMT er aukið út um 8-2-0-2 (2-0) fl jafnt yfir – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 120-126-132-150 (162-168) fl. Klippið frá. Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl til baka með 1 fl í hverja fl frá fyrri umf. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. í næstu umf er heklað þannig: UMFERÐ 1: * Heklið 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið á 3 ll og 1 kl í 1. ll frá byrjun umf = 40-42-44-50 (54-56 ll-bogar). UMFERÐ 2: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boga, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* þar til 1 ll-bogi er eftir, heklið 3 st + 2 ll + 3 st um síðasta ll-boga og endið á 1 kl í 3. ll frá byrjun umf = 20-21-22-25 (27-28) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa. UMFERÐ 3-4: Heklið 3 ll (= 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í næsta st-hóp, 1 st í næsta st*, endurtakið frá *-* umf hringinn, endið á 3 st + 2 ll + 3 st um ll-boga mitt í síðasta st-hóp og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. UMFERÐ 5: Heklið eins og umf 3-4, en í ll-boga mitt í hvern st-hóp er heklað 4 st + 2 ll + 4 st (í stað 3 st + 2 ll + 3 st). Endurtakið umf 5 þar til kanturinn mælist ca 6 cm í öllum stærðum (eða að óskaðri lengd). Heklið síðan síðustu umf alveg eins, en með 5 st + 2 ll + 5 st í ll-boga mitt í hvern st-hóp. SNÚRA: Klippið 3 þræði með litnum natur ca 3 metra. Tvinnið þá saman þar til þeir taka í, leggið snúruna tvöfalda og þá tvinnar hún sig aftur saman. Hnýtið hnút í hvorn enda. Þræðið snúruna upp og niður í gegnum st-umf, ca 2 cm undir handveg á kjólnum, með byrjun frá miðju að framan. SLAUFA: Heklið 11 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan, fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar í hring og vefjið þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Saumið slaufuna niður við miðju framan á kjólinn beint yfir snúruna. HÁLSMÁL: Til þess að fá betra form er hekluð smá upphækkun að aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í hvert "horn" í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu og 1 prjónamerki við miðju að framan. Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið við miðju að aftan og heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 4-4-5-5 (5-6) l eru eftir á undan prjónamerki við miðju að framan. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl til baka við miðju að framan, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í st með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina og að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 fl í næsta hst, en nú síðasti uppslátturinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá og endurtakið frá miðju að aftan að miðju að framan í hinni hliðinni. KANTUR FYRIR HNAPPAGÖT OG TÖLUR AÐ AFTAN: Heklið meðfram vinstra opi við miðju að aftan kant fyrir tölur með litnum púður þannig: Heklið 1 fl í hverja fl-umf og 2 fl í hverja st-umf. Heklið alls 4 umf fl fram og til baka, klippið frá og festið enda. Heklið meðfram hægra opi við miðju að aftan kant með hnappagötum með litnum púður þannig (byrjið frá réttu við hálsmál): Heklið 3 fl (1 fl í fl-umf og 2 fl í st-umf). 4 ll (= 1 hnappagat), hoppið yfir ca 1 cm, heklið síðan fl ca að miðju á tölukanti, 4 ll, hoppið yfir ca 1 cm, heklið fl þar til 1 cm er eftir á tölukanti, 4 ll og festið með 1 fl í síðustu l. Klippið frá og festið enda. Saumið tölur í kanti í vinstri hlið. HÁLSMÁL: Heklið í kringum hálsmál með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 2 ll, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf, klippið frá og festið enda. SÓLFJAÐRAKANTUR Í KRINGUM ERMAR: Heklið með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í hverja af 6-8-6-10 (10-8) l við miðju undir ermi, heklið síðan sólfjaðrakant í kringum handveg þannig: * hoppið yfir ca 2 l, í næstu l er heklað 3 st + 2 ll + 3 st, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf (= ca 5-5-6-6 (7-7) sólfjaðrir meðfram ermi). Klippið frá og festið enda. Heklið á sama hátt í kringum hina ermina. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #bethdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.