DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Little Lady Rose

Hekluð jakkapeysa fyrir börn með laskalínu og sólfjaðrakanti, hekluð ofan frá og niður úr DROPS BabyAlpaca Silk. Stærð 0–4 ára

DROPS Baby 25-12
DROPS Design: Mynstur nr bs-008-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: fyrirburar 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð i cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY ALPACA SILK frá Garnstudio
150-150-150-200 (200-200) gr litur nr 1306, púður
50-50-50-50 (50-100) gr litur nr 0100, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 st og 8 umferðir með áferð á hæðina verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA, NR 521: 3-3-3-5 (5-5) stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á hverri umf með fl er 1. fl skipt út fyrir 1 ll, umf endar á 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf.
Í byrjun á hverri umf með st er 1. st skipt út fyrir 3 ll, umf endar á 1 st í ll frá byrjun fyrri umf.

UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ:
* 1 umf fl (heklað frá röngu), 1 umf st (heklað frá réttu) *, endurtakið frá *-* (1 umf fl + 1 umf st = 1 umferð með áferð).

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 fl/st með því að hekla 2 fl/st í sömu lykkju.

ÚRTAKA:
Heklið 1 fl/st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin (= 2 l á heklunálinni), heklið síðan næstu fl/st, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar l á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fl/st.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 (A.2 á við um útaukningu í kraga).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er heklað ofan frá og niður. Heklað er fram og til baka frá miðju að framan.

BERUSTYKKI:
Heklið 83-87-91-91 (91-95) ll (meðtalin 1 ll til að snúa við með) með heklunál nr 3,5 með litnum púður. Heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið síðan 1 fl í hverja ll út umf = 82-86-90-90 (90-94) fl í umf (meðtaldar 5 kantlykkjur að við miðju að framan í hvorri hlið).
Setjið nú 4 prjónamerki í stykkið fyrir laskalínu þannig (byrjið við miðju að framan – ATH: EKKI er heklað þegar prjónamerki eru sett í stykkið): Hoppið yfir 15-16-17-17 (17-18) fl (= vinstra framstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 14 fl (= ermi), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 20-22-24-24 (24-26) fl (= bakstykki), setjið 1 prjónamerki í næstu fl, hoppið yfir 14 fl (= ermi) og setjið síðasta prjónamerkið í næstu fl (nú eru 15-16-17-17 (17-18) fl á hægra framstykki eftir síðasta prjónamerki).
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM!
LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR og heklið næstu umf frá réttu þannig:
Heklið 1 st í hverja fl, en í hverri fl með prjónamerki er heklað 2 st + 2 ll + 2 st = 94-98-102-102 (102-106) st í umf.
Heklið síðan UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ – sjá útskýringu að ofan (heklið fram og til baka með 1 fl/st í hverja l frá fyrri umf, en í öllum umf með fl frá röngu eru heklaðar 2 ll yfir þær 2 ll frá fyrri umf í laskalínu. Í umf með st er heklað 2 st + 2 ll + 2 st í kringum báða ll-bogana).
JAFNFRAMT í hverri umf frá réttu (þ.e.a.s. í hverri umf með st) er aukið út fyrir laskalínu þannig: Heklið 2 st + 2 ll + 2 st um hvern ll-boga í hverja laskalínu (= 16 st fleiri í umf – ATH: Heklið um báða ll-bogana). Endurtakið útaukningu í hverri umf frá réttu, 3-4-5-6 (7-8) sinnum til viðbótar (= alls 4-5-6-7 (8-9) sinnum) = 158-178-198-214 (230-250) l í umf. ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Eftir síðustu útaukningu fyrir laskalínu er hekluð 1 umf með fl frá röngu eins og áður.
Næsta umf er hekluð frá réttu þannig: Heklið 1 st í hverja af fyrstu 25-28-31-33 (35-38) fl (= vinstra framstykki), hoppið yfir næstu 34-38-42-46 (50-54) fl (= ermi), heklið 6-6-6-6 (8-8) ll, heklið 1 st í hverja af 40-46-52-56 (60-66) fl (= bakstykki), hoppið yfir næstu 34-38-42-46 (50-54) fl (= ermi), heklið 6-6-6-6 (8-8) ll og heklið 1 st í hverja og eina af síðustu 25-28-31-33 (35-38) fl (= hægra framstykki).
Heklið síðan fram- og bakstykki og ermar áfram hvert fyrir sig.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Heklið 1. umf frá röngu – heklið 1 fl í hvern st frá fyrri umf og 1 fl í hverja af þeim 6-6-6-6 (8-8) ll undir hvorum handveg = 102-114-126-134 (146-158) fl í umf. Setjið 1 prjónamerki 28-31-34-36 (39-42) l inn frá hvorri hlið (= 46-52-58-62 (68-74) l á bakstykki). Haldið áfram fram og til baka með UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist ca 2-2-2-3 (2-3) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með ca 1-1½-1½-1½ (1½-1½) cm millibili, 10-10-10-10 (13-13) sinnum til viðbótar (= alls 11-11-11-11 (14-14) sinnum) = 146-158-170-178 (202-214) l. Þegar stykkið mælist ca 15-17-18-20 (22-24) cm frá handvegi – stillið af að útaukningu sé lokið, heklið nú 1 umf fl frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 2-2-2-0 (0-0) fl jafnt yfir – LESIÐ ÚTAUKNING = 148-160-172-178 (202-214) fl. Klippið frá.
Skiptið yfir í litinn natur og heklið 1 umf fl frá röngu með 1 fl í hverja fl frá fyrri umf. Heklið síðan sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1, þ.e.a.s. heklað er þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): 1 ll, 1 fl í fyrstu l, * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* út umf = 49-53-57-59 (67-71 ll- bogar), snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um fyrsta ll-bogann, * 1 st um næsta ll-boga, 3 st + 2 ll + 3 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í fyrstu fl frá byrjun fyrri umf = 25-27-29-30 (34-36) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Heklið 3 ll (jafngilda 1 st), 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í fyrsta st-hópinn, * 1 st í næsta st, 3 st + 2 ll + 3 st um ll-bogann mitt í næsta st-hóp *, endurtakið frá *-* út umf og endið á 1 st í 3. ll frá byrjun fyrri umf = 25-27-29-30 (34-36) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa. Klippið frá og festið enda.

ERMI:
= 34-38-42-46 (50-54) l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Heklið 1. umferð frá réttu með litnum púður þannig: Heklið 3-3-3-3 (4-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 3-3—3 (4-4) ll. Snúið stykkinu, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af 1-1-1-1 (2-2) næstu ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umferð og 1 fl í hverja af 3-3-3-3 (4-4) ll frá byrjun á fyrri umferð = 40-44-48-52 (58-62) l í umf.
Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka eins og áður með st frá réttu og fl frá röngu. JAFNFRAMT þegar ermin mælist 2-2-3-3 (3-3) cm frá prjónamerki er fækkað um 1 l í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku með 8-5-3-3 (2½-2½) cm millibili, 1-2-4-5 (7-8) sinnum til viðbótar (= alls 2-3-5-6 (8-9) sinnum í hvorri hlið) = 36-38-38-40 (42-44) l. Þegar ermin mælist ca 13-14-16-19 (23-26) cm frá prjónamerki – endið eftir 1 umf fl frá röngu, klippið frá.
Skiptið yfir í natur. Heklið 1 umf fl frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 4-2-2-6 (4-2) fl jafnt yfir = 40-40-40-46 (46-46) fl.
Heklið nú sólfjaðramynstur eftir mynsturteikningu A.1 með byrjun frá réttu, alveg eins og neðst niðri á peysu. Eftir 1. umf eru 13-13-13-15 (15-15) ll-bogar í umf og eftir 2. umf eru 7-7-7-8 (8-8) st-hópar með 1 st á milli hverra st-hópa.
Heklið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma undir ermum kant í kant yst í lykkjubogann. Saumið saman op við handveg.
Saumið tölur í vinstra framstykki. Efsta tala á að vera staðsett ca 1 cm frá hálsmáli og það eiga að vera ca 5-7 cm á milli talna. Tölum er hneppt í gegnum st í mynstri með áferð.

UPPHÆKKUN AFTAN VIÐ HNAKKA:
Til þess að flíkin passi betur er hekluð upphækkun aftan við hnakka. Setjið 1 prjónamerki í l í hvert “horn” í hálsmáli, þ.e.a.s. í byrjun á hverri laskalínu. Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið á 11. l frá miðju að framan, heklið 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan l með prjónamerki, heklið 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l, heklið síðan 1 fl í hverja l þar til 1 l er eftir á undan næstu l með prjónamerki, 1 hst í næstu l, 1 st í l með prjónamerki og 1 hst í næstu l. Haldið svona áfram þar til 10 l eru eftir við miðju að framan í annarri hliðinni. Snúið við og heklið 1 fl í hverja fl, en við hvert prjónamerki eru heklaðar 3 fl saman, þ.e.a.s. heklið 1 fl í hst, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 fl í st með prjónamerki, en bíðið með að bregða þræðinum um heklunálina í lokin og að draga þráðinn í gegn, heklið 1 fl í næsta hst, en nú er þræðinum brugðið yfir heklunálina og þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á heklunálinni (= 2 fl færri). Klippið frá.

KRAGI:
Heklið með heklunál nr 3,5 með litnum púður þannig: Byrjið í 4. ll frá miðju að framan og heklið 1 fl í hverja fl í kringum hálsmál þar til 3 fl eru eftir í umf JAFNFRAMT sem 5. og 6. hver l eru heklaðar saman – LESIÐ ÚRTAKA = ca 57-60-64-64 (64-67) fl eftir. Passið uppá að prjónamerkin við hverja laskalínu fylgja með í stykkinu en færið prjónamerkin inn að ermi í hvorri hlið þannig að öll prjónamerkin séu staðsett á milli 2 l.
Heklið síðan umferð með áferð fram og til baka eins og á fram- og bakstykki með 1 l í hverja l. JAFNFRAMT eftir 3-3-3-4 (4-4) cm er aukið út í 2 næstu umf eins og útskýrt er í A.2. Eftir síðustu útaukningu mælist kraginn ca 5-5-5-6 (6-6) cm. Klippið frá og festið enda.

HEKLAÐUR KANTUR MEÐFRAM MIÐJU AÐ FRAMAN:
Heklið með litnum natur þannig: Byrjið frá röngu neðst niðri á vinstra framstykki og heklið 1 umf fl upp meðfram miðju að framan og síðan yfir 3 l efst uppi við hálsmál áður en kraginn byrjar – heklið ca 2 fl um hverja st-umferð og 1 fl í hverja fl-umferð. Snúið við og heklið til baka þannig: * 3 ll, hoppið yfir 2 fl, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* út umf þar til komið er neðst niðri á kant að framan. Klippið frá og festið enda og endurtakið meðfram hægra framstykki með byrjun frá röngu efst uppi við hálsmál.

HEKLAÐUR KANTUR Í KRINGUM KRAGA:
Heklið með litnum natur þannig: Byrjið frá réttu þar sem kraginn byrjar eftir 3 l efst uppi við hálsmál og heklið 1 umf fl í kringum allan kragann þar sem kraginn endar á undan 3 l efst uppi við hálsmál í hinni hliðinni. Snúið við og heklið til baka þannig: * 3 ll, hoppið yfir ca 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* - ATH: Stillið af að fjöldi ll-boga sé deilanlegur með 2 + 1. Snúið við og heklið kant að lokum með sólfjöðrum frá réttu þannig: Heklið kl að miðju á fyrsta ll-boganum, 3 ll (jafngilda 1 st), * 3 st + 2 ll + 3 st í næsta ll-boga, 1 st um næsta ll-boga *, endurtakið frá *-* út umf. Klippið frá og festið enda.

SLAUFA:
Heklið 11 ll með heklunál nr 3,5 með litnum natur. Fyrsta umf er hekluð þannig: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af 7 næstu ll = 9 st í umf. Snúið við og heklið UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka þar til stykkið mælist ca 10 cm – endið eftir 1 umf með fl. Klippið frá og festið enda. Saumið saman skammhliðar og myndið hring og snúið smá þræði í kringum miðjuna á slaufunni þannig að hún dragist fallega saman fyrir miðju. Saumið slaufuna niður efst í hægra framstykki.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 23.03.2021
ERMI:ERMI:
= 34-38-42-46 (50-54) l. Setjið 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT.
Heklið 1. umferð frá réttu með púður þannig: Heklið 3-3-3-3 (4-4) ll, heklið 1 st í hverja l og heklið 3-3—3 (4-4) ll. Snúið stykkinu, heklið 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið 1 fl í hverja af 1-1-1-1 (2-2) næstu ll, 1 fl í hvern st frá fyrri umferð og 1 fl í hverja af 3-3-3-3 (4-4) ll frá byrjun á fyrri umferð = 40-44-48-52 (58-62) l í umf.
Heklið nú UMFERÐ MEÐ ÁFERÐ fram og til baka eins og áður með st frá réttu og fl frá röngu.

Mynstur

symbols = 1 fastalykkja
symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 stuðull
symbols = prjónamerki
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 25-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (111)

country flag Wendy wrote:

The yarn is discontinued. What would be a reasonable substitute?

17.02.2024 - 13:05

DROPS Design answered:

Dear Wendy, you could use DROPS BabyMerino, DROPS Flora, DROPS Nord or DROPS Alpaca. Happy knitting!

18.02.2024 - 22:24

country flag Katia wrote:

Bonjour, Je ne comprend pas où je dois commencer pour la ré-hausse de l'encolure dos. J'ai mis les marqueurs dans les raclant mais je ne comprend pas "commencer à la 11e m", je ne commence pas au début de l'encolure? Merci d'avance pour votre réponse Cordialement. Katia

23.03.2023 - 11:17

DROPS Design answered:

Bonjour Katia, non on ne commence par au bord des devants, mais après: comptez à partir de la 1ère maille du devant droit (sur l'endroit) et commencez dans la 11ème maille à partir du bord. Coupez le fil à la fin des rangs de la ré-hausse et crochetez ensuite le col en commençant dans la 4ème maille à partir du bord. Bon crochet!

23.03.2023 - 12:44

country flag Karoline wrote:

Hei, og takk for tidligere svar! Jeg er helt amatør, og lurer nå på hvor jeg skal øke? Altså, jeg vet at jeg øker ved å hekle to st i samme fm. Det står at jeg skal øke på hver side av merkingen. Vil det si at jeg skal øke på samme sted hver gang, rett ved siden av merket? Eller skal jeg fordele økningen over flere steder for hver gang jeg øker?

13.03.2023 - 20:44

DROPS Design answered:

Hei Karoline, Du skal alltid øke på hver side av merkene (rett før og rett etter). God fornøyelse!

20.03.2023 - 07:01

country flag Karoline wrote:

Hvordan blir det 102 masker etter første gang jeg har lagt ut? Det skal jo legges ut 2st+2lm+2st og det er markert med tråd 4 ganger… For meg blir dette 16 økte masker fra start, ikke 12 som det står. Hva gjør jeg galt?

12.02.2023 - 20:17

DROPS Design answered:

Hei Karoline, Du hekler 4 st i hver st med merketråd (3 st økt). Da blir det 12 st økt på raden. God fornøyelse!

13.02.2023 - 07:00

country flag José Engering wrote:

Wanneer in een beschrijving bv staat: Maat: 0/1 - 1/3 - 6/9 - 12/18 maanden (2 - 3/4) jaar\ Maat in cm: 48/52 - 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104) is dan: 0/1-1/3 maat 48/52 zoals we die in Nederland in de winkel kopen? En is dan: Haak 83-87-91-91 (91-95) 83/87 voor bovenstaande voorbeeld? Ik denk het wel maar wil het zeker weten vóór ik begin . Zijn er meer haakpatronen voor babyvestjes? ik kan er maar een paar vinden, Met hartelijke dank voor de genomen moeite, José

03.01.2023 - 14:07

DROPS Design answered:

Dag José,

In principe zou dit zo moeten zijn, dus dat de maten kloppen volgens de confectiematen. Je kunt ook altijd naar de maattekening kijken en deze vergelijken met een kledingstuk dat goed zit.

04.01.2023 - 21:07

country flag Anette wrote:

Jag har virkat 7 st raglanökningar 2 st 2 lm 2 st i varje markering . Virkar storlek 86, men har inte 214 m. Det fattas 16 m och det borde vara 1 ökning till. Vad har jag missat? Sen undrarjag på…. Hoppa över ärmmaskorna, lägg upp 6 lm….hur gör jag?

09.09.2022 - 10:59

DROPS Design answered:

Hei Anette. Når du har satt 4 merker i arbeidet har du 17+1+14+1+24+1+14+1+17 masker = 90. Så hekler du 1 stav i hver fm, men i hver fm med merketråd i hekles det 2 st + 2 lm + 2 st = 102 st på raden (økt med 12 masker). Nå starter raglanøkningene, totalt 7 ganger. 16 økte masker pr økeomgang = 7x16=112 økte masker + de 102 du hadde i starten = 112+102= 214 masker. Angående hopp over armmaskene, Hekle slik det står i oppskriften, deretter hekles bol og ermene videre hver for seg. Når bolen er ferdig heklet, vil du se at du har 2 hull til ermene, som nå skal hekles hver for seg. mvh DROPS Design

12.09.2022 - 08:58

country flag Amani Elhusseini wrote:

Ok thank you. In regards to the sleeve where do we start? Do we only work in the stitches from yoke or do we work into the 6 chains under the arm (that we made fot the body) too?

14.03.2022 - 00:31

DROPS Design answered:

Dear Mrs Elhusseini, start sleeve crocheting 3 chains, then work the stitches on sleeve and finish row with 5 chains, turn and crochet next row as explained. At the end of work you will sew together the opening under sleeves. Happy crocheting!

14.03.2022 - 13:50

country flag Amani Elhusseini wrote:

Thank you for this lovely pattern however Can you please upload a video or photos on how to do the sleeve as it is very confusing

13.03.2022 - 02:03

DROPS Design answered:

Dear Amani, we don't make personalized videos, but you can find all of our related videos, which may help you make this pattern below the pattern. Happy crochetting!

13.03.2022 - 22:37

country flag Helen wrote:

Hej! Finns det inget mönster till mössan? Mvh Helen

29.01.2022 - 02:25

DROPS Design answered:

Hei helen. Jo, oppskrift til luen finner du under DROPS Baby 25-14. Eller klikk på bildet av luen under det store bildet (og teksten: Du vil kanskje også like...) mvh DROPS Design

31.01.2022 - 13:53

country flag Line wrote:

Jeg er gået igang med denne lækre jakke, men er gået i stå allerede i bærestykket. Jeg laver den i str 12-18 måneder. Jeg har slået 92 lm op, hæklet 1 fm i 2.lm fra nålen og hæklet 1 fm i resten af lm. Jeg er nu nået til det stykke, hvor der står “(inkl 5 kant-m i hver side mod midt foran)” men det forstår jeg simpelthen ikke? Jeg har ikke før hæklet kant-m, så er helt på bar bund, hvad skal der gøres og hvor henne? Håber i kan hjælpe.

06.11.2021 - 18:26

DROPS Design answered:

Hej Line, det står bare at de yderste 5 masker (som du har hæklet) i hver side = kantmasker. :)

09.11.2021 - 15:38