Claudia L skrifaði:
Gleder meg til å prøve!
06.04.2013 - 23:01
Šárka skrifaði:
So cute and sweet, thank you. :-)
24.03.2013 - 11:04
Sabine skrifaði:
Allerliebst Danke
21.03.2013 - 17:09
Jana skrifaði:
So süß :-) Danke f. die immer so tollen Anleitungen ...
20.03.2013 - 13:11
Falatin skrifaði:
Bonjour, Merci pour tous vos modèles et explications gratuites. Il serait très agréable d'avoir des schémas en complément des modèles au crochet.
19.03.2013 - 08:39
Hedwig#dropshedwig |
|
![]() |
![]() |
Heklaðar uglur úr DROPS Safran og DROPS Muskat. Þema: Páskar.
DROPS Extra 0-909 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir, dragið í endann á þræðinum þannig að lykkjan dragist saman. Festið endann á bakhlið. HEKLLEIÐBEININGAR: Allar umf byrja með 1 ll og enda með 1 kl í fyrstu ll í byrjun umf. LITASKIPTI: Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, bregðið nýja þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- LÍTIL UGLA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í hring með Safran. LÍTIL UGLA: Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum skærgulur með heklunál nr 2,5. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPT! Heklið 8 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í hvora af næstu 2 fl, 1 st og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl, 2 fl í síðustu fl í umf = 16 l. UMFERÐ 3:Skiptið yfir í litinn ljós brúnn og heklið 1 fl í fyrstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 2 st í næstu l,1 tbst í framan lykkjubogann og 1 tbst aftan í lykkjubogann í hverja af næstu 4 l, 2 st í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í síðustu l í umf = 28 l. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l umf hringinn. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl í fyrstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í hverja af 8 næstu l, 2 st í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (= toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í síðustu l í umf = 50 l (+ 2 ll). Klippið frá og festið enda (ATH – síðasta umf í mynstri er hekluð síðar). Heklið aðra uglu á sama hátt. AUGA: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum brúnn með heklunál nr 2,5. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – Heklið 6 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn hvítur og heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. Heklið annað auga á sama hátt. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið augun á ugluna. Saumið út gogginn með litnum appelsínugulur þannig: Byrjið fyrir miðju við galdrahringinn og saumið eitt spor niður að 2. umf 2 sinnum og saumið frá miðjum hring og niður hliðina að 1. umf á hvoru megin við fyrsta sporið, einungis 1 sinni í hvorri hlið. Uglan er síðan hekluð saman með litnum skærgulur með heklunál nr 2,5. Leggið uglurnar ofan á hvor aðra með röngu á móti röngu og gogginn á móti þér. Heklið í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 2 fl í ll frá toppi á eyra á vinstri hlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 fl í 6 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 8 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l og heklið 1 fl í hverja af næstu 14 l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 6 l og heklið 2 fl í ll (= toppurinn á hægra eyra). Fyllið ugluna með vatti og heklið síðan þannig: Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 l, 15-20 ll, 1 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 4 l og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 60 fl (+ 20 ll). Klippið frá og festið enda. Klærnar eru heklaðar með litnum appelsínugulur með heklunál nr 2,5. Byrjið að hekla í lykkju með prjónamerki þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í næstu l, 4 ll, 1 fl í næstu l, 3 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. STÓR UGLA: Stykkið er heklað í hring með Muskat. Byrjið að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum vanillugulur með heklunál nr 3. UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPT! Heklið 8 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í hvora af næstu 2 fl, 1 st og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl, 2 fl í síðustu fl í umf = 16 l. UMFERÐ 3:Heklið 1 fl í fyrstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 2 st í næstu l, 1 tbst í framan í lykkjubogann og 1 tbst aftan í lykkjubogann í næstu 4 l, 2 st í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í síðustu l í umf = 28 l. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l umf hringinn. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn brúnn og heklið 1 fl í fyrstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í hverja af næstu 8 l, 2 st í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (= toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í síðustu l í umf = 50 l (+ 2 ll). Klippið frá og festið enda (ATH – síðasta umf í mynstri er hekluð síðar). Heklið aðra uglu á sama hátt. AUGA: Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum brúnn með heklunál nr 3. UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – Heklið 6 fl um galdrahringinn. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn hvítur og heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl. Heklið annað auga á sama hátt. Klippið frá og festið enda. FRÁGANGUR: Saumið augun á ugluna. Saumið út gogginn með litnum dökk appelsínugulur þannig: Byrjið fyrir miðju við galdrahringinn og saumið eitt spor niður að 2. umf 2 sinnum og saumið frá miðjum hring og niður hliðina að 1. umf á hvoru megin við fyrsta sporið, einungis 1 sinni í hvorri hlið. Uglan er síðan hekluð saman með litnum vanillugulur með heklunál nr 3. Leggið uglurnar ofan á hvor aðra með röngu á móti röngu og gogginn á móti þér. Heklið í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 2 fl í ll frá toppi á eyra á vinstri hlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 fl í 6 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 8 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l og heklið 1 fl í hverja af næstu 14 l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 6 l og heklið 2 fl um ll (= toppurinn á hægra eyra). Fyllið ugluna með vatti og heklið síðan þannig: Heklið 1 fl í hverja af næstu 5 l, 15-20 ll, 1 fl í næstu l, 1 fl í hverja af næstu 4 l og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf = 60 fl (+ 20 ll). Klippið frá og festið enda. Klærnar eru heklaðar með litnum dökk appelsínugulur með heklunál nr 3. Byrjið að hekla í lykkju með prjónamerki þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í næstu l, 4 ll, 1 fl í næstu l, 3 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropshedwig eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 8 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-909
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.