DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 24-11
DROPS Design: Mynstur nr me-013-bn
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 - 9/10 - 11/12 ára
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 - 134/140 - 146/152

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
200-200-250-250-300 gr litur nr 19, ljós gráblár
50-50-50-50-50 gr litur nr 13, gallabuxnablár

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l og 12 umf með mynstri verði = 10 x 10 cm.

UGLA:
Stærð: ca 10 cm á hæð

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50 gr litur nr 26, pistasía
50 gr litur nr 13, gallabuxnablár
+ afgangur af lit nr 18 eplagrænn, lit nr 30 sinnep og lit nr 01 natur.

DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir uglu.
FYLGIHLUTIR: Vatt til fyllingar. Lyklakippuhringur með krók.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í hverri umf með fl, er fyrstu fl skipt út fyrir 1 ll.
Í hverri umf með st, er fyrsta st skipt út fyrir 3 ll.

MYNSTUR:
UMFERÐ 1: Heklið 1 st í hverja fl.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fl í hvern st.
Endurtakið umf 1 og 2.

ÚRTAKA:
Fækkað er um 1 l með því að hekla 2 l saman þannig: * Stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni.
Heklið 2 st saman þannig: Heklið 1 st í fyrstu l, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í lokin, heklið 1 st í næstu l, en þegar draga á þráðinn í gegn í lokin er þráðurinn dreginn í gegnum allar 3 lykkjurnar.

GALDRAHRINGUR:
Þegar stykkið er heklað í hring er byrjað með þessari aðferð til þess að sleppa við göt í miðjunni (í stað þess að gera ll-hring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um hana og dreginn upp úr hringnum, heklið 1 ll, heklið nú fl utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fl er kominn sem þú óskar eftir,dragið í endann á þræðinum svo að hægt sé að draga hringinn saman. Festið endann á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring.

LITASKIPTI:
Til þess að ná fram fallegum litaskiptum er síðasta kl í umf hekluð með nýja litnum þannig: Stingið heklunálinni í síðustu ll frá byrjun umf, bregðið þræðinum með nýja litnum um heklunálina og dragið í gegnum l á heklunálinni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VESTI / SLIPOVER - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Til að áferðin verði eins allan tíman, er stykkið heklað fram og til baka í 2 stykkjum sem saumuð eru saman í lokin.

FRAMSTYKKI:
Heklið 62-67-71-76-81 ll með Merino Extra Fine með heklunál nr 4. Haldið áfram með 1 fl í 2. ll frá heklunálinni, heklið nú 1 fl í hverja af næstu 4-2-6-4-2 ll, * hoppið yfir 1 ll, 1 fl í hverja af næstu 6 ll *, endurtakið frá *-* út umf = 54-58-62-66-70 fl (fyrsta ll = 1 fl). LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Snúið við og heklið 4 umf með 1 fl í hverja fl. Haldið áfram með MYNSTUR til loka – sjá útskýringu að ofan! ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10-11-12-13-14 cm, aukið út um 1 l í hvorri hlið með því að hekla 2 l í næst síðustu l. Endurtakið útaukningu þegar stykkið mælist 20-21-22-23-24 cm = 58-62-66-70-74 l. Þegar stykkið mælist ca 24-26-28-30-32 cm (passið uppá að næsta umf er umf með fl), fellið af fyrir handvegi þannig: Heklið kl yfir 3 fyrstu st, haldið áfram með fl þar til 3 st eru eftir, snúið við. * Heklið 3 ll í fyrstu fl, heklið nú 2 næstu st saman – SJÁ ÚRTAKA, heklið nú st fram þar til 3 fl eru eftir, heklið 2 næstu st saman, síðan 1 st í síðustu fl. Snúið við og heklið 1 umf með fl aftur yfir alla st, snúið við *. Endurtakið frá *-* 3 sinnum til viðbótar = 44-48-52-56-60 l í umf. Þegar stykkið mælist 29-31-34-36-39 cm, byrjar hálsmál og hvor öxl er hekluð til loka hvor fyrir sig.

ÖXL 1:
Heklið einungis yfir fyrstu 16-17-18-20-21 l. Snúið við og heklið til baka – jafnframt eru 4 fyrstu l heklaðar við hálsmál saman 2 og 2 – SJÁ ÚRTAKA! Í næstu umf eru 2 síðustu l við hálsmál heklaðar saman, endurtakið þessa úrtöku í hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 11-12-13-15-16 l eftir á öxl. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist 37-40-43-46-49 cm, klippið frá.

ÖXL 2:
Heklið eins og fyrri öxl – passið uppá að byrja réttu megin á stykkinu, þannig að áferðin verði eins alla leið.

BAKSTYKKI:
Heklið eins og framstykki fram yfir úrtöku fyrir handveg = 44-48-52-56-60 l í umf. Heklið nú áfram þar til stykkið mælist ca 36-39-42-45-48 cm. Heklið nú 2 umf með mynstri eins og áður einungis yfir 11-12-13-15-16 l á hvorri hlið (miðju 22-24-26-26-28 l = hálsmál). Klippið frá.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma og hliðarsauma kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum hálsmál og í kringum handveg með litnum blár með heklunál nr 4. Heklið 1 fl í hverja fl og 2 fl í hverja umf með st. Klippið frá og festið enda.

TVÖFÖLD UGLA:
Stykkið er heklað í hring með Merino Extra Fine. Byrjið að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með heklunál nr 3 með litnum eplagrænn.
UMFERÐ 1: Lesið HEKLLEIÐBEININGAR og LITASKIPT! Heklið 8 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í fyrstu fl, 2 hst í næstu fl, 1 hst og 1 st í næstu fl, 2 st í hvora af næstu 2 fl, 1 st og 1 hst í næstu fl, 2 hst í næstu fl, 2 fl í síðustu litinn ljós grænn og heklið 1 fl í fyrstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 2 st í næstu l, 1 tbst í framan í lykkjubogann og 1 tbst aftan í lykkjubogann í næstu 4 l, 2 st í næstu l, 2 hst í hvora af næstu 2 l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í síðustu l í umf = 28 l.
UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja l umf hringinn.
UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn blár og heklið 1 fl í fyrstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í sömu l, 2 st í næstu l, 2 tbst í hverja af næstu 8 l, 2 st í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í næstu l, 2 fl í næstu l, 1 fl í næstu l, 1 hst í næstu l, 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 ll (= toppurinn á eyranu), 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l, 1 hst í sömu l, 1 fl í síðustu l í umf = 50 l (+ 2 ll).
Heklið aðra uglu á sama hátt.

AUGU:
Stykkið er heklað í hring. Byrjið á að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan – með litnum blár.
UMFERÐ 1: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR – Heklið 6 fl um galdrahringinn.
UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur og heklið 2 fl í hverja fl umf hringinn = 12 fl.
Heklið annað auga á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið augun á ugluna. Saumið út gogginn með litnum sinnepsgulur þannig: Byrjið fyrir miðju við galdrahringinn og saumið eitt spor niður að 2. umf 2 sinnum og saumið frá miðjum hring og niður hliðina að 1. umf á hvoru megin við fyrsta sporið, einungis 1 sinni í hvorri hlið.

Uglurnar eru síðan heklaðar saman með litnum ljós grænn. Leggið uglurnar ofan á hvora aðra með röngu á móti röngu og gogginn á móti þér. Heklið í gegnum bæði stykkin þannig: Heklið 2 fl um ll frá toppi á eyra á vinstri hlið. Heklið nú þannig: Heklið 1 fl í 6 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 8 l, setjið 1 prjónamerki í síðustu l og heklið 1 fl í hverja af 14 næstu l, 1 hst í næstu l og 1 st í sömu l, 2 tbst í næstu l, 1 st í næstu l og 1 hst í sömu l, 1 fl í hverja af næstu 6 l og heklið 2 fl í ll (= toppurinn á hægra eyra).

Fyllið ugluna með vatti og heklið síðan þannig: Heklið 1 fl í hverja af næstu 10 l og endið á 1 kl í fyrstu fl frá byrjun umf = 60 l. Klippið frá og festið enda.

Klærnar eru heklaðar með litnum sinnepsgulur. Byrjið að hekla í lykkju með prjónamerki þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, 1 fl í næstu l, 4 ll, 1 fl í næstu l, 3 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* 1 sinni til viðbótar. Klippið frá og festið enda. Festið lyklakippuhring með krók aftan á ugluna.

EINFÖLD UGLA:
Heklið eins og tvöföld ugla, nema nú er bara hekluð ein ugla. Heklið í kringum ugluna með litnum ljósgrænn alveg eins og heklað var í kringum tvöföldu ugluna. Heklið klærnar alveg eins. Saumið ugluna á vestið – sjá mynd.
Undir uglunni er hekluð grein þannig: Heklið fl með litnum blár og heklunál nr 3. Heklið ca 25 fl, aðeins niður á við í lokin. Heklið nú smá grein sem snýr upp, byrjið ca 8 fl á undan endanum á löngu greininni og heklið 5 fl – sjá mynd.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 24-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Linda wrote:

Some cute patterns here on this site but I cannot even find the basic information of Level to complete this pattern~ I can do all things but find all the information. Maybe it will take time but ugh I really like doing Amigurumi for the Holidays and can find none of them? Do you not have toys?

09.11.2022 - 02:00

DROPS Design answered:

Dear Linda, there is no level stated since this is quite individually - read the pattern thoroughly and feel free to ask any question here if needed - you will find all our crocheted toys here. Happy crocheting!

09.11.2022 - 08:34

country flag Simkóné Nagy Judit wrote:

Bocsánat, a korábbi kérdésem kiegészítéséhez szólok, közben rájöttem, hogy a kérdéses sornál az 5 számjegy az 5 különböző méretre vonatkozik. Így megoldódott a problémám. 😊

13.05.2022 - 11:38

country flag Simkóné Nagy Judit wrote:

Az elsó sorban az első erp a 4.szembe, ez rendben, de utána 1rp a köv. 2-2-6-4-2 lsz-be, ez azt jelenti, hogy onnan a 2.majd 2.és hatodik stb.szembe megy rövidpálca? Azután pedig az 1 láncszem, 6 erp minta folytatódik. A sor elejét nem értem, vagy nem jól értelmezem, vagy nem jó a leírás?

12.05.2022 - 13:15

country flag Benedek-Kováts, Emese wrote:

A magyar fordításban rosszul van a próba. Nem 18 RPx 12 sor, hanem 18 szem x 12 sor minta (1 sor rp 1 sor erp váltakozva).

27.12.2020 - 21:07

country flag JUANA wrote:

LA AYUDA ES EXCELENTE PARA TEJER PARA MIS NIETOS, GRACIAS

17.08.2020 - 20:07

country flag Eileen O'Keeffe wrote:

What stitch is used in swatch for Merlin vest.

05.02.2020 - 16:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs O'Keeffe, the tension is measured with the pattern used in the vest - see PATTERN (= 1 row with trebles/1 row with double crochets (UK-English)). Happy crocheting!

06.02.2020 - 09:26

country flag Anne wrote:

Hej er der en fejl i staten med l lm kan ikke få det til at passe og til at det i næste rakke skal blive 54

23.12.2016 - 11:33

DROPS Design answered:

Hej Anne. Du starter med 62 lm og haekler: Fortsæt med 1 fm i 2.lm fra nålen = 2 fm, derefter 1 fm i hver af de næste 4 lm, * spring over 1 lm, 1 fm i hver at de næste 6 lm *, gentag fra *-* rækken ud = 54 fm = inden *-* har du haeklet 6 fm over 6 lm (förste fm er en lm som du vendte med) og har 56 lm tilbage, du haekler 6 fm over 7 lm, dvs 8 gentagelser = 8x6 = 48 + 6 fm fra starten = 54 fm

30.12.2016 - 13:03

country flag Nathalie Dillen wrote:

Ik begrijp het patroon niet meer vanaf hals en schouder. Er staat starten met hals en eindigen met schouder maar bij de uitleg starten ze toch niet aan kant waar hals komt?

18.03.2014 - 17:22

DROPS Design answered:

Hoi Nathalie. Je haakt de schouders apart. Dus eerst haak je over de eerste 16-17-18-20-21 st van het pand = schouder 1. Als je hiermee klaar bent, dan ga je aan de andere kant van het pand en haakt over de 16-17-18-20-21 st hier - dus dat betekent dat je een opening hebt ertussen voor de hals van bijv 12 st (kleinste maat).

19.03.2014 - 11:31