Elke skrifaði:
Witzig, lebendig
10.01.2013 - 11:07
Renate Karsten skrifaði:
Schick, fröhlich und luftig.
09.01.2013 - 22:24Liliana Vargas skrifaði:
Très beau, l'adore aussi les couleurs
09.01.2013 - 18:50
Boulangeat skrifaði:
Quel joli modèle coloré et chic pour l'été nom proposé : mosaïque
09.01.2013 - 18:31
Monika Wiesmaier skrifaði:
Sieht super aus. Könnt ich mir auch für mich vorstellen.
09.01.2013 - 07:56
Sylvia skrifaði:
Sieht fröhlich und schön aus
08.01.2013 - 14:46
Sonia Baldoni Tiberi skrifaði:
Bellissimo mi ricorda una vecchia copertina da me realizzata per una zia
08.01.2013 - 14:30
Anita skrifaði:
J'aime aussi celui-ci ! même question : XXL ????
08.01.2013 - 10:21
Lillian Hansen skrifaði:
Sommerens favorittjakke
07.01.2013 - 21:54
Karin skrifaði:
Super! Hatte ich in den 70ger Jahren knielang! Name: Flower Power :)
07.01.2013 - 14:27
Summer Patchwork#summerpatchworkcardigan |
|
![]() |
![]() |
Hekluð peysa úr DROPS Alpaca með ¾-löngum ermum og ömmuferningum. Stærð S - XXXL
DROPS 147-9 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LITIR Á FERNINGUM: Síðasta umf (= litur-4) á öllum ferningum er natur. FERNINGUR A: Litur-1 = lime, litur-2 = appelsínugulur, litur-3 = ljós blár. FERNINGUR B: Litur-1 = sinnepsgulur, litur-2 = ljós bleikur, litur-3 = dökk bleikur. FERNINGUR C: Litur-1 = ljós blár, litur-2 = lime, litur-3 = appelsínugulur. FERNINGUR D: Litur-1 = dökk bleikur, litur-2 = ljós bleikur, litur-3 = lime. FERNINGUR E: Litur-1 = ljós bleikur, litur-2 = kirsuber, litur-3 = sinnepsgulur. FERNINGUR F: Litur-1 = kirsuber, litur-2 = grá/fjólublár, litur-3 = ljós blár. FERNINGUR G: Litur-1 = grá/fjólublár, litur-2 = ljós blár, litur-3 = ljós bleikur. FERNINGUR H: Litur-1 = kirsuber, litur-2 = grá/fjólublár, litur-3 = lime. FERNINGUR I: Litur-1 = appelsínugulur, litur-2 = sinnepsgulur, litur-3 = dökk bleikur. FERNINGUR J: Litur-1 = ljós blár, litur-2 = lime, litur-3 = kirsuber. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er heklað í ferningum sem saumaðir eru saman í lokin. ÖMMUFERNINGUR: Heklið 6 ll með heklunál nr 3 og lit-1 og tengið í 1 hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1 (litur-1): Heklið 3 ll, 2 st um ll-hringinn, * 3 ll, 3 st um ll-hringinn *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og endið með 3 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Snúið við. UMFERÐ 2 (litur-2): Heklið 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, * 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, endið með 1 ll og 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Snúið við. UMFERÐ 3 (litur-3): Heklið 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf, Snúið við. UMFERÐ 4 (litur-4): 3 ll, 2 st um fyrsta ll-boga, 1 ll, * 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 st um næsta ll-boga, 3 ll, 3 st um sama ll-boga, 1 ll, 3 st um næsta ll-boga, 1 ll, endið með 1 kl í 3. ll frá byrjun umf. Klippið frá. 1 ferningur mælist ca 6,5 x 6,5 cm. Heklið 12-14-15-20-21 ferninga af hverri litasamsetningu, að aukið eru heklaðar 0-2-2-8-8 auka ferningar (veljið sjálf hvaða litasamsetningar eru heklaðar af auka ferningunum) = alls 120-142-152-208-218 ferningar. FLEYGLAGA STYKKI UNDIR ERMI: Heklað er eitt stykki með st, í laginu eins og fleygur, sem saumað er undir ermi svo að ermin verði víðari að ofan en að neðan. Fyrsti st í hverri umf er skipt út fyrir 3 ll. Heklið 7-8-8-8-8 ll með litnum natur með heklunál nr 3. Snúið við og heklið 1 st í 4. ll frá nálinni, heklið nú 1 st í hverja af þeim 3-4-4-4-4 ll sem eftir eru = 5-6-6-6-6 st. Haldið áfram fram og til baka með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 10 cm. LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN HEKLAÐ ER ÁFRAM! Í næstu umf er aukið út um 1 st í hvorri hlið með því að hekla 2 st í næst síðasta st í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-2-2-2-2 umf millibili alls 9-12-12-12-12 sinnum. ATH: í stærð XS/S er heklað áfram með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 33 cm. Í stærð M og XXL skiptist stykkið við miðju þegar það mælist 30 cm, heklið nú hvora hlið fyrir sig með 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 33 cm. Í stærð L/XL og XXXL skiptis stykkið fyrir miðju þegar það mælist 26 cm, heklið nú hvora hlið til loka fyrir sig, þegar útaukningunni er lokið, heklið 1 st í hvern st þar til stykkið mælist 33 cm. Stykkið skiptist í 4 stærstu stærðunum þar sem fellt er af fyrir handveg í þessum stærðum, það er ekki gert í minnstu stærðunum. Heklið 2 eins fleyglaga stykki undir ermar. Leggið ferningana saman og myndið bak- og framstykki eins og útskýrt er í mynsturteikningu – veljið sjálf niðurröðun á ferningunum. Þeir 40-40-40-60-60 ferningar sem eftir eru er skipt niður á 2 ermar, með 20-20-20-30-30 ferninga á hvorri ermi. Í 3 minnstu stærðunum eiga að vera 4 x 5 ferningar og í 2 stærstu stærðunum eiga að vera 6 x 5 ferningar – það eru 5 ferningar á hæðina í öllum stærðum. Saumið ferningana saman kant í kant með litnum natur. Saumið fleygana fasta saman við hvora hlið á ferningunum á ermum og saumið ermarnar í fram- og bakstykki – með breiðari hluta fleygsins inn neðst við handveg. Saumið hliðarsauma og axlasauma á sama hátt – ATH: Í stærð M og XXL er ein umf með ferningum mitt í hvorri hlið undir ermi, í stærð L/XL og XXXL eru 2 umf með ferningum í hvorri hlið við handveg. Heklið í kringum alla peysuna með litnum natur þannig (byrjið við miðju að aftan við hnakka): Heklið 1 fl um 1 ll yst á 1. ferningi, 3 ll og 2 st um sömu ll, * 1 ll, 3 st um næstu ll *, endurtakið frá *-* ATH: Í horninu sem snýr inn er heklað þannig: Heklið 1 st í síðustu ll á undan horninu, 1 st um hornið og 1 st um fyrstu ll á eftir horninu. Í horninu sem snýr út er heklað þannig: Heklið 3 st um ll-bogann í horninu á ferningnum, 3 ll og 3 st til viðbótar í sama ll-boga. Í hverju horni efst við hálsmál er líka hekluð snúra til þess að hnýta saman peysuna þannig: Heklið 3 st um ll-bogann í hornið á ferningnum, heklið síðan lausar ll í ca 28 cm, snúið við og heklið til baka 1 fl í hverja ll, heklið nú í hornið 3 st um sama ll-boga. Heklið eins meðfram ferningunum neðst í kringum ermar – yfir einingarnar á milli ferninga er heklað þannig: * Heklið 1 st í hvern af fyrstu 3 st, 1 ll, hoppið yfir 1 st *, endurtakið frá *-*. |
|
![]() |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #summerpatchworkcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 147-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.