Guillermina Bejarano skrifaði:
Buenas tardes. Es posible tejer el patrón con aguja circular?
20.08.2017 - 19:08DROPS Design svaraði:
Hola Guillermina. Puedes trabajar el patrón con una aguja circular corta o con dos agujas circulares como en este video: n two circular needles from Garnstudio Drops design on Vimeo.
22.08.2017 - 20:21
Guro skrifaði:
Jeg tror det er feil i omgang 5 på bestemorruten. Man kan ikke hoppe over mer enn tre fastmasker for at mønsteret skal gå opp.
18.09.2014 - 12:06
Fill Me Up, Santa#dropsfillmeupsanta |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónaður og heklaður jólasokkur úr DROPS Karisma. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-857 |
|||||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): *1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A-1 og A-2. Mynsturteikning A-1 er prjónuð í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Byrjið á 1 lykkju á undan lykkju með prjónamerki, lyftið 2 lykkjum af prjóni eins og prjóna eigi slétt saman, 1 lykkja slétt, steypið 2 lyftu lykkjunum yfir prjónuðu lykkjuna. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- JÓLASOKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla 2 ferninga fyrir hæl, ferningarnir eru heklaðir saman. Síðan er sjálfur fóturinn prjónaður á jólasokknum og í lokin leggurinn. FERNINGUR FYRIR HÆL: Heklið 6 ll með heklunál nr 3 með litnum skógargrænn Karisma og tengið þær í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 11 fl í hringinn og endið með 1 kl í ll í byrjun umf = 12 fl. UMFERÐ 2: Skiptið yfir í litinn natur. Heklið 4 ll (= 1 st + 1 kl),* 1 st í næstu l, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: Heklið 3 ll (= 1 st), heklið 2 st saman í sömu l (þ.e.a.s. heklið einn st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn, heklið næsta st og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á nálinni, * 3 ll, 3 st saman í næstu ll (þ.e.a.s. heklið 1 st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn, heklið næsta st, en bíðið með að draga þráðinn í gegn í síðasta sinn, heklið síðasta st, nú er þráðurinn dreginn í gegnum allar 4 l á nálinni) *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 3 ll og 1 kl efst í fyrstu st-hópinn í byrjun umf. UMFERÐ 4: Skiptið yfir í litinn skógargrænn. Heklið 1 ll, síðan eru heklaðar 4 fl í hvern ll-boga umf hringinn, endið með 1 kl í ll í byrjun umf. UMFERÐ 5: Skiptið yfir í litinn milligrár. 3 ll (= 1 st), 1 st + 2 ll + 2 st í sömu l, * 2 ll, hoppið yfir 4 fl, 2 fl í vikið á undan 4 næstu fl, 3 ll, hoppið yfir 4 fl, 2 fl í vikið á undan 4 næstu fl, 2 ll, hoppið yfir 4 fl**, 2 st + 2 ll + 2 st í vikið á undan 4 næstu fl *, endurtakið frá *-* 2 sinnum til viðbótar og frá *-** einu sinni, endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. UMFERÐ 6: Heklið kl í fyrsta ll-boga í horni, 3 ll (= 1 st), 2 st + 2 ll + 3 st í ll-boga í horni, * 3 st í hvern og einn af 3 næstu ll-bogum, 3 st + 2 ll + 3 st í ll-boga í horni *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum og 3 st í hvern og einn af 3 síðustu ll-bogum og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf. Klippið frá og festið enda. Heklið annan ferning á sama hátt. Leggið báða ferningana saman með röngu á móti röngu og heklið þá saman með heklunál nr 3 með litnum milligrár (heklað er saman meðfram 2 hliðum) þannig: Heklið 1 fl í ll-boga í horni á fyrri ferningnum, 1 ll, 1 fl í ll-boga í horninu á seinni ferningnum, 3 ll, 1 fl á milli 2 fyrstu st-hópanna á fyrri ferningnum, 1 ll, 1 fl á milli 2 fyrstu st-hópa á seinni ferningnum, 3 ll, 1 fl á milli 2 næstu st-hópa á fyrri ferningnum, 1 ll, 1 fl á milli 2 næstu st-hópa á seinni ferningnum o.s.frv. Klippið frá og festið enda. FÓTUR: Nú eru prjónaðar upp l meðfram hæl og fitjaðar upp nýjar l ofan á fæti á jólasokknum. Byrjið á milli 2 ferningana þar sem þeir voru heklaðir saman. Prjónið upp með litnum milligrár þannig: Prjónið upp 1 l í fl sem hekluð var í horninu á öðrum ferningnum, 1 ll í ll-boga í sama horni, prjónið nú upp 1 l í hverjum af þeim 15 st á ferningnum og 1 l í ll-boga í næsta horni, fitjið nú upp 32 nýjar l á prjóninn (= ofan á fæti), prjónið nú upp 1 l í horni á hinum ferningnum, 1 l í hverjum af þeim 15 st á ferningnum, 1 l í horni og 1 l í 3 ll (nú ertu aftur á upphafspunkti) = 68 l. Skiptið l niður á sokkaprjóna svo að það verða 17 l í hverri umf. Setjið 1 prjónamerki í síðustu l í 1. umf og 1 prjónamerki í fyrstu l í 4. umf. Prjónið 1 umf brugðið með litnum vínrauður, prjónið nú sléttprjón hringinn í röndum þannig: * Prjónið 3 umf í litnum vínrauður, 1 umf í litnum milligrár *1 endurtakið frá *-*. JAFNFRAMT í 3. umf sléttprjón (= síðasta umf með litnum vínrauður) er fækkað um 2 l við hvort prjónamerki – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf 2 sinnum til viðbótar = 56 l. Haldið áfram með rendur þar til stykkið mælist ca 13 cm frá því að l voru prjónaðar upp = endið eftir 3 umf með litnum vínrauður. Skiptið yfir í natur og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. JAFNFRAMT í 3. umf (þ.e.a.s 2. slétt umf) er fækkað um 7 l með því að prjóna 7. og 8. hverja l slétt saman = 49 l. Fækkið um 7 l í 4. hverri umf 5 sinnum til viðbótar = 14 l – ATH: Í hverri umf fækkar um 1 l áður en 2 l eru prjónaðar slétt saman. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. LEGGUR: Byrjið við miðju aftan á jólasokknum á milli 2 ferningana á hæl (í gagnstæðri hlið þar sem prjónaðar voru upp l ofan á fæti) og prjónið upp l með litnum vínrauður þannig: Prjónið upp 1 l í skiptingum við miðju að aftan, 1 l í ll-boga í sama horni, 1 l í hvern af 15 st í ferningnum, 2 l í hornið, 1 l í skiptingum við l ofan á fæti, 1 l í hverja af 32 l ofan á fæti, 1 l í skiptingum á eftir l ofan á fæti, 2 l í ll-boga í horni á ferningnum, 1 l í hvern af 15 st, 1 l í ll-boga í horni og 1 l í skiptingum við miðju að aftan (nú ertu aftur á upphafspunkti) = 72 l. Skiptið yfir í litinn milligrár, prjónið 1 umf brugðið, skiptið til baka yfir í litinn vínrauður og prjónið sléttprjón eftir mynsturteikningu A-1 þar til stykkið mælist ca 22 cm frá því l voru prjónaðar upp – passið uppá að það hafa verið prjónaðar 3-4 umf með litnum vínrauður eftir 1 umf með "doppum". Skiptið yfir í litinn natur og prjónið mynsturteikningu A-2 áður en fellt er laust af. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið blúndukant efst á leggnum með litnum natur þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l við miðju aftan á leggnum, * hoppið yfir 2 l, 10 st í næstu l, hoppið yfir 2 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fl í byrjun umf (í stað 1 fl í næstu l) = 12 blúndur. Heklið blúndukant með litnum skógargrænn efst á leggnum – heklið ofan frá og niður í skiptingunni á milli natur og rauður þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll sem var hekluð, hoppið yfir 3 l á sjálfum jólasokknum, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fl í byrjun umf. Heklið alveg eins kant í kringum heklaða ferninginn á hæl og fyrstu umf í garðaprjóni kringum tá - sjá mynd. HANKI: Heklið 1 fl með litnum rauður, í skiptingunni á milli natur og skógargrænn blúndukanti efst á sokknum, ca 1 cm frá miðju að aftan á framhlið á jólasokknum. Heklið 2 ll, heklið 1 fl í fyrstu ll sem var hekluð, * heklið 1 ll, heklið 1 fl í fyrri fl *, endurtakið frá *-* þar til snúningurinn mælist ca 5 cm, festið með 1 fl, ca 1 cm frá miðju að aftan á bakhlið á jólasokknum. HRINGLAGA DÚLLUR MEÐ ODDUM: Heklið 6 ll með litnum skógargrænn og tengið þær í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 11 fl í hringinn og endið með 1 kl í ll í byrjun umf = 12 fl. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 1 st í næstu l, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í natur, heklið 1 fl í fyrstu ll, * 3 ll, 1 fl í fyrstu af þeim 3 ll, 1 fl í næstu ll á dúllunni *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. LÍTIL DÚLLA: Heklið 6 ll með litnum vínrauður og tengið þær í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 1 ll (= 1 fl), heklið 11 fl í hringinn og endið með 1 kl í ll í byrjun umf = 12 fl. UMFERÐ 2: Heklið 4 ll (= 1 st + 1 ll), * 1 st í næstu l, 1 ll *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í 3. ll í byrjun umf = 12 st með 1 ll á milli hverra. UMFERÐ 3: Skiptið yfir í natur, heklið 1 fl í fyrstu ll, * 2 ll, 1 fl í næstu ll á dúllunni *, endurtakið frá *-* umf hringinn og endið með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. Heklið eins margar dúllur og í þeim litasamsetningum að eigin vali og saumið þær niður á jólasokkinn – sjá mynd. HJARTA: Heklið 10 ll með litnum natur. UMFERÐ 1: Heklið 1 st í 4. ll frá heklunálinni, 1 st í hverja af næstu 6 ll = 8 st, snúið við. UMFERÐ 2 og 3: Heklið 3 ll (= 1 st), 1 st í hvern af næstu 7 st, snúið við = 8 st. UMFERÐ 4: Heklað er meðfram 2 hliðum þannig: Heklið 3 ll (= 1 st), hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, hoppið yfir 2 st, 1 fl í næsta st, 3 ll, 1 fl í 3. ll frá byrjun fyrri umf (= í horni), 3 ll, 1 fl neðst í fyrsta st, 3 ll, 1 fl neðst í næsta st, 3 ll og 1 fl neðst í síðasta st, snúið við. UMFERÐ 5: Hoppið yfir fyrsta ll-boga, heklið 11 st í næsta ll-boga, 1 fl í fl á milli 2 næstu ll-boga, 11 st í næsta ll-boga og endið með 1 fl í síðustu l í umf. UMFERÐ 6: Skiptið yfir í litinn milligrár og heklið 1 umf fl kringum allt hjartað með 1 fl í hverja l, meðfram horninu á hjartanu eru heklaðar 3 fl. Heklið eins mörg hjarta að eigin vali og í þeim litasamsetningum sem óskað er eftir og saumið þau niður á jólasokkinn – sjá mynd. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #dropsfillmeupsanta eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 18 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-857
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.