Deworme skrifaði:
Il faut combien d'augmentation et tous les combien de rangs merci
04.11.2012 - 09:25DROPS Design svaraði:
Bonjour Madame Deworme, vous montez pour le dos pour former les manches à la fin de chaque rang de chaque côté (= tous les 2 rangs de chaque côté) : 2-2-2-1-1-1 fois 1 m, 1 fois 2 m, puis monter 8-7-6-6-5-4 m de chaque côté. Bon tricot !
05.11.2012 - 09:49
Chiara Aramu skrifaði:
Vorrei fare questo modello e approfittare del l'offerta alpaca bouclé' .Quale filato aggiungere ? Grazie Chiara
28.10.2012 - 15:04DROPS Design svaraði:
Chiedo scusa per non aver risposto prima. Mi è sfuggita la domanda. Intende quale filato utilizzare al posto di Puddel e Andes? Anche Andes è in offerta.
21.11.2012 - 18:02
Tuija Kallio skrifaði:
Mitä rinnan, vyötärön ja lantion mittoja senttimetreissä vastaavat teidän s-xxxL kokonne?
23.09.2012 - 13:39
Ria De Waard skrifaði:
Ziet er goed uit, zou ik graag maken.
13.07.2012 - 18:26
Michaela skrifaði:
Richtig zu einmummeln,große Freude auf dem Winter,weich und warm
15.06.2012 - 21:03Jane skrifaði:
I really like this very useful design and yarn.
14.06.2012 - 16:10
Nancy skrifaði:
Puddel draagt zo fijn! In dit vest kan je wonen!
12.06.2012 - 22:47
Chiara skrifaði:
Magnifico nella sua semplicita' ,da indossare in ogni momento
12.06.2012 - 16:59
Eve skrifaði:
Sehr bequem und weiblich, man möchte schon im Winter sein
08.06.2012 - 19:24Kamy skrifaði:
J'adore ce modele.
04.06.2012 - 14:13
Tulla#tullajacket |
|
|
|
Prjónuð peysa úr DROPS Puddel með hekluðum kanti úr DROPS Andes. Stærð S - XXXL.
DROPS 142-20 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU: Allar mælingar eru gerðar þegar stykkið liggur flatt, mikilvægt er að ekki strekkist á stykkinu þegar mælt er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. BAKSTYKKI: Fitjið upp 46-50-54-58-62-66 l á hringprjóna nr 8 með Puddel. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram þar til stykkið mælist 52-53-54-53-54-55 cm. Fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf í hvorri hlið þannig: 1 l 2-2-2-1-1-1 sinni, 2 l 1 sinni, fitjið upp 8-7-6-6-5-4 l í hvorri hlið = 70-72-74-76-78-80 l. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 76-78-80-80-82-84 cm. Fellið nú af fyrir aflíðandi axlarstykki í byrjun hverrar umf í hvorri hlið. Fellið af fyrstu 4 l 4-4-4-2-2-2 sinnum, 3 l 0-0-0-3-3-3 sinnum, síðan 6-7-7-7-7-8 l 1 sinni = 26-26-28-28-30-30 miðju l eftir að hálsi. Fellið laust af allar l í næstu umf frá réttu (stykkið mælist ca 84-86-88-90-92-94 cm). VINSTRA FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 35-37-39-42-44-46 l á hringprjóna nr 8 með Puddel. Prjónið nú sléttprjón þar til stykkið mælist 52-53-54-53-54-55 cm. Fitjið upp nýjar l fyrir ermi í lok hverrar umf frá röngu þannig: 1 l 2-2-2-1-1-1 sinni, 2 l 1 sinni, fitjið upp 8-7-6-6-5-4 l = 47-48-49-51-52-53 l. Haldið áfram með sléttprjón þar til stykkið mælist 76-78-80-80-82-84 cm. Fellið af fyrir aflíðandi axlarstykki í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af fyrstu 4 l alls 4-4-4-2-2-2 sinnum, 3 l 0-0-0-3-3-3 sinnum, síðan 6-7-7-7-7-8 l 1 sinni = 25-25-26-27-28-28 l eftir (stykkið mælist ca 84-86-88-90-92-94 cm). Prjónið nú slétt yfir þær 25-25-26-27-28-28 l fyrir kraga – JAFNFRAMT eru prjónaðar styttri umf (byrjið frá röngu) þannig: * Prjónið 2 umf yfir allar l, prjónið frá röngu sjá fyrstu 12-12-13-13-14-14 l á prjóni, snúið við, herðið á þræði og prjónið til baka frá réttu *, endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 15-15-15-16-16-17-17 cm (mælt frá öxl að styttri hliðinni), fellið laust af. HÆGRA FRAMSTYKKI: Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema spegilmynd. FRÁGANGUR: Saumið axla – og ermasauma yst í lykkjubogann. Saumið saman kragann við miðju að aftan og saumið hann í hálsmálið við hnakka. Saumið handvegs- og hliðarsauma saman yst í lykkjubogann. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið 1 umf með Andes með heklunál nr 8 meðfram allri peysunni þannig: * Heklið 1 fl, 3 ll, hoppið yfir ca 2 cm*, endurtakið frá *-*, endið með 1 kl í 1. fl. ATH: Passið uppá að ekki strekkist á kanti. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #tullajacket eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 6 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-20
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.