DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g
DROPS SS24

Forest Fairy

Prjónuð peysa úr DROPS Delight og DROPS Kid-Silk með gatamynstri, berustykki og háum kraga. Stærð S til XXXL

DROPS 141-29
DROPS Design: Mynstur nr de-084
Garnflokkur A + A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
300-300-350-350-400-450 gr litur nr 08, grænn/beige
Og einnig:
DROPS KID-SILK frá Garnstudio
50-50-50-50-75 75 gr litur nr 19, dökk grænn
50-50-50-50-75-75 gr litur nr 20, ljós beige
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 18, eplagrænn
50-50-50-50-50-50 gr litur nr 23, mosagrænn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni með 1 þræði af Delight + 1 þræði af Kid-Silk verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – fyrir stroff.
DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir kant í hálsmáli og á ermum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS Kid-Silk
DROPS Kid-Silk
75% Mohair, 25% Silki
frá 1430.00 kr /25g

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI:
Til þess að litaskiptin með Delight verði falleg þegar byrjað er á nýjum þræði verður að finna dokku sem byrjar á þeim lit sem síðast var prjónað með.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A-1 til A-5 – mynsturteikningin sýnir 1 mynstureiningu af mynstri bæði á breiddina og á hæðina.

LITARENDUR – FRAM – OG BAKSTYKKI:
Prjónið 18-18-19-19-20-20 cm með litnum dökk grænn Kid-Silk + Delight, síðan jafnt langt með litnum mosagrænn Kid-Silk + Delight, síðan jafn langt með litnum eplagrænn Kid-Silk + Delight. Að lokum er stykkið prjónað til loka með litnum ljós beige Kid-Silk + Delight.

LITARENDUR – ERMAR:
Prjónið 17-17-18-18-18-18 cm með litnum dökk grænn Kid-Silk + Delight, síðan jafn langt með litnum mosagrænn Kid-Silk + Delight, síðan er prjónað með litnum eplagrænn Kid-Silk + Delight jafn langt og þarf þar til skipt er yfir í litinn ljós beige Kid-Silk + Delight á stroffi, þegar rendur á fram- og bakstykki eru nægilega langar.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. LESIÐ BYRJUN Á NÝJUM ÞRÆÐI!

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 180-195-215-240-255-280 l á hringprjóna nr 4 með 1 þræði Delight + 1 þræði af litnum dökk grænn Kid-Silk. Prjónið stroff 2 l sl, 3 l br í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 5, prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT sem fækkað er um 26-30-28-31-35-38 l jafnt yfir = 154-165-187-209-220-242 l.
Haldið áfram með mynstur A-1 einu sinni á hæðina. LESIÐ LITARENDUR – FRAM – OG BAKSTYKKI! Prjónið nú sléttprjón í 2 cm – JAFNFRAMT í síðustu umf er fækkað um 11-9-18-14-12-21 l jafnt yfir = 143-156-169-195-208-221 l. Haldið áfram með mynstur A-2 einu sinni á hæðina. Stykkið mælist nú ca 23 cm á hæðina.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið nú sléttprjón í 7-8-9-10-11-12 cm – jafnframt í FYRSTU umf er fækkað um 9-8-8-10-10-6 l jafnt yfir og í SÍÐUSTU umf er fækkað um 8-8-7-10-9-5 l jafnt yfir = 126-140-154-175-189-210 l. Haldið áfram með mynstur A-3 einu sinni á hæðina og síðan 2 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í sléttprjóni er aukið út um 18-13-17-14-18-15 l jafnt yfir = 144-153-171-189-207-225 l. Prjónið nú mynstur A-4 einu sinni á hæðina, síðan 2 cm í sléttprjóni og síðan A-5 einu sinni á hæðina. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem aukið er út um 0-3-1-3-1-3 l jafnt yfir = 144-156-172-192-208-228 l. Haldið áfram í sléttprjón þar til stykkið mælist 50-51-52-53-54-55 cm. Næsta umf er prjónuð þannig: Fellið af fyrstu 12 l, prjónið 60-66-74-84-92-102 l, fellið af næstu 12 l og prjónið út umf (= 60-66-74-84-92-102 l).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. LESIÐ LITARENDUR – ERMAR!
Fitjið upp 45-45-50-50-55-55 l á sokkaprjóna nr 4 með 1 þræði af Delight + 1 þræði af litnum dökk grænn Kid-Silk. Prjónið stroff = 2 l sl, 3 l br í 8 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjóna og prjónið 1 umf sléttprjón jafnframt sem fækkað er um 1-1-6-6-0-0 l jafnt yfir = 44-44-44-55-55 l.
Haldið áfram með mynstur A-1 einu sinni á hæðina, prjónið nú 2 cm sléttprjón – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-8-8-8-10-10 l jafnt yfir = 52-52-52-52-65-65 l. Nú er mynstur A-2 prjónað einu sinni á hæðina. Eftir A-2 mælist stykkið ca 23 cm. Haldið áfram með 3 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 4-4-4-4-0-0 l jafnt yfir = 56-56-56-56-65-65 l. Prjónið nú A-3 einu sinni á hæðina (í stærð XXL og XXXL er prjónuð fyrsta og síðasta l í sléttprjóni). Síðan 2-2-1-1-1-1 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 0-0-7-7-7-7 l jafnt yfir = 56-56-63-63-72-72 l. Haldið áfram með A-4 einu sinni á hæðina (í stærð S og M er prjónuð fyrsta og síðasta l í sléttprjóni). Prjónið nú 1 cm í sléttprjóni – JAFNFRAMT í síðustu umf í sléttprjóni er aukið út um 7-7-9-9-9-9 l jafnt yfir = 63-63-72-72-81-81 l. Prjónið A-5 einu sinni á hæðina. Prjónið 1 umf í sléttprjóni jafnframt sem fækkað er um 1-1-0-0-1-1 l = 62-62-72-72-80-80 l. Haldið áfram í sléttprjóni þar til stykkið mælist 45-45-44-44-44-44 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla). Í næstu umf eru felldar af 12 l við miðju undir ermi = 50-50-60-60-68-68 l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setji inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 220-232-268-288-320-340 l. ATH: Munið eftir að skipta yfir í litinn ljós beige Kid-Silk þegar prjónaðir hafa verið 18-18-19-19-20-20 cm alls á fram- og bakstykki með litnum eplagrænn.
Prjónið 1 umf í sléttprjóni jafnframt er fækkað um 17-15-23-22-26-25 l jafnt yfir = 203-217-245-266-294-315 l.
Haldið áfram með mynstur A-3 einu sinni á hæðina, síðan 2-2-2-2-4-4 umf í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf í sléttprjóni er fækkað um 35-42-49-56-56-63 l jafnt yfir = 168-175-196-210-238-252 l. Prjónið mynstur A-3 einu sinni til viðbótar á hæðina, síðan 2-2-2-2-4-4 umf í sléttprjóni – JAFNFRAMT í fyrstu umf í sléttprjóni er fækkað um 49-49-63-70-77-84 l jafnt yfir = 119-126-133-140-161-168 l. Að lokum er mynstur A-3 prjónað einu sinni til viðbótar – ATH: Í stærð S og M er einungis prjónaðar 8 fyrstu umf af A-3. Prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkar um 29-31-33-35-51-53 l jafnt yfir = 90-95-100-105-110-115 l. Berustykkið mælist nú ca 21-21-25-25-26-26 cm og öll peysan mælist ca 71-72-77-78-80-81 cm.
Prjónið nú upphækkun að aftan við hnakka í sléttprjóni (haldið áfram með sama lit og síðasta rönd) þannig: Prjónið fram að miðju að aftan, setjið 1 prjónamerki, prjónið 8 l framhjá prjónamerki, snúið við og prjónið 16 l br til baka, snúið við og prjónið 24 l sl. Haldið áfram að prjóna yfir 8 l fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til alls hefur verið prjónað yfir 64-64-80-80-80-80 l, snúið við og prjónið 1 umf í sléttprjóni yfir allar l aftur fram að miðju að aftan.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og haldið áfram með stroff = 2 l sl, 3 l br í 10 cm (haldið áfram með sama lit). Fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
Heklið með litnum ljós beige Kid-Silk með heklunál nr 3,5 efst í kringum kraga (byrjið við miðju að aftan) þannig: Heklið 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 oddur/picot), hoppið yfir 1 l, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kl í fyrstu fl í umf.
Heklið á sama hátt neðst niðri í kringum ermar með litnum dökk grænn Kid-Silk.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 141-29

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Yvonne Byrne wrote:

Hello, I have been trailing the internet for a top like this. With an scar on my neck and the cold climate of Ireland it is perfect. Unfortunately I am not a knitter so my question is if you or maybe someone you know might be interested in knitting and selling this Jumper? If so, I would be very grateful. Kind regards Yvonne

03.07.2020 - 21:54

DROPS Design answered:

Dear Mrs Byrne, you could ask our DROPS stores in Ireland, they might be able to help you. Enjoy!

06.07.2020 - 08:00

country flag Hege E wrote:

Gjorde et nytt søk etter garn til denne, og fant denne gangen alle fargene i Kid-Silk på Kremmerloftet.no. På salg, til og med :)

17.05.2017 - 09:13

country flag Hege E wrote:

Alle farger utenom én er gått ut av sortimentet. Noen forslag til andre fargekombinasjoner hadde vært fint :-)

26.03.2017 - 20:38

DROPS Design answered:

Hei Heige. Tag kontakt op med din garnbutik, de kan kigge paa garnerne og hjaelpe dig med den bedste kombination. Jeg kan desvaerre ikke hjaelpe dig her.

27.03.2017 - 12:43

country flag Monique wrote:

Vous aviez raison. Un peu d'effort pour travailler en circulaire et hop !!! Je viens de le fini. Il est magnifique. MERCI

01.07.2013 - 15:24

country flag Monique wrote:

Est-il possible de tricoter ce pull avec 2 aiguilles et non 1 circualire ? (Je ne suis pas très habile avec une aiguille 2 circulaire)

27.05.2013 - 17:38

DROPS Design answered:

Bonjour Monique, vous pouvez tricoter chaque pièce séparément en recalculant le nombre de mailles pour chacune d'elles et pour le raglan, ou bien essayer sur circulaire, ce qui sera beaucoup plus simple - nos vidéos sont là pour vous montrer comment faire. Bon tricot !

28.05.2013 - 09:12

country flag Elsje wrote:

Net af is super mooi, heb er heel wat succes mee bij de collega's

05.03.2013 - 17:13

country flag TESTON wrote:

Les tons sont magnifiques mais le pull me semble un peu long!!pouvez-vous proposer d'autres harmonies de couleurs?dans les roses par ex.

12.07.2012 - 19:02

country flag Helena wrote:

Supersnyggt mönster och formen är verkligen trendig med rundat ok och lite lös passform upptill och tajtare nertill - den här tröjan ska jag göra!

19.06.2012 - 14:22

country flag Herma wrote:

Mooie kleuren en mooi patroon verheug mij op het patroon

14.06.2012 - 16:06

country flag Helene wrote:

Det er et flot mønster,samtidig med at det er en model der både kan laves kortere, hvis man ønsker en bluse, eller længere hvis man ønsker en mere kjoleagtig model. Den ville jeg gerne lave

08.06.2012 - 22:13