DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Kia

Prjónuð peysa í garðaprjóni úr DROPS Alpaca og DROPS Brushed Alpaca Silk eða DROPS Symphony.

DROPS 142-19
DROPS Design: Mynstur nr ww-068
Garnflokkur D
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
200-200-200-250-250-300 gr litur nr 2020, ljós brúnn camel
Og einnig:
DROPS Brushed Alpaca Silk frá Garnstudio
150-150-200-200-200-200 gr litur nr 36, ljós beige

Eða notið:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
400-400-450-500-550-600 gr litur nr 11, ljós beige eða litur nr 01 natur

DROPS PRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 13 l verði 10 cm á breiddina með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði af Brushed Alpaca Silk eða Symphony.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Brushed Alpaca Silk
DROPS Brushed Alpaca Silk
77% Alpakka, 23% Silki
frá 836.00 kr /25g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU:
Vegna þyngdar á garninu verður að halda stykkinu uppi þegar mælt er, annars verður stykkið of sítt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 69-75-81-90-99-108 l á hringprjóna nr 6 með 1 þræði af Alpaca + 1 þræði Brushed Alpaca Silk eða Symphony.
Prjónið stroff þannig: * Prjónið 1 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* út umf (1. umf = rétta). Prjónið stroff í 5-5-5-6-6-6 cm. Í síðustu umf frá röngu er prjónað br yfir allar l – JAFNFRAMT er fellt af 11-13-13-16-17-18 l jafnt yfir = 58-62-68-74-82-90 l. Skiptið yfir á prjóna nr 8 og prjónað áfram í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 40-41-42-43-44-45 cm er fellt af fyrir handveg þannig: Fellið af 3-4-5-6-8-10 l í byrjun 2 næstu umf = 52-54-58-62-66-70 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun og 1 prjónamerki í enda umf (hér eru ermar prjónaðar upp síðar).
Haldið áfram í garðaprjón þar til stykkið mælist 53-55-57-59-61-63 cm. Fellið nú af miðju 16-18-18-20-20-22 l fyrir hálsmáli og hver öxl er nú prjónuð fyrir sig. Fellið nú af 1 l í næstu umf frá hálsi = 17-17-19-20-22-23 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og bakstykki þar til stykkið mælist 48-50-51-53-54-56 cm. Fellið af miðju 8-8-10-10-12-12 l við hálsmál og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af í hverri umf frá hálsmáli þannig: 2 l 1-1-1-2-1-2 sinnum, 1 l 3-4-3-2-3-2 sinnum = 17-17-19-20-22-23 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 56-58-60-62-64-66 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma yst í lykkjubogann

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka.
Prjónið upp frá réttu ca 50-60 l milli prjónamerkja meðfram öðru opinu fyrir handveg með prjóna nr 8 (ATH: Prjónið ekki upp l yfir þær l sem felldar voru af fyrir handveg). Í næstu umf er prjónað sl – JAFNFRAMT þar sem lykkjufjöldinn er stilltur af til 42-44-48-50-52-54 l. Prjónið garðaprjón í 2-3-4-5-6-8 cm, fellið af 1 l (með því að prjóna síðustu 2 l sl saman) í hvorri hlið á stykkinu. Endurtakið úrtöku með 6½-6½-5½-4½-4½-3½ cm millibili 6-6-7-8-8-9 sinnum til viðbótar (= alls 7-7-8-9-9-10 sinnum) = 28-30-32-32-34-34 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 44-44-44-43-43-42 cm (styttir mæling fyrir stærri stærðir vegna breiðari axla). Í næstu umf frá röngu er prjónað sl – JAFNFRAMT er aukið út um 8-6-7-10-11-11 l jafnt yfir = 36-36-39-42-45-45 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 6 og prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) í 5 cm, fellið laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 49-49-49-48-48-47 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið ermi fasta við fram- og bakstykki. Saumið saman ermina, saumið að lokum niður hliðina á fram-og bakstykki.

HÁLSMÁL:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu ca 90-110 l meðfram hálsmáli á hringprjóna nr 6. Í næstu umf er prjónað br – JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 81-84-90-96-99-105 l. Prjónið stroff (= 1 l sl, 2 l br) hringinn í ca 2½ cm, fellið nú laust af allar l með sl yfir sl og br yfir br.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-19

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (21)

country flag Joke Van Hedel wrote:

Ik wil deze trui graag breien maar niet op rondbreinaalden. Is er ook een patroon voor een los rug- en voorpand?

26.02.2019 - 17:25

DROPS Design answered:

Dag Joke,

Veel patronen kun je aanpassen om met rechte naalden te breien. We hebben hier een instructie voor geschreven, welke je via 28.02.2019 - 10:42

country flag Cathy wrote:

Bonjour, Je souhaiterais tricoter ce modèle, mais je ne trouve pas combien je dois acheter de pelote pour le faire. Pouvez-vous m'aider s'il vous plaît ? Ce serait pour une taille M et une taille L. Merci.

02.02.2016 - 17:54

DROPS Design answered:

Bonjour Cathy, vous trouverez la quantité nécessaire pour chaque taille, au poids, sous l'onglet "fournitures" soit ici 200 g Alpaca en taille M et L (soit 200/50g la pelote = 4 pelotes Alpaca) + 150-200 g Brushed Alpaca Silk (150/25 g la pelote= 6 pelotes en M - 200/25 g la pelote = 8 pelotes en L). Bon tricot!

03.02.2016 - 09:14

country flag Tricy wrote:

Bonjour est il possible pour ce modèle de tricoter les manches en les commençant par les cotes et en augmentant jusqu'à l'emmanchure au lieu de reprendre les mailles sur le pull directement. Merci pour votre réponse

26.12.2015 - 16:13

DROPS Design answered:

Bonjour Tricy, vous êtes tout à fait libre d'adapter les explications comme vous le souhaitez. Pensez à bien modifier les explications en fonction. Bon tricot!

02.01.2016 - 13:50

country flag Carin wrote:

Bij de afwerking staat dat je de mouwen aan de voor en achterkant moet naaien , ik denk dat er volgens het patroon staat dat je de mouwen moet aanbreien van boven naar onder...zo heb ik het toch gedaan ??

07.11.2015 - 22:12

DROPS Design answered:

Hoi Carin. Ja, ik ben met je eens. Ik zal het even weghalen.

09.11.2015 - 11:48

country flag Janet wrote:

Are there supposed to be armholes cast off at the edges of the back piece?? I've reworked it about 3 times now and I still can't get how the front and back pieces are supposed to go together if they don't match!

05.02.2013 - 01:14

DROPS Design answered:

Dear Janet, you cast off for armholes 3-4-5-6-8-10 sts (see size) each side (= at the beg of next 2 rows) when back/front piece measure 40-41-42-43-44-45 cm. Happy knitting !

05.02.2013 - 09:35

country flag Maria Louise Pedersen wrote:

Det fremgår ikke af opskriften at side sømmene skal syes? skal de ikke syes? Ellers tak for alle de skønne modeller i har....

05.01.2013 - 09:33

DROPS Design answered:

Du har ret at det kunne staa lidt bedre der. Du monterer aermene i blusen efter du har syet skuldersömmen. Derefter syr du ærmesømmene + sidesøm paa één gang i yderste led af yderste m.

17.01.2013 - 14:11

country flag Baerbel Manchester wrote:

Hallo, 60 cm Rundnadel etwas kurz fuer die grossen Teile.

05.09.2012 - 17:58

DROPS Design answered:

Hallo Bärbel, da haben Sie schon Recht: es strickt sich sicher komfortabler mit einer langen Nadel, die Maschen sind etwas gedrängt. Aber da man für den Halsausschnitt dann sowieso eine 60 cm Nadel braucht, wollten wir vermeiden, dass man für die paar Reihen am unteren Bündchen eine weitere Nadel kaufen muss.

13.09.2012 - 13:28

country flag Anne wrote:

En ekte kose genser, enkel og etter min smak:) Men gi oss flere farger å velge mellom, for no har eg brukt opp alle fargene eg kan bruke flere ganger. Så litt tøffe farger hadde gjort seg, lilla og orange etc.

01.07.2012 - 19:43

country flag Bente wrote:

For voldsom og uformelig, og lidt for 90'er-agtig. Lidt et uformeligt får :)

30.06.2012 - 17:31

country flag Funtastix wrote:

Herfstdag-en-in-kleermakerszit-op-de-bank-met-een-goed-boek-en- een-kop-trui

28.06.2012 - 16:28