Dorina skrifaði:
I am in love with this one
23.08.2012 - 21:03
Lydie skrifaði:
Hi , I really love this model and I am currently knitting it for me .I would like to do it also for my 2 girls : 7 and 5 years old ... Could you also make the instructions for kids size ?? I have to say that many basic women models would be nice for kids too. I am desappointed that models for kids are so limited . Thxs for your help . regards lydie
18.08.2012 - 15:36DROPS Design svaraði:
Here is a children pattern in Eskimo: garnstudio.com/lang/no/visoppskrift.php?d_nr=142&d_id=30&lang=no It's not a rounded yoke, but maybe you can use it with the same colors and charts as on 142-30
25.08.2012 - 02:52
Holly skrifaði:
I love this - it looks easy enough for a novice with color work and it looks like something someone with a bit of a belly could wear. So many designs just do not work for larger women.
06.08.2012 - 20:36
Marti skrifaði:
If only I could knit, I would have this in my closet. Absolutely love this: colors, motif, shape, length. Would be a true treasure. Anyone want to knit it for me?
29.06.2012 - 15:59
Lisbeth skrifaði:
Ser lækker ud
28.06.2012 - 18:42
Elisabeth skrifaði:
Virkelig flot model
28.06.2012 - 18:29
Päivi skrifaði:
Talven pakkaskeleille. Ihana!
26.06.2012 - 13:59Dawne skrifaði:
Beautiful! I would love to make this exactly as shown. The colors are fantastic!
23.06.2012 - 13:51
Alinuk skrifaði:
Love it!
15.06.2012 - 11:41
Cinzia skrifaði:
Bellissimo!!!!
13.06.2012 - 17:11
Russian Winter#russianwintersweater |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Andes með berustykki. Stærð S - XXXL
DROPS 142-30 |
||||||||||||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikningin sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Mynstrið er prjónað í sléttprjóni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 116-128-140-152-164-176 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um 20 l jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 l. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í umf og 1 prjónamerki í 49.– 55.– 61.- 67.- 73.- 79. l (þetta merkir hliðar). Prjónið slétt og eftir A.1. Þegar A.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er haldið áfram í sléttprjóni með litnum ljós beige. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm, prjónið A.2. Þegar A.2 hefur verið prjónað er prjónuð 1 umf með litnum ljós beige jafnframt eru felldar af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l á hvoru megin við þau) = 82-94-106-118-130-142 l eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 41-42-43-44-45-46 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 7 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið slétt og A.1, haldið áfram með litnum ljós beige og sléttprjón. Setjið 1 prjónamerki í fyrstu l í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l á hvoru megin við l með prjónamerki, endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-5-5 cm millibili 3-3-4-4-5-5 sinnum til viðbótar = 36-36-42-42-48-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35 cm, prjónið A.2 – auknu l eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstrið. Eftir A.2 er prjónuð 1 umf með ljós beige jafnframt eru felldar af 7 l við miðju undir ermi (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við það) = 29-29-35-35-41-41 l eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 43 cm í öllum stærðum. Prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið ermar á sama hringprjón nr 8 og fram- og bakstykki = 140-152-176-188-212-224 l. Setjið 1 prjónamerki í l við miðju að aftan – HÉÐAN BYRJAR UMF NÚNA! Prjónið 1 umf með litnum ljós beige, JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út að 140-160-180-180-200-220 l. Prjónið 0-1-0-1-0-1 cm í sléttprjóni með litnum ljós beige. Prjónið og fækkið lykkjum samkvæmt A.3 – prjónið upp að ör í þinni stærð = 70-80-90-90-90-99 l. Prjónið 1 umf þar sem fækkað er um 10-20-26-26-22-31 l jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 l. Prjónið nú upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l sl framhjá l með prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið 17 l br til baka, snúið við og prjónið 25 l sl, snúið við og prjónið 33 l br, snúið við og prjónið 41 l sl, snúið við og prjónið 49 l br. Snúið við og prjónið 1 umf hringinn fram að miðju að aftan. KRAGI: Skiptið yfir á hringprjóna nr 7 og prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br þar til kraginn mælist 12-12-13-13-14-14 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir höndum. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #russianwintersweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 9 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-30
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.