DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Happy Sunday

Prjónuð peysa úr DROPS Fabel með laskalínu, vösum, v-hálsmáli og bótum á ermum. Stærð S - XXXL

DROPS 142-23
DROPS Design: Mynstur nr fa-196
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS FABEL frá Garnstudio
300-350-350-400-450-500 gr litur nr 823, barkarbrúnn
50-50-50-100-100-100 gr litur nr 300, brúnn

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.
DROPS SKELJATALA með gati, NR 525: 5 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4466.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

HNAPPAGÖT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 5. og 6. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 2, 10, 18, 26 og 33 cm.
STÆRÐ M: 2, 10, 18, 26 og 34 cm.
STÆRÐ L: 2, 10, 18, 26 og 35 cm.
STÆRÐ XL: 2, 10, 19, 27 og 36 cm.
STÆRÐ XXL: 2, 11, 20, 29 og 37 cm.
STÆRÐ XXXL: 2, 11, 20, 29 og 38 cm.

ÚRTAKA (á við um v-hálsmál):
Fækkið lykkjum innan 1 kantlykkju í garðaprjóni. Öll úrtaka er gerð frá réttu þannig:
Fækkið lykkjum Á UNDAN 1 kantlykkju í garðaprjóni: Prjónið 2 l sl saman.
Fækkið lykkjum Á EFTIR 1 kantlykkju í garðaprjóni: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

LASKALÍNA:
Fækkið um 2 l í hverri skiptingu á milli fram- og bakstykkis og ermum. Byrjið 6 l á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 l sl saman, 1 l sl, 2 l br, 2 l sl (prjónamerki er staðsett á milli þessa 2 l), 2 l br, 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 262-286-310-338-370-406 l (meðtaldar eru 10 l fyrir kant við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með litnum barkarbrúnn Fabel.
Prjónið 1 umf br frá röngu, prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir, endið með 2 l sl og 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN. Haldið svona áfram með stroff. Munið eftir HNAPPAGÖT í hægri kanti – sjá útskýringu að ofan. Þegar stroffið mælist 4 cm prjónið nú 1 umf sl frá réttu, en síðustu 10 l í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar eins og áður (= kantur að framan) – JAFNFRAMT er fækkað um 42-46-50-54-58-66 l jafnt yfir (lykkjum er ekki fækkað yfir kant að framan) = 220-240-260-284-312-340 l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og haldið áfram í sléttprjóni (kantur að framan er prjónaður eins og áður). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 6 cm eru sett 2 prjónamerki í stykkið, 60-65-70-76-83-90 l inn frá hvorri hlið (= 100-110-120-132-146-160 l á milli prjónamerkja á bakstykki). Fækkið nú um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki (= 4 l færri). Endurtakið úrtöku með 3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 200-220-240-264-292-320 l.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er gert op fyrir vasa og í næstu umf er prjónað frá réttu þannig: Prjónið fyrstu 46-48-50-56-60-66 l eins og áður, setjið síðustu 28-28-28-32-32-36 l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasaopi, prjónið eins og áður þar til 18-20-22-24-28-30 l eru eftir á prjóni, setjið síðustu 28-28-28-32-32-36 l sem prjónaðar voru á þráð fyrir vasaopi og prjónið þær l sem eftir eru eins og áður. Í næstu umf eru fitjaðar upp 28-28-28-32-32-36 nýjar l yfir hvort af 2 vasaopunum og haldið áfram eins og áður. Þegar stykkið mælist 22 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerki í hliðum (= 4 l fleiri). Endurtakið útaukningu með 2½-2½-2½-3-3-3 cm millibili, 4 sinnum til viðbótar = 220-240-260-284-312-340 l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38-39 cm eru 2 næstu umf prjónaðar (byrjað frá réttu) þannig: Prjónið 10 l í kanti að framan eins og áður, setjið þær síðan á þráð og prjónið út umf, snúið við, prjónið þær 10 l í kanti að framan eins og áður og setjið þær síðan á þráð, prjónið út umf. Í næstu umf (= rétta) fellt er af 1 l hvoru megin við miðju að framan fyrir v-hálsmáli – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku fyrir hálsmáli í hvorri hlið í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), 0-0-2-9-17-26 sinnum til viðbótar og síðan í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu) þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki í laskalínu á framstykki (prjónamerki í laskalínu er sett í framstykki þegar fram- og bakstykki og ermar eru sameinaðar – sjá útskýringu að neðan hjá berustykki)= alls ca 9-16-15-12-9-5 sinnum í 4. hverri umf
– ATH: Í stærð S verða eftir 9 úrtökur í 4. hverri umf fækkaðar í 6. hverri umf þar til eftir eru 6 l á undan prjónamerki í laskalínu = alls ca 4 sinnum í 6. hverri umf.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 35-36-37-38-39-40 cm er fellt af fyrir handveg í hvorri hlið þannig: Prjónið þar til 6 l eru eftir á undan fyrra prjónamerki í hlið, fellið af næstu 12 l, prjónið þar til 6 l eru eftir á undan prjónamerki í hinni hliðinni, fellið af næstu 12 l og prjónið út umf. Nú eru 88-98-108-120-134-148 l á bakstykki og ca 43-48-53-59-66-73 l á hvoru framstykki (það fer eftir því hve margar l voru felldar af fyrir v-hálsmáli). Geymið stykkið og prjónið ermar (úrtaka fyrir v-hálsmáli heldur áfram á berustykki).

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 72-72-72-76-76-76 l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum barkarbrúnn Fabel. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff (= 2 l sl, 2 l br). Þegar stroffið mælist 4 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-12-14-14-12 l jafnt yfir = 58-58-60-62-62-64 l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið slétt. Þegar stykkið mælist 8-8-9-8-10-8 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2½-2-2 cm millibili, 11-13-15-16-18-19 sinnum til viðbótar = 82-86-92-96-100-104 l. Þegar stykkið mælist 51-51-51-50-50-50 cm (styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla) fellt er af 12 l undir ermi = 70-74-80-84-88-92 l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Sameinið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = ca 314-342-374-406-442-478 l. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar milli fram- og bakstykki og erma (= 4 prjónamerki). Haldið áfram í sléttprjóni og úrtöku fyrir v-hálsmáli eins og áður. JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar úrtaka fyrir LASKALÍNA – sjá útskýringu að ofan (= 8 l færri). Endurtakið úrtöku í 4. hverri umf (þ.e.a.s. í annarri hverri umf frá réttu), 3-2-1-0-0-0 sinnum til viðbótar og síðan í annarri hverri umf (þ.e.a.s. í hverri umf frá réttu), alls 21-24-28-32-34-36 sinnum. Eftir alla úrtöku í laskalínu og v-hálsmáli eru ca 90-96-100-108-118-128 l eftir á prjóni. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 28-28-28-34-34-38 l milli 2 prjónamerkja á bakstykki (þ.e.a.s. fækkað er um ca 10-16-20-22-32-38 l á milli 2 prjónamerkja á bakstykki), fellið laust af allar l.

KANTUR AÐ FRAMAN/VIÐ HÁLSMÁL:
Setjið þær 10 l fyrir kant að framan af þræði frá hægra framstykki á prjóna nr 2,5. Haldið áfram með stroff eins og áður, nema með litnum brúnn Fabel, að aukið er fitjuð upp 1 l í lok umf inn að stykkinu (= kantlykkja til þess að sauma í). Prjónið nú áfram þar til hálsmálið mælist ca 30-31-32-34-35-37 cm frá þeim stað þar sem l voru settar tilbaka á prjóninn (leggið kantinn við hálsmál inn að flíkinni við miðju að aftan, strekkið aðeins og sjáið til þess að hann passi), fellið af. Endurtakið eins meðfram vinstra framstykki. Saumið kantinn við opið í hálsmáli innan við 1 kantlykkju svo að kanturinn í hálsmál liggi vel að þrengingu fyrir v-hálsmáli. Saumið við miðju að aftan innan við affellingarkantinn (saumurinn á að snúa inn á móti röngu á flíkinni).

VASI:
Setjið þær 28-28-28-32-32-36 l af þræði á öðru framstykkinu á prjóna nr 2,5. Byrjið á röngu með litnum brúnn Fabel og prjónið 1 umf br með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið JAFNFRAMT er aukið út um 8 l jafnt yfir = 36-36-36-40-40-44 l. Prjónið nú stroff frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir og endið með 2 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist ca 6-7 cm er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið stroffið saman tvöfalt út á móti réttu og saumið niður í hvorri hlið í gegnum bæði stykkin innan við 1 kantlykkju.

INNAN Í VASA:
Prjónið upp 1 nýja l í hverjaaf þeim 28-28-28-32-32-36 l sem voru í opi fyrir vasa. Prjónið sléttprjón fram og til baka á prjóna nr 3 með litnum barkarbrúnn Fabel þar til vasinn mælist ca 6 cm, fellið laust af. Saumið vasann fastan frá röngu á peysunni með smáu lausu spori. Prjónið vasa á hinu framstykkinu á sama hátt.

BÓT Á ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 20 l á prjóna nr 3 með litnum brúnn Fabel. Prjónið þannig:
UMFERÐ 1: Prjónið slétt.
UMFERÐ 2: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 28 l.
UMFERÐ 3: Prjónið 1 l sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 36 l.
UMFERÐ 5: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 6: Prjónið 1 sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 44 l.
UMFERÐ 7: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 8: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 12 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 4 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 52 l.
UMFERÐ 9: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 10: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 14 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 60 l.
UMFERÐ 11: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 12: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 16 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 6 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 68 l.
UMFERÐ 13: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 14: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 18 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 7 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 76 l.
UMFERÐ 15: Prjónið sl yfir allar l, uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt.
UMFERÐ 16: Prjónið 1 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 20 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 8 l sl, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 l sl = 84 l.
UMFERÐ 17: Fellið af allar l.
Saumið saman op á bót fyrir ermi frá miðju og út með smáu, fínu spori. Prjónið aðra bót til viðbótar á sama hátt.
Saumið bótina fasta aftan á ermi með litnum brúnn – saumið með stingsaum.
Bæturnar eru saumaðar ca 20 cm frá neðri hluta ermar og ca 2-3 cm frá miðju undir ermi við bakhlið á ermi. Festið gjarna bæturnar með nálum fyrst og mátið peysuna til að sjá hvort þær sitji á réttum stað áður en þær eru saumaðar fastar.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 142-23

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (15)

country flag Ingrid Hilborn wrote:

Jag skulle vilja sticka denna tröja i storlek cl 122/128. Kan ni erbjuda en sådan "översättning" vad gäller antal maskor som ska läggas upp, hur många raglanintagningar etc.?

29.11.2023 - 12:50

DROPS Design answered:

Hej Ingrid, här hittar du koftor till baby i samma stickfasthet: Koftor till baby

30.11.2023 - 10:17

country flag Ingrid Hilborn wrote:

Vilken diameter på knapparna rekommenderas?

04.07.2023 - 16:33

DROPS Design answered:

Hej Ingrid, knappen er ca 20 mm :)

05.07.2023 - 08:01

country flag Le Terrier wrote:

Auriez-vous explication pour tricoter le gilet avec aiguilles droite et non circulaire car je ne comprends pas Merci

01.11.2022 - 19:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Le Terrier, nous ne sommes malheureusement pas en mesure de pouvoir adapter chacun de nos modèles à chaque demande, toutefois, ce gilet se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire (les 2 devants et le dos jusqu'aux emmanchures), vous pouvez ainsi le tricoter sur aiguilles droites (vos mailles seront juste plus serrées); pour les manches (et plus encore), retrouvez ici des astuces. Bon tricot!

02.11.2022 - 07:36

country flag Wilma wrote:

Kan iemand me dit patroon regel voor regel mailen? van af de v hals omhoog.nu staat het zo apart van elkaar terwijl het inelkaar moet voegen.

02.10.2018 - 18:12

DROPS Design answered:

Dag Wilma, Helaas kan ik je het patroon niet mailen, maar je kunt wel voor jezelf de tekst selecteren en deze plakken in een tekstverwerkingsprogramma, waarna je het voor jezelf overzichtelijk kunt maken. Je kan ook altijd hulp vragen bij de winkel waar je het garen gekocht hebt.

04.10.2018 - 11:57

country flag Eva Johansson wrote:

Hej, Går det att sticka denna modellen i slätstickning istället?

04.10.2016 - 12:58

DROPS Design answered:

Hej Eva. Hvad mener du? Den er strikket i glat efter ribben?

04.10.2016 - 14:19

country flag Mette Dræby wrote:

Jeg kan ikke få lommerne til at passe.. På billedet er de vist som om de sider tæt på forkantet. Men i opskriften er beskrevet som om de sidder næsten midt på siddesømmen...

06.04.2015 - 21:27

DROPS Design answered:

Hej Mette, bare følg opskriften så får du lommerne så de passer til den størrelse du strikker. God fornøjelse!

13.05.2015 - 16:03

country flag Annie Broda wrote:

Sauf erreur de ma part, il manque une partie de l'explication du raglan : d'après la photo, il faut tricoter les mailles comme elles viennent. Il pourrait être utile de le mentionner, notamment pour les tricoteuses de peu d'expérience. Cordialement A B

24.06.2013 - 14:56

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Broda, sauf erreur, il est indiqué au début des explications comment tricoter les mailles et diminuer pour le raglan. Bon tricot !

24.06.2013 - 16:09

country flag Esther wrote:

Welke lengte rondbreinaalden heb ik hiervoor nu nodig? En welke lengte nld zonder knop? Het is me niet helemaal duidelijk. Rondbreinaalden kun je beter te kort dan te lang bestellen geloof ik.

26.02.2013 - 11:25

DROPS Design answered:

Je kan hiervoor het beste standaard 80 cm gebruiken. Breinaalden zonder knoop is van DROPS standaard 20 cm lang, maar je kan ook een andere lengte gebruiken - het maakt hier niets uit. Je kan ook de mouwen in de rondte breien. Leer eventueel de magic-loop techniek.

27.02.2013 - 17:13

country flag Kitte wrote:

En dejlig klassisk cardigan, som jeg bare MÅ lave.

28.06.2012 - 17:57

country flag Helena wrote:

Hur många gånger har vi inte sett detta plagg? Otroligt tråkigt och icke kreativt

19.06.2012 - 14:29