DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Extra 0-852
DROPS Design: Mynstur nr ww-070
Garnflokkur D
-----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL – XXXL

GARN:
DROPS SYMPHONY frá Garnstudio
600-650-750-800-900-950 g litur nr 17, grábrúnn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 7: Lengd 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 6: Lengd 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 7.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 6.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
14 lykkjur á breidd og 19 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Symphony
DROPS Symphony
65% Ull, 35% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-132-144-160-184-196 lykkjur á hringprjón 6 með DROPS Symhony.
Prjónið 1 umferð brugðið frá röng, síðan er prjónað þannig – frá réttu:
1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið stroff svona í 8 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 7. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og fækkið um 10-14-14-18-18-18 lykkjur jafnt yfir = 106-118-130-142-166-178 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, næsta umferð er prjónuð þannig – frá réttu: 1 lykkja garðaprjón, 1 lykkja slétt, A.1 yfir næstu 102-114-126-138-162-174 lykkjur, 1 lykkja slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 48-49-50-51-52-53 cm. Nú er prjónað þannig – frá réttu: Prjónið 20-23-26-29-35-38 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið 54-60-66-72-84-90 lykkjur eins og áður, fellið af næstu 6 lykkjur, prjónið 20-23-26-29-35-38 lykkjur eins og áður. Síðan er hvert stykki prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 54-60-66-72-84-90 lykkjur. Haldið áfram með A.1 eins og áður, JAFNFRAMT er fellt af fyrir handvegi í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig – þær lykkju sem ekki ganga upp í heila eða hálfa mynstureiningu A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni: 2 lykkjur 1-2-2-3-4-5 sinnum og 1 lykkja 0-1-1-2-3-4 sinnum = 50-50-56-56-62-62 lykkjur. Haldið áfram með A.1 með 1 lykkju í sléttprjóni í hvorri hlið þar til stykkið mælist 66-68-70-72-74-76 cm. Nú eru felldar af 16 miðjulykkjur fyrir hálsmáli = 17-17-20-20-23-23 lykkjur eftir á hvorri öxl. Prjónið þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 20-23-26-29-35-38 lykkjur. Haldið áfram með mynstur eins og áður. Fellið af fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki – þær lykkjur sem ekki ganga upp í heila eða hálfa mynstureiningu A.1 eru prjónaðar í sléttprjóni = 18-18-21-21-24-24 lykkjur eftir á öxl. Haldið áfram með mynstur þar til stykkið mælist 68-70-72-74-76-78 cm, fellið af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 40-40-40-40-44-44 lykkjur á sokkaprjóna 6 með DROPS Symphony.
Prjónið stroff 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 8 cm. Prjónið 1 umferð slétt, JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir = 36-36-36-36-40-40 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar. Prjónið eftir A.1, JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við merki, endurtakið útaukningu með 5½-4-3½-3-2½-2 cm millibili 6-8-9-11-11-13 sinnum til viðbótar = 50-54-56-60-64-68 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í A.1.
Þegar stykkið mælist 47-47-46-45-43-42 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af 6 lykkjur mitt undir ermi (3 lykkjur hvoru megin við merki), stykkið er prjónað fram og til baka. Síðan er fellt af fyrir ermakúpu í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 1 sinni, 2 lykkjur þar til stykkið mælist 55-56-55-56-54-55 cm, síðan eru felldar af 3 lykkju í hvorri hlið. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru, stykkið mælist ca 56-57-56-57-55-56 cm.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma og saumið ermar í.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið upp 252-260-264-272-276-284 lykkjur á hringprjón 6, upp meðfram hægra framstykki, aftan í hnakka og niður meðfram vinstra framstykki. Prjónið 1 umferð slétt til baka. Síðan er prjónað þannig – frá réttu: 3 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur garðaprjón. Setjið 2 merki í stykkið, við hvora öxl. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni einingu á milli merkja séð frá réttu, héðan er síðan prjónað áfram með 3 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt. Fellið af þegar kantur að framan mælist 12 cm.

BELTI:
Fitjið upp 8 lykkjur á prjón 7 með DROPS Symphony. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til stykkið mælist ca 150-200 cm. Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 2 sinnum uppá prjóninn á milli 2 lykkja, í næstu umferð er annar uppslátturinn prjónaður, hinn er látinn falla niður
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-852

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (11)

country flag Berit wrote:

Hej! Vad betyder symbolerna i diagrammet? Det finns ingen text, bara en punkt.

03.09.2022 - 08:57

DROPS Design answered:

Hej Berit. Tack för info, nu finns det förklaringar på symbolerna. Mvh DROPS Design

05.09.2022 - 07:39

country flag Jolanta wrote:

Ile włóczki DROPS Sky na sweter w rozmiarze S?

25.10.2021 - 15:46

DROPS Design answered:

Witaj Jolu, wg naszego zamiennika włóczek który znajdziesz TUTAJ, na rozmiar S będziesz potrzebować 443g włóczki DROPS Sky. Będziesz pracować 2 nitkami naraz. To będzie 9 motków. Pozdrawiamy!

25.10.2021 - 17:15

country flag Sarah wrote:

Grüezi! Ich bin beim Rumpfteil, Schritt "Dann die Hin-R wie folgt stricken: 20-23-26-29-35-38 M wie gehabt, die nächsten 6 M abk, 54-60-66-72-84-90 M wie gehabt, die nächsten 6 M abk und wieder 20-23-26-29-35-38 M wie gehabt. ". Wenn ich die ersten 20 M wie gehabt stricke, käme nach Muster zuletzt ein doppelter Umschlag. Ohne diesen hätte ich nur 19 M auf der Nadel. Ich wundere mich sehr über einen doppelten Umschlag an einer Kante, stimmt das wirklich?

05.06.2019 - 08:40

DROPS Design answered:

Liebe Sarah, Sie können die letzten Maschen einfach lieber glatt stricken (dh 1 Lochmuster weniger stricken), bei den nächsten Reihen werden die Maschen für die Armlöcher abgekettet/abgenommen und dabei werden die M, die weder in einen halben noch in einen ganzen Rapport von A.1 aufgehen, in glatt re gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

05.06.2019 - 10:00

country flag Dsev wrote:

Bonjour, Merci pour ce beau modèle que vous mettez à notre disposition. Concernant l'arrondi de la manche.. J'aimerais connaître le nombre de mailles restantes à rabattre . Merci de votre disponibilité.

30.09.2018 - 00:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dsev, le nombre de mailles à la fin de la manche va dépendre de votre tension en hauteur, rabattez de chaque côté: 2 fois 2 m, 1 fois 1 m, puis rabattez 2 m de chaque côté jusqu'à ce que la manche mesure 55-56-55-56-54-55 cm, puis rabattez 3 m de chaque côté. La manche doit mesurer environ 56-57-56-57-55-56 cm, rabattez alors les mailles restantes. Bon tricot!

01.10.2018 - 10:04

country flag Siw Anita wrote:

I mønsteret, står det to kast, og strikk det ene, og slipp det andre, ja, det forstår jeg, men videoen viser ett kast, og det strikkes på på vranga. Hva skal jeg forholde meg til?

27.01.2018 - 23:11

DROPS Design answered:

Hei Siw Anita. Denne videoen viser bare 1 kast, noe som er feil, (vi vil lage en ny video som blir riktig så fort som mulig). Du kan i mellomtiden ta en titt på video: Hvordan strikke et dobbelt kast slik at du får et stort hull. Her viser vi et dobbelt kast fra retten og der det fra vrangen strikkes det kun det ene kastet, mens det andre kastet slippes med. Takk for at du gjorde oss oppmerksom på feilen i videoen. God Fornøyelse!

30.01.2018 - 10:31

Willeke De Boer wrote:

Er wordt in het patroon bij de mouw gesproken over afkanten en minderen bij de mouwkop. M.i. Is dit niet juist. Het gaat om afkanten en minderen onderaan de mouw, bij de oksel. Verder een prachtig patroon!

20.09.2017 - 15:25

country flag Wendy wrote:

If this pattern has a gauge, I can't find it. I never saw a pattern without a gauge. Doesn't it have one? Or can I just not find it?

11.01.2017 - 22:10

Wendy answered:

Sorry, I asked a question about the gauge, but I finally found it. My mistake!

11.01.2017 - 22:13

country flag Melanie wrote:

Muss man bei den Ärmeln nach gesamt 10 cm beidseitig der Markierung 1 M aufnehmen oder erst 10 cm nach dem Rippenmuster?

08.09.2016 - 12:48

DROPS Design answered:

Liebe Melanie, die Aufnahmen sollen nach 10 cm von Anschlagskante beginnen = wenn die Arbeit 10 cm misst.

08.09.2016 - 13:50

country flag Mai wrote:

Hvordan skal diagrammet forståes? Der mangler vist lidt forklaring.

23.05.2013 - 18:09

DROPS Design answered:

Hej Mai. Du har ret, der mangler da beskrivelsen der. Vi skal tilföje det asap. Tak

28.05.2013 - 15:11

country flag Ghisi wrote:

Tous vos modèles me plaisent, mais ils se tricotent avec des aiguilles circulaires, peut-on les réaliser avec des aiguilles droites, avec vos explications ? merci d'avance.

09.02.2013 - 18:48

DROPS Design answered:

Bonjour Ghisi, ce modèle par ex se tricote en allers et retours sur aiguille circulaire pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles. Dans ce cas, vous pouvez utiliser des aiguilles droites, les mailles seront juste plus serrées. Ou bien, consultez nos vidéos pour apprendre à tricoter sur aiguille circulaire, après avoir essayé, beaucoup les adoptent finalement. Bon tricot !

11.02.2013 - 09:30