Hanne Pjedsted skrifaði:
Super feminin og stadig enkel med sin lethed og fint "sving"
03.01.2012 - 18:23
Anja skrifaði:
Ich finde schön lang und luftig und sieht sehr schick aus.
31.12.2011 - 15:28
Elke skrifaði:
Schön für die ersten warmen Tage!
30.12.2011 - 13:19Josee skrifaði:
Vraiment très beau model
30.12.2011 - 01:11
Janette skrifaði:
Schönes Teil für die warme Jahreszeit - ich freue mich aufs Stricken
29.12.2011 - 15:32
Bötti2011 skrifaði:
Gelungene Kombination aus schick und sportlich! Bitte auch die großen Größen nicht vergessen! Danke!
28.12.2011 - 20:25
Helen skrifaði:
Jätte snygg modell med snyggt fall. Lika klädsam till vardags som till fest!
28.12.2011 - 19:49
Marianne skrifaði:
Passer perfect til vejret i det sydlige Californien
22.12.2011 - 05:21
Barbara skrifaði:
Den är fin till sommar,kommer och sticka den,
18.12.2011 - 09:14Lori Meister skrifaði:
From USA I love this I can't wait to make this for one of my neice's
16.12.2011 - 02:53
Madeline#madelinesinglet |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður toppur úr DROPS Lin. Stærð S - XXXL.
DROPS 136-7 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING 1: Öll útaukning er gerð frá réttu. Hægri öxl: Aukið út um 1 lykkju með því að prjóna 2 l í síðustu l. Aukið út um 2 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn fyrir síðustu l og prjónið 2 l í síðustu l. Vinstri öxl: Aukið út um 1 l með því að prjóna 2 l í fyrstu l. Aukið út um 2 l með því að prjóna 2 l í fyrstu l og slá 1 sinni uppá prjóninn. ÚTAUKNING 2: Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn hvoru megin við l með prjónamerki í hvorri hlið þannig: Prjónið sléttprjón fram að prjónamerki, sláið 1 sinni uppá prjóninn, l með prjónamerki er prjónuð í sléttprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Uppslátturinn er prjónaður snúinn slétt í næstu umf, svo ekki myndist gat. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- TOPPUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka hvort fyrir sig fyrir neðan handveg, síðan eru allar l settar á sama hringprjón og prjónað í hring. FRAMSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón, prjónið fyrst hægri öxl og aukningu fyrir hálsmáli. Prjónið síðan vinstri öxl á sama hátt og hægri öxl, en með útaukningu í gagnstæðri hlið. HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 17-17-18-18-21-21 l á hringprjóna nr 5 með Lin. Prjónið sléttprjón. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út fyrir hálsmáli í lok á hverri umf frá réttu þannig – lesið ÚTAUKNING 1: 1 l 5-5-6-6-7-7 sinnum og 2 l 4 sinnum = 30-30-32-32-36-36 l. Geymið stykkið þegar útaukningu er lokið. VINSTI ÖXL: Prjónið á sama hátt og hægri öxl, nema með útaukningu í gagnstærðri hlið (þ.e.a.s. útaukning eru í byrjun hverrar umf frá réttu). FRAMSTYKKI: Setjið hægra og vinstra framstykki á sama prjón = 60-60-64-64-72-72 l. Prjónið fram og til baka í sléttuprjóni. Þegar stykkið mælist 21-19-20-15-15-11 cm er aukið út um 1 l hvoru megin fyrir handveg, endurtakið þetta með 1 cm millibili 0-3-4-9-10-15 sinnum til viðbótar = 62-68-74-84-94-104 l. Þegar útaukningu er lokið mælist stykkið ca 22-23-25-25-26-27 cm. Klippið frá og setjið l á þráð. BAKSTYKKI: HÆGRI ÖXL: Fitjið upp 17-17-18-18-21-21 l á hringprjón nr 5 með Lin. Prjónið 4 umf sléttprjón með byrjun frá réttu. Klippið frá og geymið stykkið. VINSTRI ÖXL: Fitjið upp 17-17-18-18-21-21 l á hringprjóna nr 5 með Lin. Prjónið 4 umf sléttprjón og byrjið frá réttu, fitjið upp 26-26-28-28-30-30 l í lok næstu umf frá réttu = 43-43-46-46-51-51 l. Prjónið inn lykkjur frá hægri öxl á sama prjón = 60-60-64-64-72-72 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 21-19-20-15-15-11 cm er aukið út fyrir handveg hvoru megin eins og á framstykki= 62-68-74-84-94-104 l. Þegar öll útaukning hefur verið gerð til loka mælist stykkið ca 22-23-25-25-26-27 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn l frá framstykki á sama hringprjón og bakstykki = 124-136-148-168-188-208 l. Héðan er stykkið prjónað í hring á hringprjóna með byrjun í annarri hliðinni. Setjið prjónamerki í eina l í hvorri hlið = 61-67-73-83-93-103 l milli prjónamerkja. Haldið áfram í sléttprjón, í næstu umf er aukið út um 1 l hvoru megin við hverja l með prjónamerki í hvorri hlið – LESIÐ LEIÐBEININGAR UM ÚTAUKNING 2! Endurtakið útaukningu í 3. hverri umf 34-35-35-36-37-38 sinnum til viðbótar = 264-280-292-316-340-364 l. Fellið LAUST af. Stykkið mælist nú ca 64-66-68-70-72-74 cm, mælt frá öxl og niður. FRÁGANGUR: Saumið saman axlarsauma með fínu lykkjuspori. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið kant í kringum hálsmál með heklunál nr 5 þannig: Heklið 1 fl í kantinn við miðju að aftan í hálsmáli, * 1 ll, hoppið fram ca 1 cm, 1 fl *, endurtakið frá *-* og endið með 1 ll og 1 kl í fyrstu fl. Heklið eins í kringum handveg. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #madelinesinglet eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 14 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS 136-7
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.