Miri skrifaði:
Vielen Dank für die schnelle Antwort. Leider finde ich den Knopf weder in ihrem Online-Sortiment, noch in dem von Lanade...
05.02.2014 - 12:41DROPS Design svaraði:
Liebe Miri, schauen Sie nochmals genau, der Knopf ist lieferbar.
07.02.2014 - 07:43
Miri skrifaði:
Hallo, ich habe die Jacke bestellt, finde die angegebenen Knöpfe aber nirgends im Angebot. Gibt es die noch irgendwo bzw. können Sie mir sagen, welche Größe die haben, damit ich mir ähnliche suchen kann? Danke!
03.02.2014 - 11:12DROPS Design svaraði:
Liebe Miri, dieser Perlmuttknopf ist Teil unseres Standardsortiments, Sie können ihn bei unseren Händlern beziehen.
03.02.2014 - 12:44
Jennie skrifaði:
Jag undrar om hela tröjan ska stickas med dubbel tråd?
11.01.2014 - 20:38DROPS Design svaraði:
Ja det ska den. Lycka till!
13.01.2014 - 09:13Ángela skrifaði:
He terminado el delantero izquierdo y monté los 6 puntos en el lado izquierdo. Pero cuando dice "cuando todos los puntos han sido aumentados para el escote", a qué se refiere? tengo que seguir haciendo aumentos? cuántos? Gracias, es que estoy perdida ahí
11.01.2014 - 19:00DROPS Design svaraði:
Hola Angela. No tienes que hacer más aumentos que los que marca el patrón. (1 pt 3 vcs)
16.01.2014 - 09:39Elsa skrifaði:
Ja det är klart! Vad trodde du det skulle bli?
08.12.2013 - 18:54
Annica skrifaði:
HALSKANT: /.../Sticka upp, från rätsidan, ca 40 till 50 m runt halsen/../ Ska jag plocka upp 40-50 maskor runt halsen? Ska det bli en kant?
08.12.2013 - 18:06DROPS Design svaraði:
Ja då får du en liten rätstickat halskant :)
10.12.2013 - 09:22
Valeria skrifaði:
Bellissimo!!!!
03.12.2013 - 14:08Ana Salgado skrifaði:
Precioso y facil, lo estoy haciendo y me encanta.
30.09.2013 - 19:34
Treaclesmum skrifaði:
I am a new knitter and am having a problem with the Right Side of this pattern. I am making it in the smallest size. The diagram shows the side should measure 12.5 cm in total. However the instructions tell me to work until it is 12.5 cm, THEN do the buttonholes, THEN continue for 2.5 cm, making a total of just over 15 cm. please could you explain what I should do. Many thanks
18.06.2013 - 08:19DROPS Design svaraði:
Dear Mrs Treaclesmum, you started with right sleeve and then cast on new sts for back piece and right front piece, and after 9 cm you continue separately on sts for front piece only, when this part (from where you cast on sts for front piece) measures 12.5 cm then open the buttonholes. If you look at the measurement chart, total width for body is 25 cm / 2 for each front piece = 12.5 cm for each front +2.5 cm overlapp for button band. Happy knitting!
18.06.2013 - 09:20
Stark skrifaði:
Ce joli modèle est très joli et facile à faire pour une débutante.Merci à Drops pour vos formidable modèle.
02.06.2013 - 19:57
Grey Gosling#greygoslingcardigan |
||||
![]() |
![]() |
|||
Prjónuð peysa fyrir börn, prjónuð frá hlið úr 2 þráðum DROPS Alpaca
DROPS Baby 21-39 |
||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (á við um hálsmál): Aukið er út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn innan við 2 kantlykkju með garðaprjóni. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. að prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan þannig að ekki myndist gat). ATH: Síðasta lykkja í hálsmáli er prjónuð aðeins fast svo að kanturinn verði fallegur. HNAPPAGAT: 1. hnappagat = fellið af 1 l og sláið 1 sinni uppá prjóninn í næstu umf yfir þá l sem felld var af. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka frá hlið, frá ermi að ermi. HÆGRI ERMI: Fitjið laust upp 26-28-28 (30-30) l (= neðst á hægri ermi) á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið GARÐAPRJÓN- sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin, endurtakið þetta í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 38-40-44 (48-52) l. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (24-28) cm fitjið laust upp 27-29-34 (39-42) nýjar l í byrjun og lok umf fyrir fram- og bakstykki = 92-98-112 (126-136) l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm frá þeim stað þar sem fitjað var upp fyrir fram- og bakstykki (stykkið mælist 26-28-31 (36-41) cm frá uppfitjunarkanti neðst á ermi). Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið slétt yfir fyrstu 46-49-56 (63-68) l á prjóni (= framstykki) og setjið 46-49-56 (63-68) l sem eftir eru á þráð (= bakstykki). Setjið prjónamerki í síðustu umf, bakstykkið er nú mælt héðan. FRAMSTYKKI: = 46-49-56 (63-68) l. Snúið við og fellið af fyrstu 6-6-6 (7-7) l á prjóni fyrir hálsmáli. Fellið nú af fyrir hálsmáli í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – fellið af með því að prjóna saman 2 l innan við 2 kantlykkjur = 37-40-47 (53-58) l á prjóni. Prjónið þar til breiddin á framstykki = 12,5-14-15,5 (17-18,5) cm. Í næstu umf er fellt af 5-5-5 (6-6) fyrir HNAPPAGAT jafnt yfir – sjá útskýringu að ofan – ATH: Efsta hnappagatið við hálsmál er fellt af eftir 2 l frá kanti í hálsmáli. Prjónið nú 4 umferðir garðaprjón og fellið af. BAKSTYKKI: Setjið til baka þær 46-49-56 (63-68) l af þræði á prjóninn og prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 7-8-9 (10-11) cm frá prjónamerki á bakstykki. Geymið stykkið og prjónið vinstra framstykki. VINSTRA FRAMSTYKKI: Fitjið laust upp 37-40-47 (53-58) l á prjóna nr 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið slétt í hverri umf þar til stykkið mælist 4-4,5-5 (5,5-6) cm. Aukið áfram út í vinstri hlið í hverjum cm: 1 l alls 3 sinnum – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING! Þegar stykkið mælist 6-6,5-7 (7,5-8) cm eru fitjaðar upp 6-6-6 (7-7) l í vinstri hlið = 46-49-56 (63-68) l . Þegar öll útaukning hefur verið gerð fyrir hálsmáli eru stykkin prjónuð saman – sjá FRAM- OG BAKSTYKKI – að neðan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn þær 46-49-56 (63-68) l frá bakstykki á sama prjón og vinstra framstykki = 92-98-112 (126-136) l á prjóni. Setjið 1 nýtt prjónamerki í stykkið – héðan er nú mælt! Prjónið áfram þar til stykkið mælist 9-10-11 (12-13) cm. Fellið laust af í byrjun næstu 2 umf 27-29-34 (39-42) l á hvorri hlið = 38-40-44 (48-52) l eftir á prjóni fyrir vinstri ermi – héðan er nú mælt. Þegar stykkið mælist 2-3-1 (3-3) cm fellið af 1 l í hvorri hlið, endurtakið í öðrum hverjum cm alls 6-6-8 (9-11) sinnum = 26-28-28 (30-30) l á prjóni. Fellið laust af þegar ermin mælist 17-18-20 (24-28) cm (stykkið mælist ca 59-64-71 (82-93) cm frá ermi til ermi). HÁLSMÁL: Prjóni upp frá réttu ca 40 til 50 l í kringum hálsmál á prjóna nr 5 með 2 þráðum. Prjónið 3 umf slétt fram og til baka, fellið síðan laust af. FRÁGANGUR: Brjótið saman stykkið tvöfalt á öxlum og saumið erma- og hliðarsauma í eitt yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í. |
||||
Skýringar á teikningu |
||||
|
||||
![]() |
||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #greygoslingcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-39
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.