Andrea skrifaði:
Hallo,ich habe zwar erst ca. 12cm gestrickt,bin aber in Sorge etwas falsch gemacht zu haben, da sich das Strickteil von unten her einrollt. Gibt sich das noch oder was muss ich ansonsten machen? Vielen Dank für eine Antwort.
27.04.2013 - 17:11DROPS Design svaraði:
Liebe Andrea, habe Sie gesehen, dass die untere Kante zum Schluss an der Reihe links nach innen gefaltet und angenäht wird? Danach kann sich eigentlich nichts mehr rollen.
29.04.2013 - 07:53
Leena Winter skrifaði:
Teen pikkkutytön mekkoa, jonka piirroskuvassa on helmaosan pituudeksi merkitty 41 cm (koko 80/86 cm) ja yläosan 11 cm. Ohjetekstissä kuitenkin työ siirretään pyöröosuuden jälkeen etu- ja takakappaleeksi suorille puikoille 30 cm:n korkeudessa. Onko tässä joku mittavirhe?
19.03.2013 - 13:53DROPS Design svaraði:
Mittapiirroksessa ei ole virhettä. Työn koko pituus on 35-38-41 (44-47) cm.
09.04.2013 - 15:45
Claudia skrifaði:
Hallo, ich bin gerade mit dem Abketten der Maschen für die Armausschnitte fertig, sodass ich nun das Vorder- und Rückteil separat weiterstricke. Nun weiß ich bei dem nächsten Schritt nicht weiter. Wenn ich die 4 M Krausrippe (= 4 M re?) gestrickt habe und die 1 M abnehmen soll, dann ist das bei mir nicht am Rand, sondern eben die 5. M im Gestrick. Ist das richtig? Vielen Dank schon für die Antwort!
04.01.2013 - 17:33DROPS Design svaraði:
Liebe Claudia, ja das ist richtig, Es wird nicht am Rand oder über den Blendenmaschen abgenommen sondern daneben, also die 5. M im Strickstück.
07.01.2013 - 09:18
Carolin Schaireiter skrifaði:
Wie stricke ich die rückreihen bei vorher- und rückenteil wenn hin und zurück gestrickt wird. MuSs ich die andere Farbe auch in.der rückreihe stricken?
28.11.2012 - 10:29DROPS Design svaraði:
Hallo Carolin, jede 2. R ist eine Rückreihe, wenn in Hin-und Rück-R gestrickt wird. Bitte stricken Sie die in der betreffenden Reihe im Diagramm angegebenen Farben. Viel Spaß beim Stricken!
28.11.2012 - 11:05
Paula Pülz skrifaði:
Ich verstehe leider nicht, was im Schritt "Zusammennähen" mit den Kordeln gemacht werden soll. Wie entsteht der Schließmechanismus für die Schulter? Wie soll man eine Kante an der Rückseite annähen? Vielen Dank für Ihre Hilfe!!!
23.02.2012 - 14:33DROPS Design svaraði:
Mit der Schnur macht man eine Öse für das Knopfloch. Diese Schnur näht man in der Rille (1 R. re. von der Rückseite) an. Zum Schluss näht man die Kante auf der Rückseite der Arbeit an.
27.02.2012 - 13:21
DROPS Design NL skrifaði:
Kies Nederlandse taal onder Kies taal / choose language
06.12.2011 - 09:46
R Geelhoed skrifaði:
De beschrijving van het patroon is in het engels, zou dat gewijzigd kunnen worden in de nederlandse taal?
05.12.2011 - 18:57
Princess Dream#princessdreamdress |
|||||||
|
|||||||
Prjónaður kjóll fyrir börn með norrænu mynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 21-17 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 - M.7. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 (á við um fram- og bakstykki): Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 (á við um handveg): Fækkið um 1 lykkju á hvorri hlið þannig: Prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir, prjónið næstu 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur í garðaprjóni. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjón, neðan frá og upp. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 144-156-172 (188-200) lykkjur með litnum kirsuber á hringprjón 2,5. Prjónið slétt í ca 2,5 cm, prjónið síðan 1 umferð brugðið = uppábrot, stykkið er nú mælt héðan og er prjónað í sléttprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Prjónið að auki 1 umferð slétt og setjið eitt prjónamerki í hvora hlið (= 72-78-86 (94-100) lykkjur á milli prjónamerkja á fram- og bakstykki). Prjónið síðan M.1 1 sinni á hæðina. Haldið áfram með litinn kirsuber í sléttprjóni þar til stykkið mælist 3 cm. Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-1 að ofan = 4 lykkjur færri í umferð. Endurtakið úrtöku með 2-2½-2½(2-2½) cm millibili alls 6-6-7 (8-8) sinnum = 120-132-144 (156-168) lykkjur. LESIÐ ALLAN NÆSTA KAFLA ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM. Þegar stykkið mælist 15-17-19 (21-23) cm (úrtöku á nú að vera lokið) prjónið M.2, M.3 og síðan M.4 1 sinni á hæðina. Prjónið síðan umferð 1-3 í M.5 (nú mælist stykkið ca 26-28-30 (32-34) cm). Í næstu umferð (umferð 4 í M.5) eru felldar af 8 lykkjur í hvorri hlið (þ.e.a.s. 4 lykkjur hvoru megin við hvort prjónamerki), nú skiptist stykkið og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. BAKSTYKKI: = 52-58-64 (70-76) lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni til loka. Næsta umferð (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 4 lykkjur garðaprjón (= kantlykkja), fækkið um 1 lykkju – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA-2 að ofan, endið með 4 lykkjur garðaprjón. Endurtakið úrtöku innan við 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið frá réttu alls 2-1-4 (3-2) sinnum = 48-56-56 (64-72) lykkjur. Eftir að M.5 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina er prjónað M.6 og M.3 1 sinni á hæðina (með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið). Næsta umferð er prjónuð brugðið frá röngu og síðan M.7 með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið til loka. Þegar stykkið mælist 33-36-39 (42-45) cm fellið af miðju 18-20-20 (22-24) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið af 2 lykkjur í næstu umferð frá hálsmáli = 13-16-16 (19-22) lykkjur. Þegar stykkið mælist 35-38-41 (44-47) cm fellið af á hægri öxl, vinstri öxl er prjónuð þannig: Prjónið 1 umferð slétt frá röngu (= uppábrot), prjónið síðan sléttprjón í 2,5 cm til viðbótar. Fellið af allar lykkjur. FRAMSTYKKI: = 52-58-64 (70-76) lykkjur. Stykkið er prjónað fram og til baka í sléttprjóni til loka. Prjónið síðan með mynsturteikningu eins og á bakstykki með 4 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið og fellið af fyrir handvegi á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 29-32-35 (37-40) cm fellið af miðju 12-12-14 (14-16) lykkjur af fyrir hálsmáli og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig. Fellið síðan af í næstu umferð frá hálsmáli þannig: Fellið af 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 3-4-3 (4-4) sinnum = 13-16-16 (19-22) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 35-38-41 (44-47) cm fellið af á hægri öxl og prjónað er uppábrot á vinstri öxl eins og á bakstykki. FRÁGANGUR: Saumið hægri axlasaum. Gerið 1 lykkju þannig: Snúið 2 þræði 20 cm með litnum kirsuber og leggið þá saman tvöfalda þannig að þeir tvinni sig saman. Gerið aðra lykkju alveg eins. Brjótið uppá kantinn við brugðnu umferðina á vinstri öxl að aftan og festið lykkjurnar í ysta liðinn með því að þræða þráðar endana í gegnum uppábrotið, festið endana og saumið kantinn niður á bakhlið. Saumið kantinn með uppábroti á bakhlið á vinstri öxl á framstykki. Prjónið upp frá réttu ca 60-80 lykkjur meðfram öllum kantinum í hálsmáli (í gegnum bæði lögin á uppábroti í hvorri hlið), prjónið síðan 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 66-70-74 (78-82) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig: * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina. Fellið laust af allar lykkjur þegar stroffið mælist ca 1 cm. Saumið tölur í vinstri öxl á framstykki. Brjótið uppá neðsta kantinn á kjól við brugðnu umferðina og saumið niður á bakhlið. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #princessdreamdress eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 11 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-17
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.