Klaske skrifaði:
Erg mooi! Leuk voor mijn kleinzoon ...
05.11.2008 - 20:55
Inger skrifaði:
Västar är underskattat för små barn, de är otroligt bra med värmen över bröst och rygg samtigt blir de smidig i armarna.
27.10.2008 - 23:03
Mette W skrifaði:
Rigtig sød vest - dejligt med strik til drengene også
23.10.2008 - 21:27
Ses skrifaði:
Den var skikkelig flott, passa både til kvardags og til best.
23.10.2008 - 19:57
Drops Deutsch skrifaði:
Die Anleitungen werden fortlaufenden publiziert.
22.10.2008 - 09:03
Yvette skrifaði:
Das ist mein Favourit. Wo bekommt man dieses Strickmuster für die Schuhe und den Pullunder?!
21.10.2008 - 01:15
Karina Walczak skrifaði:
Den må altså bare med. Moderigtig og sød
20.10.2008 - 09:25
Jessica skrifaði:
Praktiskt och varmt att ha på sig. Fin och enkel.
17.10.2008 - 20:18
Nelleke skrifaði:
Ook al zo lief!
17.10.2008 - 18:42
Little Gent#littlegentslipover |
|||||||
![]() |
![]() |
||||||
Sett með prjónuðu vesti / slipover og sokkum fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-9 |
|||||||
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 – Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu! GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna): * 1 umf slétt og 1 umf br *, endurtakið frá *-*. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um handveg á vesti): Fækkið lykkjum fyrir handveg frá réttu innan við 3 l með garðaprjóni með því að prjóna saman 2 l br. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- VESTI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 50-56-62 (70-76) l (meðtalin er ein kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l br, * prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 4 l br *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, prjónið 2 l sl í hvora af næstu 2 l, 11-14-17 (21-24) l br og 1 kantlykkju í garðaprjóni = 60-66-72 (80-86) l. Prjónið áfram frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l sl, * M.1, 4 l sl *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, M.1, 11-14-17 (21-24) l sl og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Prjónið nú frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, 11-14-17 (21-24) l br, * M.1, 4 l br *, endurtakið frá *-* 4 sinnum, M.1, 11-14-17 (21-24) l br og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram að prjóna mynstur svona. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 15-16-18 (19-21) cm prjónið 4 umf í garðaprjóni yfir 6 l í hvorri hlið (aðrar l eru prjónaðar eins og áður) – JAFNFRAMT í síðustu umf í garðaprjóni eru felldar af 3 l í byrjun umf, prjónið út umf, fellið síðan af 3 l í byrjun umf í hinni hliðinni. Prjónið áfram með 3 l garðaprjón í hvorri hlið – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið – SJÁ ÚRTAKA: 1 l í annarri hverri umf 4-4-4 (5-5) sinnum = 46-52-58 (64-70) l. Þegar stykkið mælist 22-23-26 (28-31) cm setjið miðju 12-12-14 (14-14) l á þráð fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umf frá hálsmáli: 2 l 1 sinni og 1 l 3-4-4 (4-4) sinnum = 12-14-16 (19-22) l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm prjónið 4 l yfir kaðal saman tvær og tvær = 10-12-14 (17-20) l eftir á öxl. Setjið lykkjur fyrir axlir á þráð. HÁLSMÁL: Takið upp ca 30 til 40 l meðfram hálsmáli (meðtaldar 12-12-14 (14-14) l af þræði) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt frá röngu jafnframt eru lykkjum fækkað jafnt yfir að 26-28-30 (32-34) l. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan af. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og takið upp aðrar 2 l meðfram hálsmáli = 12-14-16 (19-22) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Næsta umf er prjónuð þannig: 1-1-1 (2-2) l sl, 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn, 5-7-9 (10-13) l sl, 2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2- 2-2 (3-3) sl. Prjónið 1 umf slétt til baka og fellið síðan af. HÆGRI ÖXL:Takið upp 2 l meðfram hálsmáli og setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn = 12-14-16 (19-22) l. Prjóni á sama hátt og vinstri öxl. BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 50-56-62 (70-76) l (meðtaldar eru kantlykkjur í hvorri hlið) á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf garðaprjón, haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út. Fækkið lykkjum fyrir handveg eins og á framstykki og prjónið áfram þar til stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm. Fellið af miðju 14-16-18 (18-18) l fyrir hálsmáli. Hvor öxl er nú prjónuð til loka fyrir sig. Fækkið síðan um 1 l í byrjun á næstu umf frá hálsi = 10-12-14 (17-20) l eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið lykkjur fyrir öxl á þráð. HÁLSMÁL: Takið upp ca 18 til 26 l meðfram hálsmáli á prjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 3 umf slétt, fellið af. VINSTRI ÖXL: Setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og taki að auki upp 2 l meðfram hálsmáli = 12-14-16 (19-22) l. Prjónið 3 umf garðaprjón, fellið af. HÆGRI ÖXL: Prjónið á sama hátt og vinstri öxl. FRÁGANGUR: Saumið hliðarsauma innan við 1 kantlykkju og saumið tölur á axlir. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. SOKKUR: Fitjið upp 48-52-52 (56-56) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 l sl/ 1 l br – umf byrjar við miðju að aftan. Þegar stykkið mælist 4-5-5 (5-6) cm prjónið 3 l (= 1 l sl, 1 l br, 1 l sl) slétt saman við miðju að aftan. Prjónið 4 umf og síðan eru prjónaðar 3 l (= 1 l br, 1 l sl, 1 l br) br saman við miðju að aftan = 44-48-48 (52-52) l. Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5. Prjónið 1 umf sléttprjón – JAFNFRAMT er fækkað um 6-6-6 (6-6) l jafnt yfir = 38-42-42 (46-46) l. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið síðan fyrstu 14-15-15 (16-16) l á þráð. Haldið eftir næstu 10-12-12 (14-14) l á prjóni (= efra stykki) og setjið næstu 14-15-15 (16-16) á þráð. Prjónið fram og til baka yfir efra stykki þannig: 2-3-3 (4-4) l GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 1 l sléttprjón með rönguna út, M.1 (byrjið í 4. umf í mynstri), 1 l sléttprjón með rönguna út og 2-3-3 (4-4) l garðaprjón. Þegar efra stykkið mælist 3½-4-5 (6½-7½) cm eru teknar upp 8-9-11 (14-16) l hvoru megin á efra stykki og l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 54-60-64 (74-78) l. Prjónið nú garðaprjón hringinn yfir allar l í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið síðan 1 umf br. Fellið af allar l fyrir utan 10-12-12 (14-14) l við miðju að framan. Prjónið garðaprjón í 9-10-11 (13-15) cm yfir þessar l fyrir sóla. Fellið af og saumið sólann saman við sokkinn – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
![]() |
|||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #littlegentslipover eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 13 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-9
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.