Drops Design skrifaði:
Pattern has been edited and we added a correction. Thank you for letting us know.
22.10.2009 - 19:27
Marianna Gorczyca skrifaði:
Pattern 17-5 baby poncho. Correction in pattern: this is worked from the bottom up to the neck. Also, once I enlarged the pattern on the website, I could see the purl sections on the right side (outside of the poncho) are correct as written. Once I understood the "dec on right and left side of each P-section alternately", the pattern fell into place. I write every row out so I can mark each one off as I knit it: time consuming but it works for me. It's getting there.
22.10.2009 - 04:46Sausez skrifaði:
Merci pour ces magnifique modeles que vous nous proposer j'ai trouver ceci magnifique pour la petite fille de mon amie qui viens d'accoucher merci pour votre site
22.01.2009 - 16:30
Solveig skrifaði:
Sååå herlig!! Venter på oppskrift:)
02.12.2008 - 18:34
DROPS Design skrifaði:
You do the dec alternately - so first on one side, then next time on the other side, and so on.
01.12.2008 - 18:59
Vicky Reeves skrifaði:
Frist i love all your patterns iam having trouble with the dec row of this pattern it said to dec on the left side of the purl section that of course i understand but were it said dec on the 2nd round on the right and left of the p-section now do i dec on one row on the left then the next time i dec do i do it on the right or do i do the right and left on the same row i sure hope iam making sence thank you for any help you can give me your friend vicky
01.12.2008 - 18:49
Ayla skrifaði:
Goldig!!!
25.11.2008 - 12:23
Sujin Chai skrifaði:
This is so cute!!
21.11.2008 - 08:06
Solveig skrifaði:
Kjempefin.Håper ikke det blir lenge og vente på oppskrift.
19.11.2008 - 17:09
Tulle skrifaði:
Ser bare skøn ud. Vil gerne igang hurtigst muligt. Lad opskriften blive aktiveret!
19.11.2008 - 16:27
Baby Dove#babydoveset |
|||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||
Sett með prjónuðu poncho og húfu fyrir börn með köðlum ásamt sokkum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-5 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttar lykkjur þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. UMFERÐ 4 (ranga): Prjónið brugðnar lykkjur þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, lyftið næstu lykkju eins og prjóna eigi brugðið, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð, snúið stykkinu. Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að prjóna þar til eftir er 1 lykkja færri áður en 1 lykkju er lyft af prjóni, þar til 7-9-9 (9-9) lykkjur eru eftir á prjóni. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA (á við um sokka): Fækkið lykkjum á undan merki: Prjónið 2 l saman. Fækkið lykkjum á eftir merki: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PONCHO - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað neðan frá og upp að hálsmáli á hringprjóna. Stykkið er alveg eins allan hringinn. PONCHO: Fitjið upp 272-288-300 (340-360) l á hringprjóna nr 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4 og prjónið síðan 1 umf slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 56-60-60 (68-72) l jafnt yfir = 216-228-240 (272-288) l. Næsta umf er prjónuð þannig: * M.1, 28-30-32 (26-28) l br, M.2, 28-30-32 (26-28) l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3 (4-4) sinnum. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Haldið áfram að prjóna samkvæmt mynstri – JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 l vinstra megin við hverja br mynstureiningu með því að prjóna 2 l slétt. Prjónið 1-1-1 (2-2) umf og endurtakið úrtöku í næstu umf, til skiptis hægra og vinstra megin við br mynstureiningar alls 22-23-25 (20-21) sinnum = 84-90-90 (112-120) l. Prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 3 l yfir allar M.1 og M.2 = 66-72-72 (88-96) l. Prjónið síðan 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 10-12-16 (12-12) l jafnt yfir = 76-84-88 (100-108). Stykkið mælist nú ca 20-21-23 (26-27) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl/ 2 l br i 3-4-4 (5-6) cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist nú alls ca 23-25-27 (31-33) cm. ------------------------------------------------------- HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp á topp. HÚFA: Fitjið upp 96-100-100 (104-112) l á hringprjóna nr 3,5 með DROPS Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 2 l sl / 2 l br. Þegar stroffið mælist 4-4-5 (5-5) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú slétt JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-8 (8-8) l jafnt yfir = 100-104-108 (112-120) l. Haldið áfram að prjóna þannig: 3-3-3 (4-5) l br, M.2, 6-7-8 (8-9) l br, M.3, 6-7-8 (8-9) l br, M.2, 6-6-6 (8-10) l br, M.2, 6-7-8 (8-9) l br, M.3, 6-7-8 (8-9) l br, M.2, 3-3-3 (4-5) l br. Þegar stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm prjónið næstu umf þannig: * 3 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 0-4-3 (2-0) l eru eftir, þær eru prjónaðar br = 80-84-87 (90-96) l. Haldið áfram með br yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 17-18-19 (20-21) l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 12-12-11 (10-12) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. Húfan mælist alls ca 14-15-16 (17-18) cm. ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 30-30-36 (36-36) l á sokkaprjóna nr 3 með DROPS Merion Extra Fine. Prjónið stroffprjón = 3 l sl/ 3 l br í 8-8-9 (9-10) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Prjónið nú 1 l sl og 1 l br. Haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt merki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 7-8-9 (9-10) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l á fætir eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá merki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½ að loka máli). Setjið nú merki í hvora hlið, þ.e.a.s. þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við merkin – sjá LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umf 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk á sama hátt. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babydoveset eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.