DROPS Design NL skrifaði:
Hoi. Je breit 1 nld av en dan weer de boordsteek zoals eerst. Meerder vervolgens elk tweede gedeelte met 2 av naar 3 av. Meerder bij een hoogte van 6 cm de overige 2 av naar 3 av. En zo voort. Succes.
22.12.2011 - 20:59
Bep Huigen skrifaði:
Hallo, ik ben begonnen met het kerst hondenjasje. Helaas kom ik niet verder dan de eerste 4 cm. Ook nog aan verschillende breisters gevraagd, maar niemand kwam eruit. Graag hulp!
22.12.2011 - 14:21
Jeanette skrifaði:
Dit blijft een leuk patroon!
09.12.2011 - 12:07
DROPS Design NL skrifaði:
Hoi. Dit is een probleem met de opzet van uw printer. Ik weet helaas niet hoe u dit moet veranderen, maar misschien als liggend printen? Gr. Tine
21.12.2008 - 20:24
DROPS Design NL skrifaði:
Als ik hier een proefdruk maak, komt alles goed uit de printer. Ik weet helaas niet waar het aan ligt dat het bij u niet goed gaat.
18.12.2008 - 11:33
Jane skrifaði:
Als ik de patronen afdruk, dan komen de eindzinnen nuiet helemaal op het papier? ligt dat aan het patroon (beschrijving?) Het gaat om alle patroon beschrijvingen....
18.12.2008 - 11:06
Santa's BFF#santasbffsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð hundapeysa / peysa fyrir hund úr DROPS Alpaca og DROPS Pudel eða DROPS Melody. Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti í stroffprjóni með hettu og hekluðum kanti. Stærð XS – M. Þema: Jól.
DROPS Extra 0-521 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað frá hálsi og að skotti. Hálsmál og berustykki er prjónað í hring. Berustykkið skiptist fyrir op fyrir framfætur, bakstykki og magastykki er prjónað fram og til baka. Síðan er stykkið sett saman og fram- og bakstykki er prjónað í hring þar til lykkjur eru felldar af undir magastykki, afgangur af fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka. Prjónað er í kringum op fyrir framfætur í hring og hettan er prjónuð fram og til baka. Í lokið er heklaður kantur í kringum op fyrir framfætur, fram- og bakstykki og hettu. Dúskur er gerður og settur í toppi á hettu. HÁLSMÁL: Fitjið upp 48-64-80 lykkjur á sokkaprjóna / hringprjóna 4 með 2 þráðum DROPS Alpaca. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 4-6-8 cm. Prjónið 1 umferð brugðið (í þessa brugðnu umferð á að taka upp lykkjur fyrir hettu síðar). Prjónið 1 umferð stroffprjón eins og áður, í næstu umferð er aukið út í annarri hverri einingu með 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 54-72-90 lykkjur. BERUSTYKKI: Prjónið stroffprjón þar til stykkið mælist 6-10-14 cm, nú er aukið út í þeim einingum sem eftir eru frá 2 lykkjur brugðið til 3 lykkjur brugðið = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni (2 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið). Þegar stykkið mælist 8-12-16 cm skiptist stykkið fyrir op fyrir framfætur þannig: Fellið af 2 lykkjur slétt, setjið næstu 13-18-23 lykkjur á þráð (= mitt undir magastykki), fellið af 2 lykkjur slétt, prjónið þær 43-58-73 lykkjur sem eftir eru eins og áður. BAKSTYKKI: = 43-58-73 lykkjur. Haldið áfram að prjóna stroffprjón fram og til baka þar til stykkið mælist 5-8-10 cm frá skiptingu, setjið lykkjurnar síðan á þráð. MAGASTYKKI: Setjið 13-18-23 lykkjur frá magastykki til baka á prjóninn og prjónið stroffprjón í 5-8-10 cm. FRAM- OG BAKSTYKKI: Síðan eru allar lykkjur settar til baka á prjóninn. Haldið áfram í stroffprjóni hringinn eins og áður JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í hvorri hlið á milli magastykkis og bakstykkis = 60-80-100 lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist 20-28-35 cm fellið af 9-10-13 lykkjur mitt undir magastykki. Stykkið er prjónað til loka fram og til baka – JAFNFRAMT eru lykkjur felldar af í hvorri hlið í byrjun umferðar þannig: 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 2-5-7 sinnum, 2 lykkjur 1 sinni og 3 lykkjur 1 sinni. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru 29-42-55 lykkjur. Stykkið mælist ca 25-35-45 cm. FRAMFÓTUR: Prjónið upp 36-52-64 lykkjur með 1 þræði Alpaca með sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroffprjón (2 lykkjur slétt / 2 lykkjur brugðið) í 3-5-7 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt. HETTA: Brettið kragann / hálsmálið inn í peysuna við brugðnu umferðina. Haldið peysunni þannig að brugðna umferðin snúi frá þér. Takið upp lykkjur í þessari umferð með 1 þræði DROPS Alpaca á stuttan hringprjón 3 – ekki taka upp lykkjur í 6-10-14 lykkjur mitt undir magastykki, en í þær lykkjur sem eftir eru hringinn = 42-54-66 lykkjur. Prjónið 1 umferð brugðið til baka -JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 70-90-110 lykkjur þannig: * Prjónið 1 lykkju, prjónið 2 lykkjur í næstu 2 lykkjur *, endurtakið út umferðina. Prjónið sléttprjón fram og til baka með 3 lykkjur GARÐAPRJÓN – lesið útskýringu að ofan – í hvorri hlið þar til hettan mælist 12-16-20 cm. Til að hettan verði sem fallegust er best að lykkja hettuna saman efst án þess að fella af, ef þetta er of flókið þá er hægt að fella af og sauma hettuna saman með lykkjuspori. HEKLAÐUR KANTUR: Heklið með DROPS Puddel eða DROPS Melody og heklunál 6 hringinn á hettunni, neðst í kringum op fyrir framfætur og neðst í kringum kant á fram- og bakstykki – passið uppá að kanturinn verði ekki of stífur. Festið þráðinn með 1 keðjulykkju og heklið þannig: 1 loftlykkja sem kemur í stað fyrstu fastalykkju, * 1 loftlykkja, hoppið yfir 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* og endið með 1 loftlykkju, hoppið yfir 1 cm og heklið 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun umferðar. DÚSKUR: Gerið 1 dúsk ca 5 cm að þvermáli með DROPS Puddel eða DROPS Melody. Festið dúskinn í toppinn á hettunni. |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #santasbffsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 20 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2025 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Skrifaðu athugasemd um DROPS Extra 0-521
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.