Warm Cheeks Jumpsuit#warmcheeksjumpsuit |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Air. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-16 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- 2 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD: Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið 2 lykkjur þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kantlykkjur að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn brugðið, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-5-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 5-6-5½-6-5½-5½ cm á milli hverra hnappagata. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til kantlistinn að framan hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Eftir kantlistann að framan er stykkið sett saman og síðan prjónað í hring. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 59-59-67-71-79-83 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Air, notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 2 KANTLYKKJUR MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 3 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 2 kantlykkjur i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 2,5-3 cm, endið með umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kantlykkjur í annarri hlið á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 12-12-14-14-16-16 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 7-7-7-9-9-11 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 17-17-21-21-25-25 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 7-7-7-9-9-11 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju. Það eru 12-12-14-14-16-16 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka með kantlykkjur eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við lykkju með merki + 1 lykkja í hvorri hlið (= 3 laskalykkjur) – lesið leiðbeiningar að ofan hvernig auka á út, jafnframt í fyrstu umferð er fækkað um 1 lykkju á bakstykki og 1 lykkju á hvoru framstykki = 64-64-72-76-84-88 lykkjur (á eftir fyrstu útaukningu fyrir laskalínu). Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, aukið er út hvoru megin við laskalykkjurnar þar til aukið hefur verið út alls 11-12-13-12-13-13 sinnum = 144-152-168-164-180-184 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Útaukningu fyrir ermar er nú lokið, en haldið áfram að auka út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð 3-3-2-4-3-5 sinnum til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð) = 156-164-176-180-192-204 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Stykkið mælist nú ca 11-12-12-13-13-14 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 26-27-29-30-32-34 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 29-31-33-33-35-37 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 56-62-66-70-76-78 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 29-31-33-33-35-37 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 26-27-29-30-32-34 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 106-114-122-130-138-146 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur að framan eins og áður þar til stykkið mælist 28-34-36-39-42-44 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú er stykkið sett saman og prjóna á í hring og í sléttprjóni – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan. Prjónið kantlykkjur að framan og sléttprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, leggið þessar lykkjur ofan á fyrstu 6 lykkjur frá vinstri hlið og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægri hlið slétt saman með 1 lykkju frá vinstri hlið) = 100-108-116-124-132-140 lykkjur. Prjónið síðan stykkið í hring – setjið 1 merki fyrir miðju í 6 lykkjurnar sem prjónaðar voru saman – þetta er núna byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 31-37-39-42-45-47 cm frá merki fyrir miðju að framan (það hafa verið prjónaðir 3 cm hringinn yfir allar lykkjur). Nú á að skipta stykkinu fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 44-48-52-56-60-64 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 44-48-52-56-60-64 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm. Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. SKÁLMAR: = 44-48-52-56-60-64 lykkjur. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 38-42-46-50-54-58 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til skálmin mælist 8-11-17-24-28-32 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið). Þegar stroffið mælist 3-3-3-4-4-4 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Skálmin mælist ca 11-14-20-28-32-36 cm frá skiptingunni. ERMAR: Setjið 29-31-33-33-35-37 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 4-6-6-8-8-8 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 33-37-39-41-43-45 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 4-6-6-8-8-8 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtökuna þegar stykkið mælist 3 cm = 29-33-35-37-39-41 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 7-10-14-17-21-24 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 3-3-3-3-5-5 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 32-36-38-40-44-46 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3 cm fellið af með ítalskri affellingu eða fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 10-13-17-20-24-27 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að framan við 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #warmcheeksjumpsuit eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 19 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.