Lessis skrifaði:
2 spørsmål: skal halskanten syes dobbelt? Ser sånn ut på. bildet. Og er det rett at det bare skal felles 2 gg på ermene? Takk
17.10.2026 - 15:42DROPS Design svaraði:
Hei Lessis, Nei, halsen er ikke dobbel, men du kan strikke en dobbelhals hvis du vil. På ermene felles det bare 2 ganger. Hilsen Drops Team.
18.10.2026 - 11:10
Sissel skrifaði:
Å takk - nå skjønte jeg.
15.10.2026 - 14:41DROPS Design svaraði:
Hej Sissel, ser at du har fundet ud af det :)
15.10.2026 - 15:16
Baby Blue Bird Overall#babybluebirdoverall |
|
![]() |
![]() |
Prjónaður galli fyrir börn úr DROPS Alpaca. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og i-cord. Stærð 0 – 4 ára.
DROPS Baby 53-5 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 4 lykkjur í garðaprjóni. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 6 lykkjur): Prjónið þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 4 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 5-6-6-6-7-7 næstu hnappagötum með ca 5-5-5½-6-5½-5½ cm á milli hverra hnappagata. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJUR (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merki þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 4 lykkjur slétt (merkið situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna þar til kantur fyrir hnappagöt hefur verið prjónaður til loka, á meðan ermarnar bíða. Eftir kant fyrir hnappagöt er stykkið sett saman og síðan prjónað í hring. Stykkið skiptist fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð í hring. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 78-86-86-102-102-110 lykkjur á hringprjón 2 með DROPS Alpaca. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 6 kantlykkjur að framan með I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið), þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. UMFERÐ 2 (= ranga): 6 kantlykkjur að framan með i-cord, prjónið stroff (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) þar til 8 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur brugðið og 6 kantlykkjur að framan með i-cord. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur í hálsmáli mælist 2½-3 cm frá uppfitjunarkanti – endið með umferð frá röngu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= fyrir miðju að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Teljið 15-15-15-19-19-19 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-16-16-16-16-20 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 24-24-24-32-32-32 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 12-16-16-16-16-20 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju. Það eru 15-15-15-19-19-19 lykkjur eftir í umferð fyrir hægra framstykki. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri), munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT í fyrstu umferð – lesið leiðbeiningar að ofan. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 10-9-11-15-14-9 sinnum (= 20-18-22-30-28-18 umferðir prjónaðar) = 158-158-174-222-214-182 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður (munið eftir að prjóna uppsláttinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á undan 1. og 3. merki og á eftir 2. og 4. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-5-5-2-4-7 sinnum (= 12-20-20-8-16-28 umferðir prjónaðar = 3-5-5-2-4-7 sinnum útaukning á ermum og 6-10-10-4-8-14 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki) = 194-218-234-246-262-266 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út 16-19-21-19-22-23 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 13-14-16-17-18-16 sinnum á ermum. Prjónið sléttprjón og kant að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 10-11-12-12-13-14 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 31-34-36-38-41-42 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 38-44-48-50-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 56-62-66-70-76-78 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 38-44-48-50-52-52 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 31-34-36-38-41-42 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 130-142-150-162-174-182 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 28-33-35-38-41-43 cm frá merki fyrir miðju að framan. Kantar að framan hafa núna verið prjónaðir til loka. Nú er stykkið sett saman og prjóna á í hring – prjónið frá réttu eins og útskýrt er að neðan. Prjónið kant að framan og sléttprjón eins og áður þar til 6 lykkjur eru eftir í umferð (= hægri kantur að framan), leggið hægri kant að framan ofan á 6 lykkjur frá vinstri kanti að framan og prjónið lykkjurnar saman 2 og 2 (prjónið 1 lykkju frá hægri kanti að framan slétt saman með 1 lykkju frá vinstri kanti að framan) = 124-136-144-156-168-176 lykkjur í umferð. Prjónið síðan stykkið í hring – setjið 1 merki fyrir miðju í 6 lykkjur frá kanti að framan – þetta er núna byrjun umferðar. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 31-36-38-41-44-46 cm frá merki fyrir miðju að framan við hálsmál. Nú á að skipta stykkinu fyrir skálmar og hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. SKIPTING FYRIR SKÁLMAR: Stykkið skiptist upp fyrir skálmar án þess að lykkjurnar séu prjónaðar: Byrjið 3 lykkjum á undan merki í byrjun umferðar, setjið fyrstu 6 lykkjurnar (= miðja að framan) á lykkjuhaldara, setjið næstu 56-62-66-72-78-82 lykkjur á þráð (= vinstri skálm), setjið næstu 6 lykkjur á lykkjuhaldara (= miðja að aftan), það eru 56-62-66-72-78-82 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægri skálm. Hvor skálm er prjónuð áfram hvor fyrir sig. SKÁLMAR: = 56-62-66-72-78-82 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3. Setjið 1 merki í byrjun umferðar (= að innanverðu á skálm) og prjónið sléttprjón hringinn. Þegar prjónuð hefur verið 1 umferð, fækkið um 2 lykkjur að innanverðu á skálminni – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 2 sinnum = 52-58-62-68-74-78 lykkjur í umferð. Prjónið sléttprjón hringinn þar til skálmin mælist 6-9-15-23-27-31 cm frá skiptingunni. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= í hlið á skálm). Haldið áfram í sléttprjóni og fækkið um 2 lykkjur að utanverðu á skálm – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Fækkið lykkjum svona í 3. hverri umferð alls 3 sinnum = 46-52-56-62-68-72 lykkjur. Prjónið þar til skálmin mælist 8-11-17-25-29-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff hringinn (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Skálmin mælist ca 11-14-20-28-32-36 cm frá skiptingunni. ERMAR: Setjið 38-44-48-50-52-52 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á sokkaprjóna 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-6-8-8-10 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 44-50-54-58-60-62 lykkjur. Setjið 1 merki fyrir miðju í 6-6-6-8-8-10 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkið. Prjónið sléttprjón hringinn - JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA. Endurtakið úrtökuna þegar stykkið mælist 3 cm = 40-46-50-54-56-58 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 9-12-16-19-23-26 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) í 3 cm. Fellið aðeins laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 12-15-19-22-26-29 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið saman 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að framan við 6 lykkjurnar frá lykkjuhaldaranum fyrir miðju að aftan – saumið með lykkjuspori, þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #babybluebirdoverall eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 27 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 53-5
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.