Anne skrifaði:
I really find the size selector tool helpful— will this pattern get that feature? Thanks so much!
12.11.2026 - 02:40DROPS Design svaraði:
Hi Anne, We have a size chart at the bottom of the pattern, with all the measurements for the different sizes. Regards, Drops Team.
12.11.2026 - 06:17
Ida skrifaði:
Skal man øke raglan to runder på rad når man går over til å strikke rundt? Man går fra pinne på retten med økning, til første pinne beskrevet ved bærestykket hvor man også skal øke
11.11.2026 - 21:31DROPS Design svaraði:
Hei Ida, Du har rett. Du trenger å strikke en omgang uten økninger først, slik at du ikke har 2 x økninger etter hverandre. Hilsen Drops Team.
12.11.2026 - 06:30
Anna Smit skrifaði:
On het patroon staat: als u teveel steken heeft op 10 cm. gebruikt dan een grotere naald. Ik denk dat er dan een kleinere/dunnere breinaald gebruikt moet worden..
19.10.2026 - 22:35
Midnight Dream Sweater#midnightdreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-13 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- LASKALÍNA – þegar prjónað er fram og til baka: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. LASKALÍNA – þegar prjónað er í hring: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN LASKALYKKJU: Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR LASKALYKKJU: Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Stykkið er prjónað ofan frá og niður. Lykkjur eru fitjaðar upp fyrir hálsmáli og prjónað er fram og til baka á hringprjóna með útaukningu fyrir laskalínu – jafnframt eru lykkjur fitjaðar upp í hvorri hlið á prjóni að tilgreindum lykkjufjölda og hálsmálið formað til loka. Síðan er berustykkið prjónað í hring á hringprjóna, ofan frá og niður. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp í kringum hálsmál og kantur í hálsmáli er prjónaður í hring. Kantur í hálsmáli er síðan brotinn niður tvöfaldur að röngu og saumaður niður. HÁLSMÁL: Fitjið upp 54-54-56-58-60-62-64 lykkjur á hringprjón 5,5 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Nú eru 4 merki sett í stykkið jafnframt því sem næsta umferð er prjónuð, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur slétt (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 18-18-20-22-24-26-28 lykkjur slétt (= bakstykki), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 15 lykkjur (= ermi), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju slétt og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 64-64-66-68-70-72-74 maskor. UMFERÐ 2 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur (munið að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 66-66-68-70-72-74-76 lykkjur. UMFERÐ 3 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 76-76-78-80-82-84-86 lykkjur. UMFERÐ 4 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar = 78-78-80-82-84-86-88 lykkjur. UMFERÐ 5 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = = 87-87-89-91-93-95-97 lykkjur. UMFERÐ 6 (= frá röngu): Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, fitjið upp 1 nýja lykkju í lok umferðar = 88-88-90-92-94-96-98 lykkjur. Aukið hefur verið út 3 sinnum fyrir laskalínu og það hafa verið fitjaðar upp 5 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir hálsmáli. Prjónið síðan þannig: UMFERÐ 1 (= frá réttu): Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu eins og útskýrt er að ofan, fitjið upp 6-6-8-10-12-14-16 nýjar lykkjur fyrir hálsmáli í lok umferðar = 102-102-106-110-114-118-122 lykkjur. Síðan er berustykkið prjónað í hring yfir allar lykkjur eins og útskýrt er að neðan. Það eru núna 26-26-28-30-32-34-36 lykkjur frá bakstykki og á framstykki, 23 lykkjur á hvorri ermi og 1 lykkja í hverri laskalínu. BERUSTYKKI: Prjónið sléttprjón hringinn. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 1-4-7-7-7-5-3 sinnum (= 2-8-14-14-14-10-6 umferðir prjónaðar) = 110-134-162-166-170-158-146 lykkjur í umferð. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjur (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón, nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni (munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á eftir 2. og 4. merki og á undan 3. og 1. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 9-9-8-8-9-11-13 sinnum (= 18-18-16-16-18-22-26 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki og 9-9-8-8-9-11-13 sinnum útaukning á ermum) = 218-242-258-262-278-290-302 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 23-26-27-27-29-31-33 sinnum á framstykki/bakstykki og 14-17-19-19-20-20-20 sinnum á ermum (ásamt útaukningu þegar hálsmál var formað). Stykkið mælist 24-27-28-28-31-33-35 cm frá miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Jafnframt sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fram til og með fyrstu laskalykkju og haldið þessari lykkju eftir í umferð, setjið næstu 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 66-72-76-78-84-90-96 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu lykkjur frá framstykki = 66-72-76-78-84-90-96 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 144-156-168-180-196-212-228 lykkjur. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 45-47-49-51-52-54-56 cm frá uppfitjunarkanti fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-16-18-18-20-22 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 158-170-184-198-214-232-250 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá miðju að aftan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 43-49-53-53-55-55-55 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 6-6-8-12-14-16-18 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 49-55-61-65-69-71-73 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 6-6-8-12-14-16-18 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT í fyrstu umferð á eftir skiptingunni, er lykkjum fækkað fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur með 0-4-3½-3-3-3-3 cm millibili alls 1-3-5-6-7-7-7 sinnum = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur. Prjónið síðan þar til ermin mælist 38-36-35-36-33-31-29 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 4 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 5-5-5-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 52-54-56-58-60-64-66 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af aðeins laust með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 42-40-39-40-38-36-34 cm frá skiptingunni. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Notið hringprjón 4 með 1 þræði DROPS Melody eða 2 þráðum DROPS Brushed Alpaca Silk. Byrjið frá réttu við hægri öxl að aftan og prjónið upp ca 90 til 100 lykkjur í kringum hálsmál – lykkjufjöldinn á að vera deilanlegur með 2. Prjónið stroff hringinn (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 9-9-9-9-10-10-10 cm. Fellið af aðeins laust. FRÁGANGUR: Brjótið niður stroffið efst í hálsmáli að innanverðu að stykki. Saumið stroffið niður þannig að það myndist tvöfaldur kantur í hálsmáli. Til að koma í veg fyrir að kanturinn dragi stykkið saman og beygist út, er mikilvægt að saumurinn sé teygjanlegur. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #midnightdreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.