Selma skrifaði:
Hur långa tid ungefär tar den att sticka?
22.10.2026 - 19:40DROPS Design svaraði:
Hej Selma. Det är väldigt olika från person till person beroende på hur snabbt man stickar och hur van man är att sticka, så det kan vi dessvärre inte svara på. Mvh DROPS Design
23.10.2026 - 12:08
Cinnamon Dream Sweater#cinnamondreamsweater |
|
![]() |
![]() |
Prjónuð peysa úr 2 þráðum DROPS Kid-Silk eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og trompetermum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-22 |
|
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÍTÖLSK UPPFITJUN (einföld aðferð): Með þessari uppfitjun er helmingur af lykkjunum fitjaður upp sem gefinn er upp í mynstri, síðan eykst lykkjufjöldinn í fyrstu umferð á eftir uppfitjuninni. Það eru prjónaðar 2 umferðir fram og til baka áður en stykkið er prjónað í hring. Fitjið upp lykkjur utan um 2 prjóna sem haldið er saman (notið grófustu prjónastærðina úr uppskriftinni = prjónastærð 4,5), fitjið upp 46-48-48-50-54-56-58 lykkjur. Dragið út annan prjóninn og prjónið með hringprjóna 3,5 og aukið nú lykkjufjöldann – prjónið þannig: UMFERÐ 1 (snúið stykkinu og prjónið umferðina til baka = ranga): * Prjónið 1 lykkju brugðið, takið upp lykkju frá þræðinum sem prjónað er með þannig: Takið hægri prjóninn, undir og aftan við stykkið framan við þráðinn og dragið prjóninn fram með þráðinn aftur framan við stykkið (= 1 ný lykkja á hægri prjóni) *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 1 lykkju brugðið = 91-95-95-99-107-111-115 lykkjur. UMFERÐ 2 (snúið stykkinu og prjónið umferðina til baka = rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, 1 lykkja brugðið (= þráðurinn sem tekinn var upp) *, prjónið frá *-* þar til 1 lykkja er eftir, prjónið 2 lykkjur í síðustu lykkjuna þannig: 1 lykkja slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn og 1 lykkja brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn = 92-96-96-100-108-112-116 lykkjur. UMFERÐ 3 (ekki snúa stykkinu – héðan er prjónað í hring = rétta): Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur. Prjónið síðan kant í hálsmáli eins og útskýrt er í mynstri. LASKALÍNA: Aukið út um 2 lykkjur á milli 2 lykkja með því að taka upp þráðinn á milli þessa 2 lykkja – sami þráður er tekinn upp 2 sinnum. Notið vinstri prjóninn til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni að neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Notið vinstri prjón til að taka upp sama þráð einu sinni til viðbótar, þráðurinn er tekinn upp að aftan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 92-96-96-100-108-112-116 lykkjur með hringprjón 3,5 með 1 þræði í hvorum lit með DROPS Kid-Silk (= 2 þræðir) eða 1 þræði DROPS Brushed Alpaca Silk – fitjið e.t.v. upp með ÍTÖLSK UPPFITJUN – lesið útskýringu að ofan. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm. Setjið eitt merki í byrjun umferðar (= miðja að aftan), stykkið er síðan mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 2 umferðir sléttprjón. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett á milli 2 lykkja og auka á út fyrir laskalínu við hvert merki – það er aukið út á milli 2 lykkja eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Teljið 15-16-16-17-17-18-19 lykkjur (= hálft bakstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 15-15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 31-33-33-35-35-37-39 lykkjur (= framstykki), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 15-15-15-15-19-19-19 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, Það eru eftir 16-17-17-18-18-19-20 lykkjur fram að miðju að aftan (= hálft bakstykki). Prjónið sléttprjón hringinn og aukið út 2 lykkjur fyrir laskalínu við hvert merki – lesið LASKALÍNA í útskýringu að ofan með leiðbeiningum hvernig auka á út. Aukið út fyrir laskalínu í annarri hverri umferð, alls 18-20-22-24-25-27-29 sinnum = 236-256-272-292-308-328-348 lykkjur (= 8 lykkjur fleiri í hverri útaukningsumferð). Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan í sléttprjóni án þess að auka út þar til stykkið mælist 19-20-21-22-22-24-26 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar þá koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 35-37-39-43-46-50-54 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki), setjið næstu 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 71-75-79-87-93-101-109 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 36-38-40-44-47-51-55 lykkjur í sléttprjóni (= hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 162-174-186-206-222-242-262 lykkjur. Prjónið sléttprjón hringinn þar til stykkið mælist 43-45-47-49-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að aftan. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 18-20-20-22-24-28-30 lykkjur jafnt yfir í umferð 1= 180-194-206-228-246-270-292 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 46-48-50-52-53-55-57 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 50-52-54-56-58-60-62 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-53-57-59-61-63-65 lykkjur frá ermi af öðrum þræðinum á hringprjón 4,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 10-12-14-16-18-20-22 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 57-65-71-75-79-83-87 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 10-12-14-16-18-20-22 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-3-3-3-3 sinnum = 53-61-67-69-73-77-81 lykkjur í umferð. Fækkið síðan um 2 lykkjur í með ca 7-3-2-7-7-7-6 cm millibili alls 3-5-6-3-2-2-2 sinnum = 47-51-55-63-69-73-77. Prjónið síðan þar til ermin mælist 18-18-17-17-16-16-15 cm frá skiptingunni. Í næstu umferð er aukið út 5-5-5-4-4-4-4 lykkjur jafnt yfir. Aukið svona út í ca 6. hverjum cm alls 4-4-4-4-3-3-3 sinnum = 67-71-75-79-81-85-89 lykkjur. Prjónið þar til ermin mælist 43-42-42-42-42-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 7-7-7-9-9-9-9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 74-78-82-88-90-94-98 lykkjur. Þegar stroffið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 46-45-45-45-46-44-42 cm frá skiptingunni. |
|
![]() |
|
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #cinnamondreamsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 23 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-22
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.