Monika skrifaði:
Kan man sticka den här tröjan nerifrån och upp
31.10.2026 - 11:27DROPS Design svaraði:
Hei Monika. Blir ikke 100% lik (kommer an på hvordan du strikker flettene), men les godt igjennom oppskriften og se hvor du må gjøre forandringene ( f.eks økninger/fellinger, diagrammene, målene). mvh DROPS Design
02.11.2026 - 11:53
Emma skrifaði:
Hallo, in welcher Größe trägt das Model den Pullover?
11.10.2026 - 17:38DROPS Design svaraði:
Liebe Emma, unsere Models tragen meistens entweder eine Größe S oder eine Größe M; hier lesen Sie mehr, wie man seine Größe wählen soll. Viel Spaß beim Stricken!
12.10.2026 - 09:43
Riverside Braids Sweater#riversidebraidssweater |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Fiesta. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og áferðamynstri. Stærð XS – XXXL.
DROPS 273-16 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. Finndu þína stærð og byrjaðu í tilgreinda ör (á við A.4 og A.5). Lykkjufjöldinn í A.4x og A.5x kemur til með að breytast, en gatakaðallinn er alltaf talinn sem 3 lykkjur. LASKALÍNA: Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið síðan nýjar lykkjur jafnóðum inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING – í skiptinguna yfir í stroff: Þegar lykkjum er aukið út jafnt yfir út í skiptinguna yfir í stroff er mikilvægt að auka út þar sem lykkjurnar verða síðar prjónaðar brugðið, sléttprjónið heldur þá fallega áfram inn í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með merki þannig: Prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir á lykkju með merki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt (merkið situr í þessari lykkju), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður. Kaðlar eru einungis prjónaðir á framstykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 104-110-112-114-118-120-124 lykkjur á hringprjón 3 með DROPS Fiesta. Prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) í 3½-3½-3½-4-4-4-4 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 37-38-39-40-40-41-41 lykkjur í umferð (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 4 merki í stykkið jafnframt því sem lykkjurnar eru prjónaðar, merkin eru sett í slétta lykkju og þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og eru prjónaðar í sléttprjóni. Prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1. merki í þessa lykkju, prjónið 19 lykkjur slétt jafnframt því sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir þessar (= 15 lykkjur fyrir ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 2. merki í þessa lykkju, prjónið 31-33-35-37-37-39-39 lykkjur slétt jafnframt sem aukið er út um 7-5-7-5-5-7-7 lykkjur jafnt yfir þessar (= 38-38-42-42-42-46-46 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 3. merki í þessa lykkju, prjónið 19 lykkjur slétt jafnframt því sem fækkað er um 4 lykkjur jafnt yfir þessar (= 15 lykkjur fyrir ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 4. merki í þessa lykkju, það eru eftir 31-35-35-35-39-39-43 lykkjur á eftir síðasta merki (= bakstykki). Það eru alls 103-107-111-111-115-119-123 lykkjur í umferð. Nú er prjónað MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan, JAFNFRAMT sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við 4 laskalykkjurnar – lesið leiðbeiningar að ofan. Útaukning fyrir laskalínu er sýnd í mynsturteikningu. Mynstrið er prjónað þannig: Prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið A.3 (= ermi), prjónið laskalykkju, prjónið A.4 og A.5 – munið eftir að byrja við tilgreinda ör (= framstykki), prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 13 lykkjur, prjónið A.3 (= ermi), prjónið laskalykkju slétt, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir næstu 29-33-33-33-37-37 lykkjur, prjónið A.3 (= bakstykki). Lesið báða næstu kafla áður en prjónað er áfram til að fá yfirsýn yfir mynstrið og laskaútaukninguna og haldið áfram með mynstrið hringinn – munið eftir að prjóna uppsláttinn í laskaútaukningunni eins og útskýrt er að ofan. MYNSTUR: Þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina, heldur útaukningin áfram í perluprjóni (= A.2) á sama hátt yfir ermar og bakstykki, nýjar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur. Þegar A.4 og A.5 hefur verið prjónað til loka á hæðina, prjónið A.4x og A.5x yfir 42 miðjulykkjur á framstykki, haldið áfram með perluprjón og útaukningu í perluprjóni (= A.2) í hvorri hlið eins og áður. Munið að fylgja prjónfestunni. LASKALÍNA: Aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (eins og útskýrt er í mynsturteikningu) í annarri hverri umferð alls 12-18-20-22-20-20-18 sinnum (= 24-36-40-44-40-40-36 umferðir prjónaðar) = 201-253-273-289-277-281-269 lykkjur (munið eftir að gatakaðlarnir eru taldir sem 3 lykkjur óháð umferð). Aukið síðan út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki í annarri hverri umferð, en á ermum er einungis aukið út í 4. hverri umferð (þ.e.a.s. í annað hvert skipti er hoppað yfir útaukningu á ermum og eru lykkjur einungis auknar út fyrir laskalínu á framstykki og bakstykki). Aukið út á framstykki/bakstykki í annarri hverri umferð 20-16-16-16-20-24-28 sinnum og á ermum í 4. hverri umferð 10-8-8-8-10-12-14 sinnum (= 40-32-32-32-40-48-56 umferðir prjónaðar). Þ.e.a.s. aukið hefur verið út alls 32-34-36-38-40-44-46 sinnum á framstykki/bakstykki og 22-26-28-30-30-32-32 sinnum á ermum. Eftir alla útaukningu eru 59-67-71-75-75-79-79 lykkjur á hvorri ermi, 95-103-107-111-119-127-135 lykkjur á bakstykki, 104-108-116-120-124-136-140 lykkjur á framstykki (munið eftir að gatakaðlar eru taldir sem 3 lykkjur óháð umferð) og 4 laskalykkjur = 321-349-369-385-397-425-437 lykkjur í umferð. Stykkið mælist ca 23-24-26-27-29-31-33 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Setjið fyrstu 61-69-73-77-77-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 104-108-116-120-124-136-140 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 61-69-73-77-77-81-81 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 9-9-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 95-103-107-111-119-127-135 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 217-229-249-265-277-305-325 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður – nýjar lykkjur undir hvorri ermi eiga að ganga jafnt upp í perluprjóni (= A.2). Prjónið þar til stykkið mælist 43-45-47-49-50-52-54 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 21-23-27-31-35-39-43 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kaðla fyrir miðju að framan) – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 238-252-276-296-312-344-368 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 61-69-73-77-77-81-81 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 9-9-13-17-17-21-25 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 70-78-86-94-94-102-106 lykkjur. Setjið 1 merki mitt í 9-9-13-17-17-21-25 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar í þessari lykkju og þessi lykkja er alltaf prjónuð í sléttprjóni. Prjónið mynstur hringinn eins og áður, stillið af að mynstur A.2 haldi áfram eins og áður frá berustykki yfir á ermi – mynstrið kemur ekki alltaf til með að ganga jafnt upp undir ermi – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðu undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-3-4-5-5-6-7 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hverjum 10-7-4½-3½-3-2½-2 cm 2-4-6-8-7-9-9 sinnum = 62-64-66-68-70-72-74 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist ca 36-35-34-34-31-30-28 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 12-12-14-14-14-14-14 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 74-76-80-82-84-86-88 lykkjur. Þegar stroffið mælist 5-5-5-5-6-6-6 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 41-40-39-39-37-36-34 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #riversidebraidssweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 26 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-16
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.