Biggi skrifaði:
Wo bekommt man denn rundnadeln in Größe 2? Die fangen doch erst bei 3 an
13.10.2026 - 20:17DROPS Design svaraði:
Liebe Biggi, unsere Nadel beginnen mit Größe 2 - siehe hier - wählen Sie die gewünschte Nadel und so finden Sie die Liste von DROPS Händlern, die die Stricknadeln führen - gerne können Sie Ihnen mal fragen, wenn sie einige bekommen werden, falls sie momentan keine mehr haben. Viel Spaß beim Stricken!
14.10.2026 - 07:17
White Hive Sweater#whitehivesweater |
||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum og perluprjóni. Stærð XS – XXXL.
DROPS 271-25 |
||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.5. LASKALÍNA: AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni fyrir neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinn fyrir neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi með því að prjóna 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri) – stillið af að úrtakan passi við mynstur þannig að hún fylgi merkiþræði ca fyrir miðju undir ermi. ATH: Þegar perluprjón er prjónað í hring, er eðlilegt að áferðin vindi aðeins uppá sig þegar prjónað er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Kaðlar eru einungis prjónaðir á framstykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-128-132-140-144-148-156 lykkjur á hringprjón 2 með DROPS Baby Merino eða DROPS Flora. Prjónið stroff í hring (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) í 2½-2½-2½-2½-3-3-3 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 41-42-43-44-46-47-49 lykkjur í umferð (= mitt að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Í næstu umferð eru sett 4 merki – merkin eru sett í lykkju sem eru kallaðar laskalykkjur. Laskalykkjurnar eru alltaf prjónaðar brugðið og sitja í skiptingunni á milli framstykkis/bakstykkis og erma. Jafnframt eru lykkjur auknar út jafnt yfir með uppslætti á framstykki og bakstykki sem útskýrt er að neðan – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið fyrstu umferð þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið 17 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 1 lykkju brugðið og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt yfir næstu 45-47-49-53-55-57-59 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 13-11-9-13-11-9-7 lykkjur jafnt yfir þær (= 58-58-58-66-66-66-66 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju brugðið og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið 17 lykkjur slétt (= ermi), prjónið 1 lykkju brugðið og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið slétt yfir næstu 41-43-45-49-51-53-55 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 2 lykkjur jafnt yfir þær (= 43-45-47-51-53-55-57 lykkjur fyrir bakstykki) = 139-141-143-155-157-159-161 lykkjur í umferð. Nú er prjónað MYNSTUR jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar í annarri hverri umferð – lesið leiðbeiningar að ofan. Það eru prjónaðir kaðlar yfir framstykkið og tvöfalt perluprjón (= A.2) á ermum og bakstykki. Í stærð XS, S og M á að prjóna áfram eins og útskýrt er að neðan – í hinum stærðunum er prjónað áfram frá ALLAR STÆRÐIR: UMFERÐ 1: Prjónið 1 laskalykkju brugðið – munið eftir að auka út eins og útskýrt er í LASKALÍNA, prjónið A.1, prjónið A.2 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.4a, prjónið A.5 (= 32 lykkjur), prjónið A.4b, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.1, prjónið A.2 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir bakstykki fram að síðustu laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-0-0-0-0 sinnum (= 8-8-8-0-0-0-0 umferðir prjónaðar) = 171-173-175-155-157-159-161 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið mynstur og aukið út fyrir laskalínu – útauknar lykkjur eru prjónaðar í tvöföldu perluprjóni (= A.2), prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið 1 laskalykkju brugðið – munið eftir að auka út eins og útskýrt er í LASKALÍNA, prjónið A.1, prjónið A.2 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.1, prjónið A.4, prjónið A.5 (= 32 lykkjur), prjónið A.4, prjónið A.3, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.1, prjónið A.2 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.1, prjónið A.2 yfir bakstykki fram að síðustu laskalykkju (= 8 lykkjur fleiri). ATH. Í byrjun umferðar er aukið út á eftir lykkju með 1. merki og í lok umferðar er aukið út á undan lykkju með 1. merki. UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 25-29-32-38-39-40-41 sinnum (= 50-58-64-76-78-80-82 umferðir prjónaðar) – þegar A.1 og A.3 hefur verið prjónað til loka á hæðina heldur útaukningin áfram í tvöföldu perluprjóni (= A.2) = 371-405-431-459-469-479-489 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Síðan er einungis aukið út fyrir framstykki/bakstykki, prjónið þannig: UMFERÐ 1: * Prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið mynstur eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjóni mynstur eins og áður fram að næstu laskalykkju, aukið út 1 lykkju til hægri, * prjónið frá *-* 1 sinni til viðbótar (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-5-7-10-14 sinnum (= 10-10-12-10-14-20-28 umferðir prjónaðar) – munið eftir að það er aukið út í tvöföldu perluprjóni (= A.2) = 391-425-455-479-497-519-545 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 34-38-42-43-46-50-55 sinnum á framstykki/bakstykki og 29-33-36-38-39-40-41 sinnum á ermum. Prjónið mynstur eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-23-25-26-27-29-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 lykkju brugðið (= þessi lykkja tilheyrir bakstykki), setjið næstu 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-13-15-19-23-27-31 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 128-136-144-154-160-168-178 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-13-15-19-23-27-31 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 112-122-132-138-146-156-168 lykkjur eins og áður (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 263-285-307-331-353-379-409 lykkjur. Prjónið mynstur eins og áður – nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og laskalykkjur eiga að prjónast í tvöföldu perluprjóni (= A.2), stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan – stillið af að það sé ekki snúningur í kaðli í síðustu umferðinni. Skiptið yfir á hringprjón 2 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 25-27-29-35-37-41-47 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 (lykkjur eru ekki auknar út yfir kaðla á framstykki) = 288-312-336-366-390-420-456 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 11-13-15-19-23-27-31 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 86-96-104-112-118-124-130 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð ca fyrir miðju undir ermi. Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferðina ca fyrir miðju undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki yfir á ermi – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í tvöföldu perluprjóni (= A.7) þannig að mynstrið passið við mynstur á ermi. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2-2-1½-1½-1 cm alls 10-14-17-19-21-23-25 sinnum = 66-68-70-74-76-78-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-38-37-37-36-33 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-86-88-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-40-39-39-38-35 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitehivesweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 24 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.