Tanja skrifaði:
I stickbeskrivningen till tröja 271.26, sid 5, stycket "alla storlekar" hänvisas man att sticka mönster A.9. Det mönstret finns inte med i beskrivningen.
07.11.2026 - 22:05DROPS Design svaraði:
Hei Tanja. Oppskriften er oversendt Design avd. slik at de kan ta en dobbeltsjekk og komme evnt komme med en rettelse. mvh DROPS Design
09.11.2026 - 11:43
Pascale skrifaði:
Dans ce modèle, je ne trouve pas le diagramme A .4a et b pour les tailles L,XL,XXL
02.11.2026 - 17:44DROPS Design svaraði:
Bonjour Pascale, ces diagrammes A.4a et A.4b ne se tricotent qu'en taille XS, S et M, raison pour laquelle il n'y en a pas pour les autres tailles. Autrement dit, vous passez dans ces tailles directement au paragraphe TOUTES LES TAILLES. Bon tricot!
03.11.2026 - 10:14
Anne Margrete Larsen skrifaði:
Ser godt ud
26.09.2026 - 17:41
White Hive Cardigan#whitehivecardigan |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS BabyMerino eða DROPS Flora. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með laskalínu, köðlum, perluprjóni og kantlista að framan í klukkuprjóni og i-cord. Stærð XS – XXXL.
DROPS 271-26 |
||||||||||||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.8. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Mundu að mynsturteikning er lesin frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL HÆGRI Á UNDAN LASKALYKKJU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinni fyrir neðan, þráðurinn er tekinn upp aftan frá og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. AUKIÐ ÚT 1 LYKKJU TIL VINSTRI Á EFTIR LASKALYKKJU: Notið vinstri prjón til að taka upp þráðinn á milli 2 lykkja frá umferðinn fyrir neðan, þráðurinn er tekinn upp að framan og lykkjan er prjónuð slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn. Prjónið síðan nýjar lykkjur inn í mynstur. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 7-7-7-7-8-8-8 næstu hnappagötum með ca 6½-7-7-7½-6½-7-7½ cm á milli hverra hnappagata. Neðsta hnappagatið er staðsett í skiptingunni fyrir stroff á fram- og bakstykki. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 2 lykkjur fyrir miðju undir ermi með því að prjóna 3 lykkjur slétt saman (= 2 lykkjur færri) – stillið af að úrtakan passi við mynstur þannig að hún fylgi merkiþræði ca fyrir miðju undir ermi. ATH: Þegar perluprjón er prjónað í hring, er eðlilegt að áferðin vindi aðeins uppá sig þegar prjónað er. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður. Kaðlar eru einungis prjónaðir á framstykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 139-141-143-153-155-157-163 lykkjur á hringprjón 2 með DROPS Baby Merino eða DROPS Flora. Prjónið stroff fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 lykkju brugðið, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir, endið með 2 lykkjur brugðið. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið A.1 (= 9 kantlykkjur að framan), prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og A.2 (= 9 kantlykkjur að framan). UMFERÐ 3 (= ranga): Prjónið A.2 (= 9 kantlykkjur að framan), prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 10 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og A.1 (= 9 kantlykkjur að framan). Prjónið UMFERÐ 2 og 3 þar til stykkið mælist 2½-2½-2½-2½-3-3-3 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 3. Í næstu umferð eru sett 4 merki í umferð – merkin eru sett í lykkju sem eru kallaðar laskalykkjur. Laskalykkjurnar eru alltaf prjónaðar brugðið frá réttu og slétt frá röngu og sitja í skiptingunni á milli framstykkja/bakstykkis og erma. Jafnframt eru lykkjur auknar út jafnt yfir með uppslætti á framstykkjum og bakstykki sem útskýrt er að neðan – í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn svo ekki myndist gat. Prjónið fyrstu umferð frá röngu þannig: Prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður (= A.2), prjónið brugðið yfir næstu 21-21-21-25-25-25-27 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 7-7-7-7-7-7-5 lykkjur jafnt yfir þær (= 28-28-28-32-32-32-32 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið 17 lykkjur brugðið (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið brugðið yfir næstu 41-43-45-47-49-51-53 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 2-2-0-2-2-2-2 lykkjur jafnt yfir þær (= 43-45-45-49-51-53-55 lykkjur fyrir bakstykki), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið 17 lykkjur brugðið (= ermi), prjónið 1 lykkju slétt og setjið 1 merki í þessa lykkju (= laskalykkja), prjónið brugðið yfir næstu 21-21-21-25-25-25-27 lykkjur jafnframt sem aukið er út um 7-7-7-7-7-7-5 lykkjur jafnt yfir þær (= 28-28-28-32-32-32-32 lykkjur fyrir framstykki), prjónið 9 kantlykkjur að framan eins og áður (= A.1) = 155-157-157-169-171-173-175 lykkjur í umferð. Nú er prjónað MYNSTUR jafnframt sem aukið er út fyrir LASKALÍNA í hverri umferð frá réttu – lesið leiðbeiningar að ofan (= 8 lykkjur fleiri). Það eru prjónaðir kaðlar yfir framstykkin og tvöfalt perluprjón (= A.7) á ermum og bakstykki. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan. Í stærð XS, S og M á síðan að prjóna eins og útskýrt er að neðan – í hinum stærðum er síðan prjónað frá ALLAR STÆRÐIR: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.1), prjónið A.3 (= 15 lykkjur), prjónið A.4a, prjónið 1 laskalykkju brugðið – munið eftir að auka út eins og útskýrt er í LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.4b, prjónið A.8 (= 15 lykkjur), prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.2). Aukið hefur verið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.2), prjónið A.8, prjónið A.4b, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.4a, prjónið A.3, prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.1). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 4-4-4-0-0-0-0 sinnum (= 8-8-8-0-0-0-0 umferðir prjónaðar) = 187-189-189-169-171-173-175 lykkjur í umferð. ALLAR STÆRÐIR: Prjónið mynstur og aukið út fyrir laskalínu (útauknar lykkjur eru prjónaðar í tvöfalt perluprjón), prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.1), prjónið A.3 (= 15 lykkjur), prjónið A.4 (= 16 lykkjur), prjónið A.5, prjónið 1 laskalykkju brugðið – munið eftir að auka út eins og útskýrt er í LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjur, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.6, prjónið A.7 fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.6, prjónið A.4 (= 16 lykkjur), prjónið A.8 (= 15 lykkjur), prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.2). Aukið hefur verið út um 8 lykkjur fyrir laskalínu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.2), prjónið A.8, prjónið A.4, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju slétt, prjónið A.5, prjónið A.4, prjónið A.3, prjónið 9 kantlykkjur að framan (= A.1). Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 25-29-32-38-39-40-41 sinnum (= 50-58-64-76-78-80-82 umferðir prjónaðar) – þegar A.5 og A.6 hefur verið prjónað til loka á hæðina er haldið áfram að auka út í tvöföldu perluprjóni (= A.7) = 387-421-445-473-483-493-503 lykkjur í umferð. Síðan er einungis aukið út fyrir framstykkin/bakstykki, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið mynstur eins og áður fram að fyrstu laskalykkju, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið A.7 yfir bakstykki eins og áður fram að næstu laskalykkju, aukið út 1 lykkju til hægri, prjónið 1 laskalykkju brugðið, prjónið A.7 eins og áður fram að næstu laskalykkju, prjónið 1 laskalykkju brugðið, aukið út 1 lykkju til vinstri, prjónið mynstur eins og áður þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið kant að framan eins og áður. Aukið hefur verið út um 4 lykkju fyrir laskalínu. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan og mynstur eins og áður án þess að auka út. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 alls 5-5-6-5-7-10-14 sinnum (= 10-10-12-10-14-20-28 umferðir prjónaðar) – munið eftir að aukið er út í tvöföldu perluprjóni (= A.7) = 407-441-469-493-511-533-559 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu er nú lokið, aukið hefur verið út alls 34-38-42-43-46-50-55 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 29-33-36-38-39-40-41 sinnum á ermum. Prjónið mynstur og kant að framan eins og áður án þess að auka út, þar til stykkið mælist 20-23-25-26-27-29-32 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 72-76-80-85-88-92-97 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-13-15-19-23-27-31 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 113-123-131-137-145-155-167 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 11-13-15-19-23-27-31 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 72-76-80-85-88-92-97 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 279-301-321-345-367-393-423 lykkjur. Prjónið mynstur og kanta að framan eins og áður – nýjar lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi og laskalykkjur eiga að prjónast í tvöföldu perluprjóni (= A.2), stillið af að mynstrið haldi áfram frá berustykki yfir á fram- og bakstykki. Prjónið þar til stykkið mælist 47-49-51-53-55-57-59 cm frá merki fyrir miðju að framan – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Skiptið yfir á hringprjón 2 og prjónið stroff JAFNFRAMT sem aukið er út um 34-36-38-40-42-44-46 lykkjur jafnt yfir þannig: Prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 10 lykkjur eru eftir – munið eftir útaukningunni (ekki er aukið út yfir kaðla), prjónið 1 lykkju slétt og kant að framan eins og áður = 313-337-359-385-409-437-469 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-59-61 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 75-83-89-93-95-97-99 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 11-13-15-19-23-27-31 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 86-96-104-112-118-124-130 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð ca fyrir miðju undir ermi. Merkiþráðurinn er notaður þegar fækka á lykkjum undir ermi. Byrjið umferðina ca fyrir miðju undir ermi og haldið áfram með mynstur frá berustykki yfir á ermi – nýjar lykkjur undir ermi eru prjónaðar í tvöföldu perluprjóni (= A.7) þannig að mynstrið passið við mynstur á ermi. Þegar ermin mælist 1 cm frá skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í hverjum 3-2½-2-2-1½-1½-1 cm alls 10-14-17-19-21-23-25 sinnum = 66-68-70-74-76-78-80 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 42-40-39-38-38-36-34 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 8-8-10-10-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 74-76-80-84-86-88-90 lykkjur. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-42-41-40-40-38-36 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #whitehivecardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 271-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.