Inga-lill Augustsson skrifaði:
Måste man sticka uppifrån och ner? Varför kan man inte sticka på det vanliga sätte nerifrån och upp
25.10.2026 - 11:54DROPS Design svaraði:
Hei Inga-lill. Noen vil påstå at det vanliga sätte er nerifrån och upp, mens andre vil påstå det motsatte, vi prøver å tilfredstille alle våre brukere. Noen ønsker plagg som er strikket uppifrån och ner, andre nerifrån och upp. Denne modellen er valgt å skrive uppifrån och ner og vil da få den pene effekten til raglan økningen /fletten. Men du kan fint bruke vårt søke filter og søk på plagg som kun er strikket nerifrån och upp. mvh DROPS Design
26.10.2026 - 08:15
Red Autumn Cardigan#redautumncardigan |
|||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Big Merino eða DROPS Alaska. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 272-13 |
|||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn, öll útaukning er útskýrð í mynsturteikningu A.1 og A.2. í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan. Á UNDAN MERKI (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Á EFTIR MERKI (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.2. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr mitt í þessum 2 lykkjum), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – 1 hnappagat er gert þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir 7-7-7-8-8-8-8 hnappagötum þegar kantur að framan mælist 1 cm, hnappagötin eru staðsett með því að mæla frá neðri kanti á peysu í mismunandi stærðum þannig: XS: 4-11-19-26-33-41 og 48 cm. S: 4-12-20-27-35-43 og 50 cm. M: 4-12-20-28-36-44 og 52 cm. L: 4-12-19-26-33-40-47 og 54 cm. XL: 5-12-20-27-34-42-49 og 56 cm. XXL: 5-12-20-28-35-43-51 og 58 cm. XXXL: 5-13-21-29-37-45-53 og 60 cm. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og prjónaður er kantur að framan fram og til baka. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 91-93-99-101-107-109-115 lykkjur á hringprjón 3,5 með DROPS Big Merino eða DROPS Alaska. Fyrsta umferðin er frá röngu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið frá réttu þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-4-5-5-5 cm – síðasta umferðin er prjónuð frá röngu. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 5. Nú eru sett 4 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í lykkju, þessar lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í sléttprjóni. Teljið 15-15-17-17-19-19-21 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 2. merki í næstu lykkju, teljið 27-29-31-33-35-37-39 lykkjur (= bakstykki), setjið 3. merki í næstu lykkju, teljið 15 lykkjur (= ermi), setjið 4. merki í næstu lykkju, það eru eftir 15-15-17-17-19-19-21 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið sléttprjón og MYNSTUR fram og til baka með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið og aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar eins og útskýrt er í A.1 og A.2 – lesið leiðbeiningar að ofan með útskýringu hvernig auka á út. Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalínuna í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir á prjóni, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-9-10-11-12-12-12 sinnum (= 32-36-40-44-48-48-48 umferðir prjónaðar) = 219-237-259-277-299-301-307 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Aukið síðan einungis út fyrir framstykkin/bakstykkið, prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið sléttprjón þar til 2 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * prjónið sléttprjón þar til 3 lykkjur eru eftir á undan næsta merki, prjónið A.1, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið sléttprjón fram að næsta merki, prjónið laskalykkju í sléttprjóni, prjónið A.2 *, prjónið frá *-* alls 2 sinnum, prjónið sléttprjón þar til 1 lykkja er eftir í umferð, endið umferðina með 1 kantlykkju í garðaprjóni (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón og kantlykkjur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 3-3-3-3-3-4-5 sinnum (= 12-12-12-12-12-16-20 umferðir prjónaðar) = 243-261-283-301-323-333-347 lykkjur í umferð. Öll útaukning fyrir laskalínu hefur nú verið gerð til loka, aukið hefur verið út 22-24-26-28-30-32-34 sinnum á framstykkjum/bakstykki og 16-18-20-22-24-24-24 sinnum á ermum. Stykkið mælist ca 20-22-24-25-27-29-31 cm frá merki fyrir miðju að framan, prjónið e.t.v. sléttprjón og kantlykkjur eins og áður án þess að auka út að réttu máli. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið 37-39-43-45-49-51-55 lykkjur í sléttprjóni (= framstykki), setjið næstu 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 73-79-85-91-97-103-109 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 37-39-43-45-49-51-55 lykkjur í sléttprjón (= framstykki) og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Fram- og bakstykki og ermar er nú prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 165-179-193-207-225-243-261 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kantlykkjur í garðaprjóni eins og áður þar til stykkið mælist 44-46-48-50-51-53-55 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 20-22-24-26-28-30-32 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = = 185-201-217-233-253-273-293 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningunni þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 48-50-52-54-56-58-60 cm frá merki fyrir miðju að aftan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 47-51-55-59-63-63-63 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-10-12-14-18-20 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 55-61-65-71-77-81-83 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-10-12-14-18-20 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón hringinn í umferð – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptingunni, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi - lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan 2 lykkjur með 10-8-6-4-3-2½-2½ cm millibili 2-4-5-7-8-9-9 sinnum = 47-49-51-53-55-57-59 lykkjur í umferð. Prjónið síðan þar til ermin mælist 39-38-36-36-33-32-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 9 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 56-58-60-62-64-66-68 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 43-42-40-40-38-37-35 cm frá skiptingunni. KANTAR AÐ FRAMAN: Notið hringprjón 3,5. Byrjið með að prjóna upp 103-107-111-115-119-123-127 lykkjur frá réttu meðfram vinstra framstykki innan við 1 kantlykkju í garðaprjóni. Prjónið síðan fram og til baka þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Þegar stroffið mælist 3 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en þegar stroffið mælist 1 cm er fellt af fyrir 7-7-7-8-8-8-8 hnappagötum – lesið HNAPPAGAT í útskýringu að ofan. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
![]() |
|||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #redautumncardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 29 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 272-13
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.