Enguerrand skrifaði:
Bonjour Je suis en difficulté concernant l'empêchement. Il est inscrit "répéter 16 fois au total les rangs 3 et 4. Cela signifie t'il que le rang 3et4 font 1 fois ou rang 3 compte 1 r4 compte 2 c'est à dire 32 tours. Je ne sais pas si je suis claire. J'ai déjà trop de mail au tour 10. Merci de votre aide Cordialement. Christelle
03.11.2026 - 09:34
Silver Trail Sweater#silvertrailsweater |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu og köðlum. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-26 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. LASKALÍNA: Aukið út 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Öll útaukning er gerð frá réttu. Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Færið uppsláttinn frá vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið uppsláttinn til baka yfir á vinstri prjón með því að stinga vinstri prjóni inn aftan í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn slétt í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 192 lykkjur) og deilið lykkjum með fjölda útaukninga sem á að gera (t.d. 48) = 4. Í þessu dæmi er aukið út jafnt yfir með því að slá 1 sinni uppá prjóninn á eftir 4. hverja lykkju. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat. ATH: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá hægri öxl að aftan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við í hring á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 112-112-112-128-128-128-128 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Karisma eða DROPS Puna – passið uppá að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff í hring (= 2 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt) í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Byrjun umferðar er við hægri öxl að aftan. Setjið 1 merki eftir fyrstu 45-45-45-51-51-51-51 lykkjur (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í hvoru megin við 6 lykkjur, þessar 6 lykkjur eru auknar út til 7 lykkjur. Þessar 7 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Setjið 1. merki á undan 1. lykkju í byrjun umferðar, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= framstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 8. merki á undan næstu lykkju, það eru 22-22-22-26-26-26 lykkjur eftir á eftir síðasta merki (= bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón með mynstri yfir laskalykkjurnar – jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringuna að ofan um hvernig á að auka út og prjónið þannig: UMFERÐ 1: Prjónið A.1 á milli 1. og 2. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 3. og 4. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= framstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 5. og 6. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 7. og 8. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu = 124-124-124-140-140-140-140 lykkjur. UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. A.1 hefur nú verið prjónað til loka. UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur, en nú er prjónað A.2 á milli 1. og 2. merkis og á milli 5. og 6. merkis og A.3 á milli 3. og 4. merkis og á milli 7. og 8. merkis. Að aukið er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). ATH: Í byrjun umferðar er aukið út á eftir 2. merki og í lok umferðar er aukið út á undan 1. merki. UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 10-16-17-19-22-21-22 sinnum (= 22-34-36-40-46-44-46 umferðir prjónaðar á eftir kanti í hálsmáli) = 204-252-260-292-316-308-316 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1: Prjónið sléttprjón og mynstur og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar eins og áður (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykki og á bakstykki, þ.e.a.s. aukið út á EFTIR 4. og 8. merki og á UNDAN 5. og 1. merki – ekki er aukið út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4: Prjónið sléttprjón og mynstur eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-6-7-6-6-8-9 sinnum (= 32-24-28-24-24-32-36 umferðir prjónaðar = 8-6-7-6-6-8-9 sinnum útaukning á ermum og 16-12-14-12-12-16-18 sinnum útaukning á framstykki/bakstykki). JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 1 lykkju yfir hvern kaðal í laskalínunni (= 4 lykkjur færri og 6 laskalykkjur á milli merkja). Öll útaukning hefur nú verið gerð til loka, kaðlarnir hafa verið prjónaðir til loka, aukið hefur verið út alls 19-23-25-26-29-30-32 sinnum á ermum og 27-29-32-32-35-38-41 sinnum á framstykki/bakstykki = 296-320-340-360-384-400-420 lykkjur í umferð. Prjónið síðan í sléttprjóni hringinn yfir allar lykkjur þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykki/bakstykki, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið fyrstu 6-7-8-9-10-10-12 lykkjur í sléttprjóni (þessar lykkjur tilheyra bakstykki), setjið næstu 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 88-94-102-108-116-122-132 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 82-87-94-99-106-112-120 lykkjur í sléttprjóni (= bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 192-208-228-244-264-284-312 lykkjur. Setjið 1 merki í aðra hliðina á stykkinu (= fyrir miðju í 8-10-12-14-16-20-24 lykkjur sem fitjaðar voru upp undir ermi). Prjónið fram að merki, umferðin byrjar hér og prjónað er í hring. Prjónið sléttprjón þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Skiptið yfir á hringprjón 2,5, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 48-56-56-60-68-72-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 240-264-284-304-332-356-388 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hliðinni á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-80-86-92-98-102 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 3-6-6-7-9-10-11 sinnum með 2-2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili = 58-60-64-66-68-70-72 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 36-36-35-33-32-31-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-24-24-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 80-84-88-88-92-96-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-10-10-10-10 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-44-43-43-42-41-40 cm frá skiptingunni. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silvertrailsweater eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 25 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-26
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.