Heike skrifaði:
Hallo... Wenn ich das Muster A.2 und A.3 arbeite und insgesamt 22x das Muster stricke,dann sind es doch mehr als 46 gestrickte Reihen am Schluss. Oder stricke ich die Muster falsch?
18.10.2026 - 16:06DROPS Design svaraði:
Liebe Heike, man soll hier die 3. Reihe + die 4. Reihe (= die Zunahmen wie erklärt bei diesen 2 Reihen) stricken/wiederholen aber A.2 und A.3 stricken Sie wie gezeigt, dh jeweils 4 Reihen, so für diese 46 Reihen haben Sie 46/4=11,5 Rapporte in der Höhe. Viel Spaß beim STricken!
19.10.2026 - 11:03
Silver Trail Cardigan#silvertrailcardigan |
||||||||||||||||
![]() |
![]() |
|||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Karisma eða DROPS Puna. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með laskalínu, köðlum og i-cord. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-25 |
||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. KANTLYKKJUR AÐ FRAMAN MEÐ I-CORD: Í BYRJUN UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt og 5 lykkjur í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan. Í LOK UMFERÐAR: Prjónið kantlykkjur að framan þannig (= 7 lykkjur): Prjónið þar til 7 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 5 lykkjur í garðaprjóni, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt. Prjónið á sama hátt bæði frá réttu og frá röngu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan (séð þegar flíkin er mátuð). Fellið af frá réttu þegar 5 lykkjur eru eftir í umferð þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja slétt, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið, 1 lykkja slétt. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið kant að framan eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir fyrsta hnappagatinu í fyrstu umferð frá réttu eftir að kantur í hálsmáli hefur verið prjónaður til loka. Fellið síðan af fyrir 6 næstu hnappagötum með ca 7-7½-8-8-8-8½-9 cm á milli hverra hnappagata. Stillið af að neðsta hnappagatið sé staðsett í skiptingunni á milli sléttprjóns og stroffs á fram- og bakstykki. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 til A.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. LASKALÍNA: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð frá röngu er uppslátturinn prjónaður eins og útskýrt er að neðan: Á UNDAN LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til vinstri): Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur aftan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. Á EFTIR LASKALYKKJU (= uppslátturinn snýr til hægri): Lyftið uppslættinum af vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið, setjið til baka uppsláttinn yfir á vinstri prjóninn með því að stinga inn vinstri prjóni aftan frá í uppsláttinn (uppslátturinn er núna snúinn). Prjónið uppsláttinn brugðið í lykkjubogann sem liggur framan við prjóninn – svo ekki myndist gat. Prjónið nýjar lykkjur í sléttprjóni. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Þegar lykkjur eru auknar jafnt út í skiptingunni yfir í stroff, þá verður útaukningin jafnari ef aukið er út þar sem lykkjurnar verða síðan prjónaðar brugðið, sléttprjónuðu lykkjurnar koma þá til með að halda fallega áfram yfir í stroffið. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráðinn þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir laskalínu. Þegar berustykkið hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykkið er prjónað til loka niður á við fram og til baka á hringprjóna, á meðan ermar eru látnar bíða. Síðan eru ermar prjónaðar niður á við í hring. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 124-124-124-144-144-144-144 lykkjur á hringprjón 2,5 með DROPS Karisma eða DROPS Puna. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 7 kantlykkjur að framan MEÐ I-CORD – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) þar til 9 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 2 lykkjur slétt og 7 kantlykkjur að framan með i-cord. Haldið svona áfram með stroff í 4-4-4-4-5-5-5 cm. Setjið 1 merki innan við kant að framan í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykkið er mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Prjónið síðan með hringprjón 4. Nú eru sett 8 merki í stykkið án þess að prjóna lykkjurnar, merkin eru sett í hvoru megin við 6 lykkjur, þessar 6 lykkjur eru auknar út til 7 lykkjur í fyrstu umferð í mynstri. Þessar 7 lykkjur eru kallaðar fyrir laskalykkjur og auka á út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar. Laskalykkjurnar eru prjónaðar í MYNSTUR – lesið leiðbeiningar að ofan. Teljið 17-17-17-21-21-21-21 lykkjur (= vinstra framstykki), setjið 1. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 2. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= ermi), setjið 3. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 4. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= bakstykki), setjið 5. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 6. merki á undan næstu lykkju, teljið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur (= ermi), setjið 7. merki á undan næstu lykkju, teljið 6 lykkjur (= laskalykkjur), setjið 8. merki á undan næstu lykkju. Það eru 17-17-17-21-21-21-21 lykkjur eftir á prjóni fyrir hægra framstykki. Prjónið síðan sléttprjón með 7 kantlykkjur að framan í hvorri hlið eins og áður og mynstri yfir laskalykkjurnar. Jafnframt er aukið út fyrir LASKALÍNA hvoru megin við laskalykkjurnar – lesið útskýringuna að ofan um hvernig á að auka út og prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið kant að framan eins og áður, 10-10-10-14-14-14-14 lykkjur slétt, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 1. og 2. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 3. og 4. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= bakstykki), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 5. og 6. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 22-22-22-26-26-26-26 lykkjur slétt (= ermi), aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið A.1 á milli 7. og 8. merkis, aukið út 1 lykkju fyrir laskalínu, prjónið 10-10-10-14-14-14-14 lykkjur slétt og prjónið kant að framan eins og áður – munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – lesið leiðbeiningar að ofan = 136-136-136-156-156-156-156 lykkjur. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður eins og útskýrt er í LASKALÍNA. A.1 hefur nú verið prjónað til loka. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður, en nú er prjónað A.2 á milli 1. og 2. merkis og á milli 5. og 6. merkis og A.3 á milli 3. og 4. merkis og á milli 7. og 8. merkis. Að auki er aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður – munið eftir að uppslátturinn er prjónaður snúinn eins og útskýrt er í LASKALÍNA. Prjónið UMFERÐ 3 og 4 alls 10-16-17-19-22-21-22 sinnum (= 22-34-36-40-46-44-46 umferðir prjónaðar á eftir kanti í hálsmáli) = 216-264-272-308-332-324-332 lykkjur í umferð. Munið að fylgja prjónfestunni. Prjónið síðan og aukið út fyrir laskalínu þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu hvoru megin við laskalykkjurnar (= 8 lykkjur fleiri). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður og aukið út fyrir laskalínu á framstykkjum og á bakstykki, þ.e.a.s. á UNDAN 1. og 5. merki og á EFTIR 4. og 8. merki – lykkjur eru ekki auknar út á ermum (= 4 lykkjur fleiri). UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið sléttprjón, mynstur og kanta að framan eins og áður (uppslátturinn er prjónaður eins og áður). Prjónið UMFERÐ 1 til 4 alls 8-6-7-6-6-8-9 sinnum (= 32-24-28-24-24-32-36 umferðir prjónaðar = 8-6-7-6-6-8-9 sinnum útaukning á ermum og 16-12-14-12-12-16-18 sinnum útaukning á framstykkjum/bakstykki). JAFNFRAMT í síðustu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju yfir hvern kaðal í laskalínum (= 4 lykkjur færri og 6 laskalykkjur á milli merkja). Öll útaukning fyrir laskalínu hefur verið gerð til loka, kaðlar hafa verið prjónaðir til loka, aukið hefur verið út alls 19-23-25-26-29-30-32 sinnum á ermum og 27-29-32-32-35-38-41 sinnum á framstykkjum/bakstykki = 308-332-352-376-400-416-436 lykkjur í umferð. Prjónið síðan sléttprjón yfir allar lykkjur með 7 kantlykkjum að framan í hvorri hlið eins og áður þar til stykkið mælist 20-21-23-23-25-27-29 cm frá merki fyrir miðju að framan. Nú skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: Þegar stykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar koma laskalykkjurnar til með að vera staðsettar aðeins inn á framstykkin/bakstykkið, þ.e.a.s. JAFNFRAMT því sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 7 kantlykkjur að framan eins og áður, prjónið 43-46-50-55-59-62-67 lykkjur sléttprjón (= framstykki), setjið næstu 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 88-94-102-108-116-122-132 lykkjur sléttprjón (= bakstykki), setjið næstu 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið 43-46-50-55-59-62-67 lykkjur í sléttprjóni og 7 kantlykkjur að framan eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 204-220-240-260-280-300-328 lykkjur. Prjónið sléttprjón og kanta að framan eins og áður þar til stykkið mælist 43-45-47-47-49-51-53 cm frá merki fyrir miðju að framan. Í næstu umferð frá réttu byrjar stroff JAFNFRAMT því sem aukið er út um 52-56-56-60-64-72-76 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 256-276-296-320-344-372-404 lykkjur, prjónið þannig: Skiptið yfir á hringprjón 2,5 og prjónið kant að framan eins og áður, prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið – munið eftir útaukningunni) þar til 9 lykkjur eru eftir, prjónið 2 lykkjur slétt og kant að framan eins og áður. Þegar stroffið mælist 4-4-4-5-5-5-5 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 47-49-51-52-54-56-58 cm frá merki fyrir miðju að framan og ca 52-54-56-58-60-62-64 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 60-66-68-72-76-78-78 lykkjur af þræði frá ermi í annarri hliðinni á stykki á hringprjón/sokkaprjóna 4 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-10-12-14-16-20-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp í hlið undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 68-76-80-86-92-98-102 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð mitt í 8-10-12-14-16-20-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn. Prjónið sléttprjón í hring – JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð á eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur 2-2-2-3-3-4-4 sinnum í annarri hverri umferð, síðan er fækkað um 2 lykkjur 3-6-6-7-9-10-11 sinnum með 2-2-2-2-1½-1½-1½ cm millibili = 58-60-64-66-68-70-72 lykkjur í umferð. Prjónið þar til ermin mælist 36-36-35-33-32-31-30 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 22-24-24-22-24-26-28 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 80-84-88-88-92-96-100 lykkjur. Þegar stroffið mælist 8-8-8-10-10-10-10 cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Ermin mælist ca 44-44-43-43-42-41-40 cm frá skiptingunni. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstra framstykki. |
||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||
|
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
![]() |
||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #silvertrailcardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 31 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-25
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.