Northern Mosaic Cardigan#northernmosaiccardigan |
|||||||||||||||||||
![]() |
![]() |
||||||||||||||||||
Prjónuð peysa úr DROPS Merino Extra Fine. Stykkið er prjónað ofan frá og niður í sléttprjóni með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð XS - XXXL.
DROPS 273-27 |
|||||||||||||||||||
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. UPPHÆKKUN (aftan í hnakka): Til þess að peysan verði aðeins hærri aftan í hnakka þegar berustykkið er prjónað, er hægt að prjóna upphækkun eins og útskýrt er að neðan. Hoppið yfir þennan kafla ef ekki er óskað eftir upphækkun. Setjið 1 merki fyrir miðju í umferð (= miðja að aftan). Byrjið frá réttu og prjónið eins og áður þar til prjónaðar hafa verið 12-13-14-15-15-16-17 lykkjur fram hjá merki fyrir miðju að aftan, snúið stykkinu – lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-1 og prjónið 24-26-28-30-30-32-34 brugðið. Snúið stykkinu og prjónið 36-39-42-45-45-48-51 lykkjur slétt, snúið og prjónið 48-52-56-60-60-64-68 lykkjur brugðið. Snúið og prjónið 60-65-70-75-75-80-85 lykkjur slétt, snúið og prjónið 72-78-84-90-90-96-102 lykkjur brugðið. Snúið stykkinu og prjónið slétt út umferðina (kantlykkjan er prjónuð eins og áður), snúið og prjónið 1 umferð brugðið (kantlykkjur eru prjónaðar eins og áður). Prjónið síðan berustykkið hringinn eins og útskýrt er í uppskrift. LEIÐBEININGAR PRJÓN-1: Þegar prjónaðar eru stuttar umferðir myndast lítið gat þegar stykkinu er snúið við – hægt er að loka þessu gati með því að herða á þræði eða nota aðferðina German Short Rows þannig: Lyftið fyrstu lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið með þráðinn framan við stykkið. Leggið síðan þráðinn yfir hægri prjón og herðið vel á þræði á bakhlið (þannig verða til tvær lykkjur á prjóninum). Þessar lykkjur eru prjónaðar saman í næstu umferð. LEIÐBEININGAR PRJÓN-2: Til að koma í veg fyrir að stykkið missi teygjanleika þar mynsturprjón er prjónað, er mikilvægt að herða ekki á þráðum á bakhlið á stykki. Skiptið e.t.v. yfir á grófari prjóna þegar mynstrið er prjónað. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1 og A.2. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni. Veldu mynsturteikningu fyrir þína stærð. Mynsturteikning er lesin frá hægri til vinstri þegar prjónað er frá réttu og frá vinstri til hægri þegar prjónað er frá röngu. LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING: Til þess að reikna út hvernig auka eigi jafnt út, teljið fjölda lykkja í umferð (t.d. 105 lykkjur), mínus 7 lykkjur í hvorri hlið sem ekki á að auka út yfir (= 14 lykkjur) og deilið þeim 91 lykkjum sem eftir eru með fjölda útaukninga sem á að gera (= 18 lykkjur) = 5,1. Í þessu dæmi er aukið út í ca 5. hverja lykkju (ekki er aukið út yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið) – aukið út þannig: Þessi samhverfa útaukning býr til 1 nýja lykkju. Fylgdu leiðbeiningum 1 - 4 að neðan: 1. Haldið þræðinum sem prjónað er með aftan við stykkið. Lyftið fyrstu lykkju á vinstri prjóni yfir á hægri prjón eins og prjóna eigi brugðið. 2. Stingið vinstri prjóni aftan við lyftu lykkjuna og inn á milli lyftu lykkjunnar og næstu lykkju á hægri prjóni. 3. Sláið 1 sinni uppá hægri prjón með þræðinum sem prjónað er með og dragið uppsláttinn í gegnum lykkjuna þannig að það myndast 1 ný lykkja á hægri prjóni. 4. Sleppið fremri lykkjuboganum af vinstri prjóni og prjónið síðan 1 lykkju slétt í fremri hlutann á hinum lykkjuboganum. Nú hefur þú aukið út um 1 lykkju. LEIÐBEININGAR ERMI: Þegar prjónaðar eru upp lykkjur fyrir miðju undir erminni getur myndast lítið gat í skiptingunni á milli lykkja á fram- bakstykki og ermi. Hægt er að loka þessu gati með því að taka upp þráðinn á milli tveggja lykkja - þráðurinn er prjónaður snúinn saman með fyrstu lykkjunni á milli fram- og bakstykkis og erma, þannig að gatið lokist. LEIÐBEININGAR ÚRTAKA: Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við merkiþráð þannig: Prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á undan merkiþræði, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 4 lykkjur slétt (merkiþráðurinn situr á milli þessa 4 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (= 2 lykkjur færri). HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu – 1 hnappagat er gert þannig: UMFERÐ 1 (= rétta): Sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt saman (passið uppá að þessar 2 lykkjur séu 1 lykkja brugðið yst á vinstri prjóni og 1 lykkja slétt sem næsta lykkja á vinstri prjóninum þegar þær eru prjónaðar slétt saman). UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið stroff eins og áður og prjónið uppsláttinn slétt, svo það myndist hnappagat. Fellið af fyrir 7-7-7-7-7-8-8 næstu hnappagötum jafnt yfir þegar kantur að framan mælist ca 1½ cm. Efsta hnappagatið er staðsett 2 cm frá kanti efst, neðsta hnappagatið er staðsett ca 4-4-4-4-5-5-5 cm frá neðri kanti. Þau 5-5-5-5-5-6-6 hnappagöt sem eru eftir eru staðsett með ca 7½-8-8½-8½-9-8-8 cm millibili á milli hnappagata. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Í uppskriftinni eru notaðir prjónar af mismunandi lengd, byrjað er á þeirri lengd sem hentar fjölda lykkja og breyttu eftir þörfum. Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan og prjónað er ofan frá og niður með útaukningu fyrir berustykki. Þegar berustykki hefur verið prjónað til loka, skiptist stykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað til loka niður á við fram og til baka, á meðan ermarnar bíða. Síðan eru ermarnar prjónaðar niður á við í hring. Í lokin eru lykkjur prjónaðar upp meðfram framstykkjum og prjónaður er kantur að framan fram og til baka. Ef það stendur 0 í valinni stærð, þá þýðir það að hoppað er yfir leiðbeiningar fram að næstu leiðbeiningum. KANTUR Í HÁLSMÁLI: Fitjið upp 105-107-113-117-121-125-131 lykkjur á hringprjón 2,5 með litnum Ljós Beige í DROPS Merino Extra Fine – notið e.t.v. ítalska uppfitjun. Fyrsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 lykkja í GARÐAPRJÓN – lesið leiðbeiningar að ofan, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið), þar til 2 lykkjur eru eftir í umferð, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til kantur í hálsmáli mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm og næsta umferð er prjónuð frá réttu. Setjið 1 merki innan við 1 lykkju í garðaprjóni í annarri hliðinni á stykki (= miðja að framan), stykkið er nú mælt frá þessu merki. BERUSTYKKI: Skipið yfir í hringprjón 3,5 og prjónið fyrstu umferð frá réttu með byrjun frá miðju að framan þannig: Prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, 6 lykkjur sléttprjón, prjónið 91-93-99-103-107-111-117 lykkjur sléttprjón jafnframt sem aukið er út um 18-22-24-24-26-26-30 lykkjur jafnt yfir þessar lykkjur – lesið LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING, prjónið 6 lykkjur sléttprjón og 1 lykkju í garðaprjóni = 123-129-137-141-147-151-161 lykkjur í umferð. Nú er prjónuð UPPHÆKKUN aftan í hnakka – sjá útskýringu að ofan. Þegar upphækkunin er tilbúin, prjónið þá berustykkið eins og útskýrt er hér að neðan. Ef þú vilt ekki hafa upphækkun, prjónaðu þá eins og útskýrt er að neðan. Prjónið sléttprjón með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið að fylgja prjónfestunni. Þegar berustykkið mælist 3-3-3-3-4-4-4 cm frá merki, aukið út 36-38-38-40-42-46-48 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir ystu 7 lykkjur í hvorri hlið) = 159-167-175-181-189-197-209 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 5-5-6-6-7-8-8 cm frá merki, aukið út 44-44-44-46-46-54-58 lykkjur jafnt yfir – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING = 203-211-219-227-235-251-267 lykkjur. Í næstu umferð frá réttu er prjónað MYNSTUR – lesið útskýringu að ofan, lesið LEIÐBEININGAR PRJÓN-2 og prjónið næstu umferð þannig: 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið A.1 þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið A.2 og 1 lykkja í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í hverri umferð merktri með ör í A.1 á að auka út lykkjur jafnt yfir eins og útskýrt er að neðan – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir ystu 7 lykkjurnar í hvorri hlið): Ör-1: Aukið út um 48-48-48-56-56-64-64 lykkjur jafnt yfir = 251-259-267-283-291-315-331 lykkjur. Ör-2: Aukið út um 24-24-32-40-40-48-48 lykkjur jafnt yfir = 275-283-299-323-331-363-379 lykkjur. Ör-3: Aukið út um 24-24-24-32-32-32-40 lykkjur jafnt yfir = 299-307-323-355-363-395-419 lykkjur – gætið þess að útaukningin í þessari umferð skemmi ekki sjálft blaðið í mynstrinu. Ör-4: Aukið út 24-24-24-24-24-32-32 lykkjur jafnt yfir = 323-331-347-379-387-427-451 lykkjur. Þegar berustykkið mælist 20-21-22-23-24-25-27 cm frá merki við miðju að framan, skiptið stykkinu í fram- og bakstykki og ermar. Haldið áfram með A.1 og A.2 á fram- og bakstykki og ermum, passið upp á að útaukningarnar hafa verið prjónaðar til loka áður en stykkinu er skipt. SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR: JAFNFRAMT sem næsta umferð er prjónuð, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar þannig: Prjónið 49-51-55-59-61-67-73 lykkjur eins og áður (= framstykki), setjið næstu 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-8-12-16-16-20-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi), prjónið 97-101-109-117-121-133-145 lykkjur eins og áður (= bakstykki), setjið næstu 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 8-16-16-16-24-24-24 nýjar lykkjur í umferð (= í hlið fyrir miðju undir ermi) og prjónið síðustu 49-51-55-59-61-67-73 lykkjur eins og áður (= framstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað hvert fyrir sig. FRAM- OG BAKSTYKKI: = 211-235-251-267-291-315-339 lykkjur. Haldið áfram með mynstur frá berustykki, þ.e.a.s. prjónið A.1 og A.2 fram og til baka eins og áður með 1 lykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH: Ef stykkinu er skipt upp í miðjum mynsturbekk, er ekki víst að mynstrið gangi jafnt upp í hliðum fyrir miðju undir ermum, en haldið áfram með mynstur frá berustykki eins langt og hægt er að merki fyrir miðju undir hvorri ermi. Næsti mynsturbekkur kemur til með aðganga jafnt upp yfir allar lykkjur. Þegar A.1 og A.2 hefur verið prjónað til loka áhæðina, prjónið síðan sléttprjón með litnum Ljós Beige. Prjónið þar til stykkið mælist ca 45-47-49-51-52-53-55 cm frá merki við miðju að framan Í næstu umferð frá réttu byrjar stroffið JAFNFRAMT sem aukið er út um 42-46-50-52-58-62-66 lykkjur jafnt yfir í umferð – munið eftir LEIÐBEININGAR ÚTAUKNING (ekki er aukið út yfir kantlykkjur) = 253-281-301-319-349-377-405 lykkjur, prjónið þannig: Skipið yfir í hringprjón 2,5, prjónið 1 lykkju í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið – munið eftir útaukningu) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið þar til stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Peysan mælist 49-51-53-55-57-58-60 cm frá merki við miðju að framan og ca 54-56-58-60-62-64-66 cm frá toppi á öxl. ERMAR: Setjið 64-64-64-72-72-80-80 lykkjur frá ermi frá öðrum þræðinum á hringprjón 3,5 og prjónið einnig upp 1 lykkju í hverja af 8-16-16-16-24-24-24 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ERMI = 72-80-80-88-96-104-104 lykkjur. Setjið 1 merkiþráð fyrir miðju í 8-16-16-16-24-24-24 nýjar lykkjur undir ermi – umferðin byrjar við merkiþráðinn og prjónað er í hring. Prjónið mynstur frá berustykki yfir lykkjur á ermi. JAFNFRAMT þegar prjónuð hefur verið 1 umferð eftir skiptinguna, fækkið lykkjum fyrir miðju undir ermi – lesið LEIÐBEININGAR ÚRTAKA og fækkið lykkjum þannig: Fækkið um 2 lykkjur í annarri hverri umferð 2-2-2-2-3-3-3 sinnum, fækkið síðan um 2 lykkjur í öðrum hverjum cm 0-2-2-4-7-9-9 sinnum – mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp fyrir miðju undir ermi þegar lykkjum er fækkað = 68-72-72-76-76-80-80 lykkjur í umferð. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka á hæðina er prjónað í sléttprjóni með litnum Ljós Beige þar til ermin mælist 42-42-41-41-39-40-38 cm frá skiptingunni. Skiptið yfir á sokkaprjóna 2,5 og prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) JAFNFRAMT sem aukið er út um 14-14-14-16-16-16-16 lykkjur jafnt yfir í umferð 1 = 82-86-86-92-92-96-96 lykkjur. Þegar stroffið mælist 4-4-4-4-5-5-5 cm, fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur – eða fellið af með ítalskri affellingu. Ermin mælist ca 46-46-45-45-44-45-43 cm frá skiptingunni. VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN: Byrjið frá réttu og prjónið upp lykkjur meðfram öllu vinstra framstykkinu innan við 1 lykkju í garðaprjóni á hringprjón 2,5 með litnum Ljós Beige, þannig: Prjónið upp ca 134-142-146-152-160-162-168 lykkjur (þetta samsvarar ca. 26 lykkjum á hverja 10 cm meðfram kanti - fjöldi lykkja á að vera deilanlegur með 2). Prjónið þannig: UMFERÐ 1 (= ranga): 1 lykkja í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja brugðið og 1 lykkja slétt) þar til 3 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju brugðið og 2 lykkjur í garðaprjóni. UMFERÐ 2 (= rétta): 2 lykkjur í garðaprjóni, prjónið stroff (= 1 lykkja slétt og 1 lykkja brugðið) þar til 2 lykkjur eru eftir, prjónið 1 lykkju slétt og 1 lykkju í garðaprjóni. Prjónið UMFERÐ 1 og 2 þar til kantur að framan mælist 3-3-3-3-3-3½-3½ cm. Fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur eða fellið af með ítalskri affellingu. HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN: Prjónið upp lykkjur á sama hátt meðfram hægra framstykki og prjónið eins og vinstri kantur að framan, en með 2 lykkjur í garðaprjóni upp að hálsmáli og 1 lykkju í garðaprjóni að neðri kanti. Þegar kantur að framan mælist ca 1½ cm, fellið af fyrir 7-7-7-7-7-8-8 hnappagötum jafnt yfir – lesið HNAPPAGAT að ofan. Eftir hnappagötin heldur kanturinn að framan á sama hátt og vinstri kantur að framan. Fellið af á sama hátt og á vinstri kanti að framan. FRÁGANGUR: Saumið tölur í vinstri kant að framan. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
![]() |
|||||||||||||||||||
Ertu búin að klára þetta mynstur?Merktu myndirnar þínar með #dropspattern #northernmosaiccardigan eða sendu þær inn í #dropsfan gallery. Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur 32 kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2026 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
|||||||||||||||||||
Skrifaðu athugasemd um DROPS 273-27
Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!
Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.